Kristileg smárit handa Íslendingum - 02.01.1866, Blaðsíða 6

Kristileg smárit handa Íslendingum - 02.01.1866, Blaðsíða 6
6 iðjusami opt notað tækifæri, sem annars aldreí mundí verða notað; hve opt heflr liið vakandi auga hins iðju- sama og dygga þjóns bjargað hjörðinni og komið henni til húsa, áður en það varð of seint, og eins og ástatt er hjá oss, þarf i þeim efnum litlu að muna, svo að lítil stund getur þá orðið til góðs, eins og á hina síð- una lítil stund orðið til ills, þegar heimilið missir lífs- björg sína fyrir lítillar stundar vanhirðing og ódyggð; liver getur hirt og annazt hinar mállausu skepnur, svo að vel fari, nema hin nákvæma og eptirlitssama dvggð, sem fremur lætur sér hugað um að leysa verk sitt vel af liendi en að hroða því af, til þess að geta fengið tómstundir sem fyrst. I*að er því eðlilegt, að verk liins dygga blessist, og að það, sem er eðlileg atleiðing af hinni vakandi umhyggju, virðist opt sem ósjálfrátt lán; enda má og eiga það víst, að guð sér í lagi aðstoðar hinn dvgga, svo að verk hans fái framgang, af því liann vinnur þatt öll cins og í augsýn hans, og felur honum þau á vald. En þú getur vænt þér blessunar drottins, af því þú felur honum verk þín á vald, þegar þú treystir því, að hann muni annast þig, og sjá þér borgið, en reynir ekki til þess að bjarga sjálfum þér með ó- leyftlegum meðölnm. Verið getur, að þú um stundar- sakir ráðir bót á þörfum þínum með prettum og röng- um fédrætti; en, þegar minnst vonum varir, geturðu líka búizt við, áð guðs hegnandi óblessun komi fram við þig, og á niðjum þínum í þriðja og fjórða lið. Verið getur að þú með lygum getir fegrað málstað þinn hjá mönnum og í bráðina forðað þér við hneisu; en haíi þér orðið einhver ávirðing, bættu þá ekki lyginni. við hana, og láttu þér framast öllu umhugað tim að iðrast

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.