Fréttablaðið - 01.08.2001, Page 4
FRÉTTABLAÐIÐ
1. ágúst 2001 MIOVIKUPAGUR
SVONA ERUM VID
ÓFRJÓSEMISAÐGERÐIR A KÖRLUM
Á ári hverju fer nokkur fjöldi einstaklinga (
ófrjósemisaðgerð. Stærri hluti þessa hóps
er konur en einnig fara nokkrir karlar á ári
hverju. Flestir eru á aldrinum 35-44 ára.
Árið 1997 fóru 641 kona I ófrjósemisað-
gerð en 134 karlar. Tolurnar hér að neðan
geyma tölur yfir karla og sést hver aukn-
ingin hefur verið sfðasta áratug.
1992 1993 1994 1995 1996 1997
HEIMILD: LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ
Efnahagsmál í Frakk-
landi:
Atvinnuleysi
eykst í fyrsta
sinn í 3 ár
parís. ap. Atvinnuleysi í Frakk-
landi jókst um 0,1% í júnímánuði
og fór í 8,8%. Er þetta í fyrsta
sinn sem atvinnuleysi eykst á
milli mánaða í landinu síðan í
ágúst árið 1998. Þessar tölur eru
taldar koma á slæmum tíma fyrir
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, sem lagt hefur áher-
slu á að styrkja hagvöxt í landinu
fyrir forsetakosningarnar á
næsta ári þar sem búist er við að
hann muni etja kappi við núver-
andi forseta Jacques Chirac. ■
♦
GRAFA EFTIR FÓRNARLAMBI
Um 50 manns grafa eftir manni sem grófst
undir í aurskriðu I Taíwan eftir að fellibyl-
urinn Toraji gekk yfir landið.
Náttúruhamfarir í Taíw-
an:
52 látnir
eftir fellibyl
hualien, TAÍWAN. AP. 52 hafa fundist
látnir og 150 er saknað eftir að
fellibylurinn Toraji gekk yfir
Taíwan í fyrradag. Bylurinn, sem
væntanlegur var á suðurströnd
Kína í gær, kom af stað miklum
aurskriðum og flóðum í Taíwan
sem urðu til þess að bílar, hús,
vegir og bryggjur eyóilögðust.
„Ég vil lýsa yfir sorg minni vegna
þeirra sem létust og þeirra sem
saknað er og fjölskyldum þeirra,“
sagði Chen Shui-bian, forseti
Taíwan í yfirlýsingu eftir hamfar-
irnar. „Ég vona að þið getið endur-
byggt heimili ykkar.“ ■
—«—
Brotist inn í póstkassa:
Reif upp
álagningar-
seðla
LÖCREGLUMÁL Lögreglunni í Reykja-
vík barst tilkynning um hálftólf í
fyrrakvöld að farið hefði verið í
póstkassa í íbúðarblokk í Breið-
holtinu. Þar hafði sá sem verknað-
inn framdi rifið upp álagningar-
seðla og var í fyrstu talið að ávís-
anir hefðu verið teknar. í ljós kom
að engu hafði verið stolið þar sem
ekki er enn farið að senda út end-
urgreiðslur frá skattinum. Taldi
lögregla víst að sá sem verknaðinn
framdi hefði haldið að þarna kæm-
ist hann í feitt. ■
4
Skemmtigarður í Bandaríkjunum:
Tugir slösuðust efitir
ferð í „óreiðuhjóli“
MjJSKECQN. MICHICAN. AP. Tugir
slösuðust þegar hjól brotnaði
undan hluta sérstakrar tegundar
parísarhjóls sem við það hrapaði
til jarðar í skemmtigarði í
Michigan í dag. Margir sem um
borð voru í parísarhjólinu þurf-
tu að bíða í þrjár klukkustundir
eftir því að björgunarstarfs-
menn gætu náð þeim úr hlutun-
um sem flestir voru á hvolfi þeg-
ar þeir voru stöðvuðust. Þessi
tegund parísarhjóls sem um er
að ræða kallast „Óreiðan." Byrj-
ar það á því að snúast lárétt í
loftinu og þegar það hefur náð
meiri hraða fer það að snúast
lóðrétt í hringi.
Mildi þykir að enginn hafi
slasast á jörðu niðri þar sem
hlutar úr tækinu skutust í allar
áttir. 25 til 30 manns voru um
borð í hjólinu og voru allir nema
tveir fluttir á sjúkrahús.
Talið var að feðgar sem bjarg-
að var síðast úr hlutanum sem
féll til jarðar, hafi slasast alvar-
lega. ■
BEÐIÐ EFTIR HJÁLP
Björgunarstarfsmenn tala við þá sem fastir
voru um borð í tækinu á meðan unnið var
að því að halda hjólinu stöðugu svo hægt
væri að bjarga þeim.
| EFNAHAGSMÁL
Dregið hefur út atvinnuleysi í
Noregi í sumar og er það nú
2,8%. 65.200 manns eru nú at-
vinnulausir í landinu og er það
fækkun um 3200 manns frá því
á sama tíma í fyrra. Kom þetta
fram á fréttavef Aftenposten.
—♦—
Atvinnuleysi í Japan mældist
4,9% í júní og stóð það í stað
frá því í maímánuði. Ráðamenn
óttast að efnahagsástandið í
landinu muni versna á næstunni
þar sem fyrirhugað er að draga
úr útgjöldum til almennings auk
þess sem reyna á að fá banka til
að afskrifa skuldir. ■
Fyrirtæki alþingismanns
úthýst undir fógetavaldi
Gunnar I. Birgisson og adrir eigendur verktakafyrirtækisins Klæðningar ehf. eru sagðir hafa
svikið síendurtekin loforð um að fiytja starfsemi fyrirtækisins úr leiguhúsnæði í Garðabæ. Það
var ekki fyrr en útburðarmál var höfðað gegn Klæðningu að sátt náðist í málinu og hefur fyrir-
tækið nú frest til 11. ágúst til að rýma lóð og salarkynni að Vesturhrauni.
dómsmál Verkatakafyrirtækið
Klæðning ehf. hefur gengist undir
dómssátt í héraðsdómi Reykjaness
um að rýma hús-
næði og lóð sem það
hefur haft til leigu
við Vesturhraun 5 í
Garðabæ. Aðaleig-
andi Klæðningar er
Gunnar I. Birgis-
son, alþingismaður
og formaður bæjar-
ráðs í Kópavogi.
Eigandi hússins
og lóðarinnar er
Wurth á íslandi ehf.
Fyrirtækið leitaði
atbeina dómsstóla
þegar forsvars-
mönnum þess þótti
útséð um að eigend-
ur Klæðningar
hyggðust standa við
endurtekin loforð um að rýma hús-
ið og lóðina.
„Þeir sem þekkja verkataka-
bransann eins hann er í dag vita að
hann er erfiður. Það var margoft
búið að tala um ákveðnar dagsetn-
ingar í sambandi við það að Klæðn-
ing færi út en þær gengu aldrei
eftir og því var ekki hægt að fara
neina aðra leið,“ segir Grímur Sig-
urjónsson, yfirsölustjóri hjá Wurth
á Islandi hf., um þá ákvörðun að
höfða útburðarmál á hendur
Klæðningu.
GUNNAR I.
BIRGISSON
Eigandi Klæðn-
ingar segir leig-
una að Vestur-
hrauni 5 hafa
verið „rosalega
dýra" en að
húsnæðið hafi
hentað fyrirtæk-
inu vel.
ATHAFNASVÆÐI KLÆÐNINGAR
Verktakafyrirtækið Klæðning hefur nú gengist undir að rýma húsið sem það byggði sjálft fyrir rúmum áratug.
Wurth á íslandi er þýskt fyrir-
tæki sem selur ýmis tæki og tól
handa iðnaðarmönnum og hefur
haft um tvo þriðju hluta hússins að
Vesturhrauni 5 til umráða og ætlar
nú einnig að nýta þann þriðjung
hússins sem Klæðning hefur haft á
leigu undir sína starfsemi.
Að sögn Gunnars Birgissonar
byggði Klæðning húsið árið 1989
og miðaði hönnun þess þá við eigin
þarfir. Því hafi það hentað þeim
vel og þeir viljað vera áfram þótt
leigan væri „rosalega dýr“ end
væri mjög kostnaðarsamt að flytja
og innrétta starfsemina annars
staðar.
„Leigusamningurinn var út-
runninn en við fengum alltaf rukk-
un fyrir húsaleigunni áfram. Um
leið og hún var borguð var sjálf-
virkt kominn þriggja mánaða upp-
sagnarfrestur þannig að ég er
hissa hvað þeir keyrðu þetta hart.
En síðan töluðu lögmennirnir sam-
an og þetta er allt gert í góðu sam-
komulagi," segir Gunnar.
Klæðning hefur nú frest til 11.
ágúst til að flytja frá Vesturhrauni
5 og Gunnar segir að það verði
ekki langt að fara því fyrirtækið
hafi þegar tryggt sér aðstöðu í
næsta húsi. gar@frettabladid.is
Innbrot í bíla:
Talið að um skipulagða
hópa sé að ræða
INNBROT í BIFREIÐAR
Talið er að I allflestum tilfellum séu fjármögnun til flkniefnakaupa helsta ástæða þessara
innbrota.
lögreglumál Brotist var inn fjöl-
marga bifreiðar í fyrrinótt og í
gærmorgun. Farið inn í þrjá
sendibifreiðar við Þverholtið og
teknir úr þeim útvörp og geisla-
spilarar. Tveimur gsm símum var
stolið úr bifreið í gærmorgun fyr-
ir utan Fjarðarsel í Breiðholti.
Einnig var farin inn nokkra bif-
reiðar í bílskýli í Dalseli.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík eru uppi ákveðnar grunsemd-
ir að um skipulagða hópa sé að
ræða. Sagði viðmælandi Frétta-
blaðsins að í flestum tilfellum
væri um að ræða fjármögnun til
fíkniefnakaupa og á ferðinni
væru mikið til sömu mennirnir
sem væru að verki. „Tilfelli sem
þessi eru allt of algeng þrátt fyrir
að við séum með ómerkta bíla frá
lögregluembættinu á ferð um
nætur. Þeir þyrftu að vera marg-
falt fleiri til að geta fylgst betur
með en það verður að segjast að
Reykjavík er orðin of stór.“ Þrátt
fyrir þessa annmarka sagði tals-
maður lögreglunnar mál af þessu
tagi yfirleitt upplýsast á endan-
um. ■
Sigurður Á. Snævarr
borgarhagfræðingur?
Ráðningu
frestað
borgarmál Á fundi borgarráðs í
gær var til afgreiðslu tillaga um
að Sigurður Á. Snævarr, hag-
fræðingur á Þjóðhagsstofnun,
yrði ráðinn í embætti borgarhag-
fræðings, en það var auglýst
laust til umsóknar fyrir nokkru
eftir að hafa verið ósetið um hríð.
Minnihluti sjálfstæðismanna í
borgarráði óskaði eftir frestun á
afgreiðslu tillögunnar þar sem
beðið var um skýringar hvers-
vegna þyrfti að ráða í embættið
nú. Sigurður Á. Snævarr er for-
stöðumaður tekjuathugana og
tekjuspár hjá Þjóðhagsstofnun,
er í ritstjórn þjóðhagsáætlunar
og þjóðarbúskapar, og hefur
sinnt sérstökum verkefnum á
sviði launamála, húsnæðis- og líf-
eyrismála. Hann hefur einnig
verið í verkefnastjórn evrópskra
rannsóknarstofnana um þróun
smárra- og meðalstórra fyrir-
tækja. ■