Fréttablaðið - 09.05.2001, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
7
| INNLENT |
s
Ibúar Iðnnemasetra hafa vakið at-
hygli á því að staða Félagsíbúða
iðnnema sé hrikaleg. Þeir segja yfir-
vofandi að íbúar iðnnemasetrana
verði bornir út um áramót vegna
sinnuleysis yfirvalda. í fréttatil-
kynning frá íbúum Félagsíbúða iðn-
nema segir að skuldir FIN séu um 60
milljónir og fari í þrot ef ekkert
verður gert nú þegar. Þingmönnum
Alþingis hafi öllum verið kynnt
staða FÍN án þess að það hafi ýtt
mikið við þeim.
—«—
Hafnarf'jörður:
Samið vegna
leikskóla
vinnumarkaður. Samningar tókust í
fyrrinótt milli samninganefndar LN
og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Þetta
kemur fram á vefnum hafnarfjord-
ur.is.
Þar með hefur vinnustöðvun verið
afstýrt um sinn. Samningurinn verð-
ur borinn upp og kynntur í dag. í hon-
um er ákvæði um vikufyrirvara á
vinnustöðvun komi til þess að félags-
menn í Hlíf felli samkomulag samn-
inganefndanna í atkvæðagreiðslu
eins og gerðist á dögunum. Starfsemi
í leikskólum og öðrum stofnunum
Hafnarfjarðarbæjar verður því með
eðlilegum hætti. ■
FJÖGUR LÖND
Forsiður dagblaðanna sem hafa gert
með sér bandalag
Evrópa:
Fjölþjóðleg
samvinna
dagblaða
berlín. ap. Að sögn þýska dagblaðs-
ins Die Welt hefur það sett á fót rit-
stjórnarbandalag með þremur öðr-
um íhaldsömum evrópskum dag-
blöðum, Daily Telegraph í Bret-
landi, Le Figaro í Frakklandi og
ABC á Spáni. Bandalag evrópskra
dagblaða, eins og það kemur til með
að heita hefur það að markmiði að
styrkja ritstjórnir erlendra frétta í
blöðunum. Einnig munu blaðamenn
fara í skiptiprógrömm á hin blöðin
auk þess sem aðgangur að greina-
safni verður sameiginlegt. ■
1 INNLENT 1
Al-Anon á íslandi, samtök að-
standenda alkóhólista, eru orðin
sýnileg á Internetinu með opnun nýs
vefseturs: www.al-anon.is. Al-Anon
er sjálfshjálparaðferð byggð á tólf
reynslusporum AA-samtakanna. Fé-
lagar deila reynslu sinni, styrk og
vonum svo þeir megi leysa sameig-
inleg vandamál sín. Fjölskyldudeild-
ir Al-Anon eru nú 36 talsins um land
allt. Al-Anon lítur á alkóhólisma
sem fjölskyldusjúkdóm og telur að
breytt viðhorf geti stuðlað að bata.
Al-Anon er óháð hverskyns trúar-
hópum, stjórnmálaskoðunum, fé-
lagasamtökum eða stofnunum, tekur
ekki þátt í deilum, styður hvorki né
er í andstöðu við nokkurn málstað.
Kostnaði er mætt með frjálsum
framlögum félaganna. Nafnleyndar
er ávallt gætt í Al-Anon.
Flóttamenn við Gíbraltarsund:
Fæstir ná alla leið
tarifa. ap. Lögregla safnaði saman í
gær 120 ólöglegum innflytjendum
frá norður Afríku sem komist höfðu
við illan leik yfir Gíbraltarsund til
Spánar. Lögreglunni hafði borist til-
kynning áður um að skip væri í vand-
ræðum úti fyrir strönd Tarifa, en
þegar hún kom á staðinn var skipið
lent í fjörunni og fólkið, sem var á
öllum aldri, komið á ströndina og I
bæinn. Marokkóskur drengur fannst
látinn á ströndinni og stendur yfir
rannsókn á dauða hans. Þá hefur
skipstjórinn verið handtekinn vegna
gruns um illa meðferð á farþegum
sínum. Lögregla mun sjá um flutning
á fólkinu aftur til Marokkó.
Á hverju ári reyna þúsundir Afr-
íkubúa að komast ólöglega til Evrópu
yfir Gíbraltarsund en talið er að litl-
um hluta takist ætlunarverkið. Sam-
kvæmt lögreglu nást flestir og einnig
er talið að hluti fólksins farist á leið-
inni, jafnvel án þess að það komi
nokkursstaðar fram. Ástæðurnar eru
ýmsar en oft er reynt að komast yfir
sundið á lélegum bátum sem sigla við
misjöfn veðurskilyrði að næturlagi.
Bátarnir sem flytja fólkið eru einnig
oft yfirhlaðnir af fólki. Spænska lög-
reglan hefur mikinn viðbúnað í kring-
um Gíbraltar og hefur sætt nokkurri
gagnrýni vegna harkalegrar með-
ferðar á ólöglegu innflytjendunum. ■
NÆRRI GÍBRALTAR
Spænska lögreglan safnar fólkinu saman á
ströndinni við Tarifa.
Launþegar og atvinnu-
rekendur:
I vörn fyrir
stöðugleika
vinnumarkaður. Alþýðusamband ís-
lands og Samtök atvinnulífsins
ákváðu á fundi sínum í fyrradag að
fara á næstu dögum yfir stöðu og
þróun efnahagsmála til að meta hvort
og hvernig megi treysta þann stöðug-
leika sem stefnt var að með kjara-
samningum á almennum vinnumark-
aði. ASI og SA byggðu kjarasamn-
inga á árinu 2000 á ákveðnum for-
sendum um stöðugleika efnahagslífs-
ins og minnkandi verðbólgu og telja
það vera sameiginlegt hagsmunamál
sitt að forsendur samninganna stand-
ist og markmið þeirra um stöðug-
leika gangi eftir.
Breytingar á almannatryggingum:
Lögin sögð bæta kjör
þeirra verst stöddu
Kostar ríkissjóð 1350 milljónir króna. Stefnt að gildistöku nýrra laga 1, júlí n.k.
almannatryggingar Bætur almanna-
trygginga munu hækka um 1350
milljónir með frumvarpi til laga sem
ríkisstjórnin leggur fram á alþingi á
næstunni. Gert er ráð fyrir að lögin
taki gildi frá og með 1. júlí n.k.
Helstu markmið þessarar breytinga
eru að bæta kjör þeirra sem verst
eru settir, jafna kjör hjóna og ein-
hleypra lífeyrisþega, hvetja öryrkja
til atvinnuþátttöku og auka sveigjan-
leika lífeyristrygginga. Það var
vinnuhópur undir forustu Ólafs Dav-
íðssonar ráðuneytisstjóra sem vann
að gerð þessara breytinga fyrir ríkis-
stjórnina.
Áætlað er að þessar breytingar
bæti kjör um 70% ellilífeyrisþega,
eða rúmlega 18 þúsund manns. Hjá
öryrkjum eru breytingar sagðar
....... bæta kjör 60%
þeirra, eða 5.500
manns. Samkvæmt
þeim hækkar sér-
stök heimilisupp-
bót, eða tekju-
tryggingarauki úr
7.409 krónum í
14.062 krónur á
mánuði. Skerðing
þessa tekjutrygg-
ingarauka verður
minnkuð úr 100% í
67%. Fyrir ein-
hleypan ellilífeyr-
isþega þýðir þetta
að tryggðar lág-
markstekjur hans
hækka úr 72.659
krónum í 79.312
krónur á mánuði.
Samsvarandi lág-
markstekjur ör-
orkulífeyrisþega
hækka úr 73.546 í
Einnig verður
fólki gefinn
kostur á að
fresta töku líf-
eyris almanna-
trygginga til 72
ára aldurs, gegn
hækkun allra
bótaflokka um
0,5% á mánuði.
Þá er lagt til að
til skerðingar á
tekjutryggingu
öryrkja komi
60% atvinnu-
tekna þeirra.
Þetta á að
hækka verulega
bætur til öryrkja
með atvinnu-
tekjur.
RAÐHERRABÚSTAÐURINN
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að þótt það orki tvímælis að auka útgjöld ríkissjóðs þá sé einhugur um að stlga þetta skref til auk-
ins jöfnuðar. Auk hans kynntu áformaðar breytingar á lögum um almannatryggingar þeir Halldór Ásgrímsson utanrikisráðherra og Jón
Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingaráðherra ásamt aðstoðarmönnum
80.200 krónur á mánuði. Þá verða
skilyrði til að njóta tekjutryggingar-
auka rýmkuð. Það þýðir að öllum
óháð hjúskaparstöðu verður gefinn
kostur á honum í stað þess að hann
gangi eingöngu til einhleypra sem
eru einir um heimilisrekstur. Með
þessu fá hjón rétt á tekjutryggingar-
auka sem nemur 10.548 krónum á
mánuði hvort hjóna en 21.096 ef bæði
eru lífeyrisþegar. Þetta ásamt hækk-
un grunnlífeyris hjóna um 10%, eða
úr 90% í 100% af lífeyri einhleypings
mun tryggja þeim 60.651 krónum á
mánuði. Það er um 76,5% af lág-
markstekjum einstaklings.
Þá hækkar frítekjumark tekju-
tryggingar ellilífeyrisþega úr 22.380
krónum í 32.512 krónur á mánuði.
Hinsvegar verður sérstakt frítekju-
mark vegna greiðslna úr lífeyrissjóði
lagt niður. Einnig verður fólki gefinn
kostur á að fresta töku lífeyris al-
mannatrygginga til 72 ára aldurs,
gegn hækkun allra bótaflokka um
0,5% á mánuði. Þá er lagt til að til
skerðingar á tekjutryggingu öryrkja
komi 60% atvinnutekna þeirra. Þetta
á að hækka verulega bætur til ör-
yrkja með atvinnutekjur.
grh@frettabladid.is
FYRIR OG EFTIR
■ Láamarkstekiur Var Verður
■ Einhlevpingur á ellilífevri 72.659 79.312
■ Örorkulífevrísþeaí 73.546 80.200
■ Frítekjumark ellilífeyrisþeaa 22.380 33.512
—
Áslandsskóli í Hafnarfirði:
Fimm kennarar
í fullt starf
grunnskóli Böðvar Jónsson talsmað-
ur íslensku menntasamtakana segir
að það gangi vel að fá kennara til
starfa við Áslandsskóla. Meðal ann-
ars hafa kennarar haft samband að
eigin frumkvæði. Hann vill þó ekki
upplýsa á hvaða kjörum verðandi
kennarar munu starfa. Segir það
ekki tímabært á þessu stigi, enda
ekki búið að ganga frá neinum ráðn-
ingarsamningum. Stefnt er að því að
ráða fimm kennara í full starf og
eitthvað af kennurum í hlutastarf.
Aðspurður hvort samtökin hafi hug á
því að færa enn frekar út kvíarnir
með starfi í öðrum skólum segir
hann að reynslan verði að skera úr
um það.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir formað-
ur Félags grunnskólakennara segist
ekki hafa orðið vör við að skólastjór-
ar grunnskóla séu að bjóða kennur-
um hærri laun en kveðið er á í kjara-
samningi. Hinsvegar sé dæmi þess
að skólar úti á landi séu að bjóða
ýmis fríðindi eins t.d. flutningsstyrki
og niðurgreiðslu á ýmsum kostnaði
vegna húsnæðis. Það sé álíka og ver-
ið hefur í baráttu landsbyggðarskóla
til að fá til sín kennara. ■
ÁSLANDSSKÓLI
Svo virðist sem áhugi sé meðal grunnskólakennara að starfa hjá íslensku menntasamtök-
unum I nýja skólanum I Hafnarfirði