Fréttablaðið - 10.05.2001, Síða 13
FIMMTUDAGUR 10. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
FRÁ HÖFUÐSTÖÐVUM ÚTGERÐARMANNA
Þeir segjast ekki geta boðið öðrum sjómönnum betur en þeir sömdu um við vélstjóra
og vonast til að aðrir sjómenn semji á sömu nótum og vélstjórar. Útvegsmenn segjast
vonast til að ábyrgir menn innan Farmannasambandsins taki við stjórn - þeir segjast
ekki treysta formanni þess - Grétari IMar Jónssyni.
Eg hef enga samúð
með sjómönnum
Kristbjörg Birna Guðjónsdóttir er 50 ára fiskverkunarkona hjá Granda.
Hún tapaði 17.000 kr. á sjómannaverkfallinu í vikunni því hún situr heima
og fær eingöngu dagvinnukaup.
SITUR HEIMA
Kristbjörg vonast til að verkfallið leysist sem fyrst, ef ekki bíður fiskverkunarfólk verulegt
fjárhagslegt tjón.
sjðMANNAVERKFAiL „Ég hef enga samúð
með sjómönnum,“ segir Kristbjörg.
„Tímasetning verkfallsins kemur
mjög illa niður á okkur fiskverkunar-
fólki, a.m.k. þar sem ég þekki til, Við
erum að vinna í karfa og ufsa og nú er
aðaltíminn í þeim veiðum. Við erum
því að tapa, ekki bara bónusnum held-
ur líka eftirvinnu."
Kristbjörg fær nú um 17.000 út-
borgað vikulega frá fyrirtækinu, sem
eru dagvinnulaun. Þetta er hins vegar
bara önnur vikan sem verkafólk í
Granda situr heima vegna sjómanna-
verkfallsins, fyrstu vikurnar voru til
nægar birgðir af fiski til að halda fólki
í vinnu.
Kristbjörg segist vitaskuld vonast
til þess að sjómannaverkfallið leysist
sem fyrst. Hún hefur fyrir syni að sjá
og hver vika á berstrípuðum dag-
vinnutaxta kemur illa við budduna.
„Fastur bónus okkar eru rúmar 10.000
kr. á viku og svo fáum við nær 870 kr.
á tímann í eftirvinnu. Á þessum árs-
tíma má búast við að við hefðum unn-
ið að a.m.k níu yfirvinnutíma á viku.“
Þegar þessar tölur eru lagðar saman
má sjá að tekjutap Kristbjargar og
kollega hennar eru rúmar 17.000
krónur, fyrir skatt, á einni viku.
Kristbjörg segir það almennt fara
illa í verkafólk að það virðist sitja á
hakanum er kemur að launahækkun-
um. „Það eru nú bara þannig að út-
gerðamenn hirða mest, þá sjómenn og
við sem vinnum við fiskverkun fáum
langminnst í okkar hlut. í þjóðfélag-
inu í dag, þar sem öll virðing í samfé-
laginu virðist metin eftir launum þá
erum við mjög illa stödd. Staðreyndin
er hins vegar sú að það þarf leikni,
vanda og dugnað til að vinna í fiski.“
Kristbjörg segir að áður en verk-
fallið hófst hafi hún haft mestar
áhyggjur af útlendingum sem vinna
við fiskverkun. Þeir hafi verið mjög
uggandi um stöðu sína og ekki alveg
vitað hvað var á seyði vegna tungu-
málaörðugleika. „En öllum er haldið á
launaskrá í Granda og svo lengi sem
það er gert eru þeir í sömu stöðu og
við.“
Kristbjörg segir að hún hafi af því
áhyggjur að ef verkfallið dragist á
langinn muni það koma niður á sumar-
fríi fiskverkunarfólks. „Venjulega er
Granda lokað í einn mánuð á sumrin
og þá fer fólk í sumarfrí. Ef verkfall-
ið hefur þau áhrif að húsið verður opið
í sumar er hætta á því að fólk tími
ekki að sleppa vinnu þá. Þó að segja
megi að góða hliðin á verkfallinu sé
það fri sem við fáum núna þá er það
ekki sjálfvalið frí.“
sigridur@frettabladid.is