Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 1
PENINGAR
Gengið
til baka
bls 7 og 10 ►
MENNING
Holdið er sá
möndull sem
allt snýst um
bls 19 ►
FISKVERKAFÓLK
Eg hef enga
samúð með
sjómönnum
bls 13 ►
TILBOÐ MÆNAÐARINS
Vikuferðir til
BENIDORM
39.980 kr.
m/sköttum, m.v. 2-4 / íbúð
brottfarir 23. eða 30. maí.
F^rdaskrifstofh Réykjatrikzw
Sími: 552-3200 iuiviv.ferd.is
FRETTABLAÐIÐ
13. tölublað - 1. árgangur
FlfyiMTUPAGUR
Sjómenn á teppið
Verkfall Forysta
Farmanna- og
fiskimannasam-
bandsins og Sjó-
mannasambands
íslands er í dag
boðuð á fund
Árna MatKiesen,
sjávarútvegsráðherra, til að ræða
um stöðuna í sjómannaverkfalli í
kjölfar samninga vélstjóra. Sjó-
menn telja að yfir vofi hótun um
lög á verkfallið. bls. 12
IVEÐRIÐ í DACI
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Fimmtudagurinn 10, maí 2001
o RFYKIAVÍK Suðaustan 5 til 8 m/sek, skýjað með köflum. Hiti 7-12 stig.
■ VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður © 5-8 skýjað Q 12
Akureyri O 3-5 léttskýjað Q 17
Egilsstaðir O 8’13 skýjað Q 15
Vestmannaeyjar (3 5-8 skýjað Q 12
Hver fær Skálholt?
kirkian Kirkjuráð kemur saman til
fundar í dag að ræða ráðningu nýs
rektors Skálholtsskóla. Átök standa
um hvort skipa eigi Guðmund Ein-
arsson eða séra Bernharð Guð-
mundsson í embættið.
FRÉTTASKÝRINGj bls. 12 ►
Vélstjórasamningar:
Samningurinn
er skemmdarverk
Hverjir eru bestir?
knattspyrna KSÍ mun í dag tilkynna
niðurstöður könnunar meðal þjálf-
ara og fyrirliða bestu knattspyrnu-
liða landsins á því hvaða lið eru
sigurstranglegust í Landssíma-
deildinni, en keppni í henni hefst í
næstu viku. í blaðinu í dag spá
gamalkunnir fótboltakappar í kom-
andi tímabil. bls. 14 ,
1KVÖLDIÐ í KVÖLD|
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 (þróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 21
Tökum
gamla
simann
upp i nýjan
Íslandssími
Hatrammt andrúmsloft
eftir vélstj órasamning
Sjómenn kallaðir til sjávarútvegsráðherra. Þeir búast við lagasetningu á hverri stundu og sumir vilja
frekar fresta verkfalli en sitja uppi með vélstjórahlutinn. Ríkisstjórnin er í viðbragðsstöðu.
sjómannadeilan „Við setjum engin
tímamörk en þetta er mjög erfitt,“
sagði Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, þegar Fréttablaðið spurði
hann í gær hvort ríkisstjórnin hygg-
ist hafa afskipti af deilu sjómanna
og útvegsmanna. Sérstaklega í ljósi
þess hversu illa samninganefndir
Farmannasambandsins og Sjó-
mannasambandsins hafa tekið samn-
ingi Vélstjórafélags íslands og LÍÚ.
Davíð sagðist vonast til að samning-
urinn hvetti aðra menn til að semja.
Þegar hann var spurður hvort hann
vildi útiloka lagasetningu, sagði
hann að ekki væri hægt að svara
þannig spurningu, en bætti við; „við
höfum ekki rætt þetta.“
__4-'... Heimildarmenn
segja að ríkis-
stjórnin sé í við-
bragðsstöðu og til
lagasetningar geti
komið hvenær sem
er. Samninganefnd-
ir sjómanna hafa
verið kallar á fund
sjávarútvegsráð-
herra fyrir hádegi í
dag. Árni M.
Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra
vildi ekkert tjá sig
um stöðu mála þeg-
ar Fréttablaðið
ræddi við hann.
—►— Samninganefnd-
armaður sem rætt var við sagði að ef
stefndi í lagasetningu á grundvelli
vélstjórasamningsins kæmi vel til
greina að hætta verkfallinu og fara
frekar á sjó með síðasta samning en
fá hinn nýja vélstjórasamning yfir
sig. Fullyrt er að ákveðinn hluti sjó-
manna muni lækka í launum sam-
kvæmt nýja samningnum. Auk þess
segja menn að í hann vanti heil
ósköp, svo sem alla útfærslu á fisk-
verðshækkunum og þeir segja
„Það er Ijóst að
samningstíminn
er mjög langur,
og að slysa-
tryggingarnar
eru algjörlega
óásættanlegar,
lífeyrissjóður af
kauptryggingu
er óásættanleg-
ur og við mun-
um aldrei
semja þannig."
Sævar
Gunnarsson.
Sjá nánar á bls. 12.
samninginn varla vera vinnuplagg.
Verði sett lög í dag eða næstu daga
koma þau í veg fyrir að samningur-
inn komi til atkvæða. Hinn mögu-
leikinn er sá, það er ef ekki semst, að
bíða þar til vélstjórar hafa greitt at-
kvæði og að því loknu verði sett lög.
Þá verður Alþingi farið í sumarfrí.
Samninganefndarmenn innan Sjó-
mannasambandsins og Farmanna-
sambandsins vanda Helga Laxdal
ekki kveðjurnar og segja samning
hrikaleg mistök.
Þegar verkfallinu var frestað
snemma í apríl voru rökin þau að
mikil verðmæti væru að fara for-
görðum, það er vegna loðnunnar, og
nú er bent á karfann á Reykjanes-
hrygg.
sme@frettabladid.is
Sharon segir Arafat ekki viðræðuhæfan:
14 ára piltar myrtir
jerúsalem. æ Tveir 14 ára Gyðingar
voru grýttir til dauða á Vesturbakk-
anum, en þeir höfðu skrópað í skólan-
um og skroppið í útilegu. Lík þeirra
fundust illa útleikin í helli í gær og
var Palestínumönnum kennt um
morðin. Sama dag særðist þriggja
mánaða gömul palestínsk stúlka þeg-
ar ísraelskir hermenn gerðu skotárás
á flóttamannabúðir á Gazasvæðinu,
fáeinum dögum eftir að fjögurra
mánaða palestínsk stúlka lét lífið í
sprengjuárás ísraelsmanna. Móðir
barnsins sagðist hafa verið ein heima
með dóttur sinni þegar skothríðin
reið af. ísraelskir hermenn fóru þris-
var sinnum inn á palestínsk yfiri’áða-
svæði í gær.
Ariel Sharon forsætisráðherra
ísraels sagðist í gær hafa fyllst við-
múm spilar af hugsjón
SÍÐA 16 ►
BARNAMORÐIN HALDA ÁFRAM
Ættingi annars 14 ára piltsins brestur I grát
við jarðarförina í gær.
bjóði við fréttirnar af láti piltanna
tveggja, og gerði Jasser Arafat leið-
toga Palestínumanna ábyrgan. Við
Arafat væri því ekki lengur unnt að
ræða um friðarmál. ■
KR enn og aftur
SÍÐA 14 ►
SÆVAR GUNNARSSON FORMAÐUR
SJÓMANNASAMBANDSINS
Hann er einn þeirra sem gagnrýnir
formann Vélstjórafélagsins harkalega.
Hann segir ekki koma til greina að hann
skrifi undir samning eins og þann sem
vélstjórar gerðu
| PETTA HELST |
Vonir um að mynda þjóðstjórn í
Makedóníu dvínuðu mjög í
gær, þar sem albanskur stjórn-
málaflokkur krefst þess að árásum
á vopnaða albanska íbúa í Kosovo
verði hætt áður en viðræður hefj-
ast. bls. 2.
Síðdegis í gær var bensínið ódýr-
ast á sjálfsalastöð Orkunnar á
Smiðjuvegi, en þar kostaði lítrinn
af 95 oktana bensíni 91,40 krónur
og lítrinn af dísilolíu 42,60.
bls. 2.
Kristnihátíðin á Þingvöllum í
fyrra kostaði 341 milljón
króna, og er það innan fjárlaga.
Það jafngildir um 11.000 kr. á
hvern þeirra 30.000 gesta sem
þangað lögðu leið sína, samkvæmt
opinberum tölum. bls. 2.