Ameríka - 26.03.1874, Qupperneq 8

Ameríka - 26.03.1874, Qupperneq 8
40 eru góð lönd útmæld, en enn ótekin. í*aðan vestur að sænsku nýlendunni New-Sveden, í ríkinuMaine, cru 18 mílur. Ferðamenn segja að allur St. John dalurinn sje eitt- hvert bezta akuryrkjuland, með djúpum og góðum jarð- vegi, og ágætlega lagaður til landbúnaðar. L o p t s 1 a g. í New-Brunswick er sumarið heitara en t. a. m. á Englandi og veturinn kaldari, þ. e. a. s. þá daga, sein liiti og knldi er mestur. Upp f Iandinu getur hitinn orð- ið: 92° Fahranheits (=+ 28° Reaumurs) en kuldinn: 18° F. (=-r- 22|° R.). Veturinn hefir vanalega 8 og stundum 4 þau tímabil, að mikið frost sje, og varir hvert þeirra 2 —3 daga í senn. Iíuldabil þesssi ganga (að vísu í nokkrum bugðum) hjer uin bil sömu daga þvert yllr um N.-Ameríku frá Atlandshafi að austan að Kyrrahaíl að vestan og verður þá frostið æ því meira, sem nær fjöll- unum dregur. Hið íyrsta þeirra kemur vanalega undir lok desemberm. (um jólaleitið), annað um miðjan janúar og þriðja öndverðlega í febrúar. Á milli þeirra er ým- ist þýðvindi, regn, eða bjartir og kyrrir sólskinsdagar. Á þessum millibilum leikur R. hitamælir á milli -f- 8° og + 5°. Árið 1869 var meðal kuldinn yfir þá 3 mán- uði, er kallast vetrarmánuðir, -f- 4|° R. Yfir höfuð er vctrarveðuráttan þægileg ; því þó kuldinn sje mikill nokkra daga, er það sem ekkert að reikna á móti hinum mörgu góðviðrisdögum. Kuldinn er og ekki þeim eins óþægi- legur, eða skaðlegur, sem búa í New Brunswick og þeim er búa á Bretlandi cða öðrum þcim löndum, þar sem vetrarloptið er saggafyllra og veðurlagið óstöðugt og ó- tímabundið, enda er ofbæling næstum óþekktur sjúkdóm- ur f N.-Brunswiek. Öllum störfum er þar haldið, að kalla viðsföðulaust, áfarm vetur sem sumar. Klæðnaður er þar og ekki annar, eða hlýrri tíðkaður, en hafður er í Dan- mörku, Englandi og öðrum löndum Norðurálfunnar. Það hefir verið sagt, að landið væri þoku- og sagga- samt, en vjer höíum vottorð tveggja ferðamanna um það, að loptið er þvert á móti mikið þurt og þokulaust og

x

Ameríka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ameríka
https://timarit.is/publication/100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.