Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.06.2001, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 29.06.2001, Qupperneq 13
FÖSTUPAGUR 29. júní 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 13 Hewlett-Packard: Aukagjald fyrir geislaskrifara FRANKFURT. ÞÝSKALANDI, AP. Þýskur dÓltl- stóll hefur gert tölvufyrirtækinu Hewlett-Packard að greiða sérstakt aukagjald fyrir alla geisladiskaskrif- ara sem það hefur selt á undanförn- um þremur árum, en lög þess efnis voru samþykkt á síðasta ári af frum- kvæði höfundaréttarfyrirtækisins GEMA. Gjaldinu er ætlað að bæta tónlistarmönnum það tap sem þeir eru taldir verða fyrir þegar lög þeir- ra eru tekin af Netinu. Önnur fyrir- tæki sem selja geisladiskaskrifara þurfa nú að greiða gjald af hverjum seldum geislaskrifara, en mál Hew- let-Packard er talið setja fordæmi fyrir þau. ■ ÞÓRDfS G. ARTHÚRSDÓTTIR Ferðakortahandbókin verður endurnýjuð árlega með uppfærðum upplýsingum um ferðaþjónustu og vegbætur. Ferðakortahandbók Landmælinga: Gagnlegar upplýsingar í ferðalaginu ferðalagið Ný ferðakortabók með nýjustu upplýsingum um vegakerfi landsins og vegnúmer hefur verið gefin út af Landmælingum íslands. Einnig er að finna í bókinni mikil- vægar upplýsingar um ferðaþjón- ustu, svo sem bensínafgreiðslur, gististaði, sundlaugar, söfn, golfvelli og fleira. Helsta nýjung bókarinnar eru fjölmörg þjónustutákn sem gefa til kynna hvar hægt sé að gista, taka bensín, heimsækja minjastaði eða fara í golf eða á skíði. í ferðakorta- bókinni er einnig upplýsandi sérkort um gróður, jarðfræði, sögulegar minjar, dreifisvæði Símans GSM, þjónustu FÍB og veðurskeytastöðvar ásamt ítarlegri töflu um vegalengdir milli staða. Bókin kostar 1.980 kr. og fæst á öllum helstu sölustöðum korta. ■ ■ —♦— Flug: Hávaðavarnir á Reykjavíkur- flugvelli hávaði Hömlur hafa verið settar á snertilendingar á Reykjavíkurflug- velli í sumar. Snertilendingar verða aðeins heimilar mánudaga til föstu- daga, og aðeins að degi til. Áfram eru í gildi reglur sem tóku gildi þann 21. júní 1999 um takmark- anir á flugi við Reykjavíkurflugvöll. Um er að ræða ýmsar takmarkanir sem ná til nokkurra ólíkra þátta sem stuðla þó allir að því að draga úr há- vaða. ■ íslandsbanki kaupir 12,5% í Rietumu: LÖGREGLUFRÉTTIR Sættust á minni hlut bankar „Okkar markmið með fjár- festingunni var að ná betri aðgangi að mörkuðum á Eystrasaltsvæðinu og við teljum okkur vera að ná fram þeim markmiðum án þess að þurfa að binda jafnmikið fé og upphaflega stóð til,“ sesir Bjarni Ármannsson, bankastjóri Islandsbanka, um kaup á 12,5% hlut í lettneska bankanum Rietumu í stað 56,2% eins og sam- komulag var gert um í lok síðasta árs. Þá segir Bjarni það jákvætt að núverandi eigendur hafi ekki þurft að rýra hlut sinn meira en sem nem- ur 12,5%. Guðmundur Kr. Tómasson, fram- kvæmdarstjóri Þróunarsviðs, segir rekstur lettneska bankans hafa geng- ið mjög vel að undanförnu. Hann seg- ir að bankinn sé tiltölulega lítið í ein- stakiingsviðskiptum og leggi meginá- herslu á þjónustu við fyrirtæki og efnameiri einstaklinga. íslandsbanki greiðir jafnvirði um 570 milljóna króna fyrir hlutinn en samkvæmt því má áætla að meirihluti í Rietumu hefði kostað bankann um 2,5 millj- arða. ■ BJARNI ÁRMANNSSON Segir minni hlutdeild vera sameig- inlega niðurstöðu aðilanna á þeim tíma sem liðinn er frá samkomu- laginu um meirihlutaeign. Lögreglan í Hafnarfirði fylgdist með ökumönnum í fyrradag og voru tólf teknir fyrir of hraðan akst- ur. Þeirra á meðal var einn stöðvað- ur á 110 km hraða og var sá með kamar í eftirdragi. Aveginum sunnan við Borgar- f jarðarbrúnna og að göngunum biður lögreglan í Borgarnesi öku- menn að sýna varúð. Ástæðan fyrir því er að tjara hefur myndast á veg- inum en það virðist gerast á þessu svæði í miklum hita og getur þá myndast slysahætta. -—-♦— Lögreglan á Patreksfirði tekur þátt í umferðarátaki Umferðarráðs og lögreglunnar og að þeirra sögn er ástand bíla gott og þeir vel búnir. stórlækkað verð á nokkrum sýningar- og reynsluakstursbílum Nú er sölusýningu B&L í kringum landið lokið. Af því tilefni bjóðum við nokkra vel með farna reynsluaksturs- og sýningarbíla á lægra verði en nokkru sinni fyrr. B&L, Grjóthálsi 1, slmi 575 1220, www.bl.is Opið virka daga 9-18 BlLAR AF BESTU GERÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.