Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 2

Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 2
KJÖRKASSINN GEIR H. HAARDE FJÁRMÁLA- RÁÐHERRA Naumur meirihluti vill að hann kynni fjárlögin áfram í krónum. Á að taka upp evru í stað krónu? Niðurstöður gærdagsins á vwwi/.visir.is Já 47% Nei 53% Spurning dagsins í dag: Er samkeppni bensfnfélaganna til kom- in vegna úttektar Samkeppnisstofnunar á grænmetisframleiðendum? Farðu inn á vísi.is og segðu I þína skoðun I ___________ Á FLÓTTA TIL KOSOVO Um það bil 6.600 manns höfðu í gær flúið frá Makedóníu yfir landamærin til Kosovo. Makedónía: Berjast áfram kumanovo, MflKEDÓNiu, ap Vonir um að mynda þjóðstjórn í Makedóníu dvínuðu mjög í gær, þar sem albansk- ur stjórnmálafiokkur krefst þess að árásum á vopnaða albanska íbúa í Kosovo verði hætt áður en viðræður hefjast. Makedóníuher hélt í gær áfram árásum sínum á albanska upp- reisnarmenn, og stjórnvöld hvöttu þorpsbúa til þess að forða sér. Makedóníuher hefur haldið því fram að albönsku uppreisnarmennirnir noti þorpsbúana til þess að skýla sér fyrir árásum. Uppreisnarmennirnir harðneita þeim ásökunum, en segjast ótrauðir ætla að berjast áfram. ■ Á LEIÐARENDA Þremenningarnir vöfðu sig breska fánan- um þegar markinu var náð. Norðurpóllinn: Fyrstar á báða póla póLFARflR Bresku konurnar Fiona Thornewill og Catharine Hartley náðu því marki sínu að komast á Norðurpólinn síðustu helgi. Þær eru fyrstu konurnar til að hafa gengið bæði á Suður- og Norðurpólin. Með þeim í för var eiginmaður Fionu, Mike, og eru þau fyrstu hjónin sem komast á báða póla. Flogið var með þremenningana til Kanada að lokinni pólferðinni en þaðan halda þau aftur til Bretlands. ■ | INNLENT~| Flugleiðir hafa ákveðið að hækka fargjöld í millilandaflugi um 6% frá og með næsta mánudegi, 15. maí. í tilkynningu segir að ástæðan sé hrær- ingar á gjaldeyrismörkuðum og hækk- un á mikilvægum aðföngum. Lögreglan í Reykjavík er farin að sekta bíla á nagladekkjum og hef- ur haft afskipti af 15 ökumönnum sem enn voru með nagladekk undir bílum sínum. Fólki bar að setja sumardekk undir bifreiðar sínar fyrir 15. apríi. 2 - . -______- FRÉTTABLAÐIÐ ' ______. v~ '__________ io.-ma(2Qor- fiiviivitupagur -V-y-V ' Outlook meingallað póstforrit: Klámormur í pósti töivur Nýr tölvuormur breiddist út um heimsbyggðina í gær. Ormurinn sem átti upptök sín í Bandaríkjunum ferðast sem viðhengi í tölvupósti sem ber heitið Homepage í efnislýsingu. Ef tvísmellt er á viðhengið, „home- page.HTML.vbs“ fer veiran af stað og sendir sjálfa sig áfram til allra sem eru á netfangalista viðkomandi og eyðir um leið öllum pósti sem hef- ur orðið „Ifomepage" í efnislýsingu í innpósti eða eyddum gögnum í póst- forriti. Viðtakandi endar síðan inni á kiámsíðu. Að sögn Arnars Stefánssonar, starfsmanna Friðriks Skúlasonar, var töluvert hringt í fyrirtækið í gær til að fá ráð um hvernig ætti að bregðast við orminum. „Þetta er í sjálfu sér ekki mjög skaðleg veira, en hún get- ur yfirfyllt póstþjón viðtakanda og þannig valdið töfum. Tími eru pen- ingar í dag þannig að það má segja að tjónið sé töiuvert." Arnar segir að hann ráðleggi fólki almennt að nota ekki Microsoft Outlook póstforritið en ormurinn dreifir sér bara í því. „Það eru allt of mörg göt í þessu for- riti. Ef fólk er að nota það ætti það bara að nota allra það nýjasta." Ormurinn er svipaður orminum Önnu Kournikova sem fór um heim- inn fyrir skömmu. Hann breiddist út um póstþjón ástralska þingsins í gær VIÐ SKJÁINN Á heimasiðu Friðriks Skúlasonar geta not- endur Lykla-Péturs veiruvarnarforritsins náð í nýjustu uppfærslu þess sem eyðir örminum. og varð vart í fjölda fyrirtækja. Hans varð einnig vart mjög víða á Nýja Sjálandi. ■ Stóra gengisfallið Gengið til baka peningamál Gengi kfónunnar styrktist um 1,66% í gær í 9,5 milljarða króna viðskiptum og er það nú svipað og fyrir gengisfallið á miðvikudag í síðustu viku. Geng- isvísitalan er nú 133,79 stig en upp- hafsgildi í gærmorgun var 136,12. Þrátt fyrir styrkingu krónunnar síðustu daga er gengið hins vegar enn um 10% lægra en í ársbyrjun. í lok dagsins var gengi dollar- ans 97,94 og lækkaði um 2,82% miðað við daginn í gær. Gengi pundsins var 139,55 og lækkað um 3,39%. ■ HEITIR DAGAR Á ÞINGVÖLLUM Sólin skein glatt við kristnihátíðargestum á Þingvöllum I byrjun júlí í fyrra. 11 þúsund á hvern gest Kristnihátíð á Þingvöllum innan fjárlaga. Einnota umgjörð kostaði 171 milljón króna og auglýsingar 32 milljónir. RiKisFJÁRMflL Ki'istnihátíðina á Þingvöllum í fyrra kostaði 341 milljón króna, að því er segir í frétt frá forsætisráðuneytinu. Athygli vekur að helmingur upp- hæðarinnar sem hátíðin kostaði, 171 milljón króna, rann til fram- kvæmda sem ekki voru varanlegar en tengdust umgjörð hátíðarinnar sem síðan var fjarlægð. Listviðburðir á Kristnihátíðinni kostuðu 41,4 milljón krónur eða helmingi meira en löggæslan sem kostaði 21,5 milljón. Alls nam auglýsingakostnaður vegna þessa viðburðar 32 milljón- um króna en það gerir rúmlega eitt bensín. Heldur rólegra var á bensín- markaðnum í gær en í fyrradag, en Fé- lag íslenskra bifreiðaeigenda fylgist reglulega með verðþróuninni á vefsíðu sinni. Síðdegis í gær var bensínið ódýr- ast á sjálfsalastöð Orkunnar á Smiðju- vegi, en þar kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni 91,40 krónur og lítrinn af dísiloliu 42,60. Á nokkrum öðrum stöðum Orkunn- ar kostaði lítrinn af bensíni hins vegar 94,80 krónur og dísilolían 43,80. Á öll- um sjálfsalastöðvum ÓB kostaði lítrinn 91,60 krónur og hjá Esso Express í Smáranum kostaði hann 92,40, en dísilolían 42,80. Bensínverð á þjónustustöðvum ol- þúsund krónur á hvern af þeim 30 þúsund gestum sem yfirvöld telja að hafa sótt hátíðina. í frétt forsætisráðuneytisins segir að 2500 hafi starfað við Kristnihátíðina eða komið fram við dagskrá hennar sem hafi verið viðamikil og fjölbreytt en dag- skráratriði voru 130. Beinn kostn- aður við hvert þeirra nam að með- altali tæpum 319 þúsund krónum miðað við að 41,4 milljón runnu til listviðburða. í heild má hins vegar gera ráð fyrir Kristnihátíðin á Þingvöllum hafi kostað ríflega 11 þúsund krónur á hvern gest miðað við áðurgreindar tölur. íufélaganna er mun dýrara en á sjálfsalastöðunum. Hjá Olís kostaði lít- irinn 101,90 krónur ef starfsmaður dældi, en 99,90 ef fólk dældi sjálft. Þar kostaði dísilolían 48,60 ef fólk dældi sjálf. Hjá Esso kostaði bensínlítrinn með þjónustu 102,90 krónur, en sums staðar 98,90 ef fólk dældi sjálft. Dísilolía með þjónustu kostaði 50,60 krónur en ann- ars 46,60 til 48,60. Á þjónustustöðvum Skeljungs kost- aði bensínlítrinn 102,90 krónur með fullri þjónustu, en ef fólk dældi sjálft fékk það tveggja króna afslátt. Dísilol- ía með þjónustu kostaði 50,60 krónur lítrinn en 48,60 ef fólk dældi sjálft. ■ Unnið er að lokauppgjöri vegna alls starfs á vegurn kristnihátíðar- HVER VERÐUR ÓDÝRASTUR f DAG? Orkan hafði vinninginn í gær og bauð lægsta verðið. I dag kemur í Ijós hvort bensínstríðið heldur áfram. arnefndar og er von á því í næsta mánuði. gar@frettabladid.is Mótmælti hækkunum: Stal bensín- dælum Lögreglan í Reykjavík handtók í gær mann við Olíufélagið Esso við Suður- landsbraut, en maðurinn stal bensín- dælurn frá þremur bensínafgreiðslu- stöðvum Esso um helgina.Um síðustu helgi sagaði maðurinn bensíndælur af slöngum við þrjár bensínaf- greiðslustöðvar Esso og skildi hann eftir bréf þar sem hann mótmælti hækkun eldsneytis. í gær ákvað hann að skila bensíndælunum aftur til 01- íufélagsins þar sem eldsneytisverð hefur verið lækkað aftur. Lögreglan handtók manninn þegar hann birtist við húsnæði Olíufélagsins í dag og hefur Olíufélagið kært hann. ■ UPPGJÖR VEGNA KRISTNIHÁTÍÐAR 1. Dagsskrá Þingvallahátíðar 104,2 1.1 Listviðburðir 41,4 1.2 Umsjón hátíðarsvæða 20,1 1.3 Kynning og auglýsingar 31,9 1.4 Akstur: almenningur, listamenn og starfsfólk 10,7 2. Framkvæmdir 205,4 2.1 Varanlegar framkvæmdir 34,7 2.2 Tímabundnar framkvæmdir 170,7 3. Umferðarmál 31,5 3.1. Löggæsla 21,5 3.2 Undirbúningur og umferðarskipulag 10,0 Kostnaður alls 341,1 Loksins samkeppni á bensínmarkaði: 91,40 á Smiðjuvegi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.