Fréttablaðið - 29.06.2001, Qupperneq 2
KJÖRKASSINN
FRÉTTABLAÐIÐ
29. júní 2001 FÖSTUDACUR
CUNNAR
BIRGISSON
Mikill meirihluti telur
að Lánasjóður íslenskra
námsmanna hafi beitt
lántakendur órétti.
Hefur LÍN svínað á
lántakendum?
Niðurstöður gærdagsins
á wwyy.vfor.is
Spurning dagsins í dag:
Er rétt að selja ráðandi hlut i Lands-
banka (slands til útlendinga?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
III I!l
sss snsH’
HÖFUÐSTAÐUR NORÐURLANDS
Akureyringar aetla að beita deiliskipulagi til
að útiloka nektardanstaði frá baenum.
Berrassaðar dansmeyjar á
næturklúbbum Akureyrar:
Skipulagðar
út af kortinu
næturlíf Bæjarráð Akureyrar sam-
þykkti í gær að útiloka næturklúbba í
miðbæ Akureyrar þegar deiliskipu-
lag fyrir svæðið verður endurskoðaö.
Samþykktin er gerð í kjölfar ein-
arðrar andstöðu jafnréttisnefndar
Akureyrar við rekstur nektardans-
staða í bænum en nefndin telur þá
starfsemi ekki í samræmi við stefnu
bæjarins í jafnréttismálum.
Að auki hefur bæjarráðið sam-
þykkt að við endurskoðun deiliskipu-
lags annarra hverfa bæjarins, þar
sem heimilt er að reka veitingastaði,
verði næturklúbbar útilokaðir. ■
—«---
Gerðardómur skilar úr-
skurði sínum:
Sjómanna-
deilunni lýkur
á sunnudag
kjaramál Að sögn Garðars Garðars-
sonar hæstaréttarlögmanns, for-
manns gerðardóms sem skipaður var
til lausnar kjaradeilu útvegsmanna
og sjómanna, mun dómurinn skila að-
ilum málsins úrskurði sínum í málinu
næstkomandi sunnudag, 1. júlí, eins
lögin um gerðardóminn gera ráð fyr-
ir.
Með niðurstöðu gerðardómsins
komast á nýir kjarasamningar milli
sjómanna og vinnuveitenda eftir
langvinn átök. Deilendur hafa ekki
sjálfir náð samkomulagi og greip lög-
gjafarvaldið til þess að leggja málið
fyrir gerðadóm. ■
—»—
Evrópusambandið:
Belgar taka við
formennsku
brussel. ap. Belgar taka við for-
mennsku í Evrópusambandinu, ESB,
á sunnudag og leysa þá Svía af hólmi.
Það eru einkum þrjú mál sem liggja
fyrir í væntanlegri hálfs árs for-
mannstíð Belga. í fyrsta lagi að tryg-
gja að vel gangi er notkun evruseðia
og myntar hefst um áramót. í öðru
lagi að halda viðræðum við væntan-
leg aðildarlönd í Austur-Evrópu
gangandi. í þriðja lagi að reyna að
koma í veg fyrir að viðlíka óeirðir
brjótist út í Brussel þegar haldinn
verður leiðtogafundur þar eins og
gerðist í Gautaborg á dögunum. ■
2
Orkuveita Reykjavíkur:
Orkuveitan yfirtekur
um milljarð í skuldum
sameininc Með sameiningu orkufyr-
irtækja Reykjavíkur og Akraness
yfirtekur Orkuveita Reykjavíkur
um einn milljarð króna í skuldum
orkufyrirtækja Akraness. Guð-
mundur Þóroddsson forstjóri Orku-
veitunnar segir að á móti fái fyrir-
tækið eignir og tekjur við samein-
inguna. Þá er gert ráð fyrir að tekj-
ur Orkuveitunnar muni aukast um
5% við þessa sameiningu á árs-
grundvelli. Því til viðbótar telja
menn að mikil sóknarfæri verði til
staðar á svæðinu enda hefur verið
þar töluverð fólksfjölgun svo ekki
sé minnst á frekari vöxt í stóriðju í
nágrenninu.
Sem dæmi nefnir hann að tekjur
Akranesveitunnar hefðu verið 514
milljónir króna samkvæmt árs-
reikningi árið 1999 og tekjur Anda-
kílsvirkjunar 217 milljónir króna,
eða samtals 731 milljónir króna. Þá
gerðu áætlanir ráð fyrir því að
orkufyrirtæki Skagamanna yrðu
skuldlaus árið 2008 miðað við
óbreytta gjaldskrá. Eigið fé fyrir-
tækisins eftir sameininguna verður
um 34 milljarðar króna. Jafnframt
er gert ráð fyrir óbreyttri arð-
greiðslustefnu sameinaðs fyrirtæk-
is en þau hafa greitt arð til eigenda
sinna. ■
GUÐMUNDUR ÞÓRODDSSON FOR-
STJÓRI ORKUVEITU REYKJAVÍKUR
Mikíl ásókn í lóðir á Akranesi.
DÝR UNDIRSKRIFT
Óvíst er hverjar eignir Frumafls eru, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins getur ekki gefið neinar upplýsingar um það. Hluthafar I Ll segja að verið sé að kaupa undirskrift
ráðherra á tæpan milljarð króna.
Eignalaust Frumafl
Fyrirtækið Frumafl selst á 860 milljónir þrátt fyrir að vera eignalaust. Stjórnarformaður LI getur ekki gefið upp-
lýsingar um eignir fyrirtækisins. „Verða kynntar á hluthafafundi," segir framkvæmdastjóri Frumafls.
sóltúnsmAlið Eins og fram hefur kom-
ið í fréttaflutningi liðinna daga er
deilt um verðmæti fyrirtækisins
Frumafls sem Lyfjaverslun íslands
hefur fest kaup á. Deilur risu upp
innan stjórnar fyrirtækisins og vilja
nokkrir stjórnarmenn meina að eign-
ir fyrirtækisins séu engar; að einung-
is sé verið að festa kaup á samningi
við heilbrigðis- og tryggingarmála-
ráðuneytið um þjónustu við aldraða.
Þá hafa nokkrir stjórnarmenn sagt að
þeim þyki óeðlilegt að einn stjórnar-
manna LÍ, Jóhann Óli Guðmundsson,
sé einn aðaleigandi Frumafls og sitji
því beggja vegna samningaborðsins.
fslenskir aðalverktakar eru um
þessar mundir að byggja öldrunar-
heimili að Sóltúni 2 fyrir Frumafl og
segir Lárus Blöndal, stjórnarmaður
hjá LÍ, að enn sem komið er sé þetta
hús eign Aðalverktaka og er Frum-
afli ætlað að kaupa húsið þegar búið
er að byggja það.
„Fyrirtækið á engar fasteignir
eða lausafé og mun húsið sem verið
er að byggja í Sóltúni verða keypt
fyrir lánsfé sem enn er ekki búið að
útvega. Þarna er því einungis um að
ræða kaup á samningi," sagði Lárus.
Lyfjaverslunin greiðir 860 millj-
ónir fyrir hlutinn í Frumafli og sam-
kvæmt samningi Frumafls við heil-
brigðisráðuneytið frá árinu 2000 skal
fyrirtækið sjá um rekstur hjúkrunar-
heimilis fyrir aldraða. Samningurinn
var gerður til 25 ára.
Aðspurður sagði Hannes Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Frum-
afls, að fyrirtækið ætti eignir en
hann vildi ekki tíunda þær við blaða-
mann Fréttablaðsins. Hann sagði að
eignir félagsins yrðu kynntar hlut-
höfum í LÍ á hluthafafundi fyrirtæk-
isins þann 10. júlí. Grímur Sæmund-
sen, stjórnarformaður LÍ, gat ekki
gefið neinar upplýsingar um eignir
Frumafls þegar haft var samband við
hann í gær en fullyrti þó að fyrirtæk-
ið væri ekki eignalaust.
Þrír hluthafar í LÍ hafa farið fram
á lögbann á kaup LÍ í Frumafli. Lög-
bannskröfunni var synjað af sýslu-
manni en mun hún verða tekin fyrir
af héraðsdómi í dag.
omarr@frettbladid.is
Kaup lífeyrissjóða á Landsbankanum:
Ekki uppi á borðinu
bankasala „Þetta hefur ekkert verið
rætt hjá okkur,“ segir Magnús L.
Sveinsson, formaður stjórnar Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna, aðspurður
um þaó hvort lífeyrissjóðirnir sjái
tækifæri í að kaupa hlut ríkisins í
Landsbankanum.
Stjórnarfundur í Lífeyrissjóði
verslunarmanna verður ekki haldinn
fyrr en í næsta mánuði og kemst mál-
ið ekki á dagskrá fyrr ef það gerir
það á annað borð.
Lífeyrissjóður verslunarmanna á
tidsbankanum en
af 30 stærstu
hluthöfum í
bankanum eru
10 þeirra lífeyr-
issjóðir með
samtals 5,04%
eignarhlut.
„Við hugsum
númer eitt, tvö
og þrjú út frá
arðsemissjónar-
miði fjárfest-
inganna. Ef
menn telja að
það sé góð fjár-
festing upp á
arðsemi að gera, hvort sem það er
banki eða annað hlutafélag, þá skoð-
um við það. En það er ekkert uppi á
borðinu hjá okkur,“ segir Magnús L.
Sveinsson. ■
Þj óðhagsstofnun:
Mikill hagvöxtur
efnahacsmAl Hagvöxtur á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs var 7,3% sam-
kvæmt fjórðungsuppgjöri þjóðhags-
reikninga, sem Þjóðhagsstofnun
sendi frá sér í gær.
„Skýringin að hluta til er sú að það
er mikill útflutningur á þessum árs-
fjórðungi sem gæti skekkt þessa
mynd. Birgðabreytingar eru lítt
þekktar milli ársfjórðunga og skort-
ur á birgðatölum valda meiri sveiflu.
Við teljum að nokkuð hafi verið flutt
út af birgðum sem kemur fram sem
framleiðsla í þjóðhagsreikningnum,"
segir Gamalíel Sveinsson forstöðu-
maður þjóðhagsreikninga hjá Þjóð-
hagsstofnun.
Þetta er nokkuð meiri hagvöxtur
en spá Þjóðhagsstofnunar gerði ráð
fyrir á öllu þessu ári. Gamalíel segir
Þjóðhagsstofnun samt standa við
sína fyrri spá um 1,5% hagvöxt á ár-
inu. Þetta er í fyrsta sinn sem þess-
ar ársfjórðungstölur eru gefnar út
og eiga tölurnar að gegna svipuðu
hlutverki og árshlutauppgjör fyrir-
tækja. ■
AF 30 STÆRSTU HLUTHOFUM 1 LANDSBANKANUM ERU 10 LÍFEYRISSJÓÐIR
Hluthafi Hlutur f °/o
Lffeyrissjóðir Bankastræti 7 1,27
Samvinnulífeyrissjóðurinn 0,98
Lífeyrissjóður sjómanna 0,90
Lífeyrissjóður verslunarmanna 0,80
Llfeyrissjóður bankamanna 0,36
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 0,22
Lífeyrissjóður Verkfræðinga 0,18
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 0,14
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 0,12
Lífeyrissjóður Norðurlands 0,08
jegar 0,8% hlut í
MAGNÚS
L. SVEINSSON ,
Hugsum fyrst og
(remst um arðsemis-
sjónarmið.