Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 16
FRÉTTABLAÐIÐ 7. júní 2001 FIMMTUPAGUR BEST i BÍÓ HULDA BJARNADÓTTIR dagskrárgerðarkona á FM 95,7 Flottar tökur „Síðasta mynd sem ég sá í bíó var The Crimson Rivers. Það er frábær mynd en svolítið ógeðsleg á köflum. Spennan hélst út alla myndina og það var áber- andi hvað voru flottar tökur í henni." ■ HÆST LAUNAÐA FYRIRSÆTAN Brasilíska fyrirsætan Cisele Bundchen er á toppnum í tískubransanum. Gisele og Leonardo: Gifta sig í Feneyjum brúðkaup Ofurparið Leonardo DiCaprio og Gisele Biindchen munu að öllum líkindum gifta sig í Feneyj- um í sumar. Þau neita að staðfesta fregnirnar og bölva blaðamönnum sem voga sér að skrifa um ráðahag- inn. Gisele sagði í viðtali í ítölsku blaði fyrir skömmu að fréttir um brúðarkjólainnkaupaferð hennar væru lygi. Hún sagði þau vera ást- fangin þótt sambandið sé erfitt vegna stöðugs áreitis. Haft var eftir Gisele fyrir áramót að hún vildi ekki gifta sig þar sem hún er einungis 20 ára. Hún hefur greinilega skipt um skoð- un. Leonardo er að vinna að Gangs Of New York eftir Martin Scorcese með Cameron Diaz á Ítalíu. Hann ferðað- ist til Feneyja um daginn og stakk upp á því að giftast þar. Búist er við því að athöfnin verði í minni kantin- um (á þeirra mælikvarða). ■ Taktu smá nspu msm ■íjiiuEimn? 5ÍkkBf15 bilalakk á úðabrúsum Fáðu litinn þinn á úðabrúsa til að laga grjótbarning og smárispur. Sikkens gefur rétta litinn á bílinn þlnn. O'SLI ,jÓNSSON ehf Bíldshöfða 14 • s. 5876644 16 HÁSKÓLABÍÓ HAGATORGI, SIMI 530 1919 Þar sem allir salir eru stórir MimnjiN ijlíifPfli. ;- iiJiiTnlHim IUIIÍJ UUIIIU U U|JI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 [SPÖT kL6| Iblow kl. 10.301 ISTATE AND MAIN kl. 5.451 1$ ■ m i i|v|m y THE MEXICAN Sýnd kl. 8 og 10.45 FILMLIfMDUR LALLIJOHNS JANICE BEARD kl.6 kl. 8 og 10.30 [fréttir af fólki Sir Elton John er tveimur milljón- um punda ríkari eftir að hafa selt alla lúxusbílana sína. Hinn 54 ára gamli söngfugl græddi tvöfalt meira á bílunum sínum 20 en áætlað var, en uppboðið fór fram á Christies uppboðsskrifstof- unni. Að hans eigin sögn seldi hann bíl- ana þar sem hann notaði þá aldrei en eins og flestir vita hefur hann átt við kaupæði að stríða og eyðir mörgum milljónum dag hvern í föt og annan munað. „Þegar boðin fóru hækkandi með hverjum bílnum var ég bæði glaður og þakklátur í hjarta mínu,“ sagði söngvarinn eftir uppboðið. Leikaranum Russell Crowe er margt til lista lagt. Síðustu mán- uði hefur hann verið að hasla sér völl í fatahönnun, en ekki þessari hefð- bundnu tískuhönn- un því hann hefur hannað fótbolta- treyju. Hann, ásamt fríðu föruneyti skraddara, hannaði treyjur á ástralska fótboltaliðið Orara Valley Axemen. Crowe hefur verið aðdáandi liðsins síðan hann var lítill en treyjurnar sem hann hannaði voru í hinum hefðbundnu litum liðs- ins, grænar og gullnar. Formaður knattspyrnuklúbbsins, Kevin Elks, sagði hönnun Crowe vera í sama stíl og í kringum 1960. Elizabeth Hurley og Catherine McCormak munu leika saman í nýrri dramamynd er ber nafnið The Weight Of Water. Sagan fjallar um hvaða áhrif fjöld- morð hafa á líf fólks en sagan ger- ist árið 1873. Sean Penn leikur eigin- mann Hurley og ljóðskáld en Hurley leikur ljósmyndara sem tekur myndir af morðunum. Hún verður síðan heltekin af morð- unum og áttar sig skyndilega á því að vandamál hjónabands síns endur- speglast í morðunum. Katherine Big- elow verður leikstjóri myndarinnar og tökur á henni hefjast á næsta ári. USS OKLAHOMA Eitt stærsta viðfangsefni aðstandenda Pearl Harbor var að sýna herskipið USS Oklahoma velta á trúverðugan hátt. Hér eru sjóliðarnir að búa sig undir að leggja úr Perluhöfn. Dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið Pearl Harbor frumsýnd á morgun. Hún verður sýnd stanslaust í sólahring í þremur kvikmyndahúsum. kvikmyndir Á morgun verður kvik- myndin Pearl Harbor frumsýnd. Henni hefur veriö beðið með mikilli eftirvæntingu enda er þetta dýrasta mynd kvikmyndasögunnar. Þar að auki er auglýsingaherferðin í kring- um myndina ekki í hógværari kant- inum. Hún var frumsýnd í Banda- ríkjunum fyrir tveimur vikum og er enn á toppnum yfir mest sóttu mynd- irnar. Framleiðandi myndarinnar er risinn Jerry Bruckheimer. Hann hef- ur framleitt vinsældarmyndir í tæp tuttugu ár, fyrst með félaga sínum Don Simpson og einn síns liðs eftir að Simpson lést við tökur á The Rock. Undanfarin ár hefur Bruck- heimer farið hamförum með risa- myndum: Con Air, Armageddon, Enemy of the State, Gone In Sixty Seconds, Coyote Ugly og Remember the Titans. Gagnrýnendur hans kvíða því jafnan að fara á myndir sem hann framleiðir þar sem þær þykja ávísun á innihaldslausa þvælu. En áhorfendur virðast ekki á sama máli enda er skemmtanagildið jafn- an í hávegum haft. Pearl Harbor er fjórða myndin sem Michael Bay leikstýrir. Fyrri þrjár voru einnig framleiddar af Bruckheimer: Bad Boys, The Rock og Armageddon. Hann segir ástæð- una fyrir því að hann vildi leikstýra Pearl Harbor vera þá að hann vildi fræða fólk um hvað raunverulega gerðist. „Þegar ég heyrði sögur her- mannanna skyldi ég hvað fólk mein- ti með því að Bandaríkin hefðu tapað sakleysi sínu. Fólkið sem tók þátt voru alvöru hetjur. Við reynum að gefa rétta mynd af því sem gerðist. Við fylgjumst með lífi fjögurra per- sóna Rafe (Ben Affleck), Danny (Josh Hartnett), Evelyn (Kate Beck- insale) og Dorie (Cuba Gooding Jr.) í atburðarásinni. Þetta er ekki bara mynd um Pearl Harbor, þetta er mynd um sjálfboðaliðana sem lögðu hjarta sitt að veði fyrir föðurlandið," sagði Bay. Myndin er þrír tímar að lengd og gerist ekki einungis á vígvellinum. Ástarsamband flugmannsins Rafe og hjúkrunarkonunnar Evelyn fær einnig að njóta sín. Víst er að mynd- in á eftir að festa Kate Beckinsale í sessi sem stórstjörnu ásamt því að lyfta Ben Affleck enn hærra upp á himininn. Hlutverk hans í myndinni var ekki gefið. Affleck þurfti, ásamt Josh Hartnett, að eyða nokkrum dög- um í þjálfunarbúðum hersins fyrir myndina. Hann sagði það hafa verið kvöl og pínu. „Tími Ben er kominn," sagði Jerry Bruckheimer. „Fólk vill horfa á hann á hvíta tjaldinu. Fólk viil vera hann, þetta er það sem það að vera stjarna snýst um.“ Búið er að ákveða að klippa myndina til áður en hún verður sýnd í Japan og Þýskalandi og hafa marg- ir áhyggjur af því að Japanir komi illa út úr þessarri bandarísku mynd. Affleck er ekki sammála því. „Ég hefði ekki tekið hlutverkið að mér ef um bandarískan þjóðernis- rembing væri að ræða. Japanir eru heiðvirt fólk með sín sjónarhorn í myndinni. Þeim fannst Bandaríkin vera ógn og framkvæmdu eins og þeir héldu aö væri hið rétta. Það verður að virða alla aðila sem koma að myndinni," sagði Affleck. Myndin er sýnd í heilan sólahring í Bíóborg- inni, Nýja Bíó Keflavík og á Akur- eyri. Auk þess er hún sýnd í Bíóhöll- inni, Kringlubíó, Háskólabíó, á ísa- firði og á Egilsstöðum. ■ Nabbi, ég d eftir að fara sjö ferð ir í þvottavélina óður en mamma þín kemur heim. Ef þú værir ég rnyndir þú hætta við allt til að nú í kók handa lindýrinu sem kallast sonur þinn? Aftur ó móli. Ef ég væri þú myndi ég ekki heldur þvo allan þennan þvott. E © © § <£

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.