Fréttablaðið - 16.05.2001, Síða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
16. maí 2001 MIÐVIKUDAGUR
Öskjuhlíð:
Fá að hjóla á
haugunum
útivist. Hjólreiðafélag Reykjavíkur
hefur farið fram á það við borgaryf-
irvöld að lögð verði sérstök braut
fyrir fjallareiðfijólamenn i sunnan-
verðri Öskjuhlíðinni skammt frá
Nauthólsvík, á svæði þar sem geymd
er mold og önnur jarðefni.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
tók erindið fyrir, en í þvi var óskað
eftir leyfi til að hjóla um moldar-
haugana og í framhaldi að leggja var-
anlega braut um þá. Hjólreiðafélagið
hefur fengið ieyfi til þess að hjóla um
haugana en varðandi það að leggja
varanlega braut, þá var þeim hluta
erindisins vísað til borgarskipulags
til skoðunar. ■
RÍKISVALD OG FJÖLMIÐLAR
Ólga er í Rússlandi vegna þess að talið er
að stjórnvöld vilji hafa tangarhald á sjón-
varpsstöðinni NTV, sem hefur þótt standa
undir nafni sem óháð og frjáls sjónvarps-
stöð. I Rússlandi starfar sérstakur fjölmiðla-
ráðherra og hann sver af sér afskiptin.
Rússneskur ráðherra:
Ríkið vill
ekki stjórna
NTV
moskva. ap Mikhaíl Lesin, fjölmiðla-
ráðherra í rússnesku ríkisstjórninni,
segir að vilji ríkisstjórnarinnar sé að
NTV-sjónvarpsstöðin sé sjálfstæð og
ekki verði reynt að hafa áhrif á stöð-
ina í gegnum meirihlutaeiganda
hennar, sem er hið risastóra einokun-
arfyrirtæki Gazprom. Margir frétta-
menn NTV-stöðvarinnar telja fullvíst
að gasfyrirtækið Gazprom, sem hef-
ur gífurleg völd í Rússlandi, hafi náð
meirihluta í stöðinni í apríl gagngert
í þeim tilgangi að koma ríkisstjórn-
inni til hjálpar við að þagga niður í
gagnrýnum fréttaflutningi. Þeir hafa
sakað Lesin um að hafa verið með í
ráðum um yfirtöku Gazprom á sjón-
varpsstöðinni. Lesin neitaði þeim
ásökunum í blaðaviðtalinu, sem birt-
ist í Isvestia í gær. „Ríkið vill ekkert
hafa með NTV að gera,“ sagði Lesin.
„Gazprom er ekki ríkið.“ ■
------
Veitingastaðir:
Afram langur
afgreiðslutími
veitingastaðir Borgarráð hefur sam-
þykkt að framlengja reynsluákvæði
um lengdan opnunartíma veitingar-
staða til 1. júlí n.k. Þetta er gert
vegna þess að tillögur verkefnis-
stjórnar um afgreiðslutíma veitinga-
staða liggja ekki fyrir. Sem kunnugt
er þá var afgreiðslutími veitinga-
staða rýmkaóur til muna í samræmi
við samþykkt borgarráðs sumarið
1999. Þá voru afnumdar takmarkanir
á veitingartíma áfengis um helgar í
tilteknum hluta miðborgarsvæðisins,
miðhverfum, athafnasvæðum, iðnað-
arsvæðum og hafnarsvæðum að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum. ■
WWF beita sér gegn álveri:
Stafar ógn af verkefninu
reyðarál. Samtökin World Wildlife
Fund hafa sent frá sér fréttatilkynn-
ingu þar sem m.a. er farið fram á það
við norsk stjórnvöld að þau beiti sér
gegn því að Norsk Hydro ráðist í
framkvæmdir á Reyðarfirði. Samtök-
in segja að „einstöku óbyggðu svæði
... stafi ógn af verkefninu." I fréttatil-
kynningunni er rætt við Árna Finns-
son frá Náttúruverndarsamtökum ís-
lands sem segir að komi til fram-
kvæmda muni Norsk Hydro bera
ábyrgð á því að svæðið umhverfis
Vatnajökul eyðileggist. Bent er á að
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráð-
herra, sé hlynnt hugmyndum um að
breyta svæðinu í þjóðgarð svo laða
megi að ferðamenn, en hafi ekki tek-
ið fyrir að þar verði ráðist í fram-
kvæmdir vegna álvers. Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins, sagði í
viðtali við Útvarpið í gær að verði
ekki að stækkun álvers Norðuráls
eða rísi ekki álver í Reyðarfirði,
muni verða eyðilegt um að litast í ís-
lensku efnahagslífi - að auknar fram-
kvæmdir séu forsenda fyrir því að
lífskjör á íslandi batni í samræmi við
önnur iðnríki heims. ■
UMDEILT HEIMA OG ERLENDIS
Frá Reyðarfirði þar sem stefnt er að byg-
gingu umdeilds álvers.
Stóð aldrei til að lækka
verðið til langframa
Opnun fyrstu sjálfsafgreiðslustödvar ESSO hratt verðstríði bensínstríðinu í gang.
Talsmenn olíufélaganna sammála um að félögin þoli lága verðið ekki til lengdar.
bensínverð Sú ákvörðun ESSO að
kynna fyrstu sjálfsafgreiðslustöð
sína með lægra verði en keppinaut-
arnir buðu hratt af stað miklu verð-
stríði í síðustu viku. Forsvarsmenn
olíufélaganna segja þó ljóst að aldrei
hafi staðið til að lága verðið gilti til
langframa.
„Við vorum að opna fyrstu ESSÓ
Express stöðina okkar og til að
kynna hana fyrir fólki létum við
gamla verðið gilda“, segir Geir
Magnússon forstjóri ESSO um
ástæður þess lága bensínverðs sem
þeir buðu á lágverðsstöð sinni í síð-
ustu viku. „Þá kom þetta mikla fár á
hinar stöðvarnar en við vorum fyrst
og fremst að auglýsa upp okkar
stöð.“ Hann segir að það hafi ekki
verið stefnan að bjóða gamla verðið
til langframa. „Það er takmarkað
hversu mikið er hægt að setja í
markaðskostnaðinn gegnum lítrann
með þessum hætti. Öll veisla tekur
enda.“
Gunnar 0. Skaptason, fram-
kvæmdastjóri Orkunnar segir alveg
ljóst að það verð sem félagið bauð
þegar það var hvað lægst hafi verið
út úr korti og ekki hægt að byggja
afkomu félagsins á því til framtíðar.
„Við höfum gefið okkur út fyrir að
vera alltaf lægstir og þessir stóru að-
ilar, eins og ESSO
sem eiga 130 staði
Alveg ljóst að sem selja bensín á
það verð sem fullu verði, opnuðu
félagið bauð einn lítinn stút úti í
þegar það var Kópavogi og ætl-
hvað lægst hafi uðu að fara að vera
verið út úr korti ódýrari en við.“
og ekki hægt Það hafi stjórnend-
að byggja af- ur Orkunnar ekki
komu félagsins sætt SÚ við og ein-
á því til framtíð- sett ser uð vera
ar lægstir.
„Það er einfald-
—♦— lega þannig að við
(Etiuasf
atgLi. i
ESSO EXPRESS
ESSO fetaði í fótspor Olís og bauð lægra verð til að kynna fyrstu sjálfsafgreiðslustöð sína.
Hin félögin svöruðu með verðlækkun sem Ijóst þótti að myndi ganga til baka.
tókum ákvörðun um að lækka verð á
okkar ódýru stöðvum sem eru ÓB
stöðvarnar. Með hliðsjón af afkomu
félagsins var tekin ákvörðun um að
hækka verðið“, segir Samúel Guð-
mundsson, forstöðumaður fjárfest-
inga og aðhaldsstýringar hjá Olís.
Samúel segir engar nýjar upplýsing-
ar hafa komið fram um stöðu félags-
ins frá því verð var lækkað þar til
það hækkaði aftur. „Það lá alltaf fyr-
ir að þetta lága verð gæti aldrei ver-
ið til lengdar. Þetta er einfaldlega
ákvörðun sem réðist af samkeppnis-
aðstæðum."
binni@frettabladid.is
Mótmæla gjaldþroti:
„Mafían ræð-
ur Rúmeníu"
búkarest. ap. Yfir 3000 manns fóru í
kröfugöngu í Búkarest, höfuðborg Rúm-
eníu til að kerfjast bóta vegna peninga
sem töpuðust þegar að stærsti fjárfest-
ingasjóður landsins varð gjaldþrota í
fyrra. Hópurinn bar meðal annars spjöld
sem á stóð „Mafían ræður fyrir Rúmen-
íu“. Þá stöðvuðu mótmælendur umferð
og kröfðust þess að ríkisstjórnin endur-
greiddi fé sem þeir töpuðu.
Mótmælendurnir, margir eldri
borgarar, segja að ríkisstjórnin hafi
sagst ábyrgjast innistæður sjóðsins
gæti hann ekki staðið við gerða samn-
inga og höfðu margir lagt allt sitt spari-
fé í sjóðinn. Ríkið hefur áfrýjað dómi
um að það skuli bæta tjónið. ■
BJÖRK VILHELMSDÓTTIR
FORMAÐUR BHM:
Kjaradómur hefur gefið tóninn um
afturvirkni samninga hjá ríkinu.
Bandalag háskólamanna:
Afturvirkni
í stíl við
Kjaradóm
kjaramál Björk Vilhelmsdóttir for-
maður Bandalags háskólamanna seg-
ir að aðildarfélögin fari fram á það í
samningum við ríkið að gildistími
þeirra verði afturvirkur að minnsta
kosti til 1. apríl sl. Fyrirmyndin og
fordæmið er sótt til Kjaradóms þeg-
ar dómurinn úrskurðaði um launa-
hækkanir til þingmanna og æðstu
embættismanna hjá ríkinu. Þessi aft-
urvirkni hjá Kjaradómi hefur vakið
athygli ríkisstarfsmanna og þá sér-
staklega vegna þess að ríkið hefur
ávallt neitað stéttarfélögum þeirra
um einhverja afturvirkni á gildis-
tíma kjarasamninga. Þá hefur engu
skipt þótt margir mánuðir hafi liðið
frá því eldri samningur rann úr gildi
þangað til samið var um nýjan.
Staðan á kjaramálum aðildarfé-
laga BHM verða til umræðu á mið-
stjórnarfundi þess í dag, miðviku-
dag. Þegar hafa tvo aðildarfélög
boðað til vinnustöðvunar, þ.e. hjúkr-
unarfræðingar og þroskaþjálfar. Af
24 aðildarfélögum hafa sjö gengið
frá nýjum kjarasamningum, eða um
þriðjungur. ■
__ Könnun Merrill Lynch:
Fleiri milljónamæringar í heiminum
new york. ap. Milljónamæringum
heldur áfram að fjölga. Á árinu 2000
jókst lausafé helstu auðkýfinga í
heimi um 6 prósent og er nú 27
trilljónir bandaríkjadala, eða 27 kva-
drilljónir íslenskra króna, sam-
kvæmt könnun sem fjármálafyrir-
tækið Merrill Lynch gerði nýlega.
Einungis er um að ræða þá einstak-
linga sem eiga meira en milljón
bandaríkjadala í lausafé, en þeim
fjölgaói nokkuð á síðasta ári og telja
nú 7,2 milljónir í öllum heiminum.
Fjármálafyrirtækið leitaði einnig
sérstaklega uppi þá sem eru „vell-
auðugir," en til þess að komast í þann
flokk verður maður að eiga meira en
30 milljónir dollara í lausafé. Fyrir-
tækið fann 57 þúsund slíka.
Upplýsingarnar eru aö sögn fyrir-
tækisins mikilvægar fyrir stór fjár-
málafyrirtæki sem byggja afkomu
sína á því að geyma og ávaxta fjár-
muni auðkýfinga; barist sé um „bestu
bitana."
Mest varð fjölgun milljónamær-
inga í Evrópu og telja þeir nú 2,3
milljónir sem eiga yfir milljón doll-
ara í lausafé. Mesta aukningin á
heildarauð milljónamæringa varð
hinsvegar í mið-austurlöndum þar
sem lausafé 200.000 einstaklinga sem
eiga meira en milljón dollara hver
jókst um heil 18 prósent og er nú 1,3
milljarðar dollara.
Heildarauður ríkustu einstak-
linganna dróst hinsvegar saman í
Asíu. Þar fækkaði auðkýfingunum
um hálft prósent og auður þeirra
dróst saman um 9 prósent, en
Merrill Lynch telur helstu ástæðuna
vera bágt gengi efnahags Japans. í
Afríku var fjöldi milljónamæringa
óbreyttur, eða aðeins 40.000 manns,
og heildarauður þeirra stóð þar ein-
nig í stað. ■
BRAUTRYÐJANDI A TÖLVUSVIÐI
Steve Jobs er hópi „vellauðugra." Hann
stofnaði tölvufyrirtækið Apple árið 1975 og
ar auður hans nátengdur upplýsingaöldinni.
INNLENT
173 milljóna halli varð á sam-
stæðureikningi Nýsköpunar-
sjóðs á síðasta ári og er það rakið
til lækkana sem urðu á verðbréfa-
mörkuðum. 104 milljónum króna
var veitt til margvíslegra sam-
starfsverkefna og til vöruþróunar-
og markaðsaðgerða. Þá námu
verkefnabundin áhættulán 185
milljónum. Eigiö fé sjóðsins um
áramót var 5.748 milljónir og eru
5.046 milljónir bundnar í stofn-
sjóði.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir af-
henti í gær lyklana að 400. íbúð-
inni sem Búseti tekur í notkun á
höfuðborgarsvæðinu. íbúðin er í
26 íbúða húsi sem Búseti hefur
reist við Kirkjustétt í Grafarholti
og er hún fyrsta íbúðin til að verða
tekin í notkun í nýjasta hverfi
Reykjavíkur.