Fréttablaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 4
SVONA ERUM VIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 10. ágúst 2001 FÖSTUDACUR FJÖLDI VINNUSTUNDA A VIKU EFTIR KYNJUM - VIÐSKIPTAFRÆÐINCAR Nokkuð hefur dregið saman milli karl- og kvenviðskiptafræðinga hvað varðar vinnu- framlag. Þó er vinnutími karla ennþá um 8% lengri en kvenna. Löggiltir endurskoð- endur og forstjórar vinna mest, eða tæpar 60 stundir á viku. 50 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 19971999 2001 19971999 2001 SEGJAST SAKLAUSIR Bosnísku sagborningarnir lýsa yfir sakleysi sínu í réttarsalnum í Haag. Þrír bosnískir múslimar ákærðir í Haag: Segjast saklausir af stríðsglæpum haag. hollandi, ap. Þrír bosnískir múslimar sögðust saklausir af alls 19 ákærum um stríðsglæpi við stríðsglæpadómstólinn í Haag í gær. Sögðust þeir ekki vera ábyrgir fyrir morðum á að minns- ta kosti 200 Serbum og Króötum á meðan á stríðinu í Bosníu stóð. Mennirnir, tveir hershöfðingjar og einn ofursti, voru fluttir til Haag sl. föstudag eftir að hafa verið handteknir af bosnísku lög- reglunni deginum áður. Stríðsglæpadómstóllinn, sem stofnaður var af Sameinuðu þjóð- unum árið 1993, hefur nú í haldi sínu 43 grunaða stríðsglæpa- menn, þ.á.m. Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu. ■ INNLENT Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 42.1% fylgi í nýrri könn- un DV, 6.5% meira en í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokks mældist 12.7%, 4.4% minna en síðast. Fylgi frjálslyndra mælist nú 4.8% en var 5.9% síðast. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 18.0% og hefur aukist um 2.2.% frá síðustu könnun. Vinstrihreyf- ingin - grænt framboð fékk stuðning 20.9% svarenda, 4.1% færri en síðast. Fjórir útlendingar afplána nú dóm hér á landi vegna fíkni- efnainnflutnings; Dani ítali, Þjóð- verji og maður frá Grænhöfða- eyjum.Þá sitja Breti, Pólverji og Portúgali í gæsluvarðhaldi. Tvær ítalskar stúlkur og ein hollensk luku nýlega við afplánun dóma vegna fíkniefnainnflutnings. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflug- velli segir viðlíka fjöldi erlendra fíkniefnasmyglara aldrei áður hafa afplánað dóm eða setið í gæsluvarðhaldi á sama tíma. Morgunblaðið greindi frá. ■ ÞUNGIR Á BRÚN Kenneth Weaver, forstjóri rannsóknardeildar innan Póstmálastofnunar Bandaríkjanna og John Ashcroft, yfirmaður dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna tilkynna blaðamönnum um afhjúpun barnaklámhringsins. Megawati Sukarnoputri Indónesíuforseti: Tilkynnti nýja ráðherraskipcm JAKARTA, INDÓNESÍU. AP. Megawati Sukarnoputri, nýkjörinn forseti Indónesíu, tilkynnti nýja ráð- herraskipan ríkisstjórnar sinnar í gær. Er þar að mestu að finna óflokksbunda sérfræðinga sem að sögn Megawati munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hífa Indónesíu upp úr þeirri efnahagslægð sem verið hefur að sliga landið. Tilkynningin í gær batt þar með enda á miklar vangaveltur í landinu um ráðherraskipanina sem staðið hafa yfir allt frá því hún náði kjöri þann 23. júlí sl. „Þjóðareining verður efst á dagskrá ríkisstjórnarinnar," sagði Megawati í sjónvarps- ávarpi. „Okkur stafar mikil ógn af umhverfis- og félagslegri sundrungu.“ Bætti hún því við að hinu nýja ráðherraliði væri ætlað að bæta samskipti landsins við erlenda lánadrottna, sem Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn hefur umsjón með. ■ BROSMILD Megawati Sukarnoputri veifar til almenn- ings þegar hún mætti til vinnu í forseta- höllinni I Jakarta í fyrsta sinn. Alþj óðastj órnmál: Leiðtogafundur haldinn í úthverfl stokkhólmur. svíÞJÓÐ. ap. Að minns- ta kosti 12 heimsleiðtogar munu í næsta mánuði hittast á tveggja daga ráðstefnu í úthverfinu Salt- sjoebade í suðausturhluta Svíþjóð- ar, en ákveðið var að halda fundinn þar vegna öryggisástæðna. í hópi leiðtoganna verða m.a. Gerard Schroeder, kanslari Þýskalands og Fernando de la Rua, forseti Argent- ínu, en þeir eru í hópi leiðtoga sem staðsetja sig vinstra megin við miðju í stjórnmálum og eru með- limir í sérstakri framfarastjórn. Á fundinum verður m.a. rætt um nauðsyn þess að brúa sístækkandi bilið á milli ríkra og fátækra í heim- inum. ■ Barnaklámhringur upp- rættur í Bandaríkjunum 100 áskrifendur barnaklámsíðna á Netinu handteknir washington. ap. Eitt hundrað áskrif- endur barnaklámsíðna á Netinu hafa verið handteknir eftir leyni- lega rannsókn sem sérstök rann- sóknardeild innan Póstmálastofn- unar Bandaríkjanna stóð fyrir með aðstoð lögregluyfirvalda í Dallas í Texas-fylki. Að sögn bandarískra yfirvalda er þetta stærsti barnaklámhringur sem flett hefur ofan af í landinu fram að þessu. Rannsóknin, sem gekk undir nafninu „Operation Avalanche,“ stóð yfir í tvö ár og byrjaði þegar rannsókn hófst á netfyrirtækinu Landslide Productions Inc., sem staðsett er í Fort Worth í Texas. Veitti fyrirtækið viðskiptavinum þess sem borguðu um 3000 króna mánaðargjald, aðgang að barnaklámsíðum á Netinu sem báru nöfn eins og „Cyber Lolita" og Child Rape.“ Einnig gátu áskrif- endur um heim allan sett inn á Net- ið eða svarað smáauglýsingum sem tengdust barnaklámi. Alls voru um 250 þúsund áskrif- endur að vefsíðunni um heim allan og er talið að Landslide-fyrirtækið hafi grætt um 150 milljónir króna á ári á viðskiptum sínum. í rann- sókninni var ákveðið að einbeita sér að stærstu áskrifendunum að klámsíðunni innan Bandaríkjanna og var leitað að 144 áskrifendum í 37 fylkjum. Nöfn þeirra sem handteknir voru hafa ekki verið birt, en að sögn lögreglunnar hafði einn áskrifendanna þegar framið sjálfs- morð. Fimm aðrar alþjóðlegar vef- síður hafa einnig verið rannsakaðir í tengslum við málið, en enginn hefur enn verið handtekinn. ■ Útköll þyrlu Landhelgisgæslunnar: Menn fara að vera meira á bremsunni landhelgisgæslan „Það er óneit- anlega mannlegt ef að útköll sem reynast síðan ónauðsynleg fara að aukast að menn fari að vera meira á bremsunni og varkárari um sig,“ sagði Benóný Ásgríms- son, flugstjóri þyrlu Landhelgis- gæslunnar, en áhöfn þyrlunnar var sett í viðbragðsstöðu á mið- vikudagskvöldið þegar bílvelta varð á Kaldárdal en reyndist síð- an ekki nauðsynlegt að sinna en það var vegfarandi sem leið átti hjá sem tilkynnti um slysið. Ben- óný var spurður að því hvort kom- ið hefðu upp útköll sem hægt hefði verið að sinna með öðrum hætti. „Það hafa vissulega komið upp slík tilfelli sem eftir á að hyg- gja hefði mátt leysa með öðrum hætti. Slík tilfelli eru öll skráð niður og sett niður í flokka hvað hefði verið æskilegt að gera og hvaða tilfelli lífsnauðsynleg." Benóný sagði á móti hafa komið upp þau tilfelli þar sem ástandið hafi verið mun verra en í fyrstu var talið. Sagði hann stefnu Land- helgisgæslunnar að betra væri að fara á fleiri staði en færri. Halldór B. Nellett, yfirmaður gæsluframkvæmda Landhelgis- gæslunnar sagði það oft koma fyr- ir að flugáhöfn Landhelgisgæsl- unnar var sett í viðbragðsstöðu án þess að kæmi til útkalls. Sagði hann að í þeim tilfellum væri læknir yfirleitt ekki kominn á staðinn og ekki búið að skoða þann slasaða. „Okkur finnst betra að sinna þessu svona og skynsam- legra fyrir alla aðila því það spar- ar tíma og við erum þá fljótari á staðinn ef á þarf að halda." ■ UNNIÐ VIÐ BJÖRGUNARSTÖRF Venjan við útköll er sú að farið er eftir því sem læknir I viðkomandi héruðum sem kom- inn er á slysstað óskar eftir. I tilkynningar berast utan af sjó er það læknir Landhelgisgæsl- unnar sem vegur og metur þörfina i gegnum síma áður en lagt er í ferð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.