Fréttablaðið - 29.06.2001, Qupperneq 12
12
FRETTABLAÐIÐ
29. júni 2001 FÖSTUPACUR
Ný handvopnakönnun:
Þrír menn sóttir til saka:
Um hálf milljón
manna myrt á
ári hverju
osió. norecur. ap. Um hálf milljón
manna, flestir óbreyttir borgarar, eru
myrtir á hverju ári um heim allan
með handvopnum. Kemur þetta fram
í fyrstu árlegu handvopnakönnuninni
sem gefin var út í gær í Osló. „Þad má
líkja handvopnum við gjöreyðingar-
vopn sem notuð eru í smáskömmtum
í einu,“ segir Keith Krause, sem hafði
umsjón með könnuninni sem unnin
var í Genf. í könnunninni, sem er 300
blaðsíðna löng, kemur fram að um
550 milljónir handvopna séu í umferð
í heiminum, allt frá skammbyssum til
sjálfvirkra riffla og eldvarpna. ■
Reyndu innflutning
dómsmál Ákæra hefur verið gefin út
af ríkissaksóknara á hendur þremur
mönnum á fertugsaldri sem allir eru
taldir eiga aðild á innfiutningi á 30
kílóum af hassi á árinu 1999. Akæran
er í þremur liðum og í fyrsta lið er
einn mannanna ákærður fyrir að
hafa reynt þennan innflutning til sölu
hér á landi í ágóðaskyni. Fram kemur
í ákærunni að í nóvember 1999 hafi
lögreglan í Barcelona á Spáni lagt
hald á fíkniefnið sem falið var í hurð
sem senda átti ásamt níu öðrum hurð-
um sjóleiðis til íslands á nafni fyrir-
tækis í Reykjavík.
Öðrum manni er gefið að sök að
hafa komið hinum í samband við
fíkniefnasala á Spáni. Frá þeim tíma
og þar til haustið 1999 er honum gef-
ið að sök að hafa liðsinnt meðákærða
í símasamskiptum við milligöngu-
manninn. Þetta var gert til að koma
fíkniefnum hingað til lands. Þá er
þriðja manninum gefið að sök að hafa
útvegað upplýsingar um fyrirtækið
og fá samþykki grandalausa forráða-
mann þess til að nota nafn þess til að
flytja inn hurðir, en ákærði vissi að í
þeim voru falin fíkniefni sem ætluð
voru til sölu hér á landi.
Ríkissaksóknari krefst þess að
ákærðu verði dæmdir til refsingar
og ennfremur er þess krafist að 0,56
kg af amfetamíni sem fannst við
húsleit hjá einum þeirra verði gert
upptækt. ■
á 30 kílóum af hassi
Lató í stað dollara
Lató hyggur á landvinninga í Evrópu og vestanhafs. Krónan fellur um
en Lató sækir í sig veðrið. Lítið um byrjunarörðugleika.
hagkerfi Á meðan krónan fellur
styrkist hagkerfi Latabæjar - Lató-
hagkerfið - stöðugt. Magnús Schev-
ing, „bæjarstjórinn" í Latabæ, segir
að nú hyggi menn á landvinninga og
að hann hafi heyrt sögur af því að
fjármálaráðherrar ýmissa Evrópu-
landa og í Bandaríkjunum séu að
hugsa um að kasta bæði evru og doll-
ar fyrir róða.
„Við erum nýkomnir að utan og
höfum átt í viðræðum við menn um
að koma Latóhagkerfi af stað víðar
en hér á íslandi og okkur hefur verið
tekið gríðarlega vel. Menn segja að
þetta sé eitt það sniðugasta sem hef-
ur komið fram í bransanum í langan
tíma,“ sagði Magnús. Að sögn Magn-
úsar hafa þeir erlendu aðilar sem
hann er í viðræðum við komið að
framleiðslu á Disney-bíómyndum en
tengjast þó ekki Disney með beinum
hætti.
Magnús sagði að Latóhagkerfið
hefði gengið vel og litlir sem engir
byrjunarörðugleikar hefðu komið
upp.„Það er helst að fólk haldi að
þetta sé hægt að nota á hverjum degi.
Við erum að reyna að koma því þan-
nig fyrir að hægt sé að notast við
Latóseðlanna alltaf þannig að engin
komi að tómum kofanum, en fram að
því verður fólk að fylgjast vel með
Fréttablaðinu hvar hægt er að nota
Lató,“ sagði Magnús.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
stöðvaði Seðlabankinn útgáfu
Latóseðla vegna þess að seðlarnir
þóttu vera of líkir íslenskum seðlum.
Eftir viðræður á milli Magnúsar og
forsvarsmanna bankans náðist sam-
komulag um hvernig mætti leysa
málið. Magnús og félagar í Latabæ
breyttu útliti seðlanna og hefur nú
verið hægt að nota þá vandræðalaust.
Hægt er að nota Latóseðla til þess að
kaupa hollar vörur og þjónustu sem
stuðlar að heilbrigðum lifnaðarhátt-
um. Hægt er að kaupa fyrir seðlana
skyr, morgunkorn, grænmeti og
ávexti svo að fátt eitt sé nefnt.
omarr@frettabladid.is
EKKI LÍKIR KRÓNUM
Eins og Fréttablaðíð greindi frá fyrr í mán-
uðinum stöðvaði Seðlabankinn útgáfu
Latóseðla vegna þess að þeir þóttu of líkir
krónunni. Latóseðlunum var þó breytt og
forsvarsmenn Seðlabankans - og fjöldi
barna - sættust á nýtt útlit. Hér gefur að
líta gömlu og nýju Latóseðlana.
Thomson 10" sjónvarp
10" Black Pearl myndlampi.
1 scart-tengi.
12/24/220 volt.
Inniloftnet fylgir.
Fjarstýring.
2ja ára ábyrgð.
BSUMAR^
SPRENGJW
Fastrrq
BT Skeifunni • S:550-4444 • BT Hafnarfirði • S:550-4020 • BT Kringlunni - S:550-4499 • BT Reykjanesbæ • 5:421-4040 • BT Akureyri • 5:461-5500 • BT Egilsstöðum ■ 5:471-3880
Litla systir
Astrid Lindgren:
Gefur út
fyrstu bók
90 ára
svIþjóð Litla systir Astrid Lindgren,
sem m.a. skrifað bækurnar um Línu
Langsokk og Emil í Kattholti, gaf
nýlega út sína fyrstu bók, 90 ára að
aldri. Litla systirin sem heitir Stina
Hergin segir bókina vera byggða á
ævi sinni, en bókin ber titilinn
„Einu sinni var bóndabær" og gerist
þar sem fjölskylda þeirra systra
ólst upp, í Vimmerby í Smálöndum.
Stina gefur bókina út sjálf og
hyggst einnig þýða hana fyrir þýsk-
an markað.
í samtali við The Associated
Press sagðist hún hafa beðið með út-
gáfu bókarinnar þar til hún hefði
fundið sinn eigin stíl.
„Maðurinn minn sálugi var rit-
höfundur svo og bróðir minn og
systir, svo það var ekki auðvelt fyr-
ir mig að hasla mér völl á sama
sviði. En ég er hæstánægð með bók-
ina mína.“ Aðspurð hvort Stina
hygði á frekari bókarsmíði sagðist
hún alveg eins reikna með því, hana
langaði að skrifa bók um drauga því
hún þekkti svo marga. ■
1*1 I XII-OKM
&BOLSIWJN*
Simor: SSS 3344/694 4772