Fréttablaðið - 29.06.2001, Blaðsíða 18
Á HVAÐA TÍMUM LIFUM VIÐ?
n *n / c / ti
FRÉTTABLAÐIÐ
29. júní 2001 f'öSTUDAISUR
Kristín Þóra Haraldsdóttir
starfsmaður Jafningjafræðslunnar
Við lifum á spennandi og skemmtilegum tlma.
Þó er ástæða til þess að vera svolítið var um
sig og hafa það í huga að það slæma er oft
handan við homið og getur brotist fram í ýms-
um myndum. En umfram allt er ástæða til þess
að vera jákvæður og bjartsýnn og láta gott af
sér leiða.
Islensk mannanöfn:
Hvað má
ekki?
mannanöfn Út er komin hjá Vöku
Helgafelli lítið kver sem ber heitið
íslensk mannanöfn. í bókinni er birt
skrá yfir öll leyfileg eiginnöfn ís-
lenskra karla og kvenna ásamt leyfi-
legum ritmyndum þeirra. Einnig er
þar skrá yfir leyfileg millinöfn. Auk
þess er önnur og mun styttri skrá
yfir þau nöfn sem hafnað hefur verið
af mannanafnanefnd. Skráin er mið-
uð við 1. janúar í ár. Loks eru í bók-
inni helstu reglur um mannanöfn og
nafngjafir samkvæmt lögum.
Hér á eftir er listi yfir drengja-
nöfn sem mannanafnanefnd hefur
hafnað á árunum 1997 til 2000.
ADRIAN
ADALBJÖ RC VIN
ANTHONY
ANTONIO
ANTORN-CABRIEL
ARNARSTEINN
BALD
BEN
BENEDIKTS
CESAR
DANIEL
DOMINIC
EILIF
FRYOLF
HÁVARR
HNIKARR
IAN
ÍSARR
JÁRNSÍÐA
JÓSHUA
KÁ
KILLIAN
KOSMO
KRISTOFER
LEO
LORENZLEE
LÓRENZ
LUDWIG
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi:
Efnt til
skyndikynna
myndlist Geysileg aðsókn hefur verið
að yfirlitssýningu Erró í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsi frá því hún
var opnuð síðastliðinn laugardag og
hafa hátt á þriðja þúsund manns þeg-
ar séð hana. Leiðsögn er um sýning-
una kl. 16.00 á sunnudögum en vegna
gríðarlegrar eftirspurnar hefur
Listasafnið afráðið að efna einnig til
svokallaðra Skyndikynna við Erró í
hádeginu í dag. Flutt verður kynning
um yfirlitssýninguna og verk lista-
mannsins en sjónum sérstaklega
beint að ákveðnum verkum hans með
það fyrir augum að gestir fái lykil að
allri sýningunni. Skyndikynnin hefj-
ast kl. 12.00 og er miðað við að þau
standi yfir í um tuttugu mínútur.
Kaffistofa Listasafnsins verður með
sérstakt tilboð í hádeginu. ■
NÝSTÁRLEGT FRAMTAK
Listasafn Reykjavíkur býður upp á
skemmtilega nýjung í starfi sínu. Listunn-
endur sem kjósa að verja helgum til úti-
vistar geta skotist niður í Hafnarhús i há-
deginu í dag og notið listar, fróðleiks og
fengið sér í gogginn um leið.
Höfundur
Múmínálfanna:
Tove Jans-
son látin
bækur Tove Jansson, höfundur
bókanna vinsælu um Múmínálfana,
lést á miðvikudaginn í Helsinki 86
ára að aldri. Börn um heim allan
hafa hrifist af sögunum um
Múmínálfana, en alls komu út 13
bækur á árunum 1945-77.
Tove Jansson bjó í Finnlandi og
skrifaði á sænsku, en bækurnar
hafa verið þýddar á 34 tungumál
og gerðar hafa verið eftir þeim
bæði bíómyndir og sjónvarpsþætt-
ir. ■
UNGUR MÁLARI
Hafliði Sævarsson nefnir Edvard Munk, Kjarval og Sigurð Örlygsson meðal n
FÖSTUDAGURINN
29. JÚNÍ
MYNPLIST___________________________
12.00 Skyndikynni við Erró. Flutt verður
kynning um yfirlitssýninguna og
verk listamannsins en sjónum
sérstaklega beint að ákveðinum
verkum hans með það fyrir aug-
um að gestir fái lykil að allri sýn-
ingunni. Miðað er við að
skyndikynnin standi um tuttugu
mínútur. Ekkert aukagjald er tekið
fyrir þátttökuna. Kaffistofa Lista-
safnsins verður af þessu tilefni
með tilboð í hádeginu.
NÁMSKEIÐ___________________________
13.00 Vinsamlegast plantið ekki vöru-
merkjum á tunglið! (Heimsendir
er í nánd!) er yfirskrift námskeiðs
sem ætlað er auglýsingarfólki. Fyr-
irlesarar eru tveir þekktir auglýs-
ingamenn, John Boiler og Glenn
Cole sem starfa hjá
Wieden&Kennedy í Evrópu. Þeir
munu meðal annars kanna
nokkra fyndna, heimskulega og
uggvekjandi tískustrauma í nú-
tíma auglýsingamennsku og á
sjálfumglaðan hátt greina fólkið
sem veður eld og brennistein til
að viðhalda þessum sömu tísku-
straumum. Námskeiðið verður
haldið á Grand Hótel og stendur
til kl. 16.00.
TÓNLEIKAR__________________________
20.30 Hinn frábæri Benjamin Koppel
Quartet frá Danmörku heldur
tónleika i Salnum í Kópavogi.
Kvartettinn leikur hressandi
blöndu af nýrri tónlist og einstaka
þekktari jazznúmerum af mikilli
leikgleði, fimi og tilfinningu. Kvar-
tettinn skipa Benjamin Koppel, á
saxófón, Steen Rassmussen á pí-
anó, Jonas Westergaard á kontra-
bassa og Jakob Andersen á
trommur.
23.00 The Canada Club of lceland fagn-
ar þjóðhátíðardegi lands síns
með tónleikum í Kaffileikhúsi
Hlaðvarpans. Pað er auðvitað
hljómsveit kanadísku söngkon-
unnarTeenu Palmer FELICIDAE
sem flytur blandaða dagskrá, ekki
síst með áherslu á samba-, salsa-
takta sem landanum hafa hugn-
ast svo vel upp á síðkastið.
Hljómsveitina skipa, auk Teenu,
þeir Hilmar Jensson á gítar,
Matthíasi Hemstock á trommur,
Jóel Pálssyni á málmblásturhljóð-
færi og Guðjón Þorláksson á
bassa. Miðaverð á tónleikana er
1500 kr. og verður ágóðanum
varið til kaupa á tæki handa
Barnaspítala Hringsins. Húsið
opnar klukkan 22:00 og boðið er
Kínakrakkar
í Hinu húsinu:
Teiknar
og málar
börn
mynplist Hafliði Sævarsson opnar í
dag málverkasýningu í Gallerí Geysi
í dag. Sýninguna nefnir hann Kína-
krakka og sýnir hann aðallega mál-
verk en einnig skúlptúra og teiknað-
ar skissur. í verkum sínum reynir
hann að fanga litríkan gáska leik-
skólabarna og eldri nemenda en lista-
maðurinn hefur í rúmlega þrjú ár
skissað krakka í skólum, á heimilum
og í lestum víðs vegar um heiminn.
Hann byrjaði á þessu á ferðalagi í
Kína og sú vinna ásamt áhrifum úr
myndlist, landslagi og byggingum í
Alþýðulýðveldinu setur svip á verkin
sem að eru unnin upp úr skissunum
mestmegnis með vestrænni olíulita-
tækni.
Hafliði er 21 árs og stundar nám í
félagsvísindum og myndlist í
Hollandi. „Ég byrjaði að mála um tíu
ára aldur en hætti alveg þegar ég
byrjaði í Menntaskólanum í Reykja-
vík,“ segir Hafliði. Hann var þó á
námskeiðum í Myndlistarskólanum í
Reykjavík og eftir tveggja ára
menntaskólanám hélt hann til Hong
Kong í svo kallað IB nám. „Ég tók þar
myndlist sem varð aðalviðfangsefni
Á móti sól leikur á Gauki á Stöng.
SÝNINGAR________________________
Sýningin Samræmd heildarmynd -
Kirkja, arkitektúr, glerlist, skrúði,
stendur nú yfir í Fella- og Hólakirkju. Á
sýningunni eru sýnd frumdrög af teikn-
ingum kirkjunnar, frumdrög, vinnuteikn-
mitt þau tvö ár sem ég var þar.“
Aðspurður um þema sýningarinn-
ar svarar Hafliði: „Börn, nemendur,
Kínakrakkar. Myndefnin koma
hvaðanæva að en sýningin er samt
ákveðið uppgjör við minningarnar
sem ég á frá námi mínu í Hong Kong
og ferðalögum um Kína. Hafliói seg-
ist hafa mjög gaman að fást við að
skissa krakka vegna þess að þau eru
stöðugt á hreyfingu. „Maður verður
að vera alveg rosalega fljótur að teik-
ingar og Ijósmyndir af vinnuferli glerl-
istaverkanna og skrúðans. Hönnuðir er
Leifur Breiðfjörð og Sigriður Jóhanns-
dóttir. Sýningin stendur til 8. júlí og er
opin alla virka daga kl. 10-16 og um
helgar kl. 13-18.
í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn-
ingar. I húsinu Lækargötu 4 er sýningin
Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar. í
Kjöthúsi er sýningin Saga bygginga-
tækninnar. I húsinu Líkn er sýningin
na,“ segir Hafliði og leggur áherslu á
rosalega.
Hafliði segist vera staðráðinn í að
halda áfram að mála. „Sama hvort ég
er í námi í myndlist eða sjómaður úti
á sjó. Ég hef mjög gaman að því að
mála og ætla að halda því áfram:
segir Hafliði sem með sýningunm
segist vera að ljúka tveggja ára
áfanga sem hófst með útskriftarsýn-
ingu hans frá skólanum í Hong Kong.
„Ég veit samt ekki alveg um framtíð-
Minningar úr húsi. Þar er sýnt innbú
frá fjölskyldu Vigfúsar Guðmundsson-
ar búfræðings sem bjó á Laufásvegi
43. Sýningin i Suðurgötu 7 ber yfirskrift-
ina: il fegurðarauka. Sýning á útsaumi
og hannyrðum. Sýningin í Efstabæ hef-
ur verið endurgerð. Þar má sjá hvernig
tvær fjölskyldur bjuggu í húsinu um
1930, þar af önnur barnmörg.
íslenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningarinnar sem opnuð
upp á Ijúffengan málsverð fyrir
tóneikana fyrir þá sem það vilja.
LUSIFER
MARIUS
MARTHEN
RECIN
VÍDÓ
WERNER
Á næstu dögum munum við birta
fleiri forvitnilega lista yfir manna-
nöfn. ■
VESPUR
Seljum síðustu
vespurnar á þessu
sumri, verð frá
kr. 130 þúsund.
Lyftarar ehf.
Sími: 585 2500
Laugardagsgangan:
Mannlíf
íViðey
útivist Á morgun verður farin göngu-
ferð um Viðey eins og jafnan á laug-
ardögum í sumar. Áherslan verður
lögð á að fara um svæði sem hafa að
geyma sögu mannlífs í eyjunni, en
hún rekur sig allt aftur til 10. aldar, og
verður hún kynnt í ferðinni í stuttu
máli.
Farið verður með Viðeyjarferj-
unni kl. 11:15 út í eynna og hefst sjálf
gangan klukkan 11:30. Leiðsögnin er
án endurgjalds, en ferjutollur er að-
eins krónur 400 fyrir fullorðna og 200
fyrir börn.
Eftir göngu er upplagt að fá sér
kaffi í Vióeyjarstofu en kaffisalan
þar verður opin frá klukkan 13:30-
17:00 bæði laugardag og sunnudag.
Sýningin „Klaustur á íslandi" verður
opin laugardag og sunnudag frá kl.
13:00-16:15. ■
Ekkja Schindlers:
Fær skaða-
bætur
stuttgawt. ap Emilie Schindler, ekkja
Oskars Schindlers sem frægur varð
þegar Steven Spielberg gerði bíó-
mynd um óvenjulegar hetjudáðir
hans í seinni heimsstyrjöldinni, hlaut
nú í vikunni 25.000 þýsk mörk í
skaðabætur frá þýska dagblaðinu
Stuttgarter Zeitung. Dómstóll dæmdi
blaðið til þess að greiða ekkjunni
bætur fyrir að birta skjöl eftir
Schindler, sem hún á birtingarrétt á.
Þýsk hjón fundu þessi skjöl árið 1999
og gáfu þau dagblaðinu, sem birti úr-
drætti úr þeim og gaf síðan bæði
skjölin og ljósmyndir til minningar-
safns um Helförina í ísrael.
Schindler-hjónin fluttu til Argentínu
árið 1949 en hann fór frá henni árið
1958 og hélt að nýju til Þýskalands
þar sem hann lést árið 1974. Hún er
engu aó síður eini erfingi hans. ■
Djass í Salnum:
Dansvænir
Danir
tónleikar Hinn frábæri Benjamin
Koppel Quartet frá Danmörku verð-
ur með tónleika í Salnum í Kópavogi
í kvöld kl. 20:30, en á morgun leika
þeir á Blue North Music tónlistarhá-
tíðinni í Ólafsfirði, auk þess sem þeir
spila í Deiglunni á Akureyri kl. 20:30
á sunnudagskvöldið.
Benjamin Koppel Quartet spilar
hressandi blöndu af nýrri tónlist og
einstaka þekktari jazznúmerum af
mikilli leikgleði, fimi og tilfinningu.
Tónlistin er aðgengileg og oft dans-
væn. Kvartettinn sendi fyrir nokkru
frá sér plötuna „Armarillo Race“,
sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.
En þar sýnir kvartettinn yfirburði í
leikni, tæknilega og músíkalskt, í
bæði fallegum lögum og logandi
grófri swing músík. ■