Fréttablaðið - 01.08.2001, Side 2
KJÖRKASSINN
HATIÐARHELGIN FÆRIST NÆR Leyfi Kaffi Austurstrætis: ~ "" fo
enda á Vlsi.is ætlar að eyða verslunarmanna- helginni að þessu sinni á útihátíð. ... - v- v "V: Akvörðun borgar- ■ ' yJ r .Vr* .o
innar frestað r
Ætlar þú á útihátíð um
verslunarmannahelgina?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
22%
78%
Spuming dagsins í dag:
Á að leyfa maríjuana i iæknisfræðlegum
tilgangi?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
Greiðendur opinberra
gjalda
20 hæstu
skattakóngar Eftirtaldir greiða
hæst gjöld allra á landinu í ár:
93.202.895
Eiríkur Sigurðsson
fyrrveranai eigandi 10-11, Seltjarnarnesi
53.099.984
Benóný Þórhallsson
útgerðarmaður Grindavík
37.419.840
Jónína S. Gísladóttir
ekkja Pálma í Hagkaup, Reykjavík
29.626.941
Sólveig Edda Bjarnadóttir
tengist útgerð á Hornafirði, Hafnarfirði
22.630.364
Kristjana Ólafsdóttir
seldi rækjuskip, ísafirði
20.348.053
Guðmundur T. Sigurðsson
fyrrverandi útgerðarmaður, Reykjavík
19.994.744
Hafsteinn E. Ingólfsson
Reykjanesbæ
19.139.370
Jón Guðmundsson
húsasmiður, Reykjavík
18.340.786
Jón Hjartarson
seldi Húsgagnahallarhúsið, Reykjavík
18.107.216
Magnús Jónasson
kaupmaður, Orvis og fyrrv. Budweiser,
Reykjavík
16.137.102
Jákup á Dul Jacobsen
í Rúmfatalagernum, Reykjavík
15.989.313
Gunnlaugur Ólafsson
Vestmannaeyjum
15.029.125
Oddur Gunnarsson
Reykjavík
14.912.529
Ingibjörg S. Pálmadóttir
Jónssonar í Hagkaup, Reykjavík
14.851.712
Sverrir Þorsteinsson
Reykjavík
14.840.657
Haukur Garðarsson
verkfræðingur, Reykjavík
14.810.702
Guðrún Þ. Jónsdóttir
sjá Jón Hjartarson, Reykjavík
14.798.250
Þorsteinn Vilhelmsson
í Samherja, Reykjavík
13.686.997
Steinunn Pétursdóttir
hjúkrunarfræðingur, Kópavogi
13.528.340
Aðalsteinn Haraldsson
útgerðarmaður Akranesi
Miðvikudagsmarkaðurinn:
Einnig á
VísLis
verslun Miðvikudagsmarkaður-
inn sem hóf göngu sína hér í
Fréttablaðinu hefur nú einnig ver-
ið opnaður á Vísi.is.
Fjöldi tilboða og afsláttarmiða
er í Miðvikudagsmarkaðinum í
hverri viku. Auk þess sem lesend-
ur Fréttablaðsins geta hringt eins
og áður og fengið vörur á tilboðs-
verði fluttar heim til sín án send-
ingarkostnaðar geta þeir nú keypt
vörurnar á Vísi.is og notið sömu
heimsendingarþjónustu.
Á Miðvikudagsmarkaðnum í
dag er meðal annars boðið upp á
tíu vinsælustu diskana frá
Skffunni og vinsælustu ensku
vasabrotsbækurnar í
Eymundsson. ■
FRETTABLAÐIÐ
1. ágúst 2001 IVIIÐVIKUDAGUR
miðborgin Borgarráð frestaði í
gær ákvörðun sinni í máli Kaffi
Austurstrætis. Staðurinn hafði
óskað eftir því að vínveitingar-
leyfi hans yrði framlengt og lögðu
borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins fram tillögu um að því
væri hafnað þar sem að mikið hef-
ur verið kvartað af vegfarendum
og þeim er leigja í húsinu undan
þeim sem staðinn sækja.
Helgi Hjörvar, sem situr í
borgarráði fyrir R-listann, lýsti
yfir undrun sinni á því að staður-
inn hefði fengið jákvæða umsögn
lögreglu og taldi að sökum þessa
væri ekki hægt að synja staðnum
um áframhaldandi leyfi - þrátt
fyrir að meirihluti borgarráðs-
manna vildi gera það. Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, sem situr í borg-
arráði fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
taldi að rétt væri að borgin synj-
aði staðnum um áframhaldandi
leyfi og það yrði látið reyna á rétt-
arstöðu borgarinnar í málinu.
Borgarráð ákvað á fundi sínum
í gær að fresta ákvarðanartöku í
málinu til 14. ágúst þar sem ráð-
inu höfðu borist bréf frá leigjend-
KAFFILAUST AUSTURSTRÆTI?
Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um
Kaffi Austurstræti og verður það ekki gert
fyrr en 14. ágúst. Fastagestir staðarins
segja að þeim sé hvergi ætlaður staður og
að með því að loka Kaffi Austurstræti sé
verið að sópa þeim undir mottuna.
um í húsinu er óskuðu eftir því að
staðnum yrði synjað um áfram-
haldandi leyfi. Þá vildi borgarráð
einnig bíða eftir áliti lögfræðinga
á réttarstöðu borgarinnar í mál-
inu; gefa rekstraraðila staðarins
tækifæri til þess að tjá sig um öll
göng málsins sem liggja fyrir.B
Bandarísk könnun:
Fimmta
hver verður
fyrir árás
chicago. ap. Ein af hverjum fimm
bandarískum menntaskólastúlkum
hefur orðið fyrir líkamlegu- eða
kynferðislegu ofbeldi af strák sem
þær hafa farið með á stefnumót.
Þetta kemur fram í nýrri banda-
rískri rannsókn þar sem lögð var
könnun fyrir rúmlega 4000 mennta-
skólanemendur í Massachusetts-
fylki. Ofbeldi af þessu tagi er talið
auka mjög hættuna á að stúlkur
leiðist út í eiturlyfjanotkun, sjálfs-
morðshugleiðingar ásamt annarri
skaðlegri hegðun. ■
Er alltaf mögulegt
að vinna sér pláss
Skiptar skoðanir um Framkvæmdasýsluna, Vilhjálmur Egilsson alþingismaður segir það verk
hennar að finna sér farveg. Steingrímur j. Sigfússon spyr hvort rétt sé að hafa Framkvæmdasýsl-
una undir íj ármálaráðuneytinu.
RÍKISFRAMKVÆMDIR „Ef það er
veikt fólk í Framkvæmdasýsl-
unni en sterkt fólk í ráðuneytun-
um þá leiðir það af sér ósam-
ræmi. Það er alltaf ákveðinn
möguleiki fyrir stofnanir í
stjórnsýslunni að vinna sjálfum
sér pláss og farveg með öflugu
starfi," segir Vilhjálmur Egils-
son, alþingismaður, varðandi um-
ræddan vanmátt FSR til að sinna
umsjónar- og eftirlitshlutverki
sínu með ríkisframkvæmdum.
Hann er ekki á þeirri skoðun að
líta beri til hærri stjórnvalda
varðandi ábyrgð á því sem aflaga
hefur farið, t.a.m. varðandi fram-
kvæmdir við Þjóðleikhúsið.
„Ef Framkvæmdasýslan væri
almennt þekkt af vönduðum
vinnubrögðum og gengi harðar
fram í því að tryggja sér þá stöðu
,sem hún í raun hefur samkvæmt
ilögum þá hefði hún náð betri ár-
angri,“ segir Vilhjálmur. Nefnd
sem fjallaði í vetur um lög um op-
inberar framkvæmdir hafi lagt á
það sérstaka áherslu að skil-
greina nákvæmlega hver bæri
ábyrgð í mi^munandi málum.
Gengið hafi verið nákvæmlega
frá verkaskiptingu stofnana.
„Það er spurning hvort núver-
andistaða stofnunarinnar undir
VILHJÁLMUR EGILSSON
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins dregur úr
því að líta beri til ráðuneyta varðandi
ábyrgð á ríkisframkvæmdum sem aflaga
hafa farið.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Formaður Vinstri-grænna telur að loka
þurfi þeim glufum í kerfinu sem geri ráðu-
neytum eða nefndum kleift að virða leik-
reglur að vettugi.
fjármálaráðuneytinu gefi henni
nógu sterka stöðu. Ráðuneytin
virðast hafa komist upp með það
að ákveða upp á sitt einsdæmi að
framkvæmdir féllu innan eða
utan Framkvæmdasýslunnar,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri-grænna. Hærri
stjórnsýslustofnanir beri klár-
lega ábyrgð á því sem sumir hafi
kennt FSR alfarið um. Það sé
ótækt að ráðuneytin eða einstak-
ir aðilar í ríkiskerfinu geti upp á
sitt einsdæmi ákveðið aðra til-
högun en bundin er í reglugerðir
og að Framkvæmdasýslan sé
vanmáttug gagnvart slíkum yfir-
gangi.
„Það má vera að mönnum sé
gerður of auðveldur leikur að ýta
reglum um opinberar fram-
kvæmdir til hliðar eftir hentug-
leika," segir Steingrímur, og
bendir á að FSR sé hluti af fram-
kvæmdavaldinu, en ekki eftirlits-
stofnun á borð við Ríkisendur-
skoðun sem heyrir undir lög-
gjafann. „Þess vegna virðist
erfitt fyrir ráðherra að ætla að
gera stofnunina að sökudólgi,"
segir Steingrímur, og bætir því
við að nóg sé komið af útbúningi
sakamannabekkja.
matti@frettabladid.is
Björn Bjarnason formaður Þingvallanefndar:
Þingvallanefnd
er leigusalinn
ÞINGVALLANEFND „Við Spurðum
Þingvallahrepp að því hvaða
ákvarðanir hreppsnefndin hefði
almennt tekið um heildarstærð
húsa og við hvaða byggingar
væri miðað þegar tekin er af-
staða til þess að umrætt sumar-
hús félli ekki að umhverfi sínu.
Við beittum hreppsnefndina síð-
ur en svo nokkrum þrýstingi,“
sagði Björn Bjarnason, mennta-
málaráðherra og formaður Þing-
vallanefndar, um afskipti nefnd-
arinnar að byggingu sumarhúss
Kjartans Gunnarssonar í landi
Kárastaði á Þingvöllum. Björn
segir, að það sé hreppsnefnd en
ekki Þingvallanefnd, sem eigi
síðasta orðið um byggingar á
þessum stað.
Ragnar Jónsson, oddviti Þing-
vallahrepps, sagði í frétt í Frétta-
blaðinu í gær, að Þingvallanefnd
hefði verið með puttana í skipu-
lagsmálum sveitarinnar og að
hann skilji ekki hvernig standi á
að nefndin hafi yfirtekið umsjón
með miklu af landi Kárastaði,
þótt það sé ekki innan þjóðgarðs-
ins, og úthluti öllum lóðum sem
standa næst vatninu.
Björn Bjarnason segir að
engri lóð hafi verið úthlutað und-
ir sumarbústaði þarna frá árinu
1974. „Allir sem eru með sumar-
hús eða land á þessum stað eru
með leigusamninga við Þing-
vallanefnd. Hreppsnefndin veit
nákvæmlega um það og hefur
engar athugasemdir gert. Þetta
hefur viðgengist í mörg ár. Þing-
vallanefnd er leigusali til þess-
ara aðila.“ Björn segir einnig að
hann hafi talið góða sátt um þetta
en honum sé ekki kunnugt um
upphaf þess að Þingvallanefnd
hóf afskipti af sumarbústaða-
byggð í landi Kárastaða, enda
aldrei um það mál rætt við sig.
Hann segir að þrátt fyrir að
BJÖRN BJARNASON
Hann segir að þrátt fyrir að sumarhúsalóð-
in sé utan þjóðgarðsins sé hún innan
áhrifasvæðis hans.
byggðin sé utan þjóðgarðsins, sé
hún innan svonefnds áhrifa-
svæðis hans. Þá vill Björn leið-
rétta það í frétt Fréttablaðsins í
gær, að forsætisráðherra skipi
Þingvallanefnd, svo sé ekki, því
að Alþingi kjósi hana. ■
Leiðtogi Islamsþjóðar:
Frjálst að fara
LONPON. ap. Loius Farrakhan, leið-
togi Islamsþjóðar (Nation of Islam),
er frjálst að sækja Bretland heim
eftir að dómstóll þar í landi komst í
gær að þeirri niðurstöðu að bresku
ríkisstjórninni hefði verið óheimilt
að meina honum inngöngu í landið.
Bannið á rætur sínar að rekja til
ríkisstjórnar Margaret Thatchers.
Ríkisstjórnin bannaði Farrakh-
an að koma til Bretlands á þeirri
forsendu að hætt væri á að vera
hans í landinu myndi enda með
óeirðum vegna neikvæðra ummæla
sem hann hefur haft upp í garð gyð-
inga. Hilary Muhammad, talsmað-
ur samtakanna í Bretlandi, fagnaði
dómsúrskurðinum og sagði samtök-
in gleðjast því að leiðtogi þeirra
gæti nú sótt þau heim.
Talið er að Farrakhan sé einn
áhrifamesti leiðtogi blökkumanna í
Bandaríkjunum í dag. Hann skipu-
lagði m.s. fjölmenna baráttugöngu í
Washington árið 1995. Samtökin Is-
íamsþjóð, berjast fyrir réttindum
blökkumanna. Þau hafa verið um:
deild vegna herskárra skoðana. I
gegnum tíðina hafa þau m.a. barist
fyrir sérstöku ríki fyrir blökku-
menn. Á meðal fyrrverandi leið-
toga þeirra er Malcolm X. ■