Fréttablaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
10. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ
GERA UIW HELGINA?
Borgþór Kjærnested
eftirlitsfulltrúi ITF á íslandi
Ég ætla að ganga á Esjuna með dóttur
minni. Ég er að reyna að stunda útivist. Ég
hef einu sinni áður komist alla leið upp á
Esjuna og stefni að því að endurtaka það.
DÓMKIRKJA OG MIÐSTÖÐ
MENNINGAR
Fiytjendur á Sumartónleikum í Skálholti
um helgina koma frá Ítalíu.
Síðasta Sumartónleika-
helgin í Skálholti:
Gregors-
söngur og
orgelverk
tónlist Um helgina er fimmta og
síðasta tónleikahelgi Sumartón-
leika í Skálholtskirkju. ítalski
sönghópurinn Schola Gregoriana
Virorum undir stjórn Alberto
T’urco og orgelleikarinn Giancarlo
Parodi flytja Gregorssöng og ítöl-
sk orgelverk.
Gregorssöngur er messusöng-
ur, sem rekja má til fyrri hluta
miðalda og er sunginn á latínu.
Ekki er vitað neitt með vissu um
uppruna og elstu þróun Gregors-
söngsins en elstu heimildir um
tónlistina er að finna í handritum
frá 10. öld, þar sem notuð var
mjög sérstök nótnaskrift, hin svo-
kaliaða naumuskrift, til skrásetn-
ingar messusöngsins.
Messusöngurinn var sunginn
til skiptis af sólista, kór og söfnuði
og þróaðist smám saman frá því
að vera mjög einfaldur, einradda
söngur, í að verða flóknari fjöl-
radda tónsmíð. Seinna varð orgel-
leikur hluti af tónlistarflutningn-
um, þar sem orgelið tók við hlut-
verki forsöngvara.
Tónleikarnir í Skálholti um
helgina eru gott dæmi um það
hvernig þessar messur fóru fram,
þar sem orgelleikari og kór skipt-
ust á við flutning tónlistarinnar.
Á seinni tónleikunum á laugar-
daginn flytur ítalski orgelleikar-
inn Giancarlo Parodi ítölsk orgel-
verk. Giancarlo Parodi á glæsileg-
an feril sem einleikari að baki.
Hann hefur haldið tónleika víða
um heim og alls staðar hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda. Á Ítalíu
hefur Parodi haslað sér völl meðal
fremstu orgelleikara landsins og
er enn í dag mikilsvirtur einleik-
ari. ■
Er skammturinn búinn?
Haföu samband viö mig
ef þig vantar vörur.
Sjálfstæður Herbalife
dreifingaraöili
(1
simi 897 2099
Fröken Júlía kemur úr sumarfríi:
Sýning sem storkar
leikhús Leiksýningin Fröken Júl-
ía - enn og aftur alveg óð er
komin aftur á fjalirnar eftir
sumarfrí en sýningin var frum-
sýnd í júní. Sýningin hlaut mjög
góðar viðtökur fyrr í sumar.
Leikstjóri sýningarinnar er
Rúnar Guðbrandsson en leikar-
arnir eru þrír. Pálína Jónsdóttir
leikur Júlíu, Sigrún Sól leikur
Jennýju og Árni Pétur Guðjóns-
son leikur kokkinn, þriðju hlið-
ina á þessum sjóðheita ástarþrí-
hyrningi.
Leikritið er byggt á verki
Augusts Strindbergs, en í leik-
gerðinni skipta tvær persónur
um kyn. Fröken Júlía, sem er
dóttir herragarðseiganda í Sví-
þjóð, komst í upphaflegri gerð
verksins í hættulega náin kynni
við Jean, þjóninn á herragarðin:
um, og fall hennar var mikið. í
leikgerð Einleikhússins er Jean
orðinn að konu og gegnir nafn-
inu Jenný, en eldabuskan Krist-
ín er orðin að kokki sem heitir
Kristinn.
Leikritið er sýnt í Smiðjunni,
húsnæði leiklistardeildar Lista-
háskóla íslands, Sölvhólsgötu 13
og er gengið inn um port frá
Klapparstíg. Sýningar standa
aðeins út ágúst. ■
FRÖKEN JÚLÍA OG ÁSTKONAN
Pálína Jónsdóttir og Sigrún Sól Ólafsdóttir í hlutverkum sínum.
FÖSTUDAGURINN
10. ÁGUST
LEIKHÚS___________________________
20.00 Leikfélagið Ofleikur sýnir leikritið
E í Tjarnarbiói og annað kvöld.
Jón Gunnar Þórðarson er leikstjóri
og höfundur handrits. Höfundur
tónlistar er Valdimar Björn Ás-
geirsson og Ijósahönnun er í
höndum Sverris Kristjánssonar.
Unglingar á aldrinum 15 og 16
ára fara með öll hlutverk í sýning-
unni.
20.00 Einleikhúsið sýnir leikritið Fröken
Júlía - enn og aftur alveg ó i
Smiðjunni Sölvhólsgötu 13.
20.30 Söngleikurinn Hedwig er sýndur í
Loftkastalanum í kvöld. Aðalhlut-
verkið er í höndum Björgvins
Franz Gíslasonar en Magnús Geir
Þórðarson leikstýrir sýningunni.
Höfundur er John Cameron
Mitchell.
ÓPERA____________________________
20.00 í kvöld verða fluttar óperurnar Gi-
anni Schicchi eftir Giacomo
Puccini og Requiem - Sálumessa
eftir Sigurð Saevarsson á vegum
Norðuróps - óperuhátfðar í
Reykjanesbæ. Listrænn stjórn-
andi er Jóhann Smári Sævarsson,
hljómsveitarstjóri Garðar Cortes
og leikstjóri Jón Páll Stefánsson.
Sýnt er í Dráttarbrautinni við
smábátahöfnina í Keflavík. Óper-
urnar verða fluttar aftur annað
kvöld og á sunnudagskvöld og
eru þetta einu sýningarnar.
TÓNLEIKAR_________________________
21.30 Hin síunga hljómsveit Lúdó og
Stefán heldur uppi fjörinu á Kaffi
Reykjavík I kvöld og annað kvöld.
SKEMMTANIR________________________
21.00 Hinsegin dagar I Reykjavík. í kvöld
verður standi grín með Minu
Hartong í Kaffileikhúsínu og að
því loknu leikur hljómsveitin
Móðinz.
SÝNINGAR__________________________
í kvöld kl. 20 verður opnuð Ijósmynda-
sýning í Lionsheimilinu Sóltúni 20 sem
ber yfirskriftina Lions í leik og starfi. Til-
efnið er að 14. ágúst fagnar Lionshreyf-
ingin á Islandi því að 50 ár eru liðin síð-
an fyrsti íslenski Lionsklúbburinn tók til
starfa. Sýningin verður opin, laugardag
og sunnudag kl. 13 - 16 og frá mánu-
degi tii fimmtudags kl. 12 - 18.
Á efri hæð Hafnarborgar stendur sýning
á Ijósmyndum eftir Hans Malmberg frá
því um 1950. Sýningin nefnist fsland
1951 og er f samvinnu við Þjóðmínja-
safn íslands. Sýningin er opin frá kl. 12
Heimstónlist í Þjóðleik-
húskj allaranum:
Gleðin
við völd
tónleikar í kvöld verður haldið
dansiball í Þjóðleikhúskjallaran-
um þar sem gleðisveitin Heavy
Metal Bee Folk leikur heimstón-
list með dansvænum takti.
Hljómsveitin varð til í borg-
inni Graz í Austurríki og eru
meðlimir hennar sex, allir nem-
endur við Tónlistarháskólann
þar í borg. Bakgrunnur hljóm-
sveitarmeðlima er bæði í klassík
og djassi og hljóðfæraskipanin
er harmónikka, fiðla, saxófónn,
básúna, trommur og bassi. Fé-
lagar Heavy Metal Bee Folk eru
allir austurrískir nema Helgi
Hrafn Jónsson básúnuleikari.
„Bandið varð til fyrir um ári.
Saxófónleikarinn og fiðluleikar-
inn höfðu verið að bræða með
sér þjóðlög ýmissa landa, og æfa
upp nýjan samspilsstíl. Svo vildu
þeir gera eitthvað meira úr
þessu og vinna með það sem þeir
höfðu verið að læra í jazzi úr því
varð hljómsveitin til.“ Svokölluð
Balkanmúsík skipar nokkuð
stóran sess hjá hljómsveitinni en
einnig má nefna lönd eins og ír-
land, Austurríki, Indland, Frakk-
land og ísland. Öll lögin eru leik-
in í útsetningum hljómsveitar-
manna og gætir þá sterkra áhri-
fa frá jazzi. „Þarna úir og grúir
af orkumikilli danstónlist ým-
issa landa sem sett er saman
með danstakti trommuleikar-
ans,“ segir Helgi Hrafn. „Við
erum að æfa upp nýtt tveggja
tíma prógramm," segir hann.
„Það gengur mjög vel en þetta er
erfitt því þetta er músik sem
krefst mikillar orku.“ Hann seg-
ir tónlistina ekki fasta í forminu
og inn á milli komi frjálsir kafl-
ar þar sem þeir félagar leika af
fingrum fram.
Hljómsveitin hefur notið vin-
sælda í Austurríki. „Við höfðum
mikið að gera og höfum yfirleitt
slegið í gegn þar sem við höfum
spilað," segir Helgi.
Áhersla verður að sjálfsögðu
lögð á dansstemninguna í Þjóð-
leikhúskjallarinn í kvöld en þá
byrja þeir félagar að leika á mið-
nætti. Á morgun leikur hljóm-
sveitin á Sumardjassi Jómfrú-
rinnar kl. 16 og síðustu tónleikar
Ileavy Metal Bee Folk á íslandi
að þessu sinni verða í Kaffileik-
húsinu næsta miðvikudag. Þeir
sem vilja taka forskot á sæluna
geta fengið að heyra í hljóm-
til 18 alla daga nema þriðjudaga og
henni lýkur 27. ágúst.
í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn-
ingar. í Lækjargötu 4 er sýningin Saga
Reykjavíkur - frá býli til borgar. í Kjöt-
húsi er sýningin Saga byggingatækn-
innar. í Likn er sýningin Minningar úr
húsi. Sýningin í Suðurgötu 7 ber yfir-
skriftina: Til fegurðarauka. Sýning á út-
saumi og hannyrðum. ÍEfstabæ má sjá
hvernig tvær fjölskyldur bjuggu í húsinu
um 1930. Safnið er opið þriðjudaga til
föstudaga frá 9.00 til 17.00. Um helgar
er opið frá 10.00 til 18.00.
MYNPLIST_____________________________
Max Cole sýnir í i8gallerí. Myndirnar
byggjast á láréttum linum sem myndaðar
eru með smágerðum lóðréttum hreyfing-
um. Samspil láréttra forma og einsleitra
litaflata mynda taktfastan samhljóm.
Thomas Ruppel sýnir 1 neðra rými
iögallerí. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga og mánudaga frá kl.
13 til 17 og lýkur henni 15. september.
Á Sjóminjasafni íslands í Hafnarfirði
stendur nú sýning grænlenska lista-
mannsins Johannesar Kreutzmann.
Hann sýnir málaðar tréskurðarmyndir.
Sýningin er opin milli kl. 13 og 17 og
lýkur sýningunni 2. september.
Listin til fólksins:
Hreinn Friðfinnsson í Ljósaklifi:
Listhús á hjólum
mynplist Um næstu helgi
tekur til starfa nýtt fjöl-
notalisthús, E-541 Listhús
en það er appelsínugult
rúgbrauð árgerð 1978.
Listhúsið er þeirrar nátt-
úru að það ekur um en er
þó allajafna búsett í vest-
urbænum í Reykjavík.
Hugmyndin að baki list-
húsinu er fremur að hýsa
listræn augnablik en lang-
ar og leiðinlegar, kyrr-
stæðar sýningar. Yfirferð,
snerpa og sveigjanleiki
eru þess helstu kostir og
sem slíkt er það áskorun til
listamanna um að sleppa
fram af sér beislinu.
Hreinn Friðfinnsson mynd-
listarmaður ríður á vaðið
RÚGBRAUÐ í ÞÁGU LISTAR
E-541 sem er apelsínugulur Volkswagen rúgbrauð
mun I nánustu framtíð hýsa listsýningar.
þegar
listhúsið mætir á opnun sýningar
hans í Ljósaklifi í Hafnarfirði um
kl. 16:30 á laugardaginn. ■
Naumhyggja og hógværð
mynplist Eitthvað hvítt, eitthvað
svart og eitthvað hvorki hvítt né
svart, heitir sýning Hreins Frið-
finnssonar sem opnar laugardag-
inn 11. ágúst kl. 16.00 í Ljósaklifi í
Hafnarfirði. Sýningin er opin
föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga kl. 14 - 18 til 3.september.
Ljósaklif er í grennd við Hrafn-
istu á vernduðu hraunsvæði við
sjóinn vestast í Hafnarfirði og er
aðkoma frá Herjólfsbraut.
Hreinn Friðfinnsson hefur
starfað við myndlist í um fjörutíu
ár, haldið á sjötta tug einkasýn-
inga og tekið þátt í enn fleiri sam-
sýningum víða um heim. Verk eft-
ir hann eru í eigu fjölda listasafna
í Evrópu. Á síðasta ári hlaut
Hreinn finnsku Ars Fennica verð-
launin fyrir myndlist sína og í til-
efni af því gaf verðlaunaveitand-
inn, Henna og
Pertti Niemistö
listastofnunin,
út veglega bók
um myndlist
hans. Sama ár
hlaut hann önn-
ur verðlaun
Carnegie-mynd-
listarverðlaun-
anna.
Ljóðræn naumhyggja og hóg-
værð ásamt fínstilltum einfald-
leika og skýrleika í framsetningu
hugmynda hafa verið helstu ein-
kennin á myndlist hans. Hreinn er
skáld sem yrkir naumt í ýmiss
efni um samband manns og nátt-
úru og aðra hversdagslega hluti af
fágaðri næmni og látleysi. Þannig
snertir hann oft dýpstu strengina
með einföldustu aðferðunum. ■
HREINN FRIÐ-
FINNSSON