Fréttablaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 12
ISLENSKA AUClfSINCASTOFAN/SIA.IS (Kl ISI42 OS/2091 12 FRÉTTABLAÐIÐ 10. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR 'r ' mim 1 m WæS&ffi pjfej Ö Ö wB wK Götumarkaðsstemmning til laugardags. UpplýsinersImi 588 7718 SkrifstofujImi 888 9708 Myndað Lögregla hefur yfirfarið Búist er við að ákæra LÖCRECLUMÁL Búist er við að fljótlega verði gefin út ákæra á hendur rúm- lega þrítugum manni sem talinn er hafa myndað gesti á gistiheimilinu Tærgesen á Reyðarfirði með falinni myndavél á baðherbergi. Hinn grunaði var hótelstjóri á Tærgesen í júní allt þar til stúlkur úr þýskum kirkjukór fundu falda myndavél á baðherbergi gistiheimil- isins og kærðu manninn til lögreglu. Jónas Vilhelmsson, yfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á Eskifirði, seg- ir að líklega verði ákært fyrir brot á lögum um persónuvernd og vegna ÞAR MUN LAND RÍSA Á landfyllingu hér telur Högni að hægt sé að koma fyrir hjúkrunarheimili, menntaskóla og íbúðabyggð. Rætt hefur verið um að flytja Kvennaskóla Reykjavíkur um set og segir Högni að þarna sé að finna góðan valkost fyrir frekari uppbyggingu skólans. Hitabylgja í austurhluta Bandaríkanna: Heitasti dagur ársins í gær new york. ap. Mikil hitabylga hef- ur gengið yfir austurhluta Banda- ríkjanna undanfarið. Dagurinn í gær var sagður heitasti dagur árs- ins í New York borg, en búist var víð því að hitastig þar myndi ná 38°C. í bænum Wrightstown í New Jersey náði hitinn hins vegar 46,7° C. Talið er að sex manns hafi látist í miðvesturríkjunum af völdum hitabylgunnar þegar hún gekk þar yfir í síðustu viku. Búist er við að kaldari vindar blási yfir landið í dag og geta menn því farið að anda léttar. ■ STEIKJANDI HITI Þessi mynd var tekin af íbúum New York borgar snemma í gærmorgun í steikjandi hita á leið til vinnu sinnar með State Is- land ferjunni til Manhattan. Elliheimili og mennta- skóli á landfyllingu Neslistinn segir hagkvæmast að hjúkrunarheimili bæjarins rísi á fyrirhugaðri landfyllingu út af Eiðisgranda þar sem Reykjavík stefnir að íbúabyggð og byggingu menntaskóla. SVEITARSTJÓRNARMÁL „ÚtÍVÍStar- svæðið verður friðað áfram, hjúkrunarheimilið verður hag- kvæmara og stækkunarmöguleik- ar þess meiri ef sú leið sem við höfum kynnt verður farin", segir Högni Óskarsson, oddviti Neslist- ans, um tillögur listans þess efnis að fyrirhuguð bygging hjúkrun- arheimilis verði á landfyllingu í Eiðisvík fremur en við Nesstofu eins og til stendur. „Eins og hjúkrunarheimilið er hannað nú er það óhentugt, dýrt í rekstri og stækkunarmöguleikar sem búið er að leggja til eru ekki til staðar. Það fer einnig langt út fyrir þá byggingarreiti sem voru áður til umræðu auk þess sem ekki er möguleiki til að byggja þjónustuíbúðir við hlið hjúkrun- arheimilisins." Hjúkrunarheimil- ið sem nú er rætt um að reisa verður á einni hæð vegna nálægð- ar við Nesstofu og segir Högni að það verði til þess að það verði ekki jafn hagkvæmt og ella. Ef það yrði reist á uppfyllingu yrði hins vegar hægt að reisa það á fleiri hæðum auk þess sem mögu- leikar fyrir stækkun þess og byggingu þjónustuíbúða væri mun meiri. Þá væri sá kostur í stöðunni að á sömu uppfyllingu yrði svæði fyiir íbúðabyggð og menntaskóla. Högni segir að þar sem meiri- hluti hjúkrunarheimilisins yrði notaður af Reykvíkingum væri eðlilegt að Reykjavík kæmi að byggingunni með því að leggja til land. Það mætti gera með því að stækka þá landfyllingu sem rædd hefur verið á vegum Borgar- skipulags Reykjavíkur frá Eiðis- granda út í Eiðisvík. Með stækk- un þeirrar landfyllingar til norð- urs og vesturs mætti búa til það byggingarsvæði sem þörf krefur. Helstu rökin gegn þessu segir Högni þau að ekki er gert ráð fyr- ir að ráðast í umrædda landfyll- ingu á vegum Reykjavíkurborgar fyrr en að nokkrum árum liðnum. Hins vegar mætti ráðast í land- fyllingar í nokkrum áföngum og gæti sá áfangi sem færi undir hjúkrunarheimili og menntaskóla verið fyrsti áfanginn og ráðist í hann fljótlega þó ekki yrði ráðist í aðra áfanga fyrr en að nokkrum árum liðnum. binni@frettabladid.is Bretar og Frakkar: Vilja alþjóðlegt bann á einræktun manna SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR. ap Þýskaland og Frakkland hafa tekið höndum saman um gerður verði alþjóðleg- ur samningur um bann við ein- ræktun manna. Sendiherrar begg- ja ríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum fóru fram á það við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, að slíkur samn- ingur verði settur á dagskrá Alls- herjarþings S.Þ., sem kemur sam- an í næsta mánuði. Allsherjarsþingið staðfesti í mars árið 1999 alþjóðlega yfirlýs- ingu um genamengi mannsins og mannréttindi, þar sem segir að háttsemi, sem er andstæð mann- legri reisn, svo sem einræktun manna, verði ekki leyfð. Ályktun Allsherjarþingsins og yfirlýsing sem Menningarstofnun S.Þ. (UNESCO) samþykkti í nóv- ember 1997 eru hins vegar ekki lagalega bindandi, og fara Frakk- ar og Þjóðverjar nú fram á það að Allsherjarþingið komi á fót nefnd DOLLÝ HIN SKOSKA Nokkrir vísindamenn eru staðráðnir f að búa til menn með sama hætti. til þess að semja lagalega bind- andi alþjóðasamning um bann við einræktun manna. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.