Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 16. maí 2001 MIÐVIKUDACUR Foreldrar bama í 3. bekk í Öldutúnsskóla: Of mörg börn í bekk skólamál Foreldrar barna í 3. bekk í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði eru óá- nægðir með ákvörðun skólanefndar bæjarins um að fækka bekkjum í ár- gangnum úr fjórum í þrjá fyrir næsta vetur þegar börnin hefja nám í fjórða bekk. Með því mun börnum fjölga úr 19 í bekk i 26 og óttast for- eldrar að það kunni að hafa slæm áhrif á nám barna þeirra. „Það hefur gengið ljómandi vel með þessa fjóra bekki“, segir Valdi- mar Harðarson sem á son í einum þeirra bekkja sem nú stendur til að sameina. Við höfum verið ánægð með aðstöðu og aðbúnað barna okk- ar. Þegar það er hrært í þessu býður það upp á mikla röskun og gífurlega aukið álag fyrir kennara. Ég tel þetta vera áhættu og að þetta kunni að skapa vandræði. í stærri bekkj- um hefur reynslan sýnt að það eru meiri vandræði og erfiðleikar í bekkjum.“ Undir þetta tekur Grétar Jónsson sem á tvö börn í Öldutúnsskóla. „Það er komin reynsla á fækkun bekkja. Ég á strák í sjötta bekk. Þar var fækkað í þrjá bekki og nú eru 29 nemendur í hverjum bekk. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig gengur að hafa stjórn á 29 krökkum sem eru að komast á unglingsaldurinn. Það hef- ur svo komið 1 ljós að þessi fjölgun í bekkjum hefur bitnað á námsár- angri og komið fram í auknu aga- leysi. Þetta er mjög erfitt fyrir bæði kennara og nemendur og við viljum sporna gegn því að það sama gerist með yngri bekkina." Grétar er allt annað en sáttur við fyrirætlanirnar og telur þær ekki sæma bænum. „Hafnarfjarðarbær hefur alltaf státað sig af því að vera fjölskylduvænn bær en við erum hætt að sjá hversu fjölskylduvænn hann er.“ Foreidrarnir hafa mótmælt ákvörðuninni við bæjaryfirvöld og segjast vonast til þess að hætt verði við breytinguna. ■ NÝBÚIÐ AÐ BYGGJA VIÐ SKÓLANN Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir enga afstöðu hafa verið tekna til at- hugasemda foreldra, sem séu í vinsamlegri skoðun bæjaryfirvalda. Fulltrúar ICAO lentir: Flugslysa- nefnd til skoðunar öRYCGisjyiÁL Tveir fulltrúar frá Al- þjóðaflugmálastofnuninni komu til Islands í gær en þeir hafa verið beðn- ir að fara yfir vinnubrögð Rannsókn- arnefndar flugslysa í tengslum við flugslysið í Skerjafirði í fyrra. Fulltrúar stofnunarinnar eru hér á landi fyrir beiðni Sturlu Böðvars- sonar samgönguntðherra sem sagði í bréfi til stofnunarmnar að efla þyrfti traust íslendinga til þeirra sem tryg- gja eiga flugöryggi. „Við væntum þess að þeir, eins og beðið var um í bréfinu meti þá að- ferðafræði sem Rannsóknarnefnd flugslysa vinnur eftir. Hvort hún sé í samræmi við það t 'm gengur og ger- ist á álþjóðlega vís.’ á þessum vett- vangi,“ segir Jakob Falur Garðars- son, aðstoðarmaður samgönguráð- herra. ■ ;—♦ j Vaxtalækkun bandaríska Seðlabankans: Von á fleiri glaðningum washington. ap. Fimmta stýrivaxta- iækkun bandaríska seðlabankans á árinu, að þessu sinni hálft stig, var ekki sú vítamínsprauta fyrir þar- lenda hlutabréfamarkaði ser.i sumir höfðu búist við. Flestir bjuggust við lækkuninni og hreyfðust mark- aóir því ekki mikið við fréttirnar. Þannig stóðu Nasdaq og 1 'ow Jones nokkurn veginn í stað y 1 r daginn. Margir fjármálaskýrendv ■ að bank- inn hafi nú litlar áhyggj af því að koma af stað verðbólgu s ;ð iækkun- unum. Mikilvægast sé ; auka fjár- festingu fyrirtækja og 1 í sé jafnvel von á fleiri lækkunum. Bandaríski Seðlabankinn sé ákveiinn í því að gera allt sem hægt er til að halda uppi hagvexti. Næsti fundur er 26. júní næst- komandi og eru margir á þeirri skoð- un að grasið þurfi að grænka veru- lega eigi Alan Greenspan ekki að lækka stýrivextina enn aftur. ■ Lokaútkall fyrir Keikó I sumar verður reynt til þrautar að fá háhyrninginn Keikó til þess að aðlagast villtri náttúru að nýju og þiggja frelsi. Ella verður honum fundinn dvalarstaður til framtíðar og er allt eins líklegt að sá staður verði ekki við Islandstrendur. vísinpi Dagar háhyrningsins Keikó í Klettsvík gætu senn verið á enda. Á næstu dögum verður Keikó flutt- ur úr víkinni til sumardvalar á há- hyrningaslóð þar sem þess verður freistað fram á haust að binda hval- inn tengslum við aðra háhyrninga og gera hann sjálfbjarga í náttúr- unni. Takist það ekki verður skepn- unni hugsanlega fundinn nýr dval- arstaður til framtíðar því aðstæður geta verið erfiðar að vetarlagi í Klettsvík. Sá staður er enn ekki fundinn og óvíst hvort hann finnst við ísland eða hvort Keikó verð- ur fluttur frá land- inu enn eina ferð- ina eða hvort Klettsvík verður þrátt fyrir allt áfram fyrir val- inu. Á bilinu 25 til 30 manns, íslend- Rekstrarkostn- aður vegna Keikóverkefnis- ins hér við land nálgast nú einn milljarð króna. ingar og Bandaríkjamenn, hafa starfað hérlendis á vegum Keikó- samtakanna og rekstrarkostnaður- inn hefur numið um 30 milljónum króna á mánuði þá 30 mánuði sem liðnir eru síðan Bandaríkjaher flaug hvalnum til Heimaeyjar haustið 1998. Þannig má búast við að kostnaðurinn þokist yfir miilj- arðinn á næstu mánuðum en það er fyrst og fremst Craig McCaw, fjar- skiptamógúll og formaður Keikó- samtakanna, sem staðið hefur undir þessum útgjöldum. Síðastliðið sumar var víða farið með Keikó í 40 ferðum úr bækistöð- inni Klettsvík og synti hann þá sam- tals 1000 kílómetra og komst 15 sinnum í tæri við háhyrninga. „Eft- ir því sem þessum ferðum fjölgaði því meiri urðu samskiptin," segir Hallur Ilallson, talsmaður Keikó- samtakanna á íslandi, um árangur- inn af þeim feröum. í sumar verður enn hert á að- NOKKRIR VIÐBURÐIR ÚR LÍFI KEIKÓS 8- September 1998 Keikó kemur til Vestmannaeyja. September 1998 Skemmdir á kvínni í ofsaveðri. 8- Febrúar1999 The Times segir Keiko geta bjargað Islendingum frá gjaldþroti. 8- SeDtember 1999 Sjókví brotnar undan straumþunga. 8- SeDtember 1999 Frönsk tímarítsgrein um meinta vansæld Keikós. 8- Janúar 2000 Klettsvík girt af. 8_ Mars 2000 Keikó fer úr kvlnni. H Sumarið 2000 40 ferðir á rúmsjó og snerting við aðra háhyrninga. *- Sumarið 2001 Sjálfbjarga á ný? HAFNAR KEIKÓ VÍÐÁTTUIVI HAFSINS? Hallur Hallsson segir að Keikó verði að gera upp hug sinn í sumar. gerðunum. Vísindamenn og annað starfslið munu þá dvelja nteð Keikó á hvalaslóðinni suður af Vest- mannaeyjum á nótaveiðiskipi sem tekið hefur verið á leigu og hafa jafnframt sérstaka þyrlu frá Bandaríkjunum og tvo öfluga létta- báta í sinni þjónustu til að fylgjast með ferðum Keikó og annarra há- hyrninga um svæðið. Heyrst hefur að Keikósamtökin íhugi að flytja bækistöðvar háhyrn- ingsins úr Klettsvík þurfi þau að ala önn fyrir honum áfram eftir sumar- ið en Hallur segir alls ekkert ákveð- ið í þeim efnum. „Við tökum ákvörð- un um það þegar við komum að þeim punkti," segir hann. Hallur segir ekki hægt að segja frá því á núverandi stigi málsins hvaða aðrir staðir komi til greina. Hann segir þó að háhyrningurinn verði ekki fluttur til Bandaríkjanna aftur en að önnur lönd sem liggi að Norður- Atlantshafi séu hins vegar inn í myndinni, og nefnir þar sérstaklega írland og Skotland. Keikósamtökin hafa gengist fyr- ir umfangsmiklum vísindarann- sóknum hér við land í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun og sjávarút- vegsráðuneytið og segir Hallur nið- urstöður þeirra vafalaust verða dýrmætar og spennandi burtséð frá því hvort það markmið náist að fá Keikó til að velja frelsi á ný. Ilann segir Keikó aldrei hafa verið í betra ásigkomulagi, hann borði stöðugt lifandi fæðu í bland við aðra og lík- ist nú meira háhyrningi en því gæludýri sem hann var við komuna til Iandsins. ;W<síN'U"",í' 71 Úsf ,sv s visir.is — hvernig. leyfa me>.n Fyrstur með FRÉTTIRNAR þtí s* #*«*•: á, twffliwfag Oááwse VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Frétt á bls. 4 ( DV í gær, 'l þriðjudaginn 15. maí. Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS er í ritstjórn Fréttablaðsins |STUTT| Borgarráð hefur samþykkt að taka til- boði lægstbjóðanda Gísla Magnús- sonar í útboði í 30 kílómetra hverfi og úr- bætur á göngu- og hjólaleiðum. Tilboðið nemur tæpum 32 milljónum króna. Alls tóku fimm verktakar þátt í þessu útboði. Menntamálaráðuneytið hefur úthlut- að 49 styrkjum, að fjárhæð 17,5 milljónir króna, til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðins- fræðslu á árinu 2001. Alls var sótt um styrki til 76 verkefna og samanlagðar fjárbeiðnir námu um 72,5 milljónum króna. Ríkisstjórnin ákvað í gærmorgun, að tillögu dómsmálaráðherra, að styrk- ja gerð könnunar á högum og líðan ungs fólks og verður athyglinni aðallega beint að aldurshópnum 16 til 20 ára. Áhersla verður lögð á ungt fólk sem ekki er í skóla. Deiliskipulag Hörðuvalla: Á fjórða tug athugasemda skipulagsmál 15 aðilar gerðu á fjórða tug athugasemda við tillögu bæjaryf- irvalda í Hafnarfirði að deiluskipu- lagi Hörðuvalla en tillagan verður tekin fyrir á fundi skipulags- og um- ferðarnefndar í dag. Athugasemdir bárust frá einstak- lingum, félagasamtökum og stofnun- um á svæðinu sem eiga hagsmuna að gæta vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi. Meðal þeirra sem gerðu athugasemdir eru stjórn Heilsugæslu- stöðvarinnar í Sólvangi, stjórn Iljúkr- unarheimilisins Sólvangs, Hörðuvalla- hópurinn og Öldrunarsamtökin Höfn en auk þeirra bárust athugasemdir frá íbúum á svæðinu. Fimm athugasemdir bárust um að deiluskipulagið stangaðist á við aðql- skipulag og nokkuð var um að íbúar gerðu athugasemdir við að ekki hefði verið haft nægt samráð við þá. Þá gerðu eigendur húsanna númer 1 og 4 við Hörðuvelli athugasemdir við hús þeirra skuli látin fylgja samkvæmt nýju deiluskipulagi en þeir telja að ekki hafi verið fylgt meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.