Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsínga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 hp Laserjet 2200 hp Laserjet 4100
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Bakþankar
Kristinar Helgu Gunnarsdóttur
Pokapláss
í skólum
Hér er þessi stelpa og hún er full-
komin. Það er svo undir ykkur
komið hvort hún heldur áfram að
vera það,“ sagði barnalæknirinn við
okkur, stolta foreldrana, þegar við
héldum heim af fæðingadeildinni.
Mér hefur oft verið hugsað til þess
hve mikill sannleikur bjó í orðum
læknisins.
—♦—
íslensk börn vantar kærleika
og hlýju sagði einn af merkari æsku-
lýðsskörungum þessarar þjóðar í
viðtali nú í vikunni, en hann hefur
rekið sumarbúðir um áratugaskeið.
Þetta heyrum við oftar en áður frá
kennurum og öðrum sem sinna upp-
eldismálum. Sama fólk hefur auk
þess sagt að meiri tími fari í að
sinna uppeldi barna en kennslu í
skólum landsins.
—4—
En hvers vegna er ástandið
svona? Við sem reynum að einsetja
skólana svo börnin hafi samastað,
helst fram að kvöldmat? Við sem
viljum bjóða upp á heitan „mömmu-
mat“ í skólanum svo heimilin geti
lagt af tímafreka og úrelta kvöld-
verðarsiði? Við sem viljum gera
skólana að athvarfi öryggis og hlýju
í annars hörðum heimi? Hvað skyldi
vera langt þar til við getum boðið
upp á svefnpokapláss í skólum fyrir
nemendur sem enginn má vera að
því að sækja?
Við hengjum gemsa á börnin
því þá vitum við svo vel hvar þau
eru. Við hendum sjónvörpum inn í
herbergin þeirra svo við þurfum
ekki að hitta þau nema endrum og
sinnum, sendum þau út og suður á
námskeið, kaupum þetta, kaupum
hitt - dönsum í kringum gullkálfinn
og kennum börnunum okkar að
dansa líka.
—4__
Tíminn er naumur. Það þarf að
skjótast, þeytast, skreppa og æða.
Oftar en ekki gleymast litlar mann-
eskjur sem þurfa ekki dót, nám-
skeið, heitan mat í skóla eða að dúsa
þar daglangt, heldur tíma með sín-
um nánustu. Tíminn er sennilega
dýrmætastur af öllum auðæfum í al-
heimi. En hvað er til ráða? Það eru
að minnsta kosti tveir valkostir í
stöðunni: a) Að kanna möguleikana á
því að lengja íslenskan sólarhring -
hafa hann til dæmis 30 klst. og
fækka dögum á móti. b) Að hægja
örlítið á sér og sínum - slaka á og ná
tökum á tímanum. ■
Eigum nokkra bíla
á frábæru verði
Gefum gengisfellingunni
langt nef!
AÐEINS EINN BILL
Bílabúð Benna • Kringlunni og Vagnhöfða 23 • Sími 590 2000 • www.benni.is
Akureyri: Bílasalan Ós - Hjalteyrargötu 10 - Sími 462 1430
Nýtt
símanúmer
PÖSTFLUTNINGAR
Suðurhrauni 3.210 Garðabær
posturinn@visir.is