Fréttablaðið - 29.06.2001, Síða 19
FÖSTUPAGUR 29. júní 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Kaldalónstónleikar í Árbæjarsafni
Þú eina hjartans
yndið mitt
tónleikar I Árbæjarsafni er jafnan
heilmargt um að vera á sumrin og á
morgun klukkan 14 verða haldnir þar
tónleikar þar sem þeir Árni Sighvats-
son baritonsöngvari og Jón Sigurðsson
píanóleikari flytja lög eftir Sigvalda
Kaldalóns. Vel er við hæfi að flytja lög
Sigvalda í Árbæjarsafni vegna þess að
flygill Sigvalda er geymdur þar og not-
aður þegar tækifæri gefst. Vinir hans
gáfu honum flygilinn árið 1919 og
færðu heim til hans í Ármúla, þar sem
Sigvaldi bjó skammt frá Kaldalóni við
ísafjarðardjúp. Rífa þurfti vegg úr
íbúðarhúsinu til þess að koma flyglin-
um inn. Sigvaldi var þá fjarverandi og
vissi ekkert af gjöfinni, vinir hans
stóðu í ströngu við að ganga frá öllu
aftur til þess að koma honum á óvart.
Sigvaidi Kaldalóns (1881-1946) starfaði
sem héraðslæknir í Nauteyrarhreppi
við ísafjarðardjúp um ellefu ára skeið,
í Flatey á Breiðafirði um þriggja ára
skeið og loks í Grindavík í um 15 ár.
Sigvaldi sinnti tónlist í hjáverkum en
ferðalög og annað erfiði sem fylgdi
læknisstarfinu tóku mest af hans tíma.
Eftir hann liggja um það bil 200 lög og
af þeim ætla þeir Árni og Jón að flytja
þrettán perlur. ■
SIGVALDI KALDALÓNS
Tónar hans óma í Árbæjarsafni á morgun.
iara sem hann hefur litið til.
ina. Ég tek þetta svona í tveggja
ára bitum.“
Hafliða finnst sýningin eiga
vel við nú þegar umræða um kyn-
þáttafordóma stendur hátt. „Ég
bjó sem innflytjandi í Austurlönd-
um og er nú komin heim og veit
innsýn í það. Þetta finnst mér at-
hyglisvert út frá félagslegum
sjónarhóli. Á sýningunni er mál-
um sem sagt öfugt farið miðað við
það sem gerist úti á götu.“ ■
hefur verið í Safni Ásgríms Jónssonar
við Bergsstaðastræti 74 í Reykjavík. Á
sýningunni sem stendur til 1. september
eru margar af frægustu þjóðsagnamynd-
um listamannsins. Þar má einnig sjá
vinnustofu, heimili og innbú hans.
Önnur af sumarsýningum Listasafns
Reykjavíkur - Kjarvalsstaða ber nafnið
Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Ein-
ar Garibaldi Eiríksson myndlistarmaður
og prófessor við Listaháskóla islands. Á
sýningunni getur að líta mismunandi
myndir Heklu sem sýndar verða hlið við
hlið. Sýningin stendur til 2. september.
Hin sumarsýningin er í miðrými Kjar-
valsstaða og ber hún yfirskriftina 1461
dagur. Þar sýnir Grétar Reynisson verk-
efni sem hann hefur unnið að frá 1. jan-
úar 1997 og sér ekki fyrir endann á enn.
Þetta er vaxtarverkefni af þeirri tegund
sem á ensku væri kallað „work in
progress." Sýningin stendur til 19. ágúst.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur opn-
að sýninguna Henri Cartier-Bresson í
Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Sýnd eru verk þessa franska Ijósmynd-
ara sem nú er á tíræðisaldri og hefur
oftast verið kenndur við stílinn „hið af-
gerandi augnablik". Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-17 og um helgar kl.
13-17 og stendur til 29. júlí.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantíc í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlant-
ic er (slenski fáninn. Gengið er inn frá
Austurvelli.
I Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi þar sem hægt er að
sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýn-
ingu sem heitir „Skullsplitter" á frum-
málinu, þar má sjá beinagrind og haus-
kúpur víkinga sem féllu í bardögum. Á
sýningunni eru raunverulegar likamsleif-
ar sem geta valdið óhug. Sýningin er
opin alla daga frá 13-17, kostar 300
krónur, frítt fyrir börn, unglinga og ellilíf-
eyrisþega. Miðinn gildir einnig f hin hús
safnsins. Sýningarnar standa til 1. októ-
ber.
í Sjóminjasafninu í Hafnarfirði stendur
handverkssýning Ásgeirs Guðbjartsson-
ar. Frá 1. júní er Sjóminjasafnið opið alla
daga frá kl. 13 til 17. Sýningin stendur til
22. júlí.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir í Gerðubergi. í vetur hafa
þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna-
mannsins Marteins Sigurgeirssonar og
afraksturinn hangir á veggjum Gerðu-
bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreytt-
ar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf.
Opnunartími sýningar er virka daga frá
12 til 17 og stendur sýningin til 17.
ágúst.
IWYNPUST_____________________________
Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir
í Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru sýnd
öndvegisverk úr eigu Listasafnsins. Litið
er til fyrri hlutar síðustu aldar og sjónum
beint annars vegar að yngri verkum
frumherjanna. Sýningin stendur til 12.
ágúst.
Sumarsýning Listasafns Sigurjóns Ólaf-
ssonar ber yfirskriftina Hefð og
nýsköpun. Þar má sjá úrval verka eftir
Sigurjón frá þrjátíu ára tímabili, 1930-
1960. Safnið er opið alla daga milli
klukkan 14 og 17, nema mánudaga.
Sumarsýning Listasafns íslands nefnist
Andspænis náttúrunni. Á henni eru
eingöngu verk eftir (sendinga í eigu
safnsins og fjallar hún um náttúruna
sem viðfangsefni íslenskra listamanna á
20. öld. Verkin á sýningunni eru eftir
marga af helstu listamönnum þjóðarin-
nar á nýliðinni öld, frá Þórarni B.
Þorlákssyni til Ólafs Eliassonar. Opið frá
kl. 11 til 17 alla daga nema mánudaga.
Aðgangur er ókeypis á miðvikudögum.
Sýningin stendur til 2. september.
Svipir lands og sagna nefnist sýning á
verkum Ásmundar Sveinssonar sem
opnuð var um helgina I Listasafni
Reykjavíkur Ásmundarsafni. Á
sýningunni eru verk sem spanna allan
feril listamannsins og sýna þá þróun
sem varð á list hans í gegnum tíðina.
Safnið er opið daglega 10-16 og stendur
sýningin til 10. febrúar á næsta ári.
Norðmaðurinn Gisle Nataas hefur
opnað sýningu á Mokka-kaffi við
Skólavörðustíg.
Sýnínguna nefnir listamaðurinn Eitt
andartak og þrjár samræður og fjallar
hún um hreyfingu og rými. Ljós og
skugga. Sambandið á milli mynda og
samræðna og þau áhrif sem hlutirnir
hafa á rýmið.
Þýski myndlistarmaðurinn Werner
Möller sýnir málverk í Hafnarborg. Á
sýningunni verður Werner með 30 Ktil
akrýlmálverk og eitt stórt textílverk.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og henni
lýkur 2. júlí.
í Listhúsi Ófeigs Skólavörðustíg 5 opn-
aði um helgina leirlistarsýningin Neri-
age Postulín. Listamaðurinn er Nanna
Bayer frá Finlandi og beitir hún svo kall-
aðari neriage aðferð við gerð leirmun-
anna en sú aðferð er japanskrar ættar.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Unnar Örn Auðarson hefur opnað sýn-
ingu í gallerí@hlemmur.is, Þverholti 5.
Á sýningunni er Unnar að vinna með
hluti úr sinu daglega lífi, eins og mat,
heimili og íþróttir, sem hann hristir
saman og býr til eina heild. Sýningin
stendur til 15. júlí og er opin fimmtudag
til sunnudags frá kl. 14-18.
Fjórir listamenn hafa opnað sýningu í
Nýlistasafninu. Þeir eru Daníei
Þorkels, Þorkell Magnússon í Gryfju,
Ómar Smári Kristinsson á palli, Karen
Kirstein í forsal ogPhilip von Knorring
í SÚM-sal.
LEIKHUS
Gamanleikur í gæðaflokki
„Út með ykkur", sagði Jock
Campell öryggisvörður (alias
Hilmir Snær) við áhorfendur þeg-
ar Hilmir Snær Guðnason og Stef-
án Karl Stefánsson voru orðnir
þreyttir á fagnaðarlátum í lok síð-
ustu sýningar vorsins á norður-
írska smellinum. Áhorfendur svör-
uðu með því að rísa úr sætum og
hylla frábæran leik tvímenning-
anna sem túlka allar persónur leik-
ritsins, íra jafnt sem Kana, konur
sem karla. Veljum vináttuna, kjós-
um okkar sögur og okkar ljóð og
látum okkur ekki nægja að vera
aukaleikarar Hollywood-iðnaðar-
ins. Vanmetum þó ekki fag-
mennsku Kanans og þau áhrif og
andsvör
sem kvik-
myndaiðnaður hans
kallar fram. Þetta er mín túlkun á
boðskap verksins sem er annars
grín með sorglegum undirtón.
Hnitmiðaður og agaður ofleikur er
einkunnin fyrir stórleik þeirra fé-
laganna. Nú fara þeir í leikför um
landið en verða aftur á f jölum
Þjóðleikhússins í haust.
Einar Karl Haraldsson
Með fulla vasa af grjóti__________
Höfundur: Marie Jones
Leikstjórn: lan McElhinney
Sýnt í Þjóðleikhúsinu
í einu orði sagt: Frábært
LAGT AF STAÐ I SVEITINA
Hilmir Snær og Stefán Karl hafa fengið frábærarar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda.
Nú gefst íbúum Norður- og Austurlands kostur á að sjá þá í fjölmörgum hlutverkum sln-
um í leikritinu Með fulla vasa af grjóti.
Leikferð Þjóðleikhússins um Norður- og Austurland:
Leggja land undir grjót
leikhús Á morgun leggja þeir Stefán
Karl Stefánsson og Hilmir Snær
Guðnason upp í mikla leikferð um
norður- og austurhluta landsins og
sýna leikritið írska gamanleikinn
Með fulla vasa af grjóti. Sýnt verður
á 12 stöðum og verða sýningarnar
fjórtán talsins.
Leikritið Með fulla vasa af grjóti
hefur gengið fyrir troðfullu húsi í
Þjóðleikhúsinu frá áramótum. Verkið
fjallar um tvo írska náunga sem taka
að sér að leika í alþjóðlegri stór-
mynd. Fjölskrúðugar persónur
verksins eru allar leiknar af Stefáni
Karli og Hilmi Snæ, kvikmyndaleik-
stjórinn, Hollywoodstjarnan, þorps-
búarnir og allir aðrir en hlutverkin
eru 14.
Hilmir Snær og Stefán Karl hafa
fengið einróma lof fyrir leik sinn í
þessari sýningu. Útfærsla á leik-
mynd og búningum er í höndum Elín-
ar Eddu Árnadóttur, Ásmundur
Karlsson hannaði lýsinguna, aðstoð-
arleikstjóri er Björn Gunnlaugsson.
Leikstjóri sýningarinnar er Ian
McElhinney og Guðni Kolbeinsson
þýddi verkið.
Fyrsta sýningin verður í Félags-
heimilinu á Blönduósi á sunnudaginn,
1. júlí. Næst verður sýnt á mánudag,
2. júlí í Miðgarði i Varmahlíð, 3. júlí í
Tjarnarborg á Ólafsfirði, 4. og 5. júlí
í Freyvangi í Eyjafirði, 6. og 7. júlí í
Samkomuhúsi Húsavíkur, 9. júlí í
Miklagarði á Vopnafirði, 10. júlí í
Herðubreið á Seyðisfirði, þann 11.
júlí verður leikið í Valaskjálf, Egils-
stöðum, 12. júlí í Egilsbúð í Nes-
kaupsstað, 13. júlí í Skrúði á Fá-
skrúðsfirði og þann 14. júlí í Mána-
garði í Hornafirði. Ferðinni lýkur
þann 15. júlí á Kirkjubæjarklaustri
þar sem sýnt verður í Kirkjuhvoli.
Fararstjóri í leikferðinni er Sig-
mundur Örn Arngrímsson skipulags-
stjóri Þjóðleikhússins. ■
Grunnskólakrakkar halda í leikferð um landið:
Setja svip á bæjarlífið
jncmenni Hópur ungra leikara úr
efstu bekkjum grunnskóla eru að leg-
gja upp í hringferð um landið, byrja á
Isafirði nú í dag og enda með uppá-
Komum í Reykjavík þann 1. ágúst.
„Við ætlum að heimsækja leik-
skóla og elliheimiii og vera með fjör
:í götunum," segir ísfirðingurinn
Greipur Gíslason, en hugmyndin að
þessu samstarfsverkefni sex sveitar-
félaga er frá honum komin.
„Þetta er þannig að sex sveitarfé-
lög, Bolungarvík, Kópavogur, Egils-
staðir, Sauðárkrókur og Selfoss, auk
ísafjarðar, leggja hvert til tvo leikara
á vinnuskólaaldri. Krakkarnir koma
allir úr vinnskólum viðkomandi
sveitarfélags og eru á launum hjá
þeim. Sveitarfélögin sjá líka um að
taka á móti okkur á hverjum stað og
bera allan kostnað af gistingunni."
Á ísafirði hefur leikhópur grunn-
skólakrakka starfað í nokkur ár að
frumkvæði Greips og með góðum
stuðningi Gamla apóteksins, sem er
menningarmiðstöð unglinga þar í bæ.
Út frá því kviknaði svo sú hugmynd
að gera þetta að veruleika á lands-
vísu.“
„íslandsleikhúsið á að stuðla að
íslandsvæðingu, eins og við orðuðum
það í umsókninni til Menningarborg-
arsjóðar,“ segir Greipur. „Hugmynd-
in er auðvitað sú að efla tengslin milli
unglinga á íslandi. Ég til dæmis á
fleiri vini í Kaupmannahöfn heldur
en á Hornafirði og ég sendi oftar
tölvupóst til Ástralíu heldur en til
Hornafjarðar. Heimsvæðingin er
mikilvæg, en íslandsvæðingin þarf
að koma fyrst.“
En hvernig skyldi hafa gengið að
fá vinnuskólana til liðs við þetta
verkefni?
„Við bentum bara sveitarfélögun-
um á að þannig væri auðveldast að
gera þetta sem ódýrast. Hverju sveit-
arfélagi munar ekkert um fjórar
hendur úr arfatínslunni.“
FYRIR UTAN GAMLA APÓTEKIÐ
Leikhópurinn kom saman í fyrsta sinn á ísafirði á mánudaginn.