Fréttablaðið - 01.08.2001, Side 22
1
FRÉTTABLAÐIÐ
1. ágúst 2001 MIÐVIKUPAGUR
Nýjum nágranna fagnað:
Clinton fluttur til Harlem
forseti íbúar Harlem í New York
héldu hátíð til að fagna því að Bill
Clinton, fyrrverandi bandaríkja-
forseti, flutti inn í nýjar skrifstof-
ur sínar í hvefinu í fyrradag. Mót-
tökurnar, sem Clinton fékk, voru
framúrskarandi hlýlegar og þús-
undirnar sem söfnuðust saman á
einum heitasta degi sumarsins létu
gleði sína yfir nýja nágrannanum
óspart í ljós enda er það talið til
marks um endurreisn Harlem að
Clinton hafi valið að slá sér þar
niður með sig og sitt starfslið.
Meðal viðstaddra voru framá-
menn í samfélagi svartra íbúa
New York, auk þingmanna og
stjórnmálaleiðtoga í borginni. ■
VINSÆLL NÁGRANNI
íbúar Harlem tóku á mótl Bill Clinton eins og stjörnu.
Nýsköpun í ferðaþjón-
ustu:
Skoðunarferð
í boði CIA og
KBG
WASHINGTON.AP Tveir gamlir and-
stæðingar, annar var njósnari fyr-
ir CIA en hinn fyrir KGB, hafa
tekið höndum saman um að bjóða
ferðamönnum skoðunarferðir um
þá staði í Washingtonborg sem
helst koma við sögu njósnastar-
semi í kaldastríðinu.
Peter Earnest, CIA-maður á
eftirlaunum og Oleg Kalugin,
fyrrverandi yfirmaður KGB í
Bandaríkjunum bjóða nú upp á
tveggja klukkustunda rútuferð
LEYNDARMÁL AFHJÚPUÐ
Peter Earnest, starfaði í 35 ár i CIA og Oleg
Kalugin, fyrn/erandi KGB-maður hafa í
sameiningu gróðursett nýjan vaxtarbrodd í
ferðaþjónustu Washington-borgar.
um borgina og benda á þá staði
þar sem njósnarar og gagnnjósn-
arar áttu leynilega fundi, aðra
staði þar sem komið var fyrir
hljóðnemum og myndavélum og
svo staðina sem föðurlandssvikar-
arnir völdu til að afhenda and-
stæðingunum ríkisleyndarmál í
skiptum fyrir peninga. ■
Hrafn Jökulsson hefur gert
það sem aðrir blaðamenn
hefðu átt að gera. í tilefni af um-
mælum Davíðs
Oddssonar um að
sjálfstæðismenn
axli ábyrgð las
hann ævisögu
Jóns G. Sólnes,
skráða af Halldóri
Halldórssyni
blaðamanni. „Jón
leiddi lista Sjálf-
stæðismanna á Norðurlandi
eystra öðru sinni í kosningunum
1978, kominn fast að sjötugu en
fullur starfsorku og metnaðar,“
segir Hrafn á Pressan.is. „ Árið
eftir var enn boðað til þingkosn-
inga og Jón G. Sólnes sýndi sann-
arlega ekki á sér neitt fararsnið
úr efsta sætinu. En þá fóru
skrýtnir hlutir að gerast.
Skömmu áður en Sjálfstæðis-
menn komu saman til að ganga
frá framboðslistanum birtúst
fréttir í dagblöðum um að Jón G.
Sólnes hefði bæði látið Alþingi og
Kröflunefnd borga reikninga fyr-
ir símakostnaði sínum. Þingmað-
urinn hefði þannig fengið borgað
tvisvar fyrir sama reikninginn."
Jón G. Sólnes viðurkenndi
aldrei að hann hefði gert neitt
rangt, „ segir Hrafn. „Hann kenn-
di pólitískum
metnaði Halldórs
Blöndal um
fjaðrafokið vegna
; „símamálsins" en
Halldór var einn
þriggja skoðunar-
manna ríkisreikn-
ings sem vöktu at-
hygli forseta Al-
þingis á málinu. Halldór hafði
þrisvar skipað þriðja sætið á lista
Sjálfstæðismanna á Norðurlandi
eystra og jafn oft endað sem
varaþingmaður. Halldór gat ekki
beðið lengur, sagði Jón G. Sólnes.
En þetta snerist ekki bara um
kynslóðaskipti í frumskóginum:
Halldór var pólitískur fósturson-
ur Jóns gamla; heimagangur,
skjólstæðingur, fóstri, vopnabróð-
ir - vinur. Þetta var sárt. „Satt að
segja fyrirlít ég Halldór Blön-
dal,“ segir Jón G. Sólnes, eftir að
hafa rifjað upp tildrög þess að
honum var hrundið úr foringja-
sæti Sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu.
Allt er þetta mikil saga“, segir
Hrafn, „og ég er Davíð Odds-
syni þakklátur fyrir að hafa rifj-
að upp nafn Jóns G. Sólnes. Ævi-
sagan er stórskemmtileg lesning
fyrir áhugamenn um pólitík og
mannlegt eðli. Mér finnst það
hinsvegar hæpin sagnfræði (eða
bíræfin gamansemi) hjá forsæt-
isráðherra að halda því fram að
Jón G. Sólnes hafi „axlað
ábyrgð" vegna mistaka sem
hann gerði. Menn axla ábyrgð
með því að viðurkenna mistök.
Það gerði Jón G. Sólnes aldrei.
Jón sagðist einfaldlega hafa ver-
ið „rekinn af þingi". Og að
ábyrgðin liggi hjá Halldóri Blön-
dal. Hann hafi lagt á ráðin, brýnt
rýtingana."
HALLBJÖRN HJARTARSON
Frumkvöðull Kántrýhátíðarinnar á Skagaströnd.
Ætlar að flytja
vinsælustu lögin sín
Hallbjörn Hjartarson og Lukku Lákarnir sjó-
aðir og klárir. Engin önnur tónlist nema kán-
trýtónlist.
kántrý Kántrýhátíðin á Skaga-
strönd verður haldin nú um versl-
unarmannahelgina rétt eins og
undanfarin ár. Frumkvöðull að
þessari hátíð er Hallbjörn Hjartar-
son, verslunar-, tónlistar- og út-
varpsmaður á Skagaströnd.
„Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin
að minni tilstuðlan árið 1984 og svo
aftur ári síðar. Svo datt hún niður í
nokkur ár þegar ég var í mínum
veikindum en frá því hefur hún
verið árlegur viðburður og heima-
menn eru farnir að líta á hana sem
fastan punkt í tilverunni."
Hallbjörn sagðist búast við
fjölmenni í ár en á hátíðinni í
fyrra voru um 10.000 manns sem
mættu og vonaðist hann til að svo
yrði aftur. „Það verður fjölbreytt
dagskrá í gangi alla dagana. Ég
ætla að troða upp ásamt hljóm-
sveit minni „Lukku Lákunum" og
flytja mín vinsælustu lög.“ Hall-
björn var beðinn um að telja upp
þau allra vinsælustu og þau eru:
Hann er vinsæll og veit af því,
Sannur vinur, Kúreki norðursins,
Komdu út í kvöld með mér að
ógleymdu Kántrýhátíðarlaginu.
„Eg og hljómsveitin leikum í Kán-
trýbæ laugardags- og sunnudags-
kvöld og svo komum við fram á
innihátíðinni í íþróttahúsinu á
laugardeginum og á útisviðinu á
sunnudeginum." Hallbjörn sagði
hljómsveitarmeðlimi koma hvað-
an æva af landinu en hann væri sá
eini frá Skagaströnd. „Við æfum
allir í sitt í hvoru lagi og þegar við
komum saman smellur þetta yfir-
leitt saman eins og stafur í bók.“
Síðan bætti hann við stríðnislega
„Við eru orðnir svo sjóaðir og
klárir."
Hallbjörn rekur, eins og flest-
um er kunnugt um, útvarpsstöð á
Skagaströnd. „Við sendum út all-
an sólarhringinn og ég verð meira
og minna við stjórnvölinn frá
klukkan ellefu á morgnana til
klukkan þrjú eða fjögur um nótt-
ina nema þegar ég treð upp ásamt
hljómsveitinni. Blaðamaður
spurði vægast sagt aulalegrar
spurningar þegar spurt var hvaða
tónlist það væri sem myndi hljó-
ma á öldum ljósvakans og fékk
svarið: „Að sjálfsögðu er ekkert
leikið annað en kántrýtónlist."
Hallbjörn var spurður að því
að lokum hvort innkoma hans yrði
jafn glæsileg og undanfarnar
Kántrýhátíðir. „Ég ætla að reyna
það, það má ekki bregða út af van-
anum. Maður þai'f að halda uppi
dampinum í þessu.“
kolbrun@frettabladid.is
Komdu fagnandi og gerðu góð kaup
Hamingjutilboð
Kaupir þú Citroén Xsara eða Xsara
Picasso á Hamingjudögumfylgja álfelg-
ur, litaðar rúður, vindskeið og króm á
pústið með í kaupunum.
Frábærar viðtökur
Nú höfum við afhent íoo. Citroén-
bílinn og í tilefni af þvi höldum við
Hamingjudaga Citroén í Reykjavík og á
Akureyri. Komdu og gerðu frábær kaup.
FRÉTTIR AF FÓLKI
tuytlnlk
Brimborg
Bildshöfða 6
Slmi 515 7000
Bnmborg
Tryggvabraut 5
Reyöarf)ör&ur
Bíley
Búðareyn 33
Slmi 474 1453
Saitoss
Betri bilasalan
Hrísmýri 2a
Simi 482 3100
Bilasalan Bílavik
Njarðarbraut 15
Sirai421 7800
www.biimborg.is
HORFÐU í NÝIAÁTT-SIÁÐU OTROÉN
Citroen Xsara Picasso
Sérlega glæsilegur 5 dyra fjölnotabíll með
kraftmikilli 1,81 og 16 ventla vél.
CitroenXsaia
Frábærir aksturseiginleikar og þétt veg-
grip. 1,61 og 16 ventla vél.
LQ.QQ.kr.
bnmborg
4