Fréttablaðið - 12.06.2001, Side 1
NÝSKÖPUNARS1ÓÐUR
FATAHÖNNUN
Ætlum okkur
mikið
bls 18
FJÖLBRAUT
Fœrri nýnemar
í Breiðholti
bls 4
Hagnaðurinn
minnkar um
milljarð
bls 2
una.net
FRETTABLAÐIÐ
34. tölublað - 1. árgangur
ÞRIÐIUDAGUR
íbúðalán í maí
FasTEiCNAViÐSKiPT! Upplýsingar um
lánveitingar
íbúðalánasjóðs í
maí 2001 verða
birtar í dag. í
apríl drógust lán-
veitingar saman
um 29% og verð-
ur forvitnilegt að
sjá hvort sú þróun heldur áfram.
Spennandi leikir í
Símadeild kvenna
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Þriðjudagurinn 12. júní 2001
Alþingismenn í sumarfríi
fá greidda hótelgistingu
Alþingismenn fá greidda vikugistingu á hóteli í fríum innanlands úr svokölluðum Arnessjóði og hafa afnot
af tveimur sumarhúsum sjóðsins, sem er svo leynilegur að einn varaforseta þingsins segist aldrei hafa heyrt hans
getið. Alþingi íhugaði að leigja sumarhús Vigdísar Finnbogadóttur á Þingvöllum en þótti húsið óhentugt.
fótbolti Lið Grindavíkur mætir
ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld
klukkan 20, en með sigri kemst lið-
ið í efsta sæti deildarinnar á ný. Á
sama tíma tekur Stjarnan á móti
Vai en FH fær KR í heimsókn.
VEÐRIÐ í DAC |
reykiavík Norðaustlæg átt,
5-8 m/S og léttskýjað.
Hiti 8 til 11 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
fsafjörður O 5-8 léttskýjað Q9
Akureyri O 5-8 úrkomulítiðQ 6
Egilsstaðir O 5-8 skurir Q7
Vestmannaeyjar O 5-8 léttskýjað Q11
alþingi Alþingismenn fá greiðslur úr
sérstökum sjóði til að greiða fyrir
gistingu í fríum innanlands í sára-
bætur fyrir að þingið leggur þeim
ekki til sumarbústað. Sami sjóður á
reyndar tvö sumarhús sem þingmenn
hafa aðgang að.
Alþingi hætti í fyrra við að taka á
leigu sumarhús frú Vigdísar Finn-
bogadóttur á Þingvöllum en að sögn
Friðriks Ólafssonar, skrifstofustjóra
Alþingis kom í ljós að hús frú Vigdís-
ar var óhentugt. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins þótti sýnt að legg-
ja þyrfti í talsverðar lagfæringar á
húsinu.
„Það þótti við hæfi að Alþingi ætti
afdrep fyrir þingmenn og yfirstjórn
þingsins á þessum helga stað þar sem
þingið stóð fram eftir öldum. En
þetta var hugmynd sem fæddist en
náði ekki fram að
ganga,“ segir Friðrik.
Friðrik segir að
ætlunin hafi verið að
nýta bústað Vigdísar
sem orlofshús en ekki
til móttöku gesta þó
gestir þingsins gætu
fengið af því afnot.
Áform um sumar-
hús fyrir Alþingi hafa
ekki verið lögð á hill-
una. „Hugmyndin er alltaf við lýði en
það er ekkert að gerast eins og sakir
standa. Menn litu að sjálfsögðu mest
til Þingvalla en það er ekki á allt kos-
ið. Þar er allt orðið friðað og ekki er
hægt að byggja nýtt og eigendur
eldri bústaða eru fastheldnir á þá,“
segir Friðrik.
Þrátt fyrir að Alþingi
sjáift eigi ekki sumar-
hús hafa þingmenn að-
gang að húsum í eigu
svokallaðs Árnessjóðs,
en þau hús eru á Laugar-
vatni og á Akureyri.
Þess utan geta þing-
menn að sögn Friðriks
fengið greidda fjárhæð
úr Árnessjóðnum sem
svarar til sjö eða átta gistanátta á
Edduhótelum eða í bændagistingu.
„Alþingismenn eru ekki í neinum or-
lofssjóðum og þetta kemur því í stað-
inn fyrir þá sumarhúsaaðstöðu sem
embættismenn, sem kjaradómur úr-
skurðar laun hjá, hafa,“ segir Friðrik.
Árni Steinar Jóhannsson, þing-
maður VG og einn varaforseta Al-
þingis, kemur af fjöllum þegar hann
er spurður um Árnessjóðinn. „Mér
hefur aldrei verið kynnt þetta. En
maður þarf reyndar aldrei á neinu
sumarhúsi að halda því það er aldrei
frí,“ segir Árni Steinar.
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, segist hins vegar ít-
rekað hafa fengið kynningarbréf frá
Árnessjóðnum. „En ég hef aldrei nýtt
mér þjónustu hans. Eg var reyndar
að hugsa um að taka hús í sumar en
held að það sé einfaldara að fara með
tjald,“ segir Pétur.
gar@frettabiadid.is
SUMARBÚSTAÐUR VIGDÍSAR
Sumarbústaðurinn hentaði ekki
Alþingi og þeir hafa haldið sig
við Édduhótelin.
Tilboð frá
þroskaþjálfum
kjaradeila Þroskaþjálfar ætla að
leggja fram tilboð í dag í von um
að það dugi til að koma á samningi
við borgina.
Sumartónleikar
í Laugarnesi
tónlist Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar efnir til sumartónleika í
kvöld. Þetta er þrettánda árið í röð
sem tónleikarnir eru haldnir.
Eftirspurn
efitir fólki
atvinna Vinnumálastofnun ætlar að
kynna í dag stöðu og horfur í at-
vinnumálum.
|KVÖLPIÐ í KVÖLP|
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 (þróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 21
Ræstingar
LIVERPOOL VANN!
Mánuður er síðan Liverpool hampaði bikar sem er afkomandi þessa bikars sem er táknmynd ensku bikarkeppninnar.
Hann þjónaði hlutverki draums knattspyrnumanna í 80 ár.
Sjávarútvegsráðherra vinnur að tillögum:
Steinbítsveiðum
mun verða stýrt
iávarútvegur „Við höfum hugsað okk- eftirlit og stýring veiðanna er beti
siávarútvegur „Við höfum hugsað
ur að þessar veiðar verði ekki algjör-
lega stjórnlausar. Það eru notuð önn-
ur stjórntæki viö veiðarnar en bara
kvótinn. Það eru t.d. svæðislokanir,
hrygningarstopp, ákveðin möskva-
stærð neta og fjöldi af trossum. Það
eru ýmsir slíkir möguleikar varðandi
steinbítsveiðarnar líka og það er ver-
ið að vinna í því,“ segir Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra sem
ákvað að steinbítur yrði utan kvóta
næsta kvótaár.
Veiðarnar eru tiltölulega svæðis-
og tímabundnar, og aðallega stundað-
ar með ákveðnum veiðafærum, svo
og stýring veioánna er betur
möguleg. Aðspurður um hvort frek-
ari breytinga væri von á kvótakerf-
inu sagði Árni að það hefði komið upp
í hugann að taka flatfisktegundir eins
og sandkola út úr kvótakerfinu þar
sem úthlutað aflamark hefur ekki
veiðst ár eftir ár. „Menn þurfa ekki
að hafa áhyggjur af því á meðan ég er
hérna að stærri bolfisktegundirnar
verði teknar út úr kvóta. Það er hins
vegar álitamál með smærri flatfisk-
tegundir ef kvótinn veiðist ekki, og
verið er að nota hann frekar í teg-
undatilfærslur, hvort slíkar tegundir
eigi að vera inn í kvóta.“ ■
\FÓLK f
Götustrákar dansa
SÍÐA 16
o
T ÍÞRÓTTIR
Kvenboxari
vill berja
karlmenn
Frægur bikar í heimsókn:
Soflð hjá bikar
sigurlaun Annar tveggja stærstu
drauma enskra knattspyrnumanna,
bikar ensku bikarkeppninnar, er í
heimsókn á íslandi. Bikarinn sem er
frá árinu 1911, er eign enska knatt-
spyrnusambandsins, en fyrirtækið
ísvá stendur að komu hans hingað til
lands. ísvá er samstarfsaðili trygg-
ingafélagsins Axa- Sunlife sem er að-
alstyrktaraðili bikarkeppninnar.
Steinar Birgisson hjá fsvá segir að
bikarinn fari landa á milli til styrktar
góðgerðarmálum og honum fylgi
gæslumaður sem „sofi hjá honum"
hvað þá meira.
Wolverhamton Wanderers unnu
bikarinn til eignar á sínum tíma og
gáfu knattspyrnusambandinu bikar-
inn aftur með því skilyrði að ekkert
félag ynni hann til eignar. Bikarinn
er táknmynd keppninnar, en hann var
síðast afhentur 1991 þegar Liverpool
vann bikarinn, eins og reyndar kepp-
nina í ár. ■
1 PETTA HELST |
Engin kreppumerki, segir Gissur
Pétursson hjá Vinnumálastofnun.
bls. 2
—♦....-
Ekki er allt sem sýnist, segir
Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, um þær
kjaradeilur sem eru óleystar. bls. 6
--->—
Ibúðalánasjóði ekki breytt á þessu
kjörtímabili. bls. 8
.......
Hvalveiðar eru glapræði, segir
Magnús Skarphéðinsson.
bls. 10
Fólk kemur með seli í Húsdýra-
garðinn og fyrist við þegar því er
sagt að skila dýrunum.
bls. 12