Alþýðublaðið - 15.01.1960, Blaðsíða 14
Fjármagn
Framhald af 13. síðu.
'Verkefnin eru mörg og
verða þau ekki talin að þessu
sinni. En minna má þó á salt-
vinnslu og sjóefnaverksmiðju,
heymjölsverksmiðju, sem og
betri nýtingu sjávarafurða, t.
d. niðursuðu og lýsi til lyfja-
gerðar svo eitthvað sé nefnt.
Hvenær hægt verður að
hefjast handa um nýjar fram-
kvæmdir með erlendu fé og
aðstoðar erlendra sérmennt-
aðra manna, sem og fjármála-
manna veit ég ekki. Á því
verður víst nokkur bið.
Reynslan hefur hingað til
verið sú, að margir tala um
þessa hluti, en ef eitthvað á
að fara að gera, þá er allt ó-
mögulegt. — Má nefna í þessu
sambandi tómlæti forráða-
manna þjóðarinnar um notk-
un hverahitans í lækninga-
skyni. — Margir merkir vís-
indamenn hafa í nokkur ár
athugað og rannsakað þetta
mál, —gert um það skýrslur
og tillögur, sem sendar hafa
verið heilbrigðisráðherrum
og ýmsum öðrum áhr famönn-
um, en enginn hefur sinnt
þessu hið minnsta hót. —
Samt er hér um merkilegt
velferðarmál að ræða, sem
mun geta hjálpað mörgum,
þegar framkvæmt verður. að
ekki sé talað um fjárhagslega
þýðing uþess fyrir fámenna
þjóð.
Því miður er þetta þannig í
landinu. Tómlætið situr í fyr-
írrúmi. En þrátt fyrir allt þá
■ verður aldrei hægt til lengd-
ar að stemma stigu fyrir þró-
uninni, fjármagnið kemur —
framkvæmdir verða hafnar
— til þess þarf breyttan hugs-
unarhátt og á ýmsum sviðum
aðra forráðamenn. — Okltur
vantar tilfinnanlega menn,
sem hugsa líka fyrir þjóðina
í heild.
Gísli Sigurbjörnsson.
Betty
Allen
syngur
'BANDARÍSKA söngkonan
Betty Allen heldur síðustu tón-
‘leika sína næstkomandi föstu-
dag. Tónleikarnir verða haldnir
í Austurbæjarbíói, og gefst al-
menningi kostur á að sækja
þessa tónleika. Á efnisskránni,
sem er ný, eru lög meðal ann-
ars eftir Dvorag, Hugo Wolf og
Verdi.
Söngkonan. hefur haldið
tvenna tónleika fyrir styrktar-
meðlimi Tónlistarfélagsins, og
vakti fádæma hrifningu, sem
sést bezt á því að á síðustu tón-
Ieikum varð hún að syngja 5
aukalög.
Stjórnarkjör í Þrótti
fer fram um helgina
Á MORGUN hefst stjórnar-
kjör í Vörubílstjórafélaginu
Þrótti. Verður kosið um tvo
lista, A-lista, borinn fram af
stjórn og trúnaðarráði félags-
ins og- B-lista, borinn fram af
Pétri Guðfinnssyni o. fl.
A-Iistinn er skipaður þessum
mönnum:
Form. Einar Ögmundsson, —
varaform. Ásgrímiur Gíslason,
ritari Gunnar S. Guðmundsson,
gjaldkeri Bragi Kristjánsson og
meðstjórnandi Árni Halldórs-
son.
Varastjórn: Þorsteinn Kristj-
ánsson og Alfons Oddsson.
B-Iistann skipa þessir: Form.
Pétur Guðfinnsson, varaform.
SKEMMTIR
ÞESSI fallega stúlka heit-
ir Birgit Falke og er
dönsk.. Veitihgahúsið Lídó
hefur fengið hana til að
skemmta gestum sínum
með söng nokkur næstu
kvöld. — Stúlka þessi hef-
ur sungið á ýmsum
skemmtistöðum á Norður-
löndum, og einnig hefur
hún sungið inn á fáeinar
hljómplötur. Hér á landi
verður hún aðeins stuttan
tíma.
HELSINGFORS (NTB-FNB): —
Frá veðurathugunarstöðinni í
Jockis fyrir norð-austan Ábo
sást ameríska gervitunglið Dis-
coverer V. í fyrsta sinn í dag.
Samtímis sást líka Sputnik.
TEHERAN (NTB-AFP); — 200
manna hafa verið handtekin í
Teheran síðan alvarlegar óeirð-
ir urðu í borginni s. I. mánudag.
Segir ríkisstjórnin kommúnista
standa á bak við óeirðirnar, sem
orsökuðust af hinum hörðu próf-
kröfum, sem stjórnin hefur sett
háskólastúdentum.
Stefán Hannesson, ritari Pétur
Hannesson, gjaldketi Sigurður
Bárðarson og meðstjórnandi Er-
lingur Gíslason.
Varastjórn; Guðmann Hann-
esson og Árni Agnarsson.
Nýr
sendi-
herra
BANDÁRÍKJASTJÓRN hef-
ur skipiað Mr. Tyler Thompson
sem ambassador Bandaríkjanna
á íslandi.
Hinn nýi ambassiador hefur
verið lengi í utanríkisþj ónust-
unni, eða frá árinu 1931 og
gegnt fjölda trúnaðarstarfa
bæði heima og erlendis, einkum
við sendiráð Bandaríkjanna í
ýmsum löndum Evrópu. Hann
hefur m. a. verið aðstoðarfram-
kvæmdastjóri flóttamannahjálp
ar Bandaríkjastjórnar og hafði
yfirumsjón við aðstoð til ung-
verskra flóttamanna.
Nú sem stendur er hann aðal-
ræðismaður Biandaríkjanna í
Frúarefni...
Framhald af 16. síðu.
kannski öll hamingjusöm
hjónabönd í heiminum á
þessu.
En þetta á fyrir sér að
breytast. Margir karlmenn í
hinni svörtu Afríku eru farn-
ir að velja sér grannar og
skólamenntaðar stúlkur. Marg
ir menntaðir Afríkumenn
segjast e!nnig skammast sín
fyrir fáfræði kvenna sinna og
hrikalegt útlit, en samt efast
þeir um að grennri og mennt-
aðri konur yrðu betri hús-
mæður en þær.
Ný stefnuskrá
Framhald af 4. síðu.
Því atriði, sem fyrir hefur
verið í stefnuskrá flokksins
um að aðskilja ríki og kirkju,
er nú sleppt, en óákveðið orða-
lag tekið upp í staðinn um,
að sambandið milli ríkis og
kirkju skuli fara eftir megin-
reglum lýðræðis og trúfrels-
is. Sérstök nefnd fjallar ann-
ars um þessi mál.
Mikil áherzla er lögð á at-
vinnumenntun og mennlngar-
mál, og fjölskyldan sem
grundvallareining þjóðfélags-
ins er styrkt. Sama gildir um
húsnæðismál og æskulýðs-
mál.
(H. Am. í Arbeiderbladet).
15. jan. 1960 — Alþýðublaðið
... w M
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilandaflug:
Gullfaxi fer til
Glasgow og K.
mf. kl. 08.30 i
dag. Væntan-
leg aftur til
Rvk kl. 16.10
á morgun. —
Hrímfaxi fer
til Oslo, Kmh.
og Hamborg-
ar kl. 08.30 í fyrramálið. —
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar,
Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur
Hornafjarðar, ísafjarðar, —
Kirkjubæjarklausturs og
Vestmannaeyja. — Á morgun
er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar, Blönduóss, Egilsstaða,
ísafjarðar, Sauðárkróks og
V estmannaey j a.
Skipadeild
S.Í.S.:
Hvassafell er í
Rvk. Arnarfell
er á Siglufirði.
Jökulfell er
væntanlegt til
London 17. þ. m.
Dísarfell fer í dag frá Horna-
firði áleiðis til Hamborgar, —•
Malmö og Stettin. Litlafell fer
í dag frá Rvk til Vestm.eyja
og Þorlákshafnar. Helgafell
átti að fara í gær frá Ibiza
áleðiis til Vestmannaeyja og
Faxaflóahafna. Hamrafell fór
12. þ. m. frá Batum áleiðis til
Reykjavíkur.
Jöklar h.f.:
Drangajökull var við Fin-
esterra 12. þ. m. á leið til
Rvk. Langjökull lestar á Eyja
fjarðarhöfnum. Vatnajökull
er í Reykjavík.
Veðriös
Hæff A.-átt, skýjað, —
frost 1-3 stig.
Slysavarðstofan er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörð
ur LR fyrir vitjanir er á sama
stað kl. 18—8. Sími 15030.
-o-
NÆTURVÖRZLU vikuna 8.
—15. þ. m. hefur Reykjavík
urapótek. Sími 11330.
-o-
Fríkirkjan: Væntanleg frem-
ingarbörn í vor og haust
eru beðin að koma til viðtals
í Fríkirkjuna n. k. þriðjud.
kl. 6.30. Séra Þorsteinn
Björnsson.
-o-
Fermingarbörn í Nessókn —■
(fædd 1946), sem fermast
eiga á þessu ári, bæði í vor
og að hausti, mæti við guðs
þjónustu í Neskirkju á
sunnudaginn kemur 17. jan.
kl. 1. Séra Jón Thoraren-
sen.
-o- .
Frá Guðspekifélaginu. Dögun
heldur fund í kvöld kl. 8,30
í Guðspekifélagshúsinu. Sig
valdi Hjálmarsson flytur er
indi: „Tvær leiðir“. Kaffi í
fundarlok.
-o-
Breiðfirðingafélagið heldur
kynningarkvöld með félags
vist og fl. í Breiðfirðinga-
búð í kvöld, föstudag. Er
það fyrsta kvöldið af fjór-
um, sem það heldur í vetur.
Góð spilaverðlaun verða
veitt eftir hvert kvöld og að
lokum heildarverðlaun.
-o-
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er væntanleg til Rvk
í dag að vestan úr hringferð.
Esja fer frá Akureyri í dag á
austurleið. Herðubreið fór frá
Rvk í gær austur um land til
Akureyrar. Skjaldbreið fer
frá Rvk kl. 20 í kvöld til
Breiðafjarðarhafna. Þyrill er
væntanlegur til Siglufjarðar
á hádegi í dag. Herjólfur fer
frá Rvk kl. 21 í kvöld til Vest
mannaeyja. Baldur fer frá
Rvk í kvöid til Sands, Gils-
fjarðar- og Hvammsfjarðar-
hafna.
-o-
Matreiðslunámskeið Hús-
mæðrakennaraskóla íslands
hefst í janúar. Nemendur
geta komist að sökum for-
falla. Upplýsingar 1 símum
16145 og 15245. Helga Sig-
urðardóttir. Skólastjóri.
-o-
Aðalfundur Félags járniðnað-
armanna verður haldinn
mánudaginn 18. þ. m. kl. 8
e. h. í Iðnskólanum. Dag-
skrá: VenJuleg aðalfupdar-
störf. Önnur mál. — Félag-
ar eru hvattir til að fjöl-
menna og mæta stundvís-
lega.
Föstudagur
15. jan.:
18.30 Mannkyns-
saga barnanna. —•
18.50 Framburð-
arkennsla í
spænsku. 19.00
Kórsöngur: Lög
úr óperum. 20.30
Kvöldvaka: — a)
lestur fornrita. b)
Lög eftir Björg-
vin Guðmundss.
c) Frásöguþáttur:
Heimsókn í Hrafn
kelsdal; fyrri hl.
d) Rímnaþáttur. 22.10 Upp-
lestur: „Snjólaug“, smásaga
eftir Ólöfu Jónsdóttur (Höf.
les). 22.30 íslenzkar dans-
hljómsveitir: Neó-tríóið leik-
ur. 23.00 Dagskrárlok.
-o-
LAUSN HEILABRJÓTS:
Af þeim 78, sem drekka
kaffi, eru 78=48 = 30, sem
ekki drekka te. Af þeim 71,
sem drekka te, eru 71 = 48
= 23, sem ekki drekka kaffi.
Þeir, sem drekka kaffi ein-
göngu: 30, þeir, sem drekka
te eingöngu: 23 að viðbætt-
um þeim, sem drekka hvort
tveggja: 48, er alls 101. Þar
eð kannað var hjá aðeins
100, hlaut skýrslan að vera
röng.