Fréttablaðið - 13.06.2001, Side 18
FRÉTTABLAÐIÐ
13. júni 2001 IVilÐVIKUDACUR
HVAÐ BORÐAÐIRÐU í CÆR?
18
Smári Þórarinsson
Fjármálastjóri Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins
Ég var niðri á Valsvelli og át víst ein-
hvern hamborgara í grillveislu fyrir leik
Vals og Skagans. ■
| METSÖLUBÆKURNAR |
LISTINN BR BYGCÐUR A SÖLUTÖLUM PENNANNS EYMUNDSSON 1MAÍ2001 Charles og Caroline Muir Tantra, listin að elska meðvitað
Bill Phillips ▲
LÍKAMI FYRIR LÍFIÐ
Ql Daniel Goleman ▲
TILFINNINGACREIND
O Jóhann Óli Hilmarsson ▲
ISLENSKUR FUGLAVÍSIR
Q Jón R. Hjálmarsson
ÞJÓÐSÖGUR VIÐ ÞJÓÐVEGINN
O Ýmsir
GULLKORN 1 GREINUM LAXNESS
O Jane Alexander
LÁTTU ÞÉR LÍDA VEL
Ýmsir ▲
RAUDA SERfAN - PAKKI
C% Ýmsir
LÍFSSPEKI BANGSÍMONS - TILFINNINGAR
(Jj) Ýmsir ▼
SAGA 20.ALDARINNAR
íslenskar metsölubækur:
Ráð gegn
ragni og bölvi
bækur Að Tantra virðist vera afar
vinsælt á íslandi um þessar mundir
ef marka má sölutölur Pennans Ey-
mundssonar en bókin Tantra hefur
vermt 1. sætið bæði í apríl og maí.
Ræktun líkamar og sálar eru ein-
kennandi fyrir bækurnar í 2. og 3.
sætinu og bókin sem vísar veginn
um íslenskt fuglalíf eftir Jóhann Óla
Hilmarsson vermir 4. sætið. Nýjar
inn á listann eru Þjóðsögur við þjóð-
veginn eftir Jón R. Hjálmarsson,
Gullkorn í greinum Laxness og
Láttu þér líóa vel sem hefur að
geyma heilræði um margt sem mað-
ur getur gert í staðinn fyrir að ragna
og bölva. ■
Sever rafmótorar
Sérpöntum eftirfarandi:
* Bremsumótora
* 2ja hraða mótora
* eín- og 3ja fasa rafaia
Sever notar eíngöngu
SKF eða FAG legur!
Eigum til á lager margar stœrðir og gerðir af ein- og
3ja fasa rafmótorum á mjög hagstæöu verðí.
Oæmi um veró á eínfasa rafmótor með fót:
0,25 kW 1500 sn/mín IP-55 kr. 6657 + vsk
Vökvatæki ehf
Bygggörðum 5,170 Seltjarnamesi
Sími 561-2209 Fax 561-2226
Veffang www.vokvataeki.is
Netfang vt@vokvataeki.is
Tónleikar í Seltjamameskirkju:
Fílharmónía á leið til
Búdapest og Slóveníu
tónust „Venjulega er helsta við-
fangsefni Söngsveitarinnar Fílharm-
óníu að flytja stór tónverk með sin-
fóníuhljómsveit og einsöngvurum,"
segir Lilja Árnadóttir, en hún er for-
maður kórsins. Söngsveitin heldur
tónleika í Seltjarnarneskirkju í
kvöld þar sem hún flytur bæði ís-
lensk þjóðlög og kirkjuleg verk frá
ýmsum tímum við píanóundirleik
Guðriðar St. Sigurðardóttur.
„Söngsveitin hefur aðeins einu
sinni gert þetta áður, að syngja styt-
tri verk á eigin tónleikum, en það
var árið 1994. Þá fórum við til Norð-
urlandanna," segir Lilja.
Að þessu sinni er ferðinni einnig
heitið út fyrir landsteinana, því síðar
í mánuðinum fer Söngsveitin í söng-
ferðalag til Ungverjalands og Sló-
veníu.
„Við ákváðum að tími væri komin
til þess að við færum til útlanda og
litum þá fyrst austur til Búdapest og
svo kom Slóvenía inn í dæmið,“ seg-
ir Lilja. „Það er mikil og sterk kóra-
hefð þarna þannig að við erum dálít-
ið spennt, við verðum að standa okk-
SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA
Kemur m.a. fram á menningarhátíðinni Imago Sloveniae í Slóveníu.
ur vel. Við leggjum áherslu á íslens-
ka tónlist en verðum líka með kirju-
verk vegna þess að við syngjum
bæði í guðsþjónustu og í tengslum
við guðsþjónustu. Þetta er ansi viða-
mikil efnisskrá sem við flytjum í
breytilegri mynd við mismunandi
tækifæri."
Á tónleikunum í kvöld gefst tæki-
færi til að hlýða á úrval úr þessari
efnisskrá. Stjórnandi er Bernharður
Wilkinson. ■
MIÐVIKUDAGUR
13. IÚNÍ~
TÓNLEIKAR_________________________
Söngsveitin Fílharmónía er á förum í
söngferðalag til Ungverjalands og
Slóveníu síðar í júnímánaði. Af þvi til-
efni efnir Söngsveitin til tónleika
í Seltjarnarneskirkju í kvöld og hefj-
ast þeir kl. 20.00.
Efnisskráin er afar fjölbreytt. Til dæm-
is má nefna að flutt verða íslensk
þjóðlög sem Hafliði Hallgrímsson,
Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirs-
son,
Jórunn Viðar og Jón Leífs hafa útsett.
Stjórnandi Söngsveitarinnar Fílharm-
óníu er Bernharður Wilkinson og
píanóleíkari er Guðríður St. Sigurðar-
dóttir.
Rokksveitin Ham er nú búin að blása
nýju lífi í glæðurnar og leika á Gauki
á Stöng í kvöld. Miðasala er einungis
í forsölu og í takmörkuðu upplagi.
360 gráðu-kvöld er á Thomsen þar
sem plötusnúðarnir Exos og T.H. sjá
um tónlistina. Aðgangseyrir er 300 kr.
fyrir kl. 23 en 500 kr. eftir það. Ald-
urstakmark er 18 ára.
LEIKHÚS
20.00 írska verðlaunaleikritið Með
fulla vasa af grjóti
eftir Marie Jones er
sýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins.
Þeir Hiimir Snær
Guðnason og Stef-
án Hrafn Stefáns-
son fara á kostum f
þessarí sýningu.
SÝNINGAR___________________________
l'slenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningarinnar sem opn-
uð hefur verið
í Safni Ásgríms Jónssonar við Bergs-
staðastræti 74 i Reykjavík. Á sýning-
unni sem stendur til 1. september
eru margar af frægustu þjóðsagna-
myndum listamannsins.
Þar má einnig sjá vinnustofu, heimili
og innbú hans.
Hin sýníngin sem
verður sett upp í
miðrými Kjarvals-
staða og ber hún
yfirskriftina 1461
dagur. Þar sýnir
Gretar Reynisson
verkefni sem hann
hefur unnið að frá
1. janúar 1997 og
sér ekki fyrir endann á enn. Þetta er
vaxtarverkefni af þeirri tegund sem á
ensku væri kallað „work in progress.
Sýningin stendur til 19. ágúst.
[ Stöðlakoti við Bókhlöðustíg 6
stendur yfir sýning á útsaumsverkum
Kristínar Schmidhauser. Sýningin er
opin frá kl. 14-18 og lýkur 24. júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur
Æfingar hafnar á Kristnihaldi undir jökli:
Stórhættulegt verk
°g uppreisnargjarnt
Á ÆFINGU í BORGARLEIIKHÚSINU
Gísli Öm Garðarsson verður í hlutverki umboðsmannsins unga.
leiklist Æfingar eru hafnar á Kristni-
haldi undir jökli eftir Halldór Lax-
ness hjá Leikfélagi Reykjavíkur í
Borgarleikhúsinu og er notast við
leikgerð Sveins Einarssonar. Áætlað
er að taka leikritið til sýningar í lok
september og að sögn Bergs Þórs
Ingólfssonar sem leikstýrir verkinu
ganga æfingar prýðilega, „í stílnum
er þetta er stórhættulegt verk og
uppreisnargjarnt. Halldór Laxness
skiptir um stíl til höfuðs sjálfum sér
og það er einmitt það sem er svo
skemmtilegt við verkið að maður
þarf að taka það til greina að hann er
að hræra í þessu viðtekna."
í hlutverki Umba hefur verið
valinn Gísli Örn Garðarsson, nýút-
skrifaður leikari frá leiklistardeild
LHÍ. í stuttu spjalli sagði Gísli hlut-
verkið leggjast mjög vel í sig. „Það
er af svo mörgu að taka í þessari bók
og við höfum í sameiningu verið að
reyna að einangra það sem okkur
langar að ná fram í leikritinu og
sumarið verður síðan notað til að
láta allt síast inn.“
Það er margt að gerast hjá Gísla
og má m.a. nefna það að í þessari
viku opnar hann veitingastað ásamt
félögum sínum á Hverfisgötunni
sem kallaður verður Hverfisbarinn.
„Nú einhvers staðar verður maður
að hafa aðsetur til að næra sig þeg-
ar svona mikið er að gerast hjá
manni,“ sagði Gísli glettnislega.
Einnig má geta þess að tökur á
kvikmyndinni Regínu hefjast í sum-
ar en þar fer Gísli með eitt hlut-
verkanna en sú mynd verður í leik-
stjórn Maríu Sigurðardóttur. „Það
er ekki annað hægt en að vera þakk-
látur að fá öll þessi tækifæri svona
nýútskrifaður úr leiklistarskólan-
um,“ sagði Gísli að endingu.
Auk Gísla leikur Árni Tryggva-
son í Kristnihaldinu og er þar í hlut-
verki Jóns Prímsuar, Edda Heiðrún
Bachmann ieikur Frú Fínu Jónsen
og Sigrún Edda Björnsdóttir fer
með hlutverk Úu. Aðrir leikarar
eru: Þorsteinn Gunnarsson, en þess
má geta að hann var í hlutverki
Umba í síðustu uppfærslu Leikfé-
lagsins árið 1971, Margrét I-Ielga
Jóhannsdóttir, Theódór Júlíusson,
Ellert A. Ingimundarson, Eggert
Þorleifsson, Olafur Darri Ólafsson
og Pétur Einarsson. Hljómsveitin
Quarashi með Sölva Blöndal í brod-
di fylkingar semur tónlistina í sýn-
ingunni. ■
opnað sýninguna Henri Cartier-
Bresson í Grófarsal, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Sýnd eru verk þessa
franska Ijósmyndara sem nú er á tí-
ræðisaldri og hefur oftast verið
kenndur við stílinn „hið afgerandi
augnablik". Sýningin er opin virka
daga frá kl. 12-17 og um helgar kl.
13-17 og stendur til 29. júli.
Sænski Ijósmyndarinn Lars Erik Björk
sýnir Ijósmyndir frá Færeyjum í and-
dyri sænska sendiráðsins í Lágmúla 7
sem hann nefnir Leiftur frá Færeyjum.
Sýningin verður opin virka daga kl. 9-
16 til 22. júní.
Freysteinn G. Jónsson sýnir Ijós-
rnyndir í versluninni Míru, Bæjarlind
6. Sýningin nefnist Mannlif á Ind-
landi og samanstendur af Ijósmynd-
um frá Indlandi, bæði svarthvítum og
í lit. Sýningin er opin á opnunartíma
Míru og stendur til 20. júní.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta
einkasýning Ara. Þema sýningarinnar
á Atlantic er íslenski fáninn. Gengið er
inn frá Austurvelli.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa
yfir sýningarnar Blóðug vígaferli og
Götuiíf vikinganna í York. Um er að
ræða tvær sýningar, annars vegar
endurgerð á götu í víkingaþorpi þar
sem hægt er að sjá fólk við vinnu
sína og hins vegar sýningu sem heitir
„Skullsplitter" á frummálinu, þar má
sjá beinagrind og hauskúpur víkinga
sem féllu í bardögum. Á sýningunni
eru raunverulegar líkamsleifar sem
geta valdið óhug. Sýningin er opin
alla daga frá 13-17, kostar 300 krónur,
frítt fyrir börn, unglinga og ellilífeyris-
þega. Miðinn gildir einnig í hin hús
safnsins. Sýningarnar standa til 1.
október.
á sumau- u Breytílegt VISA
Lokaðá laugardögum í sumar KAYS Austurhrauni 3, Hafnarfirði Sími 555 2866
Frakkland:
Söngleikur
með hestum
söngleikir Söngleikurinn Prinsinn
(Le Prince), sem nú er sýndur í
smábænum Vogelgrun í Frakklandi,
er óvenjulegur að því leyti að hest-
ar eru í helstu hlutverkunum. Alls
taka fjörutíu hestar þátt í sýning-
unni ásamt hópi leikara af manna-
ættum. í söngleiknum er sögð sag-
an af franska prinsinum Louis
Henri de Bourboun sem var á dög-
um frá 1692 til 1740. Hann var
sannfærður um að hann myndi end-
urfæðast sem hestur og fékk þar af
leiðandi arkitekt sinn til þess að
PRINSINN
Leikarinn Jean-Francois Pignon ásamt
tveimur meðleikurum sínum.
reisa glæsilegt hesthús handa sér.
Tónlistin er að mestu leyti eftir
Mike Túrtle, en hugmyndin kemur
frá Dieter Spiedel. ■
Norræna húsið:
Hvernig er
norrænn hlutur?
myndlist í Norræna húsinu stendur
yfir sýningin Norrænir hlutir þar
sem tíu norrænir listamenn sýna
hluti af ýmsu tagi og innsetningar
þar sem þeir velta því fyrir sér með
myndrænum hætti hvers konar hlut-
ir sé líklegast að geti talist norrænir.
Ósk Vilhjálmsdóttir er fulltrúi ís-
lands á sýningunni, en hinir lista-
mennirnir eru Anna Zadros Hansen,
Armen Matinjan, Khaled D. Ramad-
an og Miguel Vega Olivares frá Dan-
mörku, Christine Candolin og Niran
Baibulat frá Finnlandi og Norðmenn-
irnir Tomasz Ozdowski og Danuta
Haremska. ■