Bóndi - 31.03.1851, Side 9
á hverjum þriggja feta löngum kafla viö livert lag, sem veröur
hið sama, eins og hann væri sítyrföur um þvert meö strengjum
eöa torfi við jiriðja hvert. lag. 5ess j'urfa menn að gæta, að
sneiöa vel saman alla strengina í hleðslunni, en þverstúfa þ.i
livergi saman, því sje það gjört, þá veröur veggnum hættara
við að gisna með tímanum. Fyrir þá, sem ekki eru vel vanir
veggjahleðslu, eða því sjónhagari, er vissara að hafa velbeint
horð til aö skera við hvert lag ef snið er á strengjunum; en
vanur og sjónhagur hleöslumaður þarf ekki þessa við, og get-
ur hann hlaðiö allan vegginn beinan og bungulausan, og ætlað
svo fyrir sniðinu á strengjunum, aö hann þurfi ekkert aö skera
utan af þeiin, fyr en veggurinn er fullhlaðinn og dálítiö síginn.
Jegar veggur er hlaöinn beinn og bungulaus úr þurru og
rótgóðu efni, og svo vel bumliim, sern hjer hefur veriö gjört
ráð fyrir, þá er ekki þörfáað hlaða hann að sjermeir en svo,
að 3. álna hár veggur, sje £ hluta álnar mjórri að ofan en
neðan, og mumli þá nærhæfis aö draga haun aö sjer um 4þum-
lunga að utan, en 2 þumlunga aö innan.
5eSar veggir eru hlaönir bæöi úr grjóti og torfi, þá riður
hvað mest á að hata þurt og rótgott torf millum grjótlaganna,
því annars er torfinu hætt við aö jetast úr og grjótinu síðan
við að hrynja; torflagið milli steinlaganna ættu menn að hafa
sem þynnst og fella steinana sem bezt saman; innan í slíka
veggi skyldu menn lika hafa sein minnsta mold, heldur annað-
livort torf eða rótgóða hnausa, svo veggurinn geti orðið bund-
inn sem bezt. Alla jafnhliða kampa verða menn að ldaða í
þráðbeinni röð hvern við annan og óundna, og hlaða þá alla
jafnmikið að sjer. Stafn hvern verðnr að hlaða svo breiðan
og háan, að jafnhátt beri á ytri brún hans og þaki hússins,
því annars er liætt við að þakið rífi af í stórviðrum.
(Framhaldið siðar).
FÁEINAlt REGLUR UM AÐ VELJA VÖÐ Á VÖTNUM
OG RÍÐA 5AUU
Jað er mjög áríðandi að menn kuuni að velja vötn, eink-
1) ]>egarskólakennari Björn Gnnnlaugsson var á mælingaferðiun sin-
mn uin Island, fór liann yfir mörg vötn. og tók þá eptir livað hættuleg
inörg af þeiin eru yfirferðar, nema liin mesta varúð sje viðliöfð. Ifann hað
því 2 menn, er hann treysti einna hezt til þess, að semja reglur nokkrar,