Fréttablaðið - 10.05.2001, Page 24
SfMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SECJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
JL
Bakþankar
þrAins BERTELSSONAR I
Um sparnað
hins opinbera
ÞEGAR KONUNGSHJÓNIN
SÁLUGU. þau Friðrik og Ingiriður
drottning komu í opinbera heimsókn
til íslands snemma á sjötta áratug
síðustu aldar að heilsa upp á fyrr-
verandi þegna og sýna að engin fýla
væri í Dönum - þá var mikið um
dýrðir! Þrátt fyrir að mörgu leyti
arðbært stríð voru íslendingar ekki
enn orðnir verulega ríkir. Til marks
um þann siðprúða sparnað í meðferð
opinberra fjármuna sem þá ríkti má
nefna að fátækrahöllin Pólarnir sem
stóð í krika milli Miklubrautar og
Flugvallarvegar var að sjálfsögðu
máluð í eðlilegum litum í nafni
rausnar og gestrisni en þess var þó
gætt að mála aðeins þá hlið sem
þjóðhöfðingjar og mikilmenni óku
framhjá í límúsínum og veifuðu
glaðir til fjöldans.
MENNTAMANNASKRÍLLINN á
þeim tíma kallaði tiltækið Pótémkín-
leiktjöld og var þeirrar skoðunar að
réttast hefði verið að mála húsin all-
an hringinn jafnvel bakhliðina sem
enginn konungborinn maður leit
nokkru sinni augum án þess að horfa
í kostnaðinn. Enda hafa sannir
menntamenn aldrei skilið upp né
niður í fjármálum og lifað á lúsar-
launum og tamið sér hundaþúfusjón-
armið, að minnsta kosti allt þar til
Kári stofnaði DeCode og Gullöld
hófst.
—«—
OG NÚ ER GULLÖLD Á ÍSLANDI,
hið opinbera veit ekki aura sinna tal
og þarf ekki lengur að spara því
alltaf koma inn meiri skattpeningar,
bæði vaskurinn úr Hagkaup og Bón-
us og svo þessir hefðbundnu skattar
af launafólki (margt smátt gerir eitt
stórt). íslensk fyrirtæki græða svo
mikið á að selja okkur grænmeti og
mat að þau kaupa upp verslunar-
keðjur í Bandaríkjunum. Hér drýpur
gull af hverju strái og meira að
segja gamli allaballinn sem er for-
seti okkar er trúlofaður margra-
milljarðaprinsessu og hér býr múg-
ur og margmenni sem veit ekki aura
sinna tal. Er því nokkur ástæða til að
hafa áhyggjur af því þótt fram-
kvæmdir hjá hinu opinbera (sosum
eins og Þjóðmenningarhús ellegar
skrifstofur hins háa Alþingis) fari
fáeinar grilljónir fram úr áætlun?
Enda sagði Blöndal forseti Alþingis
með grátstafinn í kverkunum að
hann hefði lært af öllu saman. (Ég
held samt að hvarmarnir á Blöndal
hafi verið þurrir). Og hvað með það?
í dag hikar enginn við að mála
Pótémkínleiktjöldin báðum megin. ■
ÞaS er óþarfi aS fara ó marga staði.
Hjá Shell færðu allt sem þú þarft til að grilla góðan mat.
Sterling gasgrill sem gefur mjög jafnan og góðan hita,
góð kolagrill, vönduð Grillpro áhöld og að sjálfsögðu allt
hitt eins og bursta, gas, kol og grillkveikjuvökva.
Ekki leita langt yfir skammt.
Komdu á Shell þegar þig langar að grilla
Ætlar þú í nám
framtíðin bíður þín hjá okkur.
Nýi tölvu- Er viðskiptaskólinn
Hofnarfirði B55 4980 - Kópavogi 544 4500 - Selfossi
í haust?
482 3937
A