Fréttablaðið - 16.05.2001, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 16. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
n
Bankamenn:
jr-
Vilja norrænan banka til Islands
til að bæta stöðu starfsmanna
Fornleifarannsókn í fyrrum Sovétlýðveldi:
Áður óþekkt ritmál
fundið í Turkmenistan
bankamenn Friðbert Traustason for-
maður Sambands íslenskra banka-
manna segist vera mjög hrifinn af
þeirri hugmynd að hér á landi taki til
starfa einhver norrænn banki. Hann
segir að það mundi verða til þess að
bæta mjög mikið allt það er lýtur að
málefnum starfsmanna.
í því sambandi bendir hann m.a á
að í norrænum bönkum sé meðá-
kvörðunarréttur starfsmanna virtur
um stjórnun, auk þess sem starfs-
menn eiga fulltrúa í bankastjórn og
einnig í öllum nefndum og ráðum,
öndvert við það sem gengur og gerist
FRIÐBERT
TRAUSTASON:
Hann var endur-
kjörinn formaður
Sambands islenskra
bankamanna.
hjá íslenskum
bönkum. Meðal
annars séu nor-
rænir banka-
starfsmenn í þeim
nefndum sem taka
ákvörðun um
nýráðningar og
uppsagnir í stað
íslenskra geð-
þóttaákvarðana.
Friðbert segir að
norrænir bankar
telji að hérlendis
séu sóknarfæri á
líf- og tryggingarmarkaði sem teng-
ist fjármálastarfsemi.
Atvinnu-og menntamál bar hæst á
nýafstöðnu þingi Sambands íslenskra
bankamanna sem haldið var í Borg-
arnesi um sl. helgi. Hins vegar var
lítið fjallað um sölu ríkisins á hluta-
bréfum sínum í ríkisbönkunum að
öðru leyti en því að áhersla var lögð á
að starfsmannavelta yrði látinn ráða
um fækkun starfsmanna fremur en
hópuppsagnir. í menntamálum var
lögð áhersla að auka menntun banka-
manna með samstarfi við skóla á há-
skólastigi. ■
new york. ap. Fornleifafræðingar sem
vinna að uppgreftri í Hirkmenistan
gætu verið á leiðinni að endurskrifa
sögubækur um upphaf siðmenningar.
Það er álit Fredrik T. Hiebert, pró-
fessors við Pennsylvania-háskóla, en
hann telur að tákn sem hann hefur
fundið í uppgreftrinum sanni að sam-
félagið í mið-Asíu hafi notað áður
óþekkt ritmál 2300 fyrir krist.
Hiebert þakkar uppgötvunina lokum
kalda stríðsins, en aðeins á síðasta
áratug hafi landamæri fyrrum Sovét-
ríkjanna opnast fræðimönnum. Forn-
leifafræðingar eru almennt sammála
Hiebert um að táknin séu óskyld
þekktum letrum frá sama tíma, svo
sem frá Mesópótamíu eða íran.
Hingað til hafa flestir vísinda-
menn talið að lítið annað hafi verið
þar sem Turkmenistan er nú en opið
svæði sem hýst hafi takmarkaða
menningu. „Samfélag þeirra hafði
alla þætti sem skilgreina siðmenn-
ingu,“ segir Kiebert. Með frekari
rannsóknum hyggjast vísindamenn
finna leiðir til að ráða í og skilgreina
ritmálið, og fá þar með lykil að menn-
ingu sem hingað til hefur verið svo til
óþekkt. ■
í sumar er lokaútkall fyrir
Keikó.
„Við munum ieggja okkur öll
fram til þess að ná því markmiði
að Keikó geti synt frjáls á ný og
stefnum að því að fá endanlegt
svar við spurningunni í sumar:
Fer hann út í villta náttúru eða
ekki? Þó við séum mjög bjartsýn-
ir og staðráðnir að gera Keikó
þetta kleift er valið skepnunar og
við munum taka því sem að hönd-
um ber. Það væri góður endir ef
Kiekó velur villta náttúru á ný en
samtökin hafa skuldbundið sig
gagnvart íslenskum stjórnvöld-
um til að annast um velferð há-
hyrningsins ævi hans á enda og
við munu auðvitað standa við
það,“ segir Hallur.
gar@frettabladid.ís
Norðfjörður:
Færeyskir
togarar landa
fiskveiðar. Tveir færeyskir ísfisks-
togarar lönduðu afla á Norðfirði á
mánudag. Þar með er vinnsla hafin á
ný í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar
eftir rúmlega fjögurra vikna vinnu-
stöðvun vegna verkfalls sjómanna.
Haraldur Jörgensen, verkstjóri hjá
Síldarvinnslunni sagði í samtali við
Sjávarp að togararnir séu með alls 80
tonn og er uppistaða aflans ufsi en
einnig þorsk og karfa. Telur hann að
þessi afli dugi til þriggja til fjögurra
daga vinnslu í fiskiðjuverinu. Fær-
eysku togararnir heita Gorpur og
Skrápur en ganga nú undir nöfnunum
Glámur og Skrámur á Norðfirði. ■
Offita barna eykst á íslandi
Bandarískar rannsóknir segja samband milli offitu og brjóstgjafa.
chicaco. ap Engir foreldrar vilja að
börnin sín þurfi að kljást við offitu-
vandamál. Tvær nýjar rannsóknir í
Bandaríkjunum benda til þess að
hægt sé að koma í veg fyrir vanda-
málið strax frá unga aldri. Hvernig
er það hægt? Jú, með því að hafa
börnin á brjósti í stað þess að gefa
því pelamjólk. Önnur rannsóknin
bendir þó á að þyngd móður geti
skipt enn meira máli en brjóstagjaf-
ir.
Læknadeild Harvard háskólans í
Cambridge, Massachusettsfylki,
komst að því að þau börn sem eru á
brjósti munu síður eiga við offitu-
vandamál að stríða á unglingsárun-
um. Rannsóknaraðilar segja að litlu
máli skipti hversu lengi börnin eru á
brjósti og forsvarsmaður
Harvardhópsins, Dr. Matthew
Gillman, telur að með því að hafa
börn á brjósti læri börn aó hætta að
drekka þegar þau eru södd. Gillman
hefur sett fram þá kenningu að for-
eldrar sem gefi börnum sínum pela-
mjólk eigi það til að láta börn sín
klára pelann og þannig hunsa skila-
boð líkamans um að hann sé orðinn
saddur. Það getur aukið líkurnar á
þvl að börnin þurfi að kljást við
offituvandamál síðar meir.
Árni V. Þórsson, barnalæknir hjá
Landspítalanum, segir að ekki séu til
hliðstæðar rannsóknir frá íslandi.
Hann bendir þó á að hlutfall þeirra
barna sem eru á
’—♦-— brjósti á fslandi sé
mjög hátt - mun
Gillman hefur hærra en gengur og
sett fram þá gerist í Bandaríkj-
kenningu að unum.
foreldrar sem „Offita barna er
gefi börnum hins vegar sívax-
sínum pela- andi vandamál á ís-
mjólk eigi það landi og líklega má
til að láta börn að miklu leyti rekja
sín klára pelann það til hinna hefð-
og þannig bundnu þátta: mik-
hunsa skilaboð illar inniveru, sjón-
llkamans um að varpsgláps, tölvu-
hann sé orðinn leikja og ruslfæð-
saddur. is.“ sagði Árni og
bætti því við að
—♦— framboð fæðu sem
LYKLABÖRN f HÆTTU
Árni telur að hin svonefndu lyklabörn séu í meiri hættu heldur en þau börn sem eyða meiri tíma í umsjá foreldra sinna. „Pað er svo auð-
velt að háma I sig kremkex og gos þegar enginn er heima," sagði Árni.
telur margar hitaeiningar væri sí-
fellt að aukast og að það á sama tíma
og börn hreyfa sig minna. Árni taldi
að þeir foreldrar sem ættu ungabörn
þyrftu að hafa litlar áhyggjur ef þau
væru dálítið feit, en hins vegar að
það væri meiri hætta á því að börn
sem eiga við offituvandamál að
stríða á fimm til sex ára aldri myndu
líka þjást af vandamálinu á sínum
eldri árum.
omarr@frettabladid.is
Pólland:
Loks réttað yfir
Jaruzelski
varsiá, ap. Rúmum 30 árum eftir að
tugir verkamanna voru skotnir til
bana í skipasmíðastöðvum í Póllandi
hefur sá sem grunaður er um að hafa
gefið fyrirskipanirnar, Vojicieh Jar-
uzelski, verið leiddur fyrir rétt. Jar-
uzelski var varnarmálaráðherra árið
1970 þegar morðin voru framin en
gerðist síðar leiðtogi í kommúnista-
stjórn landsins þar til honum var
steypt af stóli árið 1989. Morðin á
verkamönnunum, sem mótmæltu
bágum kjörum, eru talin hafa ýtt
undir baráttu almennings, og flokks-
ins Samstöðu, gegn kommúnisma.
Gerð var tilraun til að draga fyrr-
um kommúnistaleiðtogann fyrir rétt
árið 1996 en réttarhöldum var
frestað af heislufarsástæðum. Hefur
hann ávallt haldið fram sakleysi sínu,
en ljóst er að hinn aldni Jaruzelski á
erfitt verk fyrir höndum því búist er
við því að réttarhöldin taki um það bil
eitt ár.
Að sögn AP-fréttastofunnar býst
almenningur í Póllandi ekki við því
að Jaruzelski, verði hann sakfelldur,
hljóti hámarks refsingu, sem er 25
ára fangelsi. Réttarhöldin snúist
frekar um að komast að sannleikan-
um heldur en að fangelsa Jar-
uzelski. ■
| STUTT|
Landvernd hefur sent frá sér tilkynn-
ingu þess efnis að íslensk stjórnvöld
hafi leyft laxeldi í sjókvíum í meiri mæli
en samræmist varúðarráðstöfunum og
nauðsynlegt sé að undirbúa betur laxeldi í
sjókvíum. Landvernd bendir á að sleppi lax
í sjókvíum hefur það í för með sér hættu á
útbreiðslu sjúkdóma, erfðablöndun og
mengun. Þetta hefur þótt vera sýnt á eldi á
norskum laxi í sjókvíum. Landvernd telur
að gangi fyrirhugaðar áætlanir eftir um
laxeldi í sjókvíum á íslandi geti það leitt til
þess að í lífríki íslands verði meira af laxi
af norskum uppruna en íslenskum.
Japanska keisarafjölskyldan hefur til-
kynnt að krónprinsessan Masako sé
barnshafandi eftir átta ára hjónaband
hennar og erfingja krúnunnar. Tilkynningin
kemur mánuði eftir að fréttirnar spurðust
fyrst út og er Masako sögð vera komin þrjá
mánuði á ieið. Ef barnið reynist vera
drengur mun hann erfa krúnuna eftir föður
sinn, Naruhito.
FYRRUM KOMMÚNISTALEIÐTOGI
Heilsufar Jaruzelski hefur hingað til haldið
honum frá réttarsalnum, en nú sér hann
fram á löng réttarhöld.