Ameríka - 26.03.1874, Blaðsíða 5

Ameríka - 26.03.1874, Blaðsíða 5
ágætar járnbrautir í allar áttir. Bær þessi á því auðsjá- anlega fyrir hendi inikla framför og mun áður langt líður verða einn rneðal hinna markverðustu og stæðstu verzlun- arstaða. Suður af hjeraði þessu og syðst f fylkinu liggur: 8. C h a r 1 o 11 e-hjeraðið, sem er 783,360 acres að stærð og er næstum helmingur þess enn ðnumið. St. Croix-fljótið, sem er skipgengt upp til St. George, og St. Stephen, skilur hjerað þetta frá Bandaríkjunum. Innbtiar eru 25,870. Ilelztu bæir eru: St. Andrews, St. Stephen og St. George. Frá báðum hinum fyrnefndu bæum ligg- ur járnbraut inn um miðbik fylkisins. Landið er ýmis- lega lagað, sumstaðar hrjóstugt en sumstaðar er jarðveg- urinn frjófur og landið víða hið fegursta. I*ar leggja menn sig mikið eptir ýmsum sýslunum og hafa margt fyr- ir stafni; enda er þar hin mesta vellíöan. Iíætt er við, að hjer sje lítið um góð lönd að gjöra ónumin. Gufu- skipaferðir og járnbraut eru á milli St, John og hjeraðs þessa. Beggjamegin við St. John-fljótið, liggur dt og suður, vestan viö Nr 7 : 9. K i n g ’s - hjeraðið, sem er 849,920 acres að stærð, og er að eins | hluti þess ónumið. Innböar eru þar 24,600, sem einkum leggja stund á landbönað. Landið er öldótt, með lágum hálsum og frjófsömum, sljettum dal- verpum í milli. Helstu bæir ern : Hampton, Sussex og Rhotesay. Braut sö er stjórnin hefur látið byggja til Nýa-Skotlands frá St. John, liggur um 60 mílna veg gegnum hjeraðið, og járnbraut sö er liggur frá St. John til Bandaríkjanna gengur yfir syðri hluta hjeraðsins. f*ar vestur af er: 10. Queen’s-hjeraðið, sem er 961,280 acres að stærð og er ^ hluti þess enn ónumið land. íböar eru 13,847 að tölu. I hjeraði þessu eru hin miklu stöðuvötn: Grand-Lake og Washademoak, svo rennur og fljótið St. John þvert f gegnum það. f*ar er mikið af frjófu og fögru leirulandi, sem myndast hefur af vatnsleðju, og yfir höfuð er jarðvegurinn frjór og góður í hjeraði þessu. Stjórnin hefur látið mæla upp 22 ,000 acres beinlínis handa aðflytjandi landnámsmönnum. í öllu hjeraðinu hafa fund-

x

Ameríka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ameríka
https://timarit.is/publication/100

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.