Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 14
14 FRETTABLAÐIÐ 16. maí 2001 MIÐVIKUDACUR 1 HVERNIC FER? Hverníg fer Evrópuleikur- inn Liverpool- Alaves? HLYNUR SICURÐSSON VARAFORMAÐUR KNATTSPYRNU- DEILDAR FH Englendingar fara með sigur af hólmi. Spán- verjarnir eiga að vísu eftir að setja eitt en leikurinn fer 2->l fyrir Liverpool, McAllister á eftir að setja eitt og svo á Berger eftir að koma inná og setja annað. REYNIR LEÓSON lA Þetta fer 2-1 fyrir Alaves og fyrrverandi leikmaður Manchester United, Jordi Cruyff á eftir að setja bæði mörkin. Fowler skorar fyrir Liverpool. MOLAR ( Búið er að ákveða regnhlífabann á heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu í Japan og Kóreu á næsta ári, þrátt fyrir að mótið verður haldið á rigningartímabil- inu. Ástæðan fyrir banninu er sú að boltabullur gætu notað regnhlífarn- ar sem vopn. Regn- hlífabann hefur þekkst í fleiri löndum en er nýtt fyrir Japönum. Ekki er þó búið að ákveða hvort samanbrotnar regn- hlífar verða Ieyfðar. Ef tíðin verður mjög blaut er líklegt að þær verði leyfðar. Tveir þriðju stúkanna á völlunum eru með þaki. Þá er ein- nig búið að banna gestum að vera með flöskur meðferðis, þó þær séu úr plasti. Samkvæmt heimildum mbl.is er Tómas Ingi Tómasson á heim- leið. Tómas hefur s.l. ár spiiað með danska úrvals- deildarliðinu AGF. Hann hefur staðið í samningaviðræð- um við ýmis félög hér á landi en ekki hefur verið stað- fest hvert hann fer. Þau lið sem nefnd hafa verið til sög- unnar eru KR, ÍBV, Grindavík o.fl. Manchester United er á höttun- um á eftir 16 ára gömlum ung- ling, Sulley Ali Muntari, leikmanni Hearts of Oak í Ghana. Piltur var til reynslu hjá Rauðu Djöflunum og dáðust forráðamenn liðsins svo að honum að þeir hyggjast bjóða hon- um samning. Pilturinn minnir víst á velska landsliðsmanninn Ryan Giggs. Gras.is skýrði frá. Bræðurnir Michael og Ralf Schumacer hafa að undanförnu eitt samanlagt rúmum fjórum millj- örðum króna í tvær einkaþotur. Samkvæmt erlend- um fjölmiðlum keypti Ralf sér Hawker Horizon þotu, sem kemst upp í tæplega 900 km/klst hraða á rúmlega tvo millj- arða. Þá keypti stóri bróðir hans, Michael, Falcon þotu sem 19 far- þegar geta ferðast með á tæpa tvo milljarða. Þota Ralfs er með eld- húsi, baði, fataskápum og setustofu. Hann á eina Canadian Challenger þotu fyrir en sagðist hugsanlega ætla að selja hana. Alþjóða ólympíunefndin segir Peking, París og Toronto vera fremstar þeirra borga sem boðist hafa til að sjá um Ólympíuleikana árið 2008. f áliti nefndarinnar segir að tilboð þessara þriggja borga séu til fyrirmyndar og mun betri en til- boð Osaka og Istanbul. íbúar Tíbet héldu mótmæli í fyrradag gegn því að nefndin skyldi velja Peking þeg- ar Kínverjar halda Tíbet enn í „gíslingu". Alþjóða ólympíuefndin tekur lokaákvörðun 13 júlí næst- komandi. Seinni leikur Guðjóns og lærisveina: Nú er að duga eða drepast knattspyrna Seinni leikur Stoke og Walsall, í umspili um 1. deildar sæti, fer fram í kvöld á heimavelli Walsall. Síðasti leikur endaði með marka- lausu jafntefli. Sigurlíkur íslendinga- liðsins geta vart talist miklar ef mið- að er við deildarleiki liðanna í vetur. Walsali vann heimaleik sinn 3-0 en BREYTTAR ÁHERSLUR Walsall blés til sóknar á Brittania vellinum á sunnudaginn. Cuðjón Þórðarson þarf eflaust að skipuleggja leikinn í kvöld með breyttum áherslum. leikurinn á Britannia Stadium, heimavelli Stoke, endaði með 0-0 jafntefli, líkt og leikurinn á sunnu- dag. Þrír fslendingar komu við sögu í fyrri leiknum, Bjarni Guðjónsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru í byrjunarliðinu en Ríkharður Daða- son kom inná þegar tuttugu mínútur voru eftir. Flestir leikmenn Stoke ganga heilir til skógar en helmings- líkur eru taldar á því að sænski varn- armaðurinn Mikael Hansson verði með en hann meiddist í leiknum á sunnudag. Hann hefur átt við maga- meiðsl að stríða og er í meðferð hjá Stefáni Stefánssyni sjúkraþjálfara Stoke. Þar að auki er Ben Petty í banni en hann fékk rauða spjaldið í síðasta leik. Hjá Walsall eru sömu sögu að segja en miðvallarleikmaður- inn Fitzroy Simpson er tæpur. Sigurvegarinn í kvöld mætir ann- aðhvort Reading eða Wigan í úrslita- leik um 1. deildarsætið. Leikur þeirra endaði einnig með markalausu jafn- tefli. Uppselt er á leikinn en fyrir knattspyrnuþyrsta áhorfendur hér heima verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðin- ni Sýn og hefst kl. 21.00. ■ HÖRÐ BARÁTTA Áhugamenn um hnefaleika á Islandi hafa átt erfitt uppdráttar. Bubbi Morthens og Fjölnir Þorgeirsson voru dregnir fyrir dómstóla fyrir að standa að hnefaleikasýningu. Hvergi bann nema hér Alþjóða Ólympíunefndin segir ísland eina landið sem banni ólympíska hnefaleika. ÍSÍ vill lögleiða íþróttina. hnefaleikar Samkvæmt bréfi frá Al- þjóða Ólympíunefndinni, IOC, er ís- land eina landið í heiminum sem bannar ólympíska hnefaleika. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, sendi fyrir- spurn til IOC, þann 21. febrúar s.l. þar sem hann spyrst fyrir um ólym- píska hnefaleika. í svari sem barst skrifstofu ÍSÍ 9. mars kemur fram að ísland er eina landið í heiminum sem banni ólympís- ka hnefaleika. Þá sé ekki vitað að íþróttin sé skaðlegri en aðrar íþróttir. Bréfið er undirritað af Gilbert Felli, íþróttaráðgjafa, og svarar hann bréf- inu í þremur liðum: „Við vitum ekki til þess að ólympískir hnefaleikar séu bannaðir í öðrum löndum. Varðandi spurninguna um hvort banna eigi ólympíska hnefaleika. Þá kviknar þessi hugmynd alltaf með jöfnu millibili en engar formlegar um- ræður hafa átt sér stað um þetta mál. Læknanefnd IOC hefur tekið fyrir spurninguna um öryggi íþróttarinn- ar, og komist að þeirri niðurstöðu að það bendi ekki til þess að áhuga- mannabox, líkt og stundað er á Ólympíuleikunum, valdi meiri skaða en aðrar íþróttagreinar. Hvað þetta varðar hefur Alþjóðasamband áhuga- hnefaleika, AIBA, lagt aukinn kraft í öryggiskröfur." „Við viljum bara upplýsa þá aðila sem hafa verið með sleggjudóma um boxið“ sagði Stefán Konráðsson, framkvæmdarstjóri ÍSÍ þegar hann var inntur svara um bréfið. „Við telj- um það sjálfsögð mannréttindi að leyfa box á íslandi. Það var kannski í lagi að banna þá á sínum tíma en í nú- tíma samfélagi þar sem er mikið um snerti íþróttir þá er box ekkert verri íþrótt en hver önnur. Það gleymist líka oft í umræðunni að ólympískir hnefaleikar eru allt önnur íþrótt en atvinnuhnefaleikar. Vegna þess að þarna eru hlífar og allt aðrar reglur." Munurinn á atvinnuhnefaleikum og ólympískum hnefaleikum er tals- verður. Engar hlífar eru notaðar í at- vinnuhnefaleikum en það sem AIBA hefur gert til að auka öryggiskröf- urnar er að stytta loturnar niður í tvær mínútur og fækka þeim í fjórar. Fyrir vikið þreytast keppendur minna, þeir fá færri högg á sig, auk þess sem keppendur eru með hjálm og mýkri hanska. „Við höfum verið að benda á þetta svona í mestu rólegheitum. Þannig að okkar afstaða er sú að það eigi að leyfa box og það megi ekki vera með of mikla forræðis- hyggju“ sagði Stefán að lokum. ■ BRÉFIÐ GÓÐA Islenskum hnefaleikaáhugamönnum hefur borist liðsauki frá Alþjóða Ólympíunefndinni. h«;r ’ ^ c V ** h% €) M f * tJ ff. > í 1 V*j: ■' ■ • ;.r * i '■ s .,b„ ■ *■ ' \ \ "*** 'S \ ' - % i/' / / V ’t # . j ENCIR VINIR Það var augljóst að leikmenn KR og Fylkis eru litlir vinir. Mikið var um óþarfa pústra. KR í Árbænum: Meistararnir lágu í valnum sImapeildin KR og Fylkir mættust í fyrsta leik Símadeildarinnar í gær- kvöld. Spilað var á Árbæjarvelli. Grasið á vellinum var óneitanlega í gulari kantinum. Undanfarna daga hafa iðnaðarmenn og sjálfboðaliðar frá Fylki staðið í ströngu við að legg- ja lokahönd á nýja, 2000 manna stúku á Árbæjarvelli. Það var auðséð að þetta var fyrsti leikur íslandsmótsins. Boltinn var mikið í háloftunum og liðin ekki enn búin að fínstilla strengi sína. Veðrið var einnig erfitt til leiks, kaldur vindur blés. Framan af leiknum gerðist lítið markvert. Arnar Jón Sig- urgeirsson, leikmaður KR, átti um miðjan fyrri hálfleik skot á markið úr þröngu færi en boltinn fór yfir. Þá fékk Þórhallur Hinriksson, ieikmað- ur KR, gult spjald. Það var ekki fyrr en rétt undir lok fyrri hálfleiks sem dró til tíðinda. Steingrímur Jóhann- esson skoraði fallegt mark. Þetta var fyrsta mark íslandsmótsins í ár auk þess að vera fyrsta mark marka- skorarans Steingríms fyrir Fylki. KR mætti ákveðið til leiks eftir hlé og byrjaði seinni hálfleik með pressu. Það hélt sóknunum áfram þegar leið undir lokin en sterk vörn Fylkismanna hleypti litlu i gegn. Breytingar voru gerðar á liðunum þegar leið á seinni hálfleik. Annars gerðist lítið eitt í leiknum og Fylkir fær fyrstu þrjú stig sumarsins. ■ | HNEFALEIKAR | • • Ollum að óvörum ætlar heims- meistarinn í hnefaleikum, Ilasim Rahman, að berjast við Danann Bri- an Nielsen fyrstan manna. Slagurinn fer fram í Peking í ágúst. Það er enginn annar en Don King sem stendur á bak við þennan ráðahag en hann gerðist umboðsmaður Rahman í síðustu viku. Rahman fær tæpar 500 milljónir króna fyrir bardagann. Þá hefur Don King lofað honum litl- ar 1500 milljónir fyrir að keppa við sigurvegarann í bardaga John Ruiz og Evander Holyfield, tvo milljarða fyrir að berjast við Lennox Lewis og þrjá milljarða fyrir bardaga við Mike Tyson. Þetta þýðir að Lewis fer í mál en hann átti að eiga næsta bar- daga við Rahman samkvæmt samn- ingi. Ef Lewis vinnur málið gæti það eyðilagt áætlun King. Hann er þegar búinn að greiða Rahman fyrir fyrsta bardagann. King náði samningi við Rahman þegar sjónvarpsstöðvarnar HBO og Showtime voru báðar að gera hosur sínar grænar fyrir fyrr- verandi umboðsmanni hans.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.