Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 7. júni 2001 FIIVIIVITUDAGUR SVONA ERUM VIÐ ÞESSIR VORU SVIPTIR ÖKURÉTTINDUM ÁRIÐ 2000 Umferðarpunktar eru viðurlög við umferð- arlagabrotum. Eftir ákveðinn fjölda punkta þá eru menn sviptir ökuréttindum um til- tekinn tima. Hér að neðan er fjöldi þeirra sem misstu ökurétt- indin árið 2000 vegna uppsafnaðra umferðarpunkta. 64 68 24 g i 17-18 19-20 21-22 23-24 Aðrir STUÐNINGSMENN KHATAMI Kosningabaráttan var með liflegasta móti í Teheran í gaer. Khatami hefur varað sig á því að styggja trúarlega harðlínumenn ekki um of með umbótastefnu sinni. Rússland og kjarnorkan: Vilja úrganginn reuters. Rússneska ríkisstjórnin hef- ur samþykkt frumvarp þess efnis að Rússar flytji inn, geymi og endur- vinni kjarnorkuúrgang frá öðrum löndum. Ákvörðun þessi hefur vakið hörð viðbrögð umhverfisverndunar- sinna sem segja að Rússland muni með þessu frumvarpi breytast í ruslahaug fyrir kjarnorkuúrgang. Talið er að frumvarpið, sem sam- þykkt var með 243 atkvæðum gegn 125 í rússneska þinginu, muni trygg- ja Rússum um 20 milljarða dollara á 10 ára tímabili og hafa stjórnvöld heitið því að sá peningur verði notað* ur til að hreinsa upp þann kjarnorku- úrgang sem fyrir er í landinu frá Sov- éttímabilinu. Andstæðingar frum- varpsins eru hins vegar á því að pen- ingurinn verði notaður í flest annað en að hreinsa upp landið og hafa hvatt þingið til að hugsa um komandi kynslóðir Rússa og endurskoða af- stöðu sína. Frumvarpið á enn eftir að hljóta samþykki efri deildar þings- ins, sem síðan yrði þá sett í lög af Vladimir Putin, forseta. ■ MÓTMÆLA KJARNORKUÚRGANGI Ungir meðlimir umvhverfisverndarsam- taka mótmæla fyrir framan Dúmuna í Rússlandi. Skoðanakannanir í Rússlandi hafa ítrekað sýnt fram á mikla andstöðu almennings við frumvarpinu. Afkomuviðvörun frá Samherja: Tapið í apríl 493 milljónir sjAvarútvegur Óendurskoðað uppgjör Samherja hf. fyrir móðurfélagið á íslandi fyrir fyrstu fjóra mánuði árs- ins sýnir 252 milljóna króna tap. Fyrstu þrjá mánuði ársins var 241 milljón krónu hagnaður af rekstri Samherja. Alls hefur taprekstur fé- lagsins í apríl því numið 493 milljón- um króna. Versnandi afkomu má rekja til lækkunar á gengi íslensku krónunn- ar og verkfalls sjómanna. Samherjamenn gera ráð fyrir að afkoma ársins verði lakari en gert var ráð fyrir á aðalfundi félagsins. ■ Björgunarþyrlan TF-SIF úr leik fram á mitt sumar: Viðgerðin kostar 30 til 50 milljónir króna Forsetakosningar í Iran: „Hófsemi, hóf- semi, hófsemi“ teheran. ap. Forsetakoningar verða í íran á föstudag og er búist auðveldum sigri Mohammad Khatami, núverandi forseta. Forseti írans segir „enga upp- gjöf“ fyrir íhaldssömum öflum í land- inu vera á dagskrá. Kynnti hann í gær hóflega umbótastefnu sína þar sem hann talaði um aukið persónufrelsi, sjálfstæðari dómsvöld og bætt um- hverfi fyrir erlenda fjárfestingu í landinu. Umbótatilburðir Khatami hafa jafnan fallið í grýttan jarðveg hjá trúarlegum harðlínumönnum og hefur hann hingað til siglt milli skers og báru í samskiptum sínum við þau öfl. Forsetinn er, þrátt fyrir allt, undir trú- arleiðtoga írans, Ayatollah Ali Khameini og klerka hans settur og er umbótastefna hans því umfram allt hófleg og aðeins innan þeirra marka sem trúarleiðtoginn getur sætt sig við. „Ráð mitt til allra írana er þolin- mæði og hófsemi til að ná háfleygum markmiðum. Við verðum að koma á lýðræði í fullri merkingu þess orðs. En við þurfum hófsemi, hófsemi, hóf- semi,“ segir Khatami. Sumir um- bótasinnnaðir kjósendur í íran telja forsetann ganga og skammt og gagn- rýna hann fyrir að berjast ekki harðar fyrir umbótum. Flestir kjósendur styðja hann þó. „Khatami er líf, Khatami er ást,“ hrópaði stuðnings- maður á götum Teheran í gær þar sem hann útdeildi veggspjöldum með for- setanum. ■ lanphelci?c/e;lan Þyrla Landhelgis- gæslunnar, TF-SIF, sem laskaðist á flugi yfir Snæfellsnesi fyrir tæpum tveimur vikum verður líklegast ekki tekin í notkun að nýju fyrr en eftir miðjan júlí og jafnvel enn síð- ar. Opinberri rannsókn á óhappinu er ólokið en Jón Pálsson, tæknistjóri hjá Landhelgisgæslunni, segir að gríðarlega öflugur vindgöndull sem myndaðist yfir brún fjallgarðsins á Snæfellsnesi hafi tekið þyrluna slík- um heljartökum að hún snerist beint upp í himininn og síðan til jarðar áður en áhöfnin náði stjórn á henni að nýju. Við óhappið hafi kom- ið sláttur á vélina sem hafi verið nægjanlegur til að þyrlublöðin rák- ust í stélið. Jón segir þessa leið oft hafa verið flogna áður en að aðstæð- ur hafi verið mjög óvenjulegar þeg- ar sterkur kaldur norðanvindur mætti sterkum og hlýjum loft- straumi úr suðvestri sem hafa myndað eins konar stormsveip yfir fjallsbrúninni. „Líkurnar á að lenda í þessu eru sjálfsagt einn á móti milljón,“ segir Jón. Oljóst er hvernig staðið verður að viðgerð vélarinnar og hvenær nauðsynlegir varahlutir berast til landsins. Skrokkur vélarinnar er óskemmdur en ýmsan drifbúnað þarf að endurnýja og lagfæra þarf stélið. Þá skemmdust allir fjórir þyrluspaðarnir en ekki hefur verið ákveðið hvort gert verður við þá eða nýir keyptir. Einn slíkur spaði kost- ar 5,5 milljónir króna að sögn Jóns, sem telur að viðgerðarkostnaðurinn muni liggja á bilinu 30 til 50 milljón- ir króna. Að auki aukast rekstrarút- UR LEIK TF-SIF stendur nú ( biðstöðu inn á gólfi hjá Landhelgisgæslunnar. gjöld Landhelgisgæslunnar þar sem TF-SIF er mun ódýrari í rekstri en stór þyrlan TF-LÍF. Jón segir að til greina hafi komið að leigja aðra þyrlu í stað TF-SIF en að ákveðið hafi verið að bíða fremur af sér við- gerðarhléð. Jón segir rannsókn á þyrlunni hafa leitt í ljós að ekkert hafi verið að búnaði hennar þegar óhappið átti sér stað. Hann segir ennfremur að þyrlan hafi verið í það mikilli hæð að óhugsandi væri að hún hafi rek- ist í fjallsbrúnina. gar@frettabladid. Jóhannes í Bónus afneitar samstarfi við hótelkóng: Held mig við kjötfarsið hótelrekstur Nei, þakka þér fyrir. Það ætla ég ekki að gera,“ segir Jóhannes Jónsson í Bónus aðspurður hvort hann ætli í samstarf við norska hótel- kónginn Petter Stordalen um hótel- rekstur á íslandi. Stordalen, sem er aðaleigandi norrænu Choice hótel- keðjunnar, sagðist í viðtali við Frétta- blaðið á dögunum ætla að hefja hótel- rekstur hérlendis á íslandi undir merkjum keðjunnar. Hann sagðist vilja samstarf við íslenska aðila vegna verkefnisins og nefndi sér- staklega að hann hefði rætt við Jó- hannes um samvinnu. „Hann talaði reyndar við mig. Jónína, vinkona mín, er kunningi hans og við fórum einfaldlega saman út að borða. En það er af og frá að við ætlum að reka hótel. Við höldum okk- ur bara við kjötfarsið," segir Jóhann- es. SAMA OG ÞEGIÐ Fór bara út að borða með Stordalen, segir Jóhannes I Bónus. Að sögn Jóhannesar hefur Storda- len hins vegar átt óformlegar við- ræður við ýmsa íslendinga. „En það er enn sem komið er aðeins spekúla- sjón og almennt tal,“ segir hann. ■ Noregur: Bifvélavirki kemst í hann krappan AB Bifvélavirkinn, Kwi Hong, komst heldur betur í hann krappan nýlega þegar stór trukkur sem hann lá und- ir, fór skyndilega af stað og keyrði með hann alls 18 kílómetra leið á erf- iðum vegum. Atvikið átti sér stað í Notodden, um 100 km suðvestur af Osló. Hafði bílstjórinn greinilega ekki tekið eftir Hong, sem var djúpt sokkinn í iðju sína þegar- trukkurinn fór af stað. „Þetta var hræðileg lífs- reynsla,“ sagði Hong skömmu eftir atvikið. Honum hafði tekist að hanga uppi fyrir ofan hjól bílsins með því að halda sér fast með höndum og fótum í slöngu sem þar var. Þegar trukkur- inn loksins stöðvaðist eftir 18 kíló- metra svaðilför, sleppti Hong takinu, en þá vildi ekki betur til en trukkur- inn rann aðeins til baka og særði hann lítillega á mjöðm. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.