Bóndi - 31.03.1851, Page 1

Bóndi - 31.03.1851, Page 1
33 fi ó n d i. 4. blað 31. dag martsmánaðar 1351. FÁEINAR ATHUGASEMDIR UM FJÁRHÚSABYGGINGU OG SAUÐFJÁRRÆKT. 5. grein um kirðinr/ á ám. (Framhald). í mörgum sveitum hagar svo til, að ærnar verða að öllu samanlögðu einna arðsamastar af sauðpeningn- um, sjeu þær dj'ggilega hirðtar og að öllu vel með þær farið. Jar sem annars er bærilega laiulgott, þá er óhætt að láta ær liggja úti framan af vetri, þegar tíð er góð og nóg jörð, en allt fje skyldu menn þó hýsa, þegar það þíðir ekki lengur bæli sitt. Meðan ær liggja úti, þarf að ganga til þeirra á hverj- um ilegi, og líta nákvænilega eptir hvernig þær bera sig að jörðinni, og taka ætíð vandlega eptir í hvert skipti, hvert engri þeirra muni vera misdægurt; það er ætið vissara að reka þær seint á hverju kvökli að beitarhúsum eða fjárborg, eða þá skilja við þær á einhverjum öðrum óhultum stað, svo ekki sje liætt við þær hreki eða fenni, þó veður spillist bráðlega að nóttu til1 þegar farið er að liýsa þær, skal standa yfir þeim, og lialda þeim vel til beitar, og veitir ekki af að láta þær snemrna út og seint inn, þá dagur er stuttur; á meðan þær hafa góðar fyllar, þarf ekki að gefa þeim framanaf vetri, og ekki fyr en um jól, þar sem landgott. er. Melland og víðir á vel við fje, einkum grávíðir og pálmavíðir (rauð viðir), sömu- leiðis fjalldrapi, beitilyng og rauðlaukur, líka þykja lieiðar- lendur, hvar grasakræða er, hið bezta sauðland. Undir eins og ær fara að koma inn linfullar á kvöldin, verða menn að fara að gefa þeini með, því eigi þær ekki að missa kviðin, mega þær ekki fá minna en eina góða fylli í liverjum sólar- hring; þegar kemur fram á útmánuði, þarf að auka við þær gjöfina, og líka ætti að geyma þeim bezta heyið þangað til, Jað er að að sönnu opt örðugt að geta gjört svo vel við fje, sem bezt mundi henta, þegar heybyrgðir eru litlar, og einkum þá hey eru illa verkuð og skemmd; en það ættu menn þó að 1) jjessar reglur virðast eiga jafnt við hirðingu á öllu fje, sem úti liggur, á hverjum þeim tíma, sem kafalda er von. 4

x

Bóndi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bóndi
https://timarit.is/publication/76

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.