Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 1
Ég held mig
við kjötfarsið
bls 11
KOSNINCAR
Bilið minnkar
í Bretlandi
MENNING
Kuran Kompaní
x Húsi
málarans
bls 18
einfaldlega hollt!
FRFTTARl APiIPi
rrvL i 1 /\DL/YLy 111/
t ::::: :l
31. tölublað - 1. áraangui^ Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 7. júní 2001
FIMMTUDAGUR
Er gróði af Kára-
hnjúkavirkjun?
hagfræði Þorsteinn Siglaugsson,
rekstrarhagfræðingur, gerir í dag
grein fyrir mati á arðsemi Kára-
hnjúkavirkjunar, sem hann hefur
unnið fyrir Náttúruverndarsamtök
íslands. Boðað hefur verið til fund-
ar með fréttamönnum kl. 10.30.
Vorblót
tónlist Sinfóníu-
hljómsveit ís-
lands heldur
lokatónleika
starfsársins í Há-
skólabíói kl. 19.30
í kvöld undir
stjórn Petri Sak-
aris. Á efnisskrá eru 6. sinfónía
Beethovens, Pastoralsinfónían, og
Vorblót eftir Igor Stravinski.
IVEÐRIÐ f DAGl
REYKJAVÍK Vestan 5-10 m/sek.
Skýjað með köflum og
hiti 6 til 11 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
isafjörður Q 5-10 skýjað Q 9
Akureyri © 3-8 léttskýjað Q 9
Egilsstaðir © 3-8 léttskýjaö Q 9
Vestmannaeyjar © 7-12 skýjað ()6
Einstakur í Evrópu
miniar Hólavallagarður, kirkjugarð-
urinn við Suðurgötu, er best varð-
veitti 19. aldar garður í Evrópu.
Þjóðminjasafnið gengst fyrir göngu-
ferð um garðinn kl. 20.00 í kvöld.
Landvernd
setur punkt
umhverfi Landvernd setur í dag
punkt aftan við fundaröð sína um
áhrif og afleiðingar Kárahnjúka-
virkjunar á Grand Hotel kl. 16:00.
Þar tekur Kristín Einarsdóttir
saman niðurstöður sérfræðinga.
Heil umferð
fótbolti Efsta lið 1. deildar tekur á
móti Þrótti í 1. deild karla í knatt-
spyrnu í kvöld. Leikurinn hefst
klukkan 20, en heil umferð verður
leikin í kvöid.
|KVÖLPIÐ í KVÖLp I
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 21
Misstum 5 0 millj arða
í gjaldeyristekjum
- segir forsætisráðherra um svörtustu skýrslu Hafrannsóknarstofnunar. „Höfum ekki aðra þekkingu,"
segir ráðherrann. Hann segir íslenskt efnahagslíf það sterkt að það þoli áfallið.
kvótamál Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, telur að ofmat Hafrann-
sóknarstofnunarinnar á íslenska
þorskstofninum þýði 50 milljarða
króna tap í gjaldeyristekjum fyrir
ríkissjóð.
„Þegar það týnast 500 þúsund
lestir af þorski úr stofninum erum
við að tala um 50 milljarða króna
minna í tekjur ef tekin eru nokkur
ár í röð. Þetta eru gjaldeyristekjur
og við verðum að komast yfir
þetta,“ sagði ráðherrann. Hann
sagði að traust ríkisstjórnarinnar á
Hafrannsóknarstofnun væri ekki
brostið, en að stofnunin hafi trúað
of mikið á „eigin kenningar og
óskeikuleika vísindanna.“
„Við hljótum að sjá það núna -
og þeir ekki síður - að öryggi vís-
indanna er minna en þeir töldu. En
á móti kemur - og á það skal benda
- að við höfum ekki aðra þekkingu
til þess að styðjast við,“ sagði Dav-
íð. Hann bætti því við að ekki væri
um að ræða nákvæmnisvísindi eins
og „stundum hefur verið talað um.“
Þegar ráðherrann var spurður
hvort fyrirsjáanlegar væru ein-
hverjar breytingar á samskiptum
ríkisstjórnarinnar og Hafrann-
sóknarstofnunar sagði hann að
sjávarútvegsráðherra væri með
málið í skoðun og hann myndi taka
ákvörðun um það. Davíð sagði að
skýrsla Hafrannsóknarstofnunar -
sem kölluð hefur verið svartasta
skýrsla stofnunarinnar til þessa -
hefði „sáralítil áhrif á stöðu efna-
hagslífsins vegna þess að staðan er
svo sterk.“
„Það hefði einhvern tíma verið
saga til næsta bæjar að menn þurfa í
tvö ár að skera niður aflann um 30
þúsund tonn og að efnahagslífið sé
samt sem áður svona sterkt," sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Á síðasta fiskveiðiári var þorsk-
kvótinn 250 þúsund tonn, en verður
aðeins 190 þúsund tonn á næsta fisk-
veiðiári sem hefst 1. september.
omarr@frettabladid.is
Karlavígi fellur:
Spennandi
heimur
orkumál Eitt vígi karlaveldisins féll í gær þegar kona var
í fyrsta skipti ráðin yfirmaður í virkjun Landsvirkjunar.
Rán Jónsdóttir, rafmagnsverkfræðingur var ráðin stöðv-
arstjóri Blönduvirkjunar. í aflstöðvunum hafa fram að
þessu ekki unnið konur í tæknistörfum.
„Ég fer í Blöndu með manni og mús,“ segir Rán Jóns-
dóttir og bætir því við að fjölskyldunni finnist frábært
tækifæri að flytjast út á land og gera eitthvað nýtt.
„Starfið er líka mjög fjölbreytt og spennandi og ég tek
við góðu búi.“
Rán hefur unnið hjá Landsvirkjun síðastliðin sjö ár,
fyrst við kerfisáætlanir og síðan á markaðsdeild. „Ég
vissi ekkert um orkugeirann þegar ég byrjaði, en það var
ást við fyrstu sýn. Mér finnst þetta mjög spennandi
heimur."
Verkfræðingar eru ekki fjölmenn kvennastétt og Rán
er því ekki óvön að vera umkringd körlum í starfi. „Það
hefur aldrei truflað mig neitt og ætti ekki að trufla
nokkurn mann.“ ■
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og orkuráðherra:
Bönnum engum
smásölu á raforku
AFL KVENNA VIRKJAÐ. Rán Jónsdóttir, rafmagnsverkfræðingur
tekur við stjórn Blönduvirkjunar I sumar, en hún er fyrsta konan
sem stjórnar virkjun á íslandi.
FÓLK
Dýrasta
mynd sem
gerð hefur
verið
orkumAl Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðar- og orkuráðherra hefur ekkert
nema gott um það að segja að Orku-
veita Reykjavíkur hugi að nýrri gufu-
aflsvirkjun á Hellisheiði, eins og
fram kom í blaðinu í gær. „Orkufyrir-
tækin eru öll að þreifa fyrir sér um
það hvernig þau eigi að undirbúa sig
undir samkeppnisumhverfi í orku-
geiranum. Orkuveita Reykjavíkur
hefur rannsóknarleyfi og það er
sjálfsagt að fyrirtækið kanni til hlítar
hvort um raunhæfan orkuöflunar-
möguleika sé að ræða í Hellisheiði og
hvort hann reynist hagkvæmur þeg-
ar allt hefur verið rannsakað."
Ráðherra kvað það ekki vera í
verkahring ráðuneytisins að ákveða
hverjir fengju leyfi til smásölu á
raforku, en fram hefur komið að
Orkuveita Reykjavíkur telur ekki
rétt að Landsvirkjun hafi smásölu-
leyfi eins og mál standa. „Það er
gert ráð fyrir að flutningur og
dreifing á raforku verði á einni
hendi en orkuöflunin og salan verði
gefin frjáls eftir nokkur ár. Þeir
sem uppfylla þau skilyrði sem sett
verða fyrir að fá sölu- og orkuöflun-
arleyfi munu að sjálfsögðu fá þau.
Við munum að öðru leyti ekki
ákvarða þar um.“ ■
SÍÐA 16
ÍÞRÓTTIR
Grátlegt
jafntefli í
Laugar-
dalnum
SÍÐA 14
| ÞETTA HELST |
T Teruleg aukning klamydiusmits
V hjá aldurshópnum 15-24 ára
bendir til þess að ungt fólk gæti ekki
að sér. bls. 2
VI
'iðgerðin á þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar kostar 30-50 milljónir. bls. 4
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar segir ekkert kalla á
nýja gufuaflsvirkjun þar sem orku-
þörf sé fullnægt. bls. 6
Kristinn H. Gunnarsson er ekki á
mínum vegum, segir Davíð Odds-
son fosætisráðherra. bls. 6
Sigurður Gísli Pálmason og
Sigurjón Sighvatsson eignast
skólasetrið Eiða. bls. 2