Fréttablaðið - 09.05.2001, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 9. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Knattspyrnuleikur í íran:
Þak leikvangsins
hrundi á áhorfendur
BEINT í AUGLÝSINGAR
Sjónvarpsáhorfendum írönsku Tehran sjónvarpsstöðvarinnar hefur eflaust brugðið ( brún
þegar þak leikvangsins hrundi skyndilega. Sjónvarpsstöðin skipti beint yfir I auglýsingar.
DHOWDUGGUR
Emirate-turnarnir I Dubai tróna á bakvið
sigurvegarana í dhow báta kappsiglingunni
í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Slíkir viðarbátar finnast aðeins þar I landi.
knattspyrna Þak hrundi ofan á áhorf-
endur á knattspyrnuleik í íran á
sunnudag. Tveir eru látnir og hund-
ruðir slasaðir. íranska knattspyrnu-
sambandið rannsakar nú hvað gerðist
þegar 20 þúsund manns voru staddir á
Mottaqi-vellinum í Sari, sem einungis
10 þúsund manns komast fyrir á. Þeg-
ar áhorfendurnir höfðu fyllt allar
stúkur klifruðu þeir sem ekki komust
að upp á þakið á stúkunni, sem er úr
trefjaplasti. Það þoldi ekki þungann
og féll ofan á þá sem stóðu fyrir neð-
an. Þetta gerðist þegar áhangendurnir
voru að fagna með dansi og miklum
látum í seinni hálfleik. Óreiðan var
svo mikil að læknar áttu mjög erfitt
með að aðstoða hina slösuðu. Eftir
slysið réðust reiðir áhangendur lið-
anna að lögreglumönnum sem voru að
reyna að koma reglu á hlutina og end-
aði það með því að einn veggurinn á
vallarbyggingunni var rifinn niður og
sömuleiðis allar girðingar á milli
stúka og vallar. Tehran sjónvarpsstöð-
in, sem sýndi leikinn í beinni útsend-
ingu, skipti snögglega yfir í auglýs-
ingar þegar þakið féll. Knattspyrnu-
liðin Shemooshak og Persepolis voru
að spila. Þetta er í annað skipti á fimm
mánuðum sem hið vinsæla lið,
Persepolis, lendir í því að leikur endar
í óeirðum. í desember enduðu slags-
mál milli stuðningsmanna þess og
annars liðs í því að 100 þúsund áhan-
gendum lenti saman og voru 250
strætisvagnar á leiðinni frá leikvang-
inum að næstu borg eyðilagðir. ■
[ MOLAR ~|
Formúlukappinn Ralf Schumacher
er ævareiður eftir að þýskt dag-
blað birti nektarmyndir af kærust-
unni hans, Cora
Brinkmann. Mynd-
irnar í Bild sýna
hina 24 ára gömlu
Brinkmann nakta á
gangi úti í skógi og
standandi við sund-
laug. Búið var að
skeyta litlum
kappakstursbílum
yfir viðkvæma staði á líkama henn-
ar. í síðustu viku var sagt frá því að
Schumi hefði pungað út rúmum 18
milljónum króna til að halda mynd-
unum úr umferð. Hann ku hafa sagt:
„Þetta eru fallegar myndir en Cora
tilheyrir mér einum. Ég get ekki
hugsað til þess að þúsundir Þjóð-
verja sjái hana nakta.“
Heitt er í hamsi á HM í ísknatt-
leik í Þýskalandi. Átta liða úrslit
hefjast á morgun og skapofsinn á
ísnum eykst með
hverjum deginum.
Versta hegðun
mótsins var á
mánudag þegar
Svissland vann ítal-
íu með átta mörk-
um gegn einu. Þrír
voru reknir útaf og
alls var leikmönn-
um liðanna tveggja vísað út af í 117
mínútur. ítalir hafa hagað sér verst
allra á mótinu. Þegar tvær mínútur
voru eftir af leiknum fór allt í loft
upp, hanskarnir fuku og slagsmál
brutust út. Svisslendingurinn Jean-
Jacques Aeschlimann var sleginn í
rot af ítalanum Anthony Iob. Ofbeldi
hefur löngum verið áberandi í
ísknattleik en undanfarið hafa refs-
ingar aukist. „Þetta er hluti af
íþróttinni og verður það áfram. Mað-
ur vonar bara að enginn meiðist al-
varlega," sagði fararstjóri
Kanadamanna, Wayne Gretzky, í til-
efni af atburðinum.
Hollendingurinn Frank de Boer,
þvertekur fyrir það að hafa tek-
ið inn ólögleg efni. Hann játar hins-
vegar að hafa
mælst jákvæður af
nandrolone stera í
síðasta mánuði. „Ég
er atvinnuíþrótta-
maður og nota
aldrei ólögleg efni
til að bæta getu
mína,“ sagði de
Boer. Hann grunar
að ástæðan liggi í einhverju sem
hann hefur neytt. „Þó ég athugi yfir-
leitt hvað ég læt ofan í mig er
ómögulegt að fylgjast með öllu. Ég
hef ekki hugmynd um hvernig ster-
inn komst í blóðstreymið." Hann
segist hlakka til að fara í annað próf
til að sanna sakleysi sitt.
Fyrirliði skoska landsliðsins, Colin
Hendry, hefur áfrýjað sex leikja
banni sem FIFA setti hann í á dögun-
um. Hendry var settur í bann eftir
að kýla leikmann Sán Marino í síð-
asta mánuði. Ef bannið fer í gegn
missir Hendry af öllum þremur
leikjunum sem Skotar eiga eftir í
undankeppninni, tveimur aukaleikj-
um um sæti í keppninni ef þarf og
að minnsta kosti einum leik í Japan
að ári. Þetta þýðir að alþjóðlegur
ferill Hendry, sem er 35 ára, gæti
verið að renna sitt skeið.
Sumir kjósa að skrapa botninn
Við hlífum honum!
LANDSSAMBAND
smábátaeigenda