Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 24
-^ ^ n.*—m—-*n i FRETT/ SfMANÚMER FRÉTTABLAÐS1NS:515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - simbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 w SECIUIVl FRÍTIIR Fréttavefurinn á ...........................’irfssIirGfssr *KL8-19 Skeifunni 17, 108 Reykjavík \ Furuvöllum S, 600 Akureyri \ Sími 550 4100 Fyrstur með fréttirnar TMcirival Sól á útsölu! vikuferöir 13. og 20. júní 44.900 kr. VV6. VÍ.W ÆBaiB 20. öidin - 4.900 kr. Saga 20. aldarinnar er hér rakin á nýstárlegan og áhugaverðan hátt og ríkuleg áhersla lögð á myndræna framsetningu. ísienskir fugtar - 18.800 kr. Viðamikið og aðgengilegt stórvirki þar sem gerð er grein fyrir öllum villtum fuglum á Islandi. IshmdsMga A~Ö - 14.900 kr. Meginstaáreyndir sögu þjóðarinnar í ellefu aldir aágengilegar á einum stað. Nauásynleg handbók. ijó&osafn Daviís Sfefánssonar - 7.400 kr. I safninu birtast mörg af fegurstu IjóSum sem ort hafa veriá á íslenska tungu. Ísíenskt þjó&sagnasafn - 19,900 kr. Ritsafnið hefur að geyma úrval úr einstæðum sagnabrunni, arf sem þjóðinni hefur safnast í aldanna rás. GulÍkom i gremum Laxness Hér skiptast á beittar háðsglósur og glitrandi stílperlur, tærasta einlægni og skemmtilegir sleggjudómar - allt óbrigðull vitnisburður um skarpa hugsun og heitt hjarta skáldsins. Stóra hjátrúarbókin - 4,860 kn Aðgengilegt uppflettirit um margvíslega hjátrú landsmanna fyrr og nú. Stóra tilvitnariabóidn -4.860 kr. Inniheldur fleyg orð og spakmæli til að nota við ýmis tækifæri. Hér er að finna 6.000 tilvitnanir í snjallyrði um 1.000 nafn- greindra karla og kvenna. Perlor i skáldskap Laxness - 4.860 kr. Bók þessi geymir talsvert á annað þúsund tilvitnanir í verk Nóbels- skáldsins. Þær eru ótrúlega fjölbreyttar en allar bera þær fagurt vitni um ritsnilld Halldórs Laxness. Sfóra draumaráöningabókin - 4.860 kr. Skýringar á um það bil fjögur þúsund drauma- táknum og greint frá þeirri draumaspeki sem að baki býr. Ljóbasafn Stmns Stemarr T 3*890 kr. íslendingar hafa fyrir löngu skipað Steini Steinarr á bekk með öndvegisskáldum sínum og verk hans hafa fundið hljómgrunn hjá hverri nýrri kynslóð í landinu. Gulffailegar gjafabækur - 2.980 kr. stk. Bækurnar Lífið og tilveran og Ljósbrot hafa að geyma snjallyrði íslenskra skálda en einnig sígilda speki frá ýmsum löndum. Glæsilegar tilvitnanabækur sem eru tilvaldar til gjafa við öll tækifæri. Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Þorskar á þurru landi Það er ég viss um að þorskinum væri dillað ef hann hefði tæki- færi til að fylgjast með þeirri lærðu umræðu sem nú geisar um a) hvort það sé til þorskur eða ekki og b) hvar hann sé þá niðurkominn, og c) hvort öll fræðin séu misskilningur frá rótum og d) enginn viti neitt í sinn haus - nema ef vera kynni þorskurinn sjálfur. Þessi mikla og alvörugefna umræða minnir helst á umræðuna um tilvist Guðs (sem þjóðin nennir ekki að hlusta á lengur nema hvað almennt er talið óskað- legt að kenna börnum faðirvorið) og hefur af krafti gengið í dansinn um- hverfis Gullkálfinn og snúið sér af öllu hjarta að Mammoni eða þeirri fjölgyðistrú sem stundum er kölluð „Nýja hagkerfið", en mikilvægasta framleiðsluvara þess kerfis ku vera upplýsingar en ekki saltfiskur. GUÐ OG ÞORSKURINN virðast nú báðir vera á leiðinni að yfirgefa þessa nýríku og drýldnu þjóð; sá fyrrnefndi eftir tíu og sá síðarnefndi eftir ellefu alda samleið. Kristnihá- tíðin i fyrra var lifandi vitnisburður um stöðu þjóðkirkjunnar sem hefur lengi gegnt trúnaðarhlutverki sem helsti verndaraðili trúar í landinu. Og Hafró (sem á svipaðan máta hef- ur verið helsti verndaraðili þorsks- ins) hefur nú gefið út tímamótayfir- lýsingu um að upplýsingar stofnun- arinnar um þorskinn á síðustu árum og áratugum hafi verið samdar í bjartsýniskasti og oftrú og beri því að taka í gríni frekar en alvöru. HAGFRÆÐINGAR voru þó fljótir að bregðast við þessum ótíðindum þótt guðfræðingar og fiskifræðingar séu skák og mát og segja að ekki sé hætta á að þorskleysið hafi áhrif á efnahag okkar því að svo heppilega vilji til að með samstilltu átaki hins nýja hagkerfis hafi nýlega tekist að fella gengi íslensku krónunnar veru- lega þannig að því minna sem veiðist af þorski þeim mun meira fá- ist fyrir hann af alvörupeningum. GUÐLAUS OG ÞORSKLAUS þraukum við því hér fjarst í eilífðar- útsæ og setjum trú okkar á hagspek- inga og fræðimenn - sem með allri virðingu fyrir menntuninni - minna mann stundum dáldið á fiska á þurru landi, ekki síst þorska. ■ * VAKA HEIGAFELL Vaka-Helgofell býður glæsilegar gjafabækur, verk s,em standasf tímans tbnn og munu lífa þjóbinni um ókomin ór. Klassísk verk, góó til gjafa - sannkölluð framtíóareign. Vanda&ar bækur - Framti&areigii

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.