Fréttablaðið - 12.06.2001, Blaðsíða 18
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS
Sveinn Magnússon
framkvæmdastjóri Geðhjálpar
Sem þátttakandi í lífinu og hluti af
mannskepnunni hlýtur maður að leitast
við að reyna að betrumbæta umhverfi
sitt. Mér finnst vera miklir gallar á og
undanskil mig ekki sem hluta af vanda-
málinu. ■
Listasafn Sigurjóns
Olafssonar:
Sumartón-
leikar hefjast
í kvöld
tqnleikar Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar efnir þrettánda árið í röð til
sumartónleika á þriðjudagskvöldum
kl. 20.30. Fyrstu tónleikarnir verða í
kvöld en þá flytja Sif 'Itilinius, fiðlu-
leikari og Steinunn Birna Ragnars-
dóttir, píanóleikari,
vel þekkt og vinsæl
verk eftir eftirtalin
tónskáld: C.W. Gluck,
A. Corelli, Henri Wi-
eniawski, Eugéne
Ysaye, Chopin,
Claude Debus-
sy,Fritz Kreisler,
Ernest Chausson og
Maurice Ravel.
Sif Thlinius lauk
einleikaraprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík og lauk Bachelor of
Music gráðu frá Oberlin College í
Ohio og Master of Music gráðu frá
Stony Brook University í New York.
Hún hefur komið fram sem einleik-
ari og tekið þátt í flutningi kammer-
tónlistar í Bandaríkjunum, Evrópu
og Japan.
Steinunn Birna stundaði nám við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
lauk einleikaraprófi þaðan árið 1981.
Hún lauk meistaragráðu frá New
England Conservatory of Music í
Boston. ■
Stretchbuxur
St. 38-50 - Frábært úrval
Verslunarmiðstöðinni Eiðistorgi
Sími: 552 3970
HAFNAR-
FJÖRÐUR
Til sölu verslun með
eigin innflutningi á
kvennfatnaði,
skartgripir og fl.
Mjög góðar vörur.
Staðsett í
leiguhúsnæði.
Upplýsingar
í síma 847-1167
18
FRÉTTABLAÐIÐ
12. júní 2001 ÞRIÐJUDAGUR
Gafé Ozio:
Gamalt gæðapopp
tónlist „Þetta eru mikið lög eftir ein-
herja poppsögunnar sem við ætlum
að flytja,“ segir Stefán Már Gunn-
laugsson söngvari, en hann verður
með tónleika á Café Ozio í kvöld
ásamt þeim Ragnari Emilssyni á
gítar og Jóni Ingólfssyni á bassa.
„Lög eftir karla eins og Bowie, Tom
Waits og Paul Simon.
Við ætlum ekkert að herma eftir
ÞRÍR í ÞREMUR
Jón Ingólfsson, Stefán Már Cunnlaugsson
og Ragnar Örn Emilsson koma fram á Café
Ozio í kvöld og taka m.a. lög eftir Bowie,
Tom Waits og Paul Simon.
upprunalegum útgáfum laganna
enda erum við bara þrír með
kontrabassa og kassagítar. Við tök-
um lög þar sem heilu sinfóníuhljóm-
sveitirnar eða rokkhljómsveitir
voru á bak við þannig að við verðum
að laga þau að okkur. Við höfum
heldur ekkert alltaf hlustað á gömlu
útgáfuna og erum ekkert að reyna
að láta lögin hljóma alveg eins held-
ur slökum bara á og tökum þetta
svolítið með okkar nefi.
Þeir Ragnar og Stefán Már hafa
komið nokkrum sinnum fram sem
dúett, en þetta er í fyrsta sinn sem
þeir þremenningarnir spila saman
opinberlega. ■
ÞRIÐIUDAGURINN
12. JÚNÍ
HJÓLREIÐAR
ísienski fjallahjólaklúbburínn býður til
kvöldhjólaferðar og verður farið um Sel-
tjarnarnesið í kvöld um 25 km leið. Að
venju er brottför frá vestanverðri skipti-
stöð SVR í Mjódd kl. 20. Ekkert þátttöku-
gjald er en ætlast er til að þátttakendur
noti hjálm og séu á löglega búnum hjól-
TÓNLIST
Það er hljómsveitin Maus sem leika á
Stefnumótakvöldi Undirtóna á Cauki
á Stöng í kvöld.
Hljómsveitin 3 heldur tónleika á Café
Ozio í kvöld og hefjast þeir kl. 21.30.
Leikin verða lög eftir Tom Waits, David
Bowie, James Taylor o.fl. Miðaverð 600
kr.
SÝNINGAR_____________________________
Önnur af sumarsýningum Listasafns
Reykjavíkur - Kjarvalsstaða ber nafnið
Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Ein-
ar Garibaldi Eiríksson myndlistarmaður
og prófessor við Listaháskóla íslands. Á
sýningunni getur að líta mismunandi
myndir Heklu sem sýndar verða hlið við
hlið. Sýningin stendur til 2. september.
Hin sýningin sem verður sett upp í mið-
rými Kjarvalsstaða og ber hún yfirskrift-
ina 1461 dagur. Þar sýnir Gretar Reynis-
son verkefni sem hann hefur unnið að
frá 1. janúar 1997 og sér ekki fyrir end-
ann á enn. Þetta er vaxtarverkefni af
þeirri tegund sem á ensku væri kallað
„work in progress. Sýningin stendur til
19. ágúst.
í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg 6 stendur
yfir sýning á útsaumsverkum Kristínar
Schmidhauser. Sýningin er opin dag-
lega kl. 14-18 og lýkur 24. júnf.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur opn-
að sýninguna Henri Cartier-Bresson í
Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Sýnd eru verk þessa franska Ijósmynd-
ara sem nú er á tíræðisaldri og hefur
oftast verið kenndur við stílinn „hið af-
gerandi augnablik". Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-17 og um helgar kl.
13-17 og stendur til 29. júlí.
Sænski Ijósmyndarínn Lars Erik Björk
sýnir Ijósmyndir frá Færeyjum í anddyri
sænska sendiráðsins í Lágmúla 7 sem
hann nefnir Leiftur frá Færeyjum. Sýn-
ingin verður opin virka daga kl. 9-16 til
22. júní.
Freysteinn G. Jónsson sýnir Ijósmyndir í
versluninni Míru, Bæj^rlind 6. Sýningin
nefnist Mannlíf á Indlandi og sam-
anstendur af Ijósmyndum frá Indlandi,
bæði svarthvítum og í lit. Sýningin er
opin á opnunartfma Míru og stendur til
20. júní.
GRÉTAR REYNISSON MYNDLISTARMAÐUR
Fjögur ár með einum hlaupársdegi eru nákvæmlega 1461 dagur.
Grétar Reynisson sýnir á Kjarvalsstöðum:
Dregst inn í verkið
iviyndlist „Maður veröur mjög meö-
vitaður um tímann bara með því að
Ieggja alltaf nýtt og nýtt verk frá
sér. Svo fer þetta að hrúgast upp og
þá sér maður áþreifanlega hvernig
tíminn líður,“ segir Grétar Reynis-
son myndlistarmaður sem nú er
með sérstæða sýningu á Kjarvals-
stöðum.
1. janúar árið 1997 byrjaði Grét-
ar að teikna ýmis konar munstur
með blýi á litla krossviðarplatta,
einn platta á dag allt árið. Árið eftir
gerði hann einn piatta á viku, svolít-
ið stærri en dagsplattarnir. Árið
1999 urðu plattarnir tólf en á síð-
asta ári gerði Grétar einn stóran
platta.
„Það eru ákveðin skil í þessu
verkefni núna, en ég verð með þetta
í huga áfram og held bara áfram að
vinna,“ segir Grétar. „Myndlistar-
maður stendur frammi fyrir því að
hefja verk á hverjum degi. Þetta er
fyrst og fremst spurning um að
vera að og þá skilar það árangri."
Grétar hefur í lok hvers árs
haldið sýningu á afrakstrinum á
ólíkum stöðum og hverju platta-
verki fylgdi annað verk sem unnið
var meðfram. 1998 sýndi hann
dagsplattana frá árinu áður í Ný-
listasafninu ásamt 365 sjálfsmynd-
um sem hann gerði, einni á dag með
ýmsum aðferðum. 1999 voru
vikuplattarnir sýndir í Gallerí i8
ásamt 365 litlum brauðum sem
hann bakaði, eitt á degi hverjum allt
árið 1998. Árið 2000 sýndi hann svo
mánaðarplattana í Gryfju Lista-
safns ASI, og þá fylgdu svonefndar
kaffidagbækur, ein bók fyrir hvern
mánuð og á hverri blaðsíðu er far
eftir kaffibolla.
„Nýjasta verkið eru 52 hand-
klæði sem ég notaði sjálfur, eitt á
hverri viku og svo rúllaði ég þeim
upp þannig að í þeim er eins konar
afþrykk af mér líkt og kaffið sem
ég drakk, brauðin sem ég hnoðaði
sjálfur og sjálfsmyndirnar. Ég
dregst þannig sjálfur inn í verkið
eins og hluti af öllum myndlistar-
mönnum er í verkunum sem þeir
vinna."
Sýningunni á Kjarvalsstöðum
fylgir skrá með myndum af öllum
verkunum og texta Ólafs Gíslason-
ar sem hefur skrifað um allar sýn-
ingarnar. „Hann skrifar núna fjórða
og síðasta textann í þessa bók. Eg er
mjög kátur með þessa skrá þar sem
hann er á heimspekilegum nótum
að útlista þetta verk mitt. Ég hef
þannig fengið jafnóðum vissa svör-
un frá honum,“ segir Grétar. ■
MYNDLIST
Nú stendur yfir i Kaffistofu Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar,
sýning á grafíkverkum Magdalenu Mar-
grétar Kjartansdóttur. Sýningin sam-
anstendur af skissum og skyssum sem
rispaðar eru á kopar-, plast- eða tréplötur
með beittum verkfærum. Sýningin er opin
alla daga nema þriðjudaga frá klukkan 11
til 17 og hún stendur til 2. júlí.
Margrét Magnúsdóttir sýnir í listhúsi
Ófeigs Sýningin samanstendur af málverk-
um og þrívíðum hlutum. Sýningin stendur
til 23. júní og er opin á verslunartíma.
Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir í
Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru sýnd
öndvergisverk úr eigu Listasafsnins. Litið
er til fyrri hlutar siðustu aldar og sjónum
beint annars vegar að yngri verkum frum-
herjanna.
FUNDIR
Heimdallur heldur opinn fund um virkjanir
á íslandi kl. 17 1 dag í Valhöll við Háaleit-
isbraut. Þorsteinn Siglaugsson, rekstrar-
hagfræðingur ræðir tap á virkjunum og
Stefán Pétursson, fjármálastjóri Landsvirkj-
unar, svarar gagnrýninni. Þorsteinn leggur
fram nýtt mat byggt á nýjum upplýsing-
um. Eftir framsögur mun Jóhannes Geir
Sigurgeirsson sitja fyrir svörum ásamt
framsögumönnum. Allir velkomnir
íslenskir fatahönnuðir gera samning í Bandaríkjunum:
Ætlum okkur
gríðarlega mikla hluti
hönnun Fyrirtækið ELM, sem sam-
anstendur af Ernu Steinu Guðmunds-
dóttur, textílhönnuði, Lísbet Sveins-
dóttur, myndlistarmanni og Matthildi
Halldórsdóttur, framleiðslustjóra,
hefur nýlega gengið frá sölu á fatalínu
sinni fyrir haust-vetur 2001-2002 til 14
verslana í Bandaríkjunum í kjölfar
sölusýningarinnar Workshop N.Y. sem
haldin var í New York í febrúar sl.
Gengið hefur verið frá sölu á um 2000
flíkum. „Þessi samningur sýnir okkur
það að við eigum heima á tískuvikum
sem þessari. Frá því fyrirtækið var
stofnað fyrir tveimur árum hefur ver-
ið stefnt að slíkum samningi á erlend-
um markaði og var þetta fyrsta til-
raun til að sýna og selja vöru okkar á
þessum faglegu nótum," sagði Lovísa
Óladóttir hjá ELM.
ELM Design var eina íslenska fata-
hönnunarlínan sem tók þátt í þessari
sýningu en markmiö hennar er að
kynna nýja fatahönnuði, aðallega frá
Evrópu. „Við ætlum okkur gríðarlega
mikla hluti og munum taka þátt í
annarri sýningu í september og á
næsta ári er stefnt að því að fara beg-
gja vegna Atlantshafsins." ELM
Design sérhæfir sig í prjónavöru úr
alpacaul og silkibómul og fylgihlutum
sem ekki eru háð ströngustu tísku-
straumum. Framieióslan fer öll fram í
Perú og aðspurð hverju það sætti
sagði Lovísa hönnuðina þrjá vera nán-
ar vinkonur og ein þeirra byggi og
ætti eiginmann frá Perú. Hún sagði að
í einni Islandsheimsókninni hefði hug-
myndin að samstarfinu kviknað og
það síðan undið upp á sig.
„Við höfum mikla framtíðarsýn og
í henni er hugmyndir um að vinna
með íslenskum hönnuðum. Við ætlum
ekki að fara út í neinar tilraunastarf-
sem heldur einblína á það sem er að
ELM REKUR VERSLUN Á LAUGAVEGI
Sérstaða framleiðslunnar liggur í því að
hver fllk er prjónuð á handknúnni vél eftir
máli og allur frágangur er unnin í höndun-
um og flokkast því á alþjóðamarkaði sem
handunnin vara.
gerast hjá okkur núna. Við lítum
björtum augum til framtíöarinnar,"
sagði Lovísa að lokum.
Þess má geta að fyrirtækið rekur
verslunina ELM á Laugavegi 1 ■