Fréttablaðið - 09.05.2001, Blaðsíða 18
18
F TT L I
9. maí 2001 MIÐVIKUDAGUR
Grafíksýning
á Tryggvagötu:
A leiðinni og
á eilífri ferð
crafIksýninc Á' leiðinni heitir sýning
sem Iréne Jensen hefur opnað í sal
félagsins íslensk grafík, Tryggva-
götu 17 Hafnarhúsinu (hafnarmegin).
Sýningin lýsir nútímamanneskjunni
á eilífri ferð sinni í síbreytilegu um-
hverfi og tíma. Myndirnar eru Ima-
gon ætingar, sem er ný listgrafík-
tækni, sem byggir á ljósmynda- og
djúpþrykkstækni.
Iréne er sænsk en hefur verið bú-
sett í Reykjavík síðan 1988. Hún hef-
ur stundað myndlistarnám í Stokk-
hólmi og síðast við Myndlista- og
handíðaskóla íslands í grafíkdeild,
1990-1994. Þetta er sjöunda einkasýn-
ing hennar og hún hefur einnig tekið
þátt í fjölda samsýninga erlendis og
hérlendis. Iréne rekur grafíkvinnu-
stofuna Áfram veginn, Laugavegi 1
B, ásamt fimm öðrum listamönnum.
Sýningin stendur til 20. maí og er
opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14
til 18. ■
Hafnargönguhópurinn:
Hittast og
ganga með
ströndinni
útivist Hafnargönguhópurinn stendur
fyrir gönguferð með hafnarsvæðum
og ströndinni úr Elliðavogi út á Mið-
bakka og síðan með strætó, leið 7, frá
Lækjartorgi inn í Elliðavog.
Gengið verður frá gömlu Rafstöð-
inni kl. 20.30 niður að árósum og um
hafnarsvæðin og með ströndinni út á
Miðbakka. Þar lýkur ferðinni. Hægt
er að stytta gönguferðina með því að
fara í strætó niður á Lækjartorg á
leiðinni. Allir velkomnir. ■
FRAMANDI ÁVEXTIR
Fleira er matur en kjöt og fiskur.
Málþing um eitt
af undrum veraldar:
Islendingar
borða ekki
ávexti
mannelpi Hvers vegna borða íslend-
ingar ekki meira af ávöxtum og
grænmeti? Bryndís Eva Birgisdóttir
næringarfræðingur ætlar að leita
svara við þessari stóru spurningu á
málþingi sem Manneldisfélag íslands
boðar til í kvöld kl. 20.30 að loknum
aðalfundi félagsins í Odda. Hún segir
skýringanna meðal annars að leita í
verðlagi, slæmu aðgengi og einfald-
lega því að við erum óvön bragðinu.
Björn Sigurður Gunnarsson mat-
væla- og næringarfræðingur ætlar
ennfremur að gera grein fyrir rann-
sóknum á hollustu ávaxta og græn-
metis og Baldur Símonarson lífefna-
fræðingur fjallar um það hvers
vegna ávextir og grænmeti eru svo
holl sem raun ber vitni. Hvaða for-
vitnilegu náttúruöfl búa þar að baki?
í lokin verður kynning á framandi
ávöxtum þar sem sýnt verður hvern-
ig á að borða þá og matreiða, sem vill
flækjast fyrir mörgum.
Meðal annars verður kynntur
ástríðuávöxtur, stjörnuávöxtur, papa-
ya, mangó og ananas, sem kvað vera
fáanlegur án þess að vera í dósum. ■
VALA ÞÓRSDÓTTIR
Á tíu dögum voru 45 sýningar á éttta mismunandi stöðum. Verkið hlaut viðurkenningu
gagnrýnenda á hátíðinni.
Tók þátt í leiklistarhátíð í Ungverjalandi:
Ungverjar ekki mikið fyrir
að hlæja eða brosa
leiklist Aðstandendur The Icelandic
Take Away Theatre, Vala Þórsdóttir
og Ágústa Skúladóttir, eru nýkomnar
heim frá Búdapest þar sem þær tóku
þátt í Leiklistarhátíð sjálfstæðra
leikhópa. „Þetta var algjört ævintýri
og okkur var tekið rosalega vel,“
sagði Vala í samtali við Fréttablaðið.
Leikhópurinn sýndi tvo einleiki, Háa-
loft eftir Völu og Engla alheimsins í
leikgerð Neil Haigh. Auk þeirra var
með í för Kolbrún Ósk Skaftadóttir,
ljósamaður.
Vala sagðist hafa farið á margar
sýningar þar ytra, þar á meðal grín-
sýningar. „Þær voru meira og minna
á ungversku þannig að maður var
kannski ekki alveg að skilja hvað
leikararnir voru að segja en brandar-
ar sjást alltaf í leikhúsi." Hún sagði
Ungverja frekar alvörugefna og ekki
mikið fyrir að hlæja eða brosa í leik-
húsi. „Þess vegna vorum við ákaflega
ánægð og stolt þegar við fengum okk-
ar áhorfendur til að skellihlæja.“
Vala er á leið á Kvennalistahátíð í
Tornio í Finnlandi þar sem hún sýnir
Háaloft og kennir skrif og leik á ein-
leikjum. „Þetta er mikill heiður sem
vonandi leiðir til fleiri tækifæra því
það er fátt skemmtilegra en að ferðast
og vinna.“ ■
MIÐVIKUDAGURINN
9. MAÍ
FUNPUR_____________________________
17.15 Jorge Hankamer prófessor við
málvísindadeild Kaliforníuháskóla
í Santa Cruz flytur fyrirlestur í boði
íslenska málfræðifélagsins í dag
í stofu 201 í Lögbergi. Fyrirlestur-
inn verður á ensku og nefnist
„Definite Nouns and Definite
NPs". ( honum verður fjallað um
formgerð nafnliða í norrænum
málum, einkum dönsku. Jorge
Hankamer lauk doktorsprófi frá
Yale-háskóla 1971 en doktorsrit-
gerð hans fjallaði um eyður í
setningum. Hann kenndi við
Harvard-háskóla 1973-1980 en
frá 1980 hefur hann starfað við
Kaliforníuháskóla í Santa Cruz og
var formaður málvísindadeildar-
innar þarfrá 1980-1990.
20.00 Aðalfundur Manneldisfélags ís-
lands verður haldin í kvöld í
Odda, sal 101. Að aðalfundi lokn-
um kl. 20.30 boðar Manneldisfé-
lagið til málþings á sama stað um
tengsl ávaxta og grænmetis við
heilsu. Allir velkomnir.
FERÐALÖG___________________________
20.00 í kvöld stendur Útivist fyrir fugla-
skoðun á Álftanesi við Astjörn.
Brottför er frá BSÍ og verð fyrir fé-
laga er 800 kr. en 1.000 kr. fyrir
aðra. Frítt fyrir börn í fylgd með
foreldrum sínum. Leiðbeinandi
veður Hallgrímur Gunnarsson
fuglaáhugamaður. Fólki er bent á
að hafa með sér sjónauka.
TÓNLIST_____________________________
23.00 Rokkhljómsveitin Botnleðja held-
ur stórtónleika á Gauki á Stöng í
kvöld. Strákarnir lofa miklu stuði á
tónleikunum.
23.00 Dj Tommi White og félagar hans
halda uppi grúvaðri djúp hús
stemmningu á Café Ozio á mið-
vikudagskvöldum. Enginn að-
gangseyrir
LEIKLIST____________________________
20.00 Leikverkið Laufin í Toscana erður
sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins.
Leikritið fjallar í stuttu máli um
skandinaníska stórfjölskyldu sem
kemur árlega saman á Italíu til að
treysta böndin, en smám saman
áttar það sig á þvf að heimurinn
er að breytast. Meðal leikenda
eru Erlingur Gíslason og Valdi-
mar Flygering. Leikstjóri er Viðar
Eggertsson. Höfundur verksins
heitir Lars Norén.Síðasta sýning.
20.00 Aukasýning er á leikverkinu Píku-
sögur eftir bandaríska leikskáldið
Eve Ensler. Verkið er byggt á við-
tölum leikskáldsins við konur,
gamlar konur og ungar, um þeirra
leyndustu parta, píkuna. Með að-
Gaman að
leika mis-
heppnaðan
kynskipting
Loftkastalinn hefur
æfingar á söngleikn-
um Hedwig. Hefur
slegið í gegn víða
í Bandaríkjunum.
leiklist Loftkastalinn frumsýnir í
sumar söngleikinn Hedwig eftir
John Cameron Mitchell í þýðingu
Hallgríms Helgasonar og er undir-
búningur nýhafinn. Með aðalhlut-
verkið fer Björgvin Franz Gíslason
en þetta er hans fyrsta verkefni eft-
ir að hann útskrifast frá Leiklistar-
deild Listaháskóla íslands nú í vor.
„Þetta er mjög spennandi verkefni
og draumur allra leiklistarnema er
að fá hlutverk strax að lokinni út-
skrift."
Hedwig er sjóðheitur rokksöng-
leikur sem segir sársaukafulla og
hnyttna sögu hin ólánsama Hedwig
sem eftir mislukkaða kynskiptaað-
gerð eltir hermann til Ameríku frá
Austur-Berlín og endar sem söng-
kona í vafasömum næturklúbb í
Kansas. „Þetta hlutverk býður upp á
marga möguleika og rosalega gam-
an að fá að vera misheppnaður kyn-
20.00 I kvöld er sýning á leikritinu Með
fulla vasa af grjóti eftir Marie Jo-
nes í Þjóðleikhúsinu. Leíkritið
fjallar á gamansaman hátt um
samskipti írskra statista við fram-
leiðendur og leikarara stórrar
Hollywoodmyndar. Með aðalhlut-
verk fara þeir Stefán Karl Stef-
ánsson og Hilmir Snær Guðna-
son.
SÝNINGAR_________________________
1 Borgarskjalasafni Reykjavík, Grófar-
húsinu stendur yfir sýning á skjölum og
Ijósmyndum tengdum verkalýðsbarátt-
unni f Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar. Á
sýningunni eru skemmtilegar og sjald-
séðar Ijósmyndir af fyrstu kröfugöngunni
í Reykjavík, þann 1. maí 1923. Margir
skiptingur í einn og hálfan tíma,
syngja fullt af lögum og í leiðinni að
túlka hamræna sögu af brotinni en
jafnframt fallegri manneskju."
Söngleikurinn er sagður minna
bæði á Ziggy Stardust og Marlene
Dietrich og tónlistin er sögð blanda
af villtu pönki, glamúrrokki og
ljúfsárum ballöðum. Björgvin seg-
ist sjálfur kalla þetta einskonar
rokksöngtvíleik þar sem söguhetjan
nafngreindir þekktir íslendingar sjást á
myndunum, en Pétur Pétursson, þulur
hefur unnið að rannsóknum á Ijós-
myndunum. Sýningin er á 6. hæð Gróf-
arhúss, Tryggvagötu 15 og er aðgangur
ókeypis. Hún er opin mánudaga til
fimmtudaga kl. 10-20 og föstudaga til
sunnudaga 13-17. Sýningin stendur til
21. maí.
Sýningin World Press Photo er haldin í
Kringlunni. Þar er að finna fjölda Ijós-
mynda sem unnu til verðlauna í ólíkum
flokkum. Samhliða sýningunni er Ijós-
myndasýning Morgunblaðsins þar gef-
ur að líta úrval Ijósmynda fréttaritara og
Ijósmyndara blaðsins á landsbyggðinni.
Sýningin er liður i samkeppni um bestu
Ijósmynd fréttaritara frá árunuml999-
2000. Sýningin stendur til 14. maí.
Heimildir um siglingar íslendinga og
Grænlendinga til Vínlands og kristnitöku
segir sögu sína um leið og hánn er að
halda tónleika.
Hedwig hlaut einróma lof gagn-
rýnenda þegar söngleikurinn var
frumsýndur í New York fyrir tveim-
ur árum. Söngleikurinn er nú sýndur
í mörgum borgum í Bandaríkjunum
og einnig í Berlín. Nú fyrir skemm-
stu var frumsýnd kvikmynd sem
unnin er upp úr söngleiknum. Kvik-
myndin var forsýnd á Sundance-
á Alþingi við Öxará fyrir þúsund árum er
að finna í þeim handritum sem varðveitt
eru á Árnastofnun, Árnagarði. Einnig
eru sýndir gripir af Þjóðminjasafni sem
tengjast upphafi kristni í landinu. Sýn-
ingin stendur til 15. maí.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir i Gerðubergi. í vetur hafa
þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna-
mannsins Marteins Sigurgeirssonar og
afraksturinn hangir á veggjum Gerðu-
bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreytt-
ar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf.
Sýningin stendur til 2. júní.
MYNDLIST___________________________
Ropi er yfirskrift myndlistarsýningar sem
opnuð hefur verið í Nýlistasafnínu. 1
SÚM sal er Anna Líndal að velta fyrir
sér gjaldföllnu gildismati, í Gryfju safns-
ins sýnirólöf Nordal skúlptúr og gagn-
alhlutverk fara Halldóra Geir-
harðsdóttir, Jóhanna Vigdís Arn-
ardóttir og Sóley Elíasdóttir.
HÁLFUR KOSS
„Ég að kyssa Vinoodh (passionately)" heitir þessi mynd eftir hollenska Ijósmyndarann
Inez van Lamsweerde. Á myndina vantar Vinoodh Matadin, sem einnig er hollenskur Ijós-
myndari og væntanlega býsna góður vinur hennar Inez.
Nýstárleg sýning í New York:
T ölvutæknin notuð
í þágu listagyðjunnar
myndlist All nýstárleg sýning á staf-
rænni list stendur nú yfir í Whitney
Museum í New York, og hefur hún
vakið verðskuldaða athygli. Á sýn-
ingunni, sem ber yfirskriftina
„Bitstreams", er að finna verk eftir
50 listamenn sem allir hafa tekið
tölvutæknina með ýmsum hætti í
þjónustu listagyðjunnar. Þegar inn er
komið ganga sýningargestir fyrst í
gegnum dularfull göng með mjúkri
bláleitri flúorlýsingu og á leiðinni
heyrir fólk hljóð af ýmsu tagi, allt frá
býflugnasuði og teiknimyndahljóðum
til hljóða sem neðansjávarskordýr
gefa frá sér.
Fyrir innan getur að líta ljós-
myndir og vídeóverk, teikningar og
hljóðskúlptúra af ýmsu tagi. Meðal
annar er stór skjár á einum veggnum
þar sem áhorfendur geta flett á milli
lifandi mynda af ýmsum svæðum á
jörðinni. Verkið nefnist „ecosystem"
og er sett upp sem tölvuleikur og
leikjapinni er notaður til að flakka á
milli myndanna.
Þarna er einnig að finna nýstár-
lega sýn á stórmyndina Titanic, þar
sem hún hefur verið brotin niður í
meira en 300.000 ramma og þeim er
öllum raðað niður á einn flöt þar sem
hver rammi verður agnarsmár. ■