Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 22

Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 10. maí 2001 FIMMTUDAGUR HRAÐSOÐIÐ Áslandsskóli í Hafnaríirði: Ahyggjur að ástæðulausu BOGI PÁLSSON formaður Verslunarráðs íslands skólamál „í sjálfu sér lít ég ekki svo á að um einkaskóla sé að ræða enda er ekki til þess ætlast að foreldrar greiði skólagjöld," segir Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrum fræðslu- fulltrúi í Reykjavík. Áslaug er í hópi nokkurra þaulreyndra einstaklinga úr íslensku skólakerfi sem hafa ákveðið að koma að stofnun Ás- landsskóla í Hafnarfirði. „Áslands- skóli verður rekinn sem hverfis- skóli þar sem börnum verður tryggð ókeypis skólaganga og það kemur ekki til þess að það séu inn- heimt skólagjöld." Áslaug segist ekki geta tekið undir raddir þeirra sem hafa lýst áhyggjum af því að einkaaðilar koma að rekstri skólans. „Það er alltaf verið að stefna að auknu sjálf- stæði skóla. Þá verður ennþá minni munur á rekstri Áslandsskóla ann- ars vegar og annarra skóla hins veg- ar. Það vill oft gleymast. Hérna koma vissulega einkaaðilar að rekstrinum og eru um sumt með öðruvísi áherslur í rekstri skólans." Áslaug segir það þó enga ástæðu til að hafa áhyggjur enda byggi starfið á traustum grunni og öflugri hug- myndafræði. Áslaug hefur kynnt sér starf- semi sambærilegra skóla í Indlandi og segir að það sé ýmislegt sem hafi heillað hana við þá hugmyndafræði sem býr þar að baki. Sérstaklega hafi áherslan á mannrækt og heims- sýn nemenda heillað hana. Með mannræktinni verði lögð áhersla á samskipti og góða siði nemenda og með heimssýninni sé unnið að því að gera nemendur meðvitaðri um um- hverfi sitt. ■ ÁSLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR Áhyggjur af rekstrarformi ástæðulausar. Skólinn verður rekinn án skólagjalda og því engin hætta á mismunum. Fulltrúi sveitarfélaga í Briissel: Skiptar skoðanir sveitarsuórnarmál Skiptar skoðanir eru innan R-listans um það hvort Samband íslenskra sveitarfélaga eigi að skoða þann möguleika að ráða fulltrúa til að gæta hagsmuna íslenskra sveitarfélaga hjá Evr- ópusambandinu í Brússel. Það skal þó áréttað að engin formleg um- ræða né samþykkt liggur fyrir um málið innan R-lista. Árni Þór Sig- urðsson varaborgarfulltrúi segir að þessi umræða um ráðningu sér- staks fulltrúa sambandsins í Brússel sé með öllu ótímabær. Helgi Hjörvar forseti borgar- stjórnar segir hinsvegar að þessi hugmynd sé skynsamleg og já- kvæð við fyrstu sýn. Árni Þór segir að það megi ekki sendinefnd fara til Brússel öðru- vísi en að allir kikkni í hnjánum, al- veg sama hvort í hlut eiga sveitar- félög, verkalýðsfélög eða aðrir. Hann segir að þær álögur sem sveitarfélögin hafa verið að taka á sig á undnaförnum árum séu eink- um vegna þess að ríkið hefur verið að leggja aukin verkefni á herðar sveitarfélaga. Hann telur því að það sé áleitin spurning hvort það eigi ekki frekar að styrkja starf- semi sambandsins hér heima til að takast á við ríkisvaldið. í því sam- bandi bendir hann á að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi kanns- Arni pór sigurðsson VARABORGARFULLTRÚI: Pessi umræða er með öllu ótimabær ki ekki verið með nógu öfluga sveit til að geta tekist á við og metið áhrifin af öllum þeim frumvörpum og reglugerðum sem árlega koma frá framkvæmdavaldinu og Al- þingi sem varða sveitarfélögin. Helgi Hjörvar forseti borgar- stjórnar segir að við fyrstu sýn sé hugmyndin um fulltrúa sveitarfé- laga í Brússel bara skynsamleg. Hann telur því að það sé bæði sjálfsagt og eðlilegt að sveitarfé- lögin sæki reynslu, þekkingu og HELGI HJÖRVAR FORSETI BORGARSTJÓRNAR: Jákvætt og skynsamlegt við fyrstu sýn samstarf við erlenda aðila eins og Reykjavíkurborg hefur t.d. gert. Þá hefur Orkuveitan m.a. verið að skoða evrópuáætlanir sem tengj- ast nýsköpun og rannsóknum í orkumálum. Þar gæti verið hægt að sækja ýmsan stuðning svo dæmi sé nefnt. Hann segist því ekki geta ímyndað sér að einhver ágreiningur geti orðið um mál sem þetta meðal sveitarstjórna, enda vandséð í hverju það gæti legið. -grh@frettabladid • • Oryggi ógnað HVERSU mikið þarf Seðlabankinn að lækka vexti? „Það er erfitt að svara því einu sér en Seðlabankinn þarf að koma með myndarlega vaxtalækkun sem fjár- festar og atvinnulífið skilja sem stefnumarkandi skilaboð um að þenslan sé yfirstaðin og að ekki sé þörf á aðhaldsaðgerðum í peninga- málum. Hins vegar höfum við ekki endilega viljað gefa út upp á hversu margra punkta sú lækkun ætti að vera en lækkunin gæti verið í þrep- um.“ HVERNIG á ríkið að styrkja eigin- fjárstöðu fjármálastofnana? „Með því að einkavæða ríkisbank- ana. Við erum ekki að leggja til aðra björgunaraðgerð, eins og fyrir Landsbankann fyrir nokkrum árum, heldur að ríkisbön. unum sé gert kleift í krafti þess að verða einka- væddir að f jármagna sig eins og þeir þurfa að gera til að hafa nægt eiginfé." HVERSU mikið þarf að lækka skat- ta á fyrirtæki? Sú tala sem forsætisráðherra hefur nefnt um tekjuskattinn, 15 pró- sent, teljum við að sé til þess fallin að glæða efnahagslífið og styrkja trú fjárfesta á að ísland sé góður fjár- festingarkostur. Síðan höfum við lagt ríka áhersla á að eignarskattar og stimpilgjöldi verði lögð niður því þessir skattar hafa verulega hindr- andi áhrif á að útlendingar komi hingað með sína atvinnustarfsemi. Um leið eru þetta ákaflega hindrandi skattar fyrir íslensk fyrirtæki í sam- keppni við erlend.“ HVERNIG verður tekjuafgangi rik- issjóðs best varið? „Það er orðið lítið af peningum í umferð og því teljum við að það sé langbest að verja afganginum til að greiða niður innlendar skuldir þan- nig að magn af íslenskum krónum í umferð aukist." Bogi Pálsson er 38 ára forstjóri P. Samúelsson- ar hf. og formaður Verslunarráðs Islands, lagði 1 gær fram ítarlega tillögur um aðgerðir til varnar stöðugleika efnahagslífsins i landinu. Tfwéttir af fólki Columbia Ventures er í eigu Kenn- eth D. Petersen og í fyrra seldi fyrirtækið ýmsar eignir í Bandaríkj- unum fyrir sem svarar 15 milljarða íslenskra króna, aðallega í ýmsum glugga-, hurða- og prófílaverksmiðj- um. Þessa fjármuni ætlaði fyrirtæk- ið að leggja í stækkun Norðuráls sem eigið framlag á móti 30 millj- örðum í lánsfé. Beiðni um stækkun var send í september í fyrra og það var ekki fyrr en undir miðjan apríl sem iðnaðarráðherra skipaði við- ræðunefnd til samninga við Norð- urál. Er sagt að Ken Petersen hafi þótt nóg um tómlætið og verið farinn að svipast um eftir öðrum fjárfest- ingarkostum. Hvað dvelur Norsk Hydro Spyrja menn gjarnan þegar á góma ber að þar á bæ virðist ekki vera yfir- drifinn vilji til að gefa bindandi yfir- lýsingar um að ætl- unin sé að taka þátt í byggingu álvers í Reyðarfirði með Geir A. Gunnlaugs- syni og þeim Reyð- arálsmönnum? Þeir sem fylgst hafa með umsvifum Norsk Hydro víða um heim segja að það sé alþekkt „taktík" hjá samningamönnum fé- lagsins að draga samningaviðræður á langinn. Það sé annarsvegar gert til þess að „blokkera" samkeppnisað- ila frá vænlegum staðsetningum til álframleiðslu og hins vegar til þess að skapa sér stöðu heimafyrir. Þannig hafa þeir lengi þæft málin í Trinidad/Tobaco og í Katar, en eru um leið að fá heimild til stækkunar álversins í Sundal í Noregi. Ur herbúðum ríkisstjórnarinnar heyrist að senn sé að vænta tíð- inda af samningaumleitunum við Norsk Hydro og bak við tjöldin hafi fleira gerst sem eigi eftir að koma mönnum á óvart í álumræðum. Einnig er á það bent að senn tekur Ejvind Reiten við stjórnar- taumunum sem for- stjóri Norsk Hydro, en hann var áður sjávarútvegsráðherra í Noregi og er Halldór Ásgrímsson honum vel kunnur úr ráðherrasamskiptum og á vettvangi Norðurlandaráðs. Ekki er það talið spilla fyrir möguleikum á samningum um þátttöku Norsk Hydro í Reyðaráli. fáum hefur brugðið við tíðindin af því að nú geysi verðstríð á bensínmarkaði enda sá markaður ekki verið umtalaður fyrir harða samkeppni hingað til. Ymsir segja ákvörðun Skeljungs um að hækka ekki bensínverð í takt við aðra í síð- ustu viku hafa hleypt samkeppni í greinina. Aðrir segja skýringuna þó væntanlega vera þá að olíufélögun- um hafi ekki verið stætt á öðru en að gera eitthvað óvænt áður en þau fengju sömu meðferð og grænmetis- framleiðendurx Agi þarf að vera í hernum, sagði góði dátinn Sveik og Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreks- firði, hefur þá góðu reglu í hávegum á sínu liði. Umdæmi Patreksfjarðar- löggunnar er hið víðlendasta á landi hér og nær frá botni Gilsfjarðar vestur um Barða- strönd, og að minnsta kosti yfir Arnarfjörð. Það tekur heilan dag að aka umdæmið á enda. Til að sinna eftirliti hafa lög- reglumennirnir haft tvo bíla til um- ráða en fjölmiðlar voru að fjalla um það um daginn að nú væri búið að taka annan bílinn af þeim . Þær þurfi þess vegna að fara af stað fót- gangandi með nesti og nýja skó ef útkall berst frá Bíldudal um leið og verið er að sinna verkefnum í Reyk- hólasveit. Fréttir af þessu tagi mega greinilega alls ekki berast úr ríki Sólveigar Pétursdóttur dóms- málaráðherra, því það má bara segja góðar fréttir átaksverkefnum, sem enginn sér merki um eftir að blaðamannafundunum lýkur. Nú vit- um við ekki hvort Þórólfur fékk skipun um ráðuneytinu um að halda aga á sínu liði og láta það hætta að segja blaðamönnum frá hlutunum eins og þeir eru en hitt vitum við að þegar blaðamenn hringja á lög- reglustöðina á Patreksfirði þessa dagana verður fátt um svör. „Við erum í fréttabanni," segja löggurn- Við gerðum það að umtalsefni í gær að Landsbankinn hefði ekki birt þriggja mánaða uppgjör, sem menn á fjármálamarkaði. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri, er hins vegar greinilega ekki í þeim hópi stjórnmála- og fjármálamanna sem forsætisráðherra líkir við skipstjóra sem stökkva fyrir borð í smábrælu. „Það væri nýjung hjá mér að birta þriggja mánaða uppgjör,11 segir hann. Halldór segist enga ástæðu sjá til að víkja frá þeirri ákvörðun bankaráðs- ins frá 1998 að birta aðeins 6, 9 og 12 mánaða uppgjör, enda hvíli ekki á bankanum nein skylda til annars. Næsta ár mun verðbréfaþingið áskil- ja að fyrirtæki skili 3ja mánaða upp- gjörum og þá, en ekki fyrr, mun Landsbankinn breyta sinni venju. Fallegur galla- og hörfatriaður Margir litir Hverfisgata 78 s. 5528980

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.