Alþýðublaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 3
VORPIN
FUNDUIl var í samein
uðu alþingi í gærkvöldi
og útbýtt þrem stjórn
arfrumvörpum um
skattamál, einu um
tekjuskatt, öðru um ut
svör og hinu þriðja um
Jöfnunarsjóð sveitarfé
laga. Hefjast umræður
um þessj mál á þingi í
dag.
Búnaðarhá-
skóli á
Hvanneyri
FRUMVARP um landbúnað-
arháskóla á Hvanneyri hefur
verið flutt á alþingi, af land-
búnaðarnefnd neðri deildar fyr
ir hönd ríkisstjórnarinnar.
Benedikt Gröndal flutti í gær
framsögu fyrir frumvarpinu og
skýrði sögu æðri búmenntunar
hér á landi og aðdraganda þessa
frumvarps. Framhaldsdeild hef
u.r starfað síðan 1947 við bænda
skólann á Hvanneyri og gefið
ágæta raun. Er nú ætlunin að
útvíkka starf hennar nokkuð,
og láta hana þróast áfram á
Hvanneyri, í stað þess að setja
upp búnaðarskóla í Reykjavík,
eins og sumir vilja. Frumvarp-
inu var vísað til annarrar um-
ræðu.
Nánar verður skýrt frá frum-
vörpum þessum í næsta blaði.
Tekjuskattsfrumvarpið kveð-
ur á um afnám tekjuskatts af
launatekjum, eins og boðað hef
ur verið. Þar eru og skattstigar
fyrir hátekjumenn, sem ekki
sleppa við skattinn. Skattstigi
verður nú einn, ekki ósvipaður
hinum gamla, nema 'hvað hann
rís hraðar fyrir þær tekjur, sem
eru umfram skattfrjálsu tekj-
urnar. Ákvæðið um skattfrelsi
nætur-, eftir- og helgidaga-
vinnu við útflutningsfram-
leiðslu er afnumið.
Útsvarsfrumvarpið er mikill
bálkur og þó aðeins byrjun á
heildarbreytingu þeirra laga,
sem nefnd hefur undirbúið. Að-
albreyting er sú, að tekjuskatt-
stigar eru lögbundnir, einn fyr-
ir Reykjavík, annar fyrir kaup-
u
Frækorn" eftir
Bj. Brekkmann
BJARNI BREKKMANN hef-
ur nú sent frá sér nýja ljóða-
bók. Hún heitir: „Frækorn“.
Bókin er prentuð sem handrit
á kostnað höfundar í 500 tölu-
settum eintökum, 110 blaðsíður
að stærð.
Séra Jón M. Guðjónsson skrif
ar formála fyrir bókinni, og
segir þar, að Bjarni sé mikill
aðdáandi Hallgríms Pétursson-
ar sálmaskálds, og telji sig hafa
meira af honum lært en nokkr-
um öðrum. Einnig segir hann:
„Bjarni á mörg hugðarefni, en
fer ekki alltaf sömu götur og
aðrir. Hann ann sögu þjóðar
sinnar, er fróður á minningar
cg kann góð skil á ættum og at-
burðum í heimabyggð sinni.“
staði og þriðji fyrir hreppana.
Útsvör eftir efnum og ástæðum
falla niður. Þá er ákvæði um að
samvinnufélög greiði veltuút-
svar jafnt af verzlun félags-
manna sem utanfélagsmanna.
Lögin um jöfnunarsjóð sveita
félaga herma, að ríkið greiði
sjóðnum einn fimmtahluta sölu
skatts, svo og hvernig tekjunum
skal úthlutað til sveitar- og bæj
arfélaganna.
BLÖÐIN HÆKKA í VERÐI
UNDANFARNAR vikur hafa orðið stórfelldar hækkanir ó
rekstrarkostnaði dagblaða. Nema þær svo háum upphæð-
um, að víðtækir fjárhagsörðuglekar hafa skapazt í þess-
um rckstri, sem felur í sér mtargvíslega þjónustu við al-
menning.
Sem dæmi um hækkun rekstrarkostnaðarins má nefna,
að pappír, sem er einn af aðalkostnaðarliðum blaðannia,
hefur hækkað um 70%, og yfirlertt má segj, að allt, sem
kaupta þarf erlendis frá til blaðaútgáfu, auk pappírsins,
svo sem vélar og varahlutir, fréttaþjónusta o. fl., hafi
hækkað um 50%.
Enn fremur má benda á, að tveir stórir kostnaðarliðir
innlendir — burðargjald og sími — hækkuðu stórlega um
síðustu mánaðamót.
Af þessum ástæðum eru blöðin knún til að hækka á-
skrifta- og auglýsingaverð sitt.
Frá og með deginum í dag, 1. apríl, kostar Alþýðublaðið
kr. 45,00 á mánuði, Auglýsingaverð verður kr. 24,00 pr.
eindálka sentimetra.
Sigga Vigga
i i ' 1 i i',1 i| PTi i 11 . i 11 , i , i .1 i , | 1 i|
'' I' 11 ’l'11 1 I I,'I.
1 'i 'i, i' V'
i11 ,i,i 11 11
ii i
,'.i.i
1 1 I1 ’ ' 'V'" -,M
I , , 1 1 I -* •
• I • J •
I I ' I ' '
| 1 I 1 M
"!,1| '| M
I' i i
1 l ', 1 l i
1. i,l I i '
, i 1 1, 1. ' 1' ' I i ' 1 i | | . 11 i 1
1',' ,ii i 1 1 'i 1 '< i 'r’
i i | 11' i i 1 ' i i ' 111 I i,
' 'i ■ ' 1 , . "i, 1
11 vjy
II 1 I 1 I I ’ I
" 'i'1
1 1 ' . ’m'.
■'V>,
■, i1 . i ,
■i,1.," i
11',
1
Ófför Eggerfs
Gilfer fer fram
/
í dag.
EGGERT GILFER, hinn kunni
skákmeistari og organleikari,
verður jarðsunginn í dag. Sök-
um rúmleysis komst ekki í dag
minningargrein um hann eftir
Ásgeir Þór Ásgeirsson, formann
Skáksambands íslands, en hún
verður birt á morgun.
„ÞAD TEKUR f>VÍ F/R\R ÞIG AÐ VERA AÐ VORKENNA
SJÁLPRI þÉR! Á BESTA ALDRI. STÁLHRAUST OO
SVONA BRÁÐHUGrGULEGr Á SÚNNUDÖGUMJ"
Alþjóðlegur glæpa-
maður í Reykjavik?
WWWWWWWWMWMMWWMWWWWWWMWWWW
LÖGREGLAN hér hefur rök-
studdan grun um að alþjóð-
legur glæpamaður fari huldu
höfði í Reykjavík. Lýsing á
manninum, sem símuð var frá
Alþjóðalögreglunni (Interpol)
í París í gærmorgun, kemur
heim við þær upplýsingar,
sem Reykjavíkurlögreglan hef
ur getað aflað sér um óvenju
bíræfinn innbrotsþjóf, sem
verið hefur á ferðinni undan-
farnar nætur.
Þetta er sami maðurinn,
sem sagt var frá í fréttum hér
í blaðinu í fyrradag, að brotizt
hefði inn í skrifstofu Þvotta-
hússins Mjallhvít og haft á
brott með sér nálega 17 000
krónur í peningum, 1800 krón
ur í ávísunum og fjórar kjól-
skyftur.
Hinn eftirlýsti alþjóðlegi
glæpamaður heitir réttu nafni
Mickey Spillane, en kallar sig
ýmsum nöfnum.
Hér mun hann ganga und-
ir dulnefninu Jón Jónsson.
Hann er vopnaður.
Lýsing Interpol á mannin-
um er svohljóðandi:
Hæð: 174 cm. Þyngd ca 93
kíló. Hárlitur; Jarpur. Augna-
litur: Grágrænn.
Hann vantar þrjá fingur á
hægri hendi.
Rannsóknarlögreglan hefur
beðið blaðið að skora á fólk að
tilkynna henni, ef það verður
vart við grunsamlegar manna-
ferðir að næturþeli.
Nætursími rannsóknarlög-
reglunnar er 26938.
Ef sá sími svarar ekki, eru
menn beðnir að hringja í leyni
númer Júlíusar Inga fulltrúa.
Skemmdarverk
á Lögbergi
NYLEGA fór maður nokk-
ur, er á sumarbústað við Lög-
berg, að líta á bústað sinn. Brá
honum heldur en ekki í brún,
þar eð unnin höfðu verið hin
ferlegustu spellvirki á bústað
hans. Höfðu rúður verið brotn
ar, húsgögn brotin og yfirleitt
allt brotið og bramlað.
Við nánari athugun kom í
ljós, að skemmdarverk höfðu
verið unnin á fleiri bústöðum
á Lögbergi. Er það greinilegt,
að þarna hefur farið um ein-
hver óaldarlýður og er það
furðulegt, að þeir menn skuli
til, er geta haft geð í sér til
þess að eyðileggja á þennan
hátt eignir annarra.
Alþýðublaðið
1. apríl 1960 J