Fréttablaðið - 12.06.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
12. júní 200! PRIDJUDAGUK
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI NEMENDA I VINNUSKÓLA
REYKJAVÍKUR 1998-2000
Starfið í Vinnuskóla Reykjavíkur fór mjög
vel af stað sl. fimmtudag að sögn Arfinns
Jónssonar, skólastjóra. Fjöldi nemenda í ár
virðist ætla að verða svipaður í ár og á síð-
asta ári, eða um 2000 unglingar. Af ein-
hverjum ástæðum hefur þó fækkað nokk-
uð í skólanum síðan 1998.
LISTASOFNIN LOKKA
Það eru ekki bara listaverk sem draga ítali
á listasöfn ef marka má niðurstöður könn-
unar Rómarháskóla.
Italía:
Listasöfn
draumastaður
elskenda
kynlíf Fimmti hverji ítali segir lista-
söfn draumastað ástarlífsins. Þetta
kemur fram í nýrri rannsókn sál-
fræðistofnunar Rómarháskóla sem
sænska dagblaðið Aftonbladet segir
frá. Ekki er eingöngu um draumóra
að ræða heldur sagði 20% þátttak-
anda í rannsókninni að þeir hefðu
stundað kynlíf á listasöfnum. Fyrir-
bærið gegnur undir nafninu Rúbens-
syndrómið meðal sérfræðinga.
Listasöfnin eru ekki einu spenn-
andi „opinberu" staðirnir til ástar-
leikja í augum ítala. Krár, dansstað-
ir, tónleikar eru meðal staða sem
falla ítölum vel í geð. Vinsælustu
staðirnir eru þó annars vegar lestar-
vagnar, en 22% sögðust hafa stundað
kynlíf þar. Baðstrendur slá þó öllu
öðru við, 43% aðspurðra segjast hafa
notið ásta þar. ■
—4-----
Vísitöluspá Kaupþings:
Verðbólguhrað-
inn nú 12,7%
verðbólca Kaupþing spáir 1% hækk-
un á vísitölu neysluverðs á milli mán-
aða en sú hækkun svarar til 12,7%
verðbólgu á ársgrundvelli. Gangi
spáin eftir mun
verðlag hafa hækk-
að um 6% síðustu 12
mánuði.
Meðal helstu for-
sendna spárinnar
má nefna 5 krónu
hækkun á bensín-
verði fyrr í mánuð-
inum vegna breyt-
inga á heimsmark-
aðsverði og á verði
dollars gagnvart ís-
lensku krónunni. Þá
er tiltekin hækkun á
verði tóbaks og
áfengis vegna breytinga á verði
heildsala sem stafa sömuleiðis af fal-
landi gengi krónunnar.
Kaupþing gerir ráð fyrir nokkurri
hækkun á matvöru fatnaði og annar-
ri innfluttri vöru og tiltekur einnig
sérstaklega hækkanir sem hafa orðið
á pakkaferðum til útlanda. Að end-
ingu minnir Kaupþing á að fjölmarg-
ir verslunar- og þjónustuaðilar hafi
tilkynnt um verðhækkanir á síðustu
vikum en segist hins vegar ekki eiga
von mikilli breytingu á húsnæðislið
vísitölunnar. ■
SICURÐUR
EINARSSON
Forstjóri Kaup-
þings og liðs-
menn hans segja
verðbólguhrað-
ann nú vera
12,7%.
ítölsk stjórnmál:
Silvio Berlusconi sór eið sem
nýr forsætisráðherra Italíu
róm. ap. Silvio Berlusconi sór í gær
eið sem forsætisráðherra á Ítalíu.
Einn meðlima nýskipaðrar ríkis-
stjórnar hans er Umberto Bossi, hinn
hviklyndi stjórnmálamaður sem varð
til þess að steypa fyrrverandi ríkis-
stjórn hins nýkrýnda forsætisráð-
herra af stóli fyrir sjö árum. Sór
hann eið sem næsti ráðherra fyrir
umbótamál í landinu. Á undan honum
hafði Gianfranco Fini, aðstoðarfor-
sætisráðherra, svarið sinn eið.
Berlusconi komst til valda þann
13. maí þegar hægrisamsteypuflokk-
ur hans hlaut öruggan meirihluta í
þingkosningunum. Berlusconi, sem
er 64 ára, er einn af ríkustu mönnum
heims og stjórnar hann þremur
einkareknum sjónvarpsstöðvum auk
þess sem hann er hluthafi í hinum
ýmsu útgáfu-, auglýsinga-, trygg-
inga- og fasteignafyrirtækjum.
Andstæðingar Berlusconi hafa
gagnrýnt hann fyrir að vera á móti
innflytjendum í landinu og hefur það
vakið töluverða athygli í Evrópu.
Evrópusambandið virðist þó ekki
ætla að blanda sér í málið líkt og það
gerði á sínum tíma í máli austurríska
hægri-öfgamannsinns Jörg Haider. ■
SVER EIÐINN
Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítalíu (t.v.)
ásamt Silvio Berlusconi við athöfnina í
Róm í gær. Berlusconi hefur lofað nýjung-
um, frelsi og velferð fyrir alla ítali.
Ilögreglufréttir
Sjómannahelgin fór fram í friði og
spekt á Akranesi og að sögn lög-
reglunnar þar hélt fólk sér í þægi-
legum skefjum og mætti til sjó-
mannamessu á sunnudagsmorgnin-
um.
---4----
Mikil ölvun átti sér stað á Pat-
reksfirði um helgina en þrátt
fyrir það var hún ákafleg friðsöm að
sögn lögreglu.
Um 20 manns voru teknir fyrir u
hraðan akstur um helgina að
sögn lögreglunnar í Borgarnesi og
mældust þeir á hraðanum 110-120
km hraða. Þrír voru teknir vegna
gruns um ölvun við akstur.
f
Mun færri
nýnemar í
Breiðholti
Aukning á heilbrigðisbrautir
Fjölbrautarskólans við Armúla
menntamál Fækkun er frá í fyrra í
innritun nýnema í framhaldsskóla á
höfuðborgarsvæðinu. í fyrra bárust
um 4800 umsóknir en þær eru um
4000 fyrir næsta skólaár. Þar af hef-
ur Fjölbrautarskólinn í Breiðholti
fengið flestar eða tæplega 600 um-
.,—4— sóknir, sem er um
100 umsóknum
færra en í fyrra.
Þeir gera ráð fyrir
að taka inn um 400
nýnema. Stefán
Andrésson áfanga-
stjóri FB segist
ekki geta fundið
aðra skýringu á
fækkuninni en þá
Sölvi Sveins-
son skóla-
meistari við
Fjölbrautar-
skólann í Ár-
múla sagði
„yfirfljótandi
nóg af fólki"
...♦....
að árgangurinn núna sé fámennari.
í þessum tölum eru ekki umsóknir
um nám í öldungadeild, en Stefán
sagðist eiga von á því að fá tæplega
500 umsóknir í haust. FB býður upp
á 17 brautir fyrir nýnema. Þó
sjúkraliðabraut skólans sé að sögn
Stefáns ekki stór, þá hafa þeir í ár
útskrifað 34 nemendur. „Við byrjuð-
um með sjúkraliðabraut 1975, en
þegar sjúkraliðaskólinn var lagður
niður 1990 var tekin stjórnvaldsá-
kvörðun um það að sjúkraliðaskól-
inn skyldi fara í Ármúlaskóla þó við
værum þá þegar með fullkomna
braut“, sagði Stefán og vildi með því
benda á að sjúkraliðabrautin væri
öflug í skólanum, sem kæmi mörg-
um á óvart.
Sölvi Sveinsson skólameistari
við Fjölbrautarskólann í Ármúla
sagði „yfirfljótandi nóg af fólki“,
þeir myndu taka inn á bilinu 210-300
nýnema, af um 400 umsóknum. „Það
sem ánægjulegast er, er að aðsókn á
heilbrigðisbrautirnar hefur stór-
aukist", sagði Sölvi ennfremur. Nú
hefur sú breyting orðið á, að skólar
eru ekki lengur bundnir af því að
taka inn nemendur eftir búsetu
heldur er þeim heimilt að velja inn í
skólana eftir einkunnum úr grunn-
skólum. Aðspurður um þá breytingu
sagði Sölvi þeirra skóla myndu
halda sig við fyrri stefnu „við lítum
þannig á að það eigi ekki að þeyta
nemendum milli hverfa" og telur
flesta skóla vilja hafa þá stefnu að
þjóna sínu hverfi. Stefán í FB tók í
sama streng og sagði ómögulegt að
segja til um áhrif þessarar breyt-
ingar á inntöku nemenda í skóla. ■
STEFÁN ANDRÉSSON ÁFANGASTJÓRI FJÖLBRAUTARSKÓLANS f BREIÐHOLTI.
Tæplega 600 nýnemar hafa innritað sig í skólann.
Makedónía:
Fjölbrautarskólinn við Ármúla:
Tímabundið vopnahlé
dregur úr spennu
skopje. ap. Makedóníuher og albanskir
skæruliðar lýstu í gær yfir tíma-
bundnu vopnahléi sín á milli. Vopna-
hléið hófst á hádegi í gær og mun
standa í sólarhring. Heldur dró úr
spennu á svæðinu í kjölfar vopna-
hlésins en skæruliðarnir höfðu hótað
að hefja árásir á ýmis mannvirki í
borgum landsins, m.a. flugvöllinn í
höfuðborginni Skopje, hætti herinn
ekki árásum á þá.
Nikola Dimitrov, ráðgjafi ríkis-
stjórnarinnar, sagði að Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu hefði hvatt
til vopnahlésins'.
Makedóníski herinn réðst í gær-
morgun af fullum þunga á nokkur
þorp í norðuhluta landsins sem eru á
valdi albanskra skæruliða. Stjórnin
hunsaði því í fyrstu hótanir skærulið-
anna. Bardagar hófust í dögun vestur
af borginni Kumanova. Skæruliðarn-
ir náðu vatnsbólum hennar á sitt vald
fyrir viku síðan og hafa íbúar hennar
því þurft að reiða sig á innflutt vatn.
Flugvöllurinn í Skopje var opinn í
Á FLÓTTA
Fjölskylda af albönsku bergi brotnu flýr
heimili sitt í þorpi í grennd Skopje í gær.
gær en a.m.k tvö flugfélög, British
Ariways og JAT, sem er júgóslav-
neskt flugfélag, felldu niður flug í
gær vegna hugsanlegra árása á flug-
völlinn.
Einn af leiðtogum skæruliðanna,
Hoxha, sagði í gær í samtali við
blaðamanna AP að uppreisnarsveit-
irnar hefðu ýmis skotmörk í sigtinu
og að skæruliðarnir myndu láta verða
af árásunum fyrst að ríkisstjórnin
hefði virt hótanir þeirra að vettugi. ■
Veruleg aukning í
sjúkraliðanám
skólamál Umsóknum fer fjölgandi á
sjúkraliðabraut Fjölbrautarskólans
við Ármúla. Á undanförnum árum
hafði dregið úr umsóknum og í ár út-
skrifuðust aðeins átta af brautinni.
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir
kennslustjóri á sjúkraliðabraut segir
þó að miðað við þær umsóknir sem
nú liggja fyrir hjá skólanum um nám
í haust, megi sjá að umsóknir eru um
30 sem er rúmlega tvöföldun frá í
fyrra. „Við auglýstum mikið til að
vekja athygli á náminu. Það er
ánægjulegt að fjölgun er á fólki miili
30 og 50 ára sem gjarnan hefur verið
að vinna á dvalarheimilum og öldrun-
arheimilum án þess að hafa starfs-
réttindi. Nú virðist sem efnahagur
fari versnandi og þetta fólk, sem er
um 3/4 hluti umsækjenda nú, vilji því
tryggja réttindi sín „segir Guðrún.
Hún telur þennan hóp ákjósanlega
nemendur, því þeir stundi námið vel
og samviskusamlega og lítið sé um
TVÖFÖLDUN UMSÓKNA FRÁ í FYRRA.
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir kennslustjóri
sjúkraliðabrautar F.Á. er ánægð með innrit-
anir á brautína.
brottfall úr námi. Oft eru þetta
„þroskaðar konur sem hafa reynslu
af umönnunarstörfum", segir Guð-
rún ennfremur. ■