Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 16. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
HVERFISGOTU SIMI 551 9000
www.skifan.is
KRINGLUs&M-I
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 ;T 233
[POKEMON 3 (Isltal) kl^ogelPI
[EXIT WONDS H. 5.55, 8 og I0.I0ÍPI
jSflVE THE LflST DflNCE kl. 8 og lO.lslPj
[NÝISTÍLLINN KEISARANS (isl. tal) kl. 3.5ojjvnr|
1102 DflLMflTlUHUNDUR (ísl. tal) kl. 3.51)1^
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Ienemy AT THE GATES ki. 5.30, 8 og 10.301
(imE WEDDING PLANNER kl. 5.50, 8 og 10.15 [
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10
iPRACULA 2001 kl. 6,8 og lp[
Sýnd kl. 6, 8 og 10
ICHERRY FALLS kl. 6, 8 og 101
CROUCHING TIGER... kl. 8 og 10.301
Imalena kl. 6 og 81
|POKEMON 3 ki. e |
|MEN of honor kl. 101
KIFGNI&QGINN
Fred Durst, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Limp Bizkit, á sér
fleiri hliðar en almennt eru þekktar.
Hann hefur verið
að reyna fyrir sér .
sem kvikmynda-
leikstjóri og í sept-
ember hefjast tök-
ur á fyrstu bíó-
myndinni hans í
fullri lerigd. Hún
nefnist „Life Wit-
hout Joe“ og fjallar
um hóp fótboltaleikara á ferðalagi
sem koma við í smábæ nokkrum.
Þar rekast þeir á nokkra furðufugla
og sjá sér þann kost vænstan að
flýja sem fætur toga inn í skóg.
Fred Durst hefur áður leikstýrt
myndböndum fyrir hljómsveitina
sína.
Roger Clinton, hinn alræmdi
bróðir fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, var tekinn fullur
undir stýri á dögun-
um. Nú heldur hann
því fram að hann sé
alsaklaus og fórnar-
lamb lögreglunnar.
Lögreglan segist
ekki hafa vitað
hver hann var, en
segulbandsupptök-
ur þykja sanna að
lögreglumennirnir hafi verið að tala
um Clinton einni og hálfri klukku-
stund áður en hann var handtekinn.
Fyrrum tengdadóttir íslands,
Kryddpían Mel B, fær 350.000
pund fyrir að kynna sjónvarpsþátt-
inn This Is My
Moment. Mel var
ráðlagt, af fjár-
málasérfræðingum
sínum, að herða
beltið þar sem tekj-
ur hennar hafa
dregist saman eftir
að vinsældir
Kryddpíanna fóru
þverrandi. „Peningarnir koma að
góðum notum. Hún er ekki að þéna
eins mikið og áður“ var haft eftir
einum fjármálasérfræðinganna. Mel
B tekur við hljóðnemanum af knatt-
spyrnumanninum Ian Wright. Hún
þarf að selja höllina sína í Bucking-
hamskíri og hyggst setjast að við
norðurströndina.
Brad Pitt, eiginmaður Jennifer
Aniston, hyggur á framleiðslu á
sinni eigin fatalínu. Pitt hefur tekið
höndum saman við
fataráðunaut sinn,
Todd Shemarya,
auk þriggja bún-
ingahönnuða frá
Hollywood og sam-
an ætla þeir að búa
til karlmannsföt.
Shemarya sagði í
samtali við DNR
tískutímaritið að fatalínan yrði ekki
skírð í höfuðið á leikaranum kyn-
þokkafulla. „Brád vill vera þekktur
fyrir áhrif sín, ekki sem kvik-
myndastjarna, heldur sem einstak-
lingur. Því ætlum við ekki að selja
nafnið hans.
Sean Penn fékk uppreisn æru á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í
gær. Fyrir fjórum mánuðum frum-
sýndi hann mynd
sína, The Pledge, í
Bandaríkjunum.
Myndin fékk góða
dóma frá gagn-
rýnendum en að-
sóknin var mjög
slök. „Geng ég um
með skilti hér í
Evrópu sem á
stendur: Bjargið myndinni minni?
Algörlega, sagði Penn í gríni á
blaðamannafundi fyrir sýninguna.
„Ég vonast eftir góðum viðtökum,
það skiptir mig rniklu." Penn þurfti
ekki að gera annað en að nefna það,
viðtökurnar voru frábærar og
myndinni var hrósað í hástert. Þetta
er spennumynd og í henni leikur
Jack Nicholson rannsóknarlögreglu-
mann í Nevada. Penn sagðist ekki
vera bitur út í Bandaríkjamenn fyr-
ir að vilja ekki sjá myndina. Hann
líkti bransanum við pólitik og sagði
uppáhaldsmyndir vera valdar eins
og forsetaframbjóðendur. Þetta er
þriðja myndin sem Penn leikstýrir
en Woody Allen hefur sagt hann
vera hæfileikaríkasta leikara
Bandaríkjanna.
Polar-tónlistarverðlaunin:
Deila með sér verðlaunum
tónlistarverðlaun Hvað í ósköpunum
eiga þýska framúrstefnutónskáldið
Karlheinz Stockhausen, bandaríski
dægurlagahöfundurinn Burt
Bacharach og bandaríski uppfinn-
ingamaðurinn Robert Moog sameig-
inlegt - fyrir utan að tengjast tónlist
hver með sínum hætti? Þeir hlutu
allir þrír á mánudag Polar-tón-
listarverðlaunin úr hendi Karls
Gústafs Svíakonungs.
Það var Stickan heitinn
Andersson sem stofnaði þessi:
verðlaun fyrir tólf árum, en:
hann sá á sínum tíma um fjár
mál hljómsveitarinnar Abba.
Þremenningarnir skipta með
sér verðlaununum og fá eina
milljón sænskra króna hver í
sinn hlut.
Á síðasta ári hlutu Bob
Dylan og fiðluleikarinn
Isaac Stern þessi verð'
laun, en meðal fyrri
verðlaunahafa eru Paul
McCartney, Elton John
og Ravi Shankar. ■
tónskAldið og
KONUNGURINN
Karlheinz Stockhausen tekur
við sínum hlut verðlaunanna úr
hendi Svíakonungs á mánudag.
Tískusýning í Ástralíu:
Tískurottur
TísKfl Rottur skutust yfir sýningar-
brautina á tískusýningu sem var
liður í tískuvikunni í Ástralíu á
dögunum. Verið var að sýna fatnað
frá hönnuðinum Tsubi og munu
nagdýrin hafa þótt hæfa þeim vel.
Tvöhundruð rottum var sleppt á
brautina og ein þeirra drapst þeg-
ar hún varð fyrir tjaldstöng. Kon-
unglegu dýraverndunarsamtökin í
Ástralíu eru nú að rannsaka at-
burðinn. Ekki fylgdi sögunni hvað
varð um hinar 199 rotturnar. ■
ROTTUR A SÝNINGU
Tvö hundruð rottum var sleppt
á sýningarbrautina á tískusýningu
hönnuðarins Tsubi.
L UNDIR GEISLANUM
Tvöfaldur „Bill“
Bill Wyman bassaleikari settist
ei í helgan stein er hann hætti í Sto-
nes. Síðan '97 hefur hann rekið
Rhythm Kings og var að koma út 4.
plata þeirra. Ryþmakóngarnir spila
djassaðan ryþmablús sem Stones-
kynslóðin ólst upp við: „gömlu upp-
áhaldslögin okkar“, segir Bill.
Bill & kó eru frábærir, enda tón-
listarkóngar og hefði þótt saga til
næsta bæjar ef þessar stjörnur
hefðu náðst saman á plötu um '70:
Gary Brooker úr Procol Harum,
Andy Fairweather Low úr Amen
Corner, nú í hljómsveit Claptons,
Georgie Fame hljómborðssnilling-
ur og söngvari og Albert Lee gítar-
snillingur úr Heads, Hands & Feet;
gestur í einu lagi (Love letters) er
Bítillinn George Harrison.
Nýja platan með Bill & kó er
BILL WYMAN'S RHYTHM KINCS: DOUBLE BILL
tvöföld; heitir því tvöfalda nafni
Double Bill. Maggi Einars á Rás 2
lenti á hljómleikum með Kóngun-
um í Köben um daginn og varð yfir
sig hrifinn.
ANDREAJ
Kvikmynd frá Bosníu í Cannes:
Nöturleiki stríðsins
cflNNES. ap Maður les í dagblaði og
hristir hausinn: „Þetta er nú meira
ástandið í Rúanda," segir hann.
Ástæðan fyrir því að þetta er eitt
fyndnasta tilsvarið í kvikmyndinni
„Einskismannsland" eftir Danis
Tanovic er sú, að þessi maður er
bosnískur hermaður sem felur sig á
bak við víggirðingu og bíður eftir að
sjá hreyfingu hinu megin víglínunn-
ar hjá Serbum.
Tanovic veit hvað hann er að tala
um. Hann var að læra kvikmynda-
gerð í Sarajevó þegar stríðið braust
DANIS TANOVIC
Starfaði sem myndatökumaður
hjá bosníska hernum, en er nú kominn
með eigin bíómynd til Cannes.
út og tók meira en 300 klukkustundir
af efni á vígstöðvunum fyrir bosn-
íska herinn. Nú er hann búinn að gera
fyrstu leiknu myndina sína og hún
tekur þátt í keppninni á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes.
Myndin fjallar um þrjá hermenn,
tvo Bosníumenn og einn Serba, sem
lenda saman í skotgröf á einskis-
mannslandi á miðri víglínunni. Annar
Bosníumanna liggur særður á
ósprunginni jarðsprengju og má sig
hvergi hæra.
Hermenn Sameinuðu þjóðanna
neyðast til þess að skerast í leikinn
og Tanovic dregur ekki upp fagra
mynd af þeim. Þeir virðast ekki hafa
hugmynd um hvar þeir eru staddir og
skilja ekki einu sinni hverjir aðra,
hvað þá heimamenn. ■