Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 4
4
FRETTABLAÐIÐ
10. maí 2001 FIMMTUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
hAskólanemum fjölgar
Nemendum á háskólastigi hefur fjölgað
nokkuð á undanförnum árum meðan
nemendum á framhaldsskólastigi hefur
fækkað lítillega.
Framhaldsskóiastig 20.221 1
H.á sk o!
1997
|Framhaidsskóiastig 20.135 |
Framhaidsskóiastig 19.8711
Háskólastig 9.90 sl
1999
Framhaidsskóiastig 19.909 |
Háskólastig 10.495 1
2000 HEIMILD: HAGSTOFA ISLANDS
♦
Vélstjórar klufu sig frá og
sömdu:
Þetta er
engin lausn
sjómannasamningar „Þetta er engin
lausn,“ sagði Grétar Mar Jónsson
forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands,
um kjarasamning-
inn milli Vélstjóra-
félags íslands og
LÍÚ.
„í raun er þetta
launalækkun, það
er ekki tekið tillit til
gengissigs, sem
hefur verið. Verst
kemur fiskverðið út
hvað varðar karfa
sem hækkar um
tvær til fjórar krón-
ur. Það er enginn
botn á fiskverðinu
til að byrja með og
það er hægt að halda áfram á sama
lága verðinu, 60 til 70 krónur þess
vegna. Það verða frávik og til að fá
lagfæringu á þeim þarf að fara fyrir
úrskurðarnefnd sem sjómenn eru
seinþreyttir á að gera og kosta átök
við útgerðina. Þetta er engin lausn og
frestar vandanum ef þessi leið verð-
ur farin og eykur totryggni milli út-
gerðarmanna og sjómanna," sagði
Grétar Mar Jónsson. ■
-.♦-.
Grikkland:
Mótmæla
lögregluof-
beldi
Um 400 manns mótmæltu í borginni
Thessaloniki í Grikklandi í gær.
Mannfjöldinn var að mótmæla
ákvörðun dómsstóls að sýkna lög-
regluþjón af ákæru um að skjóta til
dauða óvopnaðan ungling. Nikos Le-
onidis, 17 ára Grikki, var skotinn í
höfuðið af lögregluþjóninum fyrir ári
síðan þegar lögreglan stöðvaði hann
ásamt hóp vina hans. Lögregluþjónn-
inn Giorgos Atmatzidis, 33 ára, segir
að skot hafi hlaupið af byssu hans
fyrir mistök eftir ryskingar við ung-
lingahópinn. ■
INNLENT
Um 6.400 nemendur i 95 grunn-
skólum taka þátt í gróðursetn-
ingu á um 32 þúsund trjáplöntum á
vegum Yrkjusjóðs á þessu vori. Á
heimasíðu Kennarasambands ís-
lands segir að frá og með þessu ári
hafi rösklega 66 þúsund grunnskóla-
nemendur tekið þátt í gróðursetn-
ingu 375.594 plantna á vegum Yrkju
frá því sjóðurinn tók til starfa 1992.
——
Huld Magnúsdóttir er nýr for-
maður Islandsdeildar Amnesty
Interational en aðalfundur var ný-
lega haldinn. Aðrir stjórnarmenn
eru Hafdís Ingadóttir, Kristín J.
Kristjánsdóttir, Erlendur Lárusson,
Viðar Lúðvíksson, Sólveig Hlín
Kristjánsdóttir og María Vigdís
Kristjánsdóttir.
GRÉTAR MAR
JÓNSSON
Samningur vél-
stjóra leysir ekki
vandann að hans
mati
Fjárfesting í álverum og virkjunum á sjö árum:
Jafngildir 28
Smáralindum
fjArfesting Ef öll áform um byggingu
álvers Reyðaráls í Reyðarfirði og
stækkun Norðuráls á Grundartanga
ganga eftir verður fjárfesting vegna
þeirra og tengdra virkjanafram-
kvæmda á við 28 Smáralindir. Verslun-
arsamsteypan Smáralind í Kópavogi er
fjárfesting upp á 10 milljarða en álver
og virkjanir á tímanum 2002 til 2009
eru talin munu kosta 280 milljarða ís-
lenskra króna á verðlagi ársins 2000.
Bygging Smáralindar hefur veru-
leg áhrif á vinnumarkað í Reykjavík
og beðið er með ýmsar væntanlegar
stórframkvæmdir þar til vinnuafl
fríast úr verkum kringum Smáralind.
Það má því segja að ætlunin sé að
fjárfesta í sem svarar fjórum
„Smáralindum" á ári í virkjunum og
álverum á sjö ára tímabili. Áhrifin
verða mikil á efnahagslífið og þó
mest á árunum 2004 og 2005, þegar
fjárfest verður fyrir 75 milljarða
fyrra árið og 55 milljarða síðara árið.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, sagði á fundi
TÍU SMÁRALINDIR Á NÆSTU ÁRUM?
Smáralind hefur haft áhrif á vinnumarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu en verði af
álversáformum mun það jafngilda tíu verslanamiðstöðvum á við hana.
Verslunarráðs í gær að yfir allt tíma-
bilið yrði verðbólga 3% hærri á ári en
að óbreyttu, og þyrfti að hamla gegn
því með erlendu vinnuafli og aðhaldi
í opinberum umsvifum. Viðskipta-
halli myndi aukast í fyrstu vegna
framkvæmdanna en síðan hverfa
vegna aukins útflutnings. ■
Bankamenn íhuga máls -
höfðun vegna eineltis
Einelti sagt alvarlegasta vandamálið í rekstri fyrirtækja. Aðferð til að losa sig við
starfsfólk. Afskiptaleysi og félagsleg einangrun.
BANKASTARFSMENN
Friðbert Traustason formaður SÍB segir að bankarnir hafi viðurkennt að vita af einelti meðal starfsmanna.
bankar Stjórn Sambands íslenskra
bankamanna, SÍB, hefur til skoðunar
hvort ástæða sé að höfða mál vegna
eineltis sem einn félagsmanna telur
sig hafa orðið fyrir. Þessi starfsmaður
hætti vegna meints eineltis sem hann
varð fyrir á vinnustað sínum. Friðbert
Traustason formaður SÍB segir að ein-
elti á vinnustöðum sé orðið alvarleg-
asta vandamálið í rekstri fyrirtækja á
íslandi þótt enginn vilji viðurkenna
það. Einelti verður til umræðu á þingi
bankamanna sem hófst á Hótel Borg-
arnesi í gær og lýkur á morgun, föstu-
dag. Helstu mál þingsins eru menntun
og atvinnuöryggi. Um 65 fulltrúar
sitja þingið frá 20 aðildarfélögum.
Friðbert Traustason segir að
Talaði 41
TOKYO. ap. Nýr forsætisráðherra Jap-
ans, Junichiro Koizumi, varði í gær-
morgun umbótastefnu sína fyrir
framan andstæðinga á þinginu.
Koizumi hefur heitið því að leiða Jap-
an, sem er annað stærsta hagkerfi
heims, upp úr efnahagslægð undan-
farinna ára. Var hann meðal annars
gagnrýndur fyrir að gefa ekki skýrar
hugmyndir um hvernig nákvæmlega
hann hyggst fara að. „í ræðunni sagði
hann orðið umbætur 41 sinni ... en
hugmyndir hans eru enn óljósar,"
sagði Yukio Hatoyama, leiðtogi Lýð-
ræðisflokksins. Þrátt fyrir gagnrýni
frá stjórnarandstöðunni hefur
Koizumi stuðning 80 prósenta Jap-
ana, samkvæmt vinsældakönnunum.
Megininntakið í efnahagsumbóta-
stefnu forsætisráðherrans er að
„auka hagkvæmni í ríkisútgjöldum"
en forðast skattalækkanir.
Þá eru ýmis nágrannaríki Japans
uggandi vegna þess sem Koizumi hef-
ur sagt um stefnu hermála, en her
landsins er meðal þeirra stærstu í
starfsmenn verði bæði fyrir einelti
yfirmanna og samstarfsmanna. Þetta
sé vaxandi vandamál á vinnustöðvum
sem verði að bregðast við með öllum
tiltækum ráðum. Hann segir að þegar
yfirmenn leggi starfsmenn í einelti sé
það m.a. gert í þeim tilgangi að reyna
að losa sig við fólk í staðinn fyrir að
þurfa að segja því upp störfum. Þetta
hefur m.a. komið fram gagnvart eldri
starfsmönnum. Hann segir að einelti
starfsmanna í garð annarra sam-
starfsmanna sé einatt vegna þ£*ss
þegar einhver rekst ekki í hópnum
eins og fólk vill hafa hann. Þá sé hann
smátt og smátt settur á „klakann",
þ.e. einelti með afskiptaleysi og fé-
lagslegri einangrun. Hann segir
heimi. Hefur Koizumi sagt að hann
vilji stærra hlutverk fyrir herinn í
Asíu og að lími sé til kominn að end-
urskoða stjórnarskrána með það fyrir
augum. Stjórnarskráin, sem samin
var af Bandaríkjamönnum eftir síðari
bankamenn hafa upplifað dæmi um
það að menn hafi verið settir út í horn
í marga mánuði þar sem þeir fá engin
verkefni. Þegar viðkomandi hefur
reynt að bera sig eftir einhverjum
verkum sé því mætt með ýmsum und-
anbrögðum. Þeir sem ekki hafa þolað
þetta til lengdar hafa hreinlega gefist
upp og látið af störfum.
Formaður SÍB segir að bankarnir
hafi viðurkennt það fúslega að hafa
orðið varir við það að starfsmenn
leggi hvorn annan í einelti. Hinsveg-
ar segist hann ekki vita til þess að
einhver hafi verið rekinn úr starfi
fyrir það, hvorki yfirmaður né annar.
f það minnsta ekki enn sem komið er.
heimsstyrjöldina, kveður á um að
Japan megi ekki nota herstyrk sinn til
annars en beinnar sjálfsvarnar. Þeir
mega því ekki reyna að leysa alþjóð-
leg deilumál með því að nota her-
styrk, en þessu vill Koizumi breyta. ■
Álver í Reyðarfirði:
Reyðarál skil-
ar á morgun
umhverfismál Reyðarál hefur lokið
framkvæmd umhverfismats vegna
álvers í Reyðarfirði. Geir A. Gunn-
laugsson framkvæmdastjóri félags-
ins staðfesti í gær að skýrslu um um-
hverfismatið yrði skilað til Skipulags-
stofnunar á morgun, föstudag. „Við
höfum verið að yfirfara skýrsluna og
prófarkales hana, en þessu mikla
verki er lokið, og því verður skilað á
föstudag", sagði Geir í gær. ■
EKKI BARA í AUSTURLÖNDUM
Vændi hefur verið löglegt i Þýskalandi en
nú fá vændiskonur þar sömu stöðu og
annað „verkafólk".
Þýskaland:
Vændi er ekki
siðleysi
berlIn, ap. Vinnuréttindalöggjöf verð-
ur látin ná til vændiskvenna sam-
kvæmt nýsamþykktu frumvarpi
þýska stjórnarbandalagsins. Vændi
er leyft í Þýskalandi, en ef lögin ná
fram að ganga munu þær eiga kost á
almannatryggingum, auk þess sem
þær öðlast rétt til að kæra þá við-
skiptavini sem snuða konurnar um
greiðslu. Ætlunin er einnig að vændi
verði ekki skilgreint í lögum sem
„siðleysi" eins og það er nú. Stuðn-
ingsfélög vændiskvenna fara fram á
að stjórnvöld gangi lengra og skil-
greini vændi sem iðn, en talið er að
um 400.000 vændiskonur séu við
störf í landinu. Væntanlega þyrfti þá
leyfi til að stunda starfið og jafnvel
nám, en ekki hefur stjórnin fallist á
þær tillögur.
Fjölskyldumálaráherra Þýska-
lands, Christine Bergmann, vonast til
að lög um málið taki gildi snemma á
INNLENT
Baldur Sigurðsson, Páll H. Páls-
son, Stefán Garðarsson og Hug-
sjón kvikmyndagerð hafa keypt 70%
hlut í Opnum gáttum. Opnar gáttir
sérhæfa sig í vefbundnum náms-
lausnum og leggja áherslu á að
miðla námsefni til þeirra sem þurfa
á því að halda þegar þeir þurfa á því
að halda. Opnar gáttir eru með um-
boð fyrir Click2Learn, SkillSoft og
NETg og hafa flutt starfsstöðvar
sínar í Brautarholt 8.
Tengivagn fauk út af veginum á
Reykjanesbraut skammt frá
Grindavíkurafleggjaranum í gær en
mjög hvasst var á Reykjanesbraut.
Víkurfréttir greindu frá.
-grh@frettab!adid.is
Koizumi ver stefnu sína á japanska þinginu:
sinni um umbætur
SETIÐ FYRIR SVÖRUM
Forsætisráðherrann fær spurningu frá einum helsta andstæðingi sínum, Yukio Hatoyama,
leiðtoga Lýðræðisflokksins.
AP/BERND KAMMERER