Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 16. maí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 HEIMSMEISTARAR Tékkar tryggðu sér heimsmeistaratitilinn í ísknattleik á sunnudag. Þeir mættu Finnum í spennandi úrslitaleik sem þeir unnu með þremur mörkum gegn tveimur. Liðinu var tekið sem þjóðhetjum í Tékklandi á mánudag. Blóðheitur knattspyrnubransi Ekvador: Prófessorinn á skjótum batavegi knattspyrna Þjálfari ungliðalandsliðs Ekvador, Hernan „Prófessorinn" Gomez, ætlar að halda áfram í starfi sínu. Hann var skotinn í fótinn og barinn í andlitið af lífverði Joselo Rodriguez, eiganda knattspyrnuliðs- ins Santa Rita, í síðustu viku. Rodriguez var ekki sáttur með að Gomez skyldi ekki velja einn leik- manna sinna, Dalo Bucaram, í lands- liðið sem keppir á heimsmeistara- keppni ungliða í Argentínu í sumar. Um helgina söfnuðust saman rúm- lega hundrað manns fyrir utan Kenn- edy sjúkrahúsið þar sem Gomez lá. Fólkið hyllti hann og bað hann um að halda áfram að þjálfa. Gomez var mjög hrærður yfir stuðningnum og sagðist ætla að vera um kyrrt. „Mér þykir vænt um strákana. Nú þegar fólkið er á bak við mig held ég ótrauður áfram að þjálfa." Læknar sögðu Gomez vera á skjótum batavegi. Búið er að hand- taka Rodriguez og leit stendur yfir að lífverði hans. ■ ÉG HELD ÁFRAM Hernan Gomez varð hrærður þegar íbúar Ekvador söfnuðust saman fyrir utan sjúkra- húsið og hylltu hann. Liveipool mætir Alaves 1 kvöld: Owen helsta ógnin knattspyrna „Við ætlum að spila gagn- sókn. Þannig nýtum við tækifærin best,“ sagði þjálfari Alaves, Jose „Mane“ Esnal, á mánudag. Hann tók við spænska liðinu Alaves fyrir fjór- um árurn. Þá spilaði það í annarri deild og úrslitaleikur UEFA-keppn- innar var ekki líklegur áfangastaður. Liðið flaug til Dortmund í Þýska- landi í fyrradag til að undirbúa sig fyrir stórleikinn í kvöld þegar það mætir Liverpool til að berjast um UEFA-bikarinn. Liverpool er sigur- sælasta lið Englands fyrr og síðar en hefur ekki haft heppnina með sér á síðustu árum. Ef liðinu tekst hins- vegar að vinna í kvöld verður þetta þriðji bikarinn á árinu. Engu liði hef- ur tekist að vinna bæði deildar- og enska bikarinn og UEFA-keppnina sama árið. Mane, þjálfari Alaves, segir að bæði lið eigi eftir að leggja áherslu á varnarleik í kvöld. Þannig eigi leik- urinn eftir að vera varfærnislega spilaður. „Það lið sem spilar betri vörn á eftir að stjórna leiknum, sér- staklega ef það lið skorar einnig fyrsta markið." Miðjuleikmaður Alaves og fyrr- um leikmaður Manchester United, Jordi Cruyff, segir Alaves eiga eftir að stilla sig eftir því hvernig Liver- pool spilar leikinn. „Um leið og við sjáum að þeir leggja áherslu á vörn- ina gerum við það sama og gott bet- ur. Þá verður leikurinn væntanlega einn leiðinlegasti úrslitaleikur UEFA-keppninnar í manna minn- um.“ Mane brá sér ásamt aðstoðar- þjálfara liðsins til Cardiff á laugar- daginn til að horfa á bikarúrslitaleik- inn. Hann sagði Michael Owen vera „helvíti" góðan leikmann og helstu ógn liðsins í kvöld. Hann segir leik- inn leggjast vel í sig og mikið hafa verið veðjað um hann í Baskahéraði. „Það hlýtur að vera ástæða fyrir því að við komumst svona langt. Við ætl- um að vinna þennan bikar," sagði Mane. Þegar hann var spurður hvort hann hafi veðjað sjálfur á leikinn sagðist hann kampakátur ekki hafa fengið nógu hagstæðan stuðul. ■ SPILA í BLÁU Hinn norski Dan Eggen leikur með Alaves. Hér er hann á flugi í leik liðsins við Deportivo de La Coruna í síðustu viku. Ala- ves þarf að gefa upp appelsínugula bún- inga sina í kvöld þegar liðið mætir rauðu Liverpool. Vertíðin á fullu Nú standa yfir tvö tennisstórmót í Evrópu. Flestir horfa þó til Opna franska meistaramótsins sem hefst eftir tvær vikur. tennis Það er margt að gerast í lífi tennisleikara um þessar mundir. í Hamborg stendur yfir Opna þýska meistaramótið þar sem keppt er um tæplega 300 milljónir króna og í Róm stendur yfir kvennakeppni á Opna ítalska meistaramótinu. Spánverjinn Juan Carlos Ferrero sigraði í karlakeppninni um helgina og fékk fyrir vikið tæplega 120 millj- ónir króna. Bæði mótin fara fram á leirvöllum. 28. maí hefst síðan Opna franska meistaramótið, sem allir hel- stu tennisleikararnir stefna á að taka þátt í. Það stendur til 10. júní. í gær til- k y n n t u skipuleggj- endur Opna f r a n s k a mótsins að rússneska tennisstjarnan A n n a Kournikova myndi ekki taka þátt í m ó t i n u . Þetta eru nokkur von- brigði þar sem vonast var eftir að Kournikova, sem hefur ekki keppt síðan í febrúar, myndi sýna sig á vellinum. Hún komst einungis í aðra umferð á mótinu í fyrra en hennar besti ár- angur var árin 1998 og 1999 þegar hún komst í fjórðu umferð. Kournikova sagði sig úr Ericsson- mótinu í mars með skömmum fyrir- vara vegna meiðsla í fæti. Talið er að sömu meiðsl hrjái hana ennþá. Síðasti tennisleikur hennar var í febrúar í átta liða úrslitum Gaz de France inn- anhússmótsins. Þar tapaði hún fyrir hinni frönsku Amelie Mauresmo. Kournikova er áttunda á heimslistan- um þó hún hafi aldrei unnið sigur- verðlaun í WTA-mótaröðinni. Spán- verjinn Maria-Jose Martinez kemur í hennar stað í Frakklandi. Pete Sampras ætlar sér hinsvegar að gera góða hluti á Opna franska meistaramótinu, eins og svo margir aðrir. Hann lét það ekki ná sér úr jafn- vægi þó hann væri sleginn út í fyrstu umferð á Opna þýska meistaramótinu á mánudaginn og sagðist ætla að ná sér í titilinn í Frakklandi. Fleiri voru slegnir út á mánudaginn. í fyrstu um- ferð Opna ítalska meistaramótsins voru tvær af þremur bandarísku konunum sem tóku þátt slegnar út. Það er þó skárri árangur en í fyrstu umferð karla fyrir viku þar sem þrír Bandaríkjamenn voru út. ■ ILLT I FÆTINUM Rússnesku tennisstjörn- unni Önnu Kournikovu hefur ekki liðið vel I fætinum á þessu ári. f gær tók hún aftur þáttöku sína i Opna franska meistara- mótinu. Þú leikur ekki af þér þegar þú treystir HTH fyrir eldhúsinu þínu. Sérfræðingar okkar þekkja allar leikfléttur eldhússins, enda eru þeir þrautreyndir í að tefla saman því besta úr HTH línunni og sníða að þínum þörfum. Láttu sjá þig - Stuttur afgreiðslufrestur aðeins betra B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.