Fréttablaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 10. ágúst 2001 FÖSTUPACUR VERKSUMMERKI KÖNNUÐ Sprengingin varð að nóttu, nokkrum klukkutímum áður en fjölsóttur útimarkaður í næsta nágrenni opnaði. LÖCRECLUFRÉTTIR Fjörtíu og einn ökumaður var stöðvaður vegna hraðaksturs í fyrradag. Að sögn talsmanns var ekki um neitt met að ræða en algengt er að hátt í fjörtíu manns séu teknir vegna hraðaksturs dag- lega. —♦— • • Okumaður bifreiðar var tek- inn í fyrrinótt og settur í fangageymslu lögreglunnar á Selfossi grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Var maður stöðvaður þar sem hann keyrðir á Suðurlandsveg- inum. Manninum hefur verið sleppt og fer málið í hendur dómsyfirvalda. ■ Feneyjar: Sprenging í dómhúsi feneyjar. ap Lögregluyfirvöld í Feneyjum kanna nú hvort spreng- ing í dómhúsi í borginni aðfara- nótt fimmtudags hafi verið af mannavöldum en í fyrstu var talið að hana mætti rekja til gasleka. Lögreglumaður sem var á vakt slasaðist lítillega í sprengingunni sem olli talsverðum skemmdum á dómshúsinu auk þess sem rúður í nærliggjandi húsum brotnuðu. Rannsóknarmenn á vettvangi fundu leifar af sprengjuefni þeg- ar þeir voru að kanna hvernig sprengingin hefði átt sér stað. Enn hefur enginn lýst ábyrgð á sprengingunni á hendur sér og óvíst er hvort hún hafi tengst heimsókn Silvio Berlusconis, for- sætisráðherra Ítalíu, til borgar- innar í gær. Berlusconi, sem var staddur í Róm þegar sprengingin átti sér stað, sagði að hún væri til marks um að ofbeldi væri að aukast. Sprengjuárásin í Feneyj- um fylgir í kjölfar fjölda sprengjuárása sem áttu sér stað í Milan, Bologna og Treviso síðustu dagana fyrir fund átta helstu iðn- ríkja heims sem fram fór í Genúa í síðasta mánuði. ■ Átta myrtir á Indlandi Dóu vegna launadeilu boivibay. indlandi.ap Átta manns fundust myrtir í verksmiðju í Bombay í gær. Ekki er vitað hverj- ir frömdu morðin en talið er að þau megi rekja til launadeilu innan verksmiðjunnar. Hinir myrtu voru forstjórinn, bróðir hans, matsveinn og fimm aðrir starfsmenn, sem unnu við að framleiða ökklabönd og armbönd. Líkin báru þess merki að fólkið hafði verið kyrkt eða hengt en einnig vour á þeim áverkar eftir barksmíðar. Nágrannar sögðu að hatrammar launadeilur hefðu lengi staðið yfir milli forstjórans og starfsmanna. Morðingjanna er leit- að. ■ Félagsbústaðir: Vísar á viðhalds- þjónustu Vandræði þar sem leiguíbúðir eru margar Amma skrifar fyrir hönd barnabarna sinna og lýsir áhyggjum af að- stæðum þeirra. Félagsþjónustan ætlar að skoða málið. HIÐ UMRÆDDA FJÖLBÝLISHÚS í lesendabréfinu kemur fram að viðhaldi íbúðanna sé mjög ábótavant. Þær þarfnist máln- ingar og annars eðlilegs viðhalds. Einnig segir að það sjáist ekki út um sumar rúðurnar vegna móðu á gleri. leicuhúsnæði „Við erum með sér- stakan mann sem gerir ekkert ann- að en að kanna sorpgeymslur þan- nig að halda því fram að sorprenn- ur séu alltaf stíflaðar held ég að eigi ekki við rök að styðjast," sagði Sigurður Friðriksson, framkvæmd- arstjóri Félagsbústaða þegar Fréttablaðið spurði hann út í við- haldsmálin í Jórufelli 10. Sigurður sagði fnykinn sem konan vísaði til hafa stafað af allt öðru máli en vildi ekki láta hafa eftir sér um hvað það snérist. Sigurður sagði að þegar væri búið að snyrta lóðina fyrir framan húsið og laga bílastæði. „Einnig erum við að mála húsið eins og kom fram í lesendabréfinu en það er nú einu sinni þannig að mað- ur byrjar einhvers staðar að mála og við byrjum á framhliðinni." Sig- urður sagði framkvæmdir á baklóð fyrirhugaðar og að fram færi kerf- isbundið viðhald á íbúðunum. Hvað varðaði móðu á gluggum sagði hann að ráðin yrði bót á því og skipt um rúður. Sigurður vildi beina þeim til- mælum til mæðgnanna að hafa samband við viðhaldsþjónstu Fé- lagsbústaða ef þeim þætti eitthvað ábótavant í íbúðinni og að eins og góðum leigusölum sæmdi yrði reynt að bæta úr því. ■ INNLENT Flugvél frá SAS á leið frá Kaup- mannahafnar til New York millilenti í Keflavík kl. 16:34 vegna veikinda tveggja kvenna úr hópi farþega. Víkurfrettir.is greindu frá og jafnframt að ekki hafi legið fyrir hvað konurnar hrjáði. Sjúkralið tók við konunum og kom þeim undir læknishendur en vélin hélt á brott eftir um hálf- tíma viðdvöl. ■ leiguÍBÚðir „Sorprennslugeymsl- an er stöðugt stífluð og fnyk legg- ur um allt húsið.“ Þetta skrifaði amma fyrir hönd barnabarna sinna í lesendabréfi sem Frétta- blaðið birti síðastliðinn þriðjudag. í bréfinu lýsir hún ófögru ástandi fjölbýlishússins að Jórufelli 10 í Breiðholtinu og segir viðhaldi íbúðanna ábótavant. Blaðamaður hafði samband við Félagsþjónust- una í Reykjavík og ræddi við Stellu Víðisdóttur, staðgengil fé- lagsmálastjóra, og innti hana eft- ir því hvort þessi lýsing væri al- geng á leiguhúsnæðum á vegum borgarinnar. „Nei, það held ég að ég geti fullyrt að svo er ekki.“ Stella sagði Félagsbústaði hf. reka leiguhúsnæði á vegum Reykjavíkurborgar en þau hjá Fé- lagsþjónustunni fylgdust grannt með ástandinu. „Eg held að ég geti fullyrt að það er vel haldið utan um þetta og hefur verið mjög til bóta undanfarin ár miðað hvernig var.“ Stella sagðist ekki vita nákvæmlega um þetta til- greinda hús í Jórufellinu en sagð- ist vita að framkvæmdir við end- urnýjun á blokkum í Breiðholtinu væri í gangi hjá Félagsbústöðum. Stella var spurð að því hvort Félagsþjónustan myndi bregðast við þessum bréfi. „Það er erfitt eins og er en allir formlegir fund- ir liggja niðri vegna sumarfría. En að sjálfsögðu ræðum við alltaf þessa hluti þegar þeir koma upp og öll lesendabréf sem birtast og snerta okkur.“ í lesendabréfinu er bent á að borgin verði að athuga sinn gang í því að velja saman íbúa í stiga- gang og velji ekki saman vand- ræðarfólk og venjulegt barna- fólk. „Það er auðvitað reynt. Margt af þessu fólki þekkjum við og vitum kannski að einhverjir ákveðnir einstaklingar passa ekki með öðrum og svo framvegis. Við reynum að stýra því en það skap- ast oft vandræðaástand í þessum blokkum þar sem við erum með mikið af íbúðum. Það þarf kanns- ki ekki nema einn en yfirleitt og upp til hópa er þetta prýðisfólk sem leigir hjá Reykjavíkurborg - þó fólk haldi eitthvað annað. „ Stella sagði það vera liðna tíð að kaupa margar íbúðir í sama stiga- gangi. „Þetta var gert og var t.a.m. mikið gert að því í Breið- holtinu. Það er skýr stefna í dag að kaupa einungis eina íbúð í stigagangi," sagði Stella að lokum og ítrekaði að þetta mál yrði skoð- að nánar. kolbrun@frettabladid.is Jíauit- Of uetuk 2.001 4Uuuu.Meemaul.ii> Ný og glæsileg Freemans verslun hefur verið opn- uð að Bæjarhrauni 14 í Hafnarfirði Laugardaginn 11. ágúst verður opnunarhátíð í versluninni þar sem gest- ir fá m.a. 10% afslátt af öllum vörum, fríann Freemanslista og allir krakkar fá glaðning Innbrot í bíla: Svakaleg bylgja í gangi lögreglumál „Það er svakaleg bylgja í gangi,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Reykjavík, og átti þá við innbrot í bíla. Sagði hann innbrotin fara fram um alla borgina og ekki einskorðast við ákveðin svæði. í fyrrinótt var t.a.m. farið inn í fjórar bifreiðar sem stóðu á Reykjavíkurflug- velli og var úr einni þeirra tek- inn barnabílstóll og barnakerra. Sagðist viðmælandi Frétta- blaðsins vilja beina þeim tilmæl- um til bíleigenda að taka „front- inn“ úr geislaspilurum sínum, en um væri að ræða eitt handtak, og taka með sér inn. Einnig vildi hann ítreka fyrir fólki að geyma ekki né hafa sjáanleg ýmis verð- mæti, geisladiska og því um líkt. Sagði hann oft 1-2 rúður brotnar í hverri bifreið þegar innbrot væru framin. ■ ÓLAFUR F. MAGNÚS- SON „Það virðist vera eins og það sé ennþá ríkjandi skoðun að það megi nánast fórna hverju sem er af náttúrugæðum fyrir skammtíma ávinning," segir Ólafur. Ólafur F. Magnússon: Kjarkleysi kjörinna fulltrúa virkjun „Ég lít svo á að það sé ekki bannað að fylgja sannfær- ingu sinni innan Sjálfstæðis- flokksins. Ég hef vissulega hitt menn sem hafa veist harka- lega að mér fyrir að halda minni s k o ð u n svona fast fram og láta ekki hagsmuni flokksins alfarið ráða í þessu máli en lít svo á að til lengri tíma litið séu það hagsmunir flokksins að gera þessa s t e f n u sveigjan- legri og nú- tímalegri," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, sem hefur barist gegn virkjanaáformum ríkisstjórnarinnar. Ólafur ætlar að leggja fram tillögu á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins í október um að flokk- urinn fylgi ekki virkjunarstefnu formanns Framsóknarflokksins, eins og hann kallar það, heldur finni leið sem fjölmargir sjálf- stæðismenn telja ásættanlega. „Ég held að ég sé síður en svo í mjög miklum minnihluta með þessi náttúruverndarsjónarmið innan flokksins. Þeim er að vaxa fiskur um hrygg.“ Ólafur segir marga stuðn- ingsmenn flokksins þakkláta baráttu hans og jafnvel stöðvi hann á götu til að hvetja hann áfram. „Ég hef þurft að hefja þessa baráttu í miklum mótvindi en tel hana það mikilvæga að það sé á sig leggjandi. Þetta er það mikilvægur málstaður og tel flokkinn ekki fá góð ummæli eft- ir nokkur ár ef hann sveigir ekki frá þessari stefnu, sem mér finnst alltof hörð. Það er gengið of langt í róttækum virkjunará- formum og uppbyggingu stór- iðju. Þó ég sé hvorugu á móti þá vil ég stíga þessi skref miklu hægar og af meiri varfærni.“ En telurðu menn raga við að halda þessari skoðun sinn fram vegna afstöðu forystu flokksins? „Já, því miður. Mér finnst votta fyrir allt of miklu kjark- leysi meðal kjörinna fulltrúa og það er alls ekki eðlilegt. Ég á erfitt með að sætta mig við það og minni á kjörorð flokksins „Gjör rétt, þoli órétt“, er það ekki hvatning að menn fylgi sannfæringu sinni?“ segir Ólaf- ur F. Magnússon. bjorgvin@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.