Fréttablaðið - 13.08.2001, Qupperneq 4
FRÉTTABLAÐIÐ
15. ágúst 2001 MÁNUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
ÚTGJÖLD ÍSLENDINGA ERLENDIS
Ferðaþjónustan halaði rúmlega 30 millj-
örðum króna inn í íslenska hagkerfið árið
2000, en árið 1996 voru tekjur af erlend-
um ferðamönnum rúmlega 20 milljarðar.
Hér má hins vegar sjá ferða- og dvalar-
kostnað Islendinga í útlöndum. Tölurnar
sýna milljónir króna á verðlagi hvers árs.
Inni I þessum tölum er dvalarkostnaður ís-
lenskra námsmanna erlendis, en útgjöld
vegna fargjalda eru ekki tekin með.
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Iran:
Rúmlega
100 látnir
teheran. ap Á annað hundrað
manns eru látnir eftir flóð undan-
farinna daga í íran. Þúsundir eru
og heimilislausir eftir rigningarn-
ar í landinu síðustu daga sem hafa
valdið flóðum og skriðum, eyði-
lagt uppskeru og drepið bústofn.
Björgunarsveitir unnu að því
hörðum höndum í gær að grafa lík
undan skriðum. Flugvélar hersins
fluttu íbúa flóðasvæða í bráða-
birgðaskýli í hæðum norðaustur-
hluta írans. Búist var við áfram-
haldandi rigningum í íran.
Eldur í sumarbústað
út frá gasi:
Brann á tutt-
ugu mínútum
ELD5VOÐI Þrjár konur náðu að forða
sér út úr sumarbústað í landi
Stóra-Dals undir Eyjafjöllum sem
brann til kaldra kola á skammri
stundu á laugardagskvöldið. Þær
voru að elda á gaseldavél og
kviknaði í út frá því.
Lögreglan á Hvolsvelli fékk til-
kynningu um brunann um hálf-
áttaleytið á laugardagskvöld og
var komin á staðinn eftir stuttan
tíma. „Eldurinn breiddist mjög
hratt út og það varð ekkert við
ráðið,“ sagði einn lögreglumann-
anna. „Við vorum tiltölulega
snöggir á vettvang, en sáum bú-
staðinn á löngu færi og hann var
þá strax orðinn alelda. Það stóð
ekkert eftir nema einn útveggur
eða svo þegar við komum á stað-
inn.“
„Þetta brann allt saman á rúm-
um tuttugu mínútum," sagði
Ragnar Lárusson bóndi á Stóra-
Dal. ■
Níu létust í Makedóníu:
Herbíl ekið á
jarðsprengju
skopje. ap Átta makedónskir her-
menn féllu og sex til viðbótar
særðust þegar herbíll sem þeir
voru á keyrði yfir jarðsprengju
nærri Skopje á föstudag. Bíllinn
var í herbílalest aðeins tíu kíló-
metra frá höfðuborginni Skopje.
Nokkru eftir að sprengingin átti
sér stað kom til bardaga milli
stjórnarhermanna og uppreisnar-
manna af albönskum uppruna
skammt frá þeim stað þar sem
bíllinn sprakk í Ioft upp.
íbúi í þorpinu Ljuboten, sem
byggt er fólki af albönskum upp-
runa, greindi frá því í símtali að
stjórnarherinn notaði þyrlur til að
skjóta á þorpið meðan nokkur
hundruð íbúar þorpsins leituðu
skjóls í kjöllurum húsa sinna.
Þetta var í fyrsta skipti sem
kom til átaka milli hermanna og
uppreisnarmanna svo nærri höf-
uðborginni frá því átökin hófust í
febrúar síðast liðnum. ■
• Hátíð homma og lesbía:
Þúsundir tóku
þátt í Gay Pride
skrúðganga Hátt í 20.000 manns
voru samankomin í miðbæ
Reykjavíkur í gær þegar homm-
ar og lesbíur stóðu annað árið í
röð fyrir Gay Pride göngu í
tengslum við Hinsegin daga.
Þátttakendur í göngunni skiptu
þúsundum og voru margir þeirra
klæddir í fjölbreytt og litskrúð-
ug gervi.
Gangstéttir Laugavegar voru
þétt skipaðar áhorfendum sem
voru samankomnir til að fylgjast
með göngunni og þegar skipu-
lögð dagskrá hófst á Ingólfstorgi
að göngunni lokinni var þröng á
þingi en þúsundir manna lögðu
leið sína þangað til að fylgjast
með dagskránni. Þegar dagskrá-
in hófst var Ingólfstorg þegar
troðið af fólki en þá var enn mik-
ill fjöldi fólks að ganga eftir
Austurstræti inn á Ingólfstorg.
Þetta er annað árið sem
hommar og lesbíur ganga niður
Laugaveg til að vekja athygli á
málstað sínum og hefur talsverð-
ur fjöldi fólks tekið þátt í og fyl-
gst með göngunni bæði árin. ■
MIKIÐ UM DYRÐIR
Göngumenn í Gay Pride voru að venju
margir í glæsilegum búningum þar sem
þeir gengu niður Laugaveginn.
Hluthafar sáttir við að
Frumafl var ekki keypt
Allir telja sig vera að gæta hagsmuna hins almenna hluthafa í Lyfjaverslun Islands. Sjálfir telja
þeir rétt að falla frá kaupum á Frumafli á umræddu verði.
viðskipti „Ég var alveg á því að
þetta færi svona,“ segir Björn
Jónsson, einn af smærri hluthöf-
um í Lyfjaverslun íslands. Hann
segir að Lyfjaverslunin eigi ekki
að sitja báðum megin borðsins og
því hafi verið rétt að falla frá
kaupum á Frumafli.
,,Ég var sáttur við niðurstöðu
hluthafafundarins, en hef ekki
enn áttað mig á umsögn Ólafs G.
Einarssonar í Morgunblaðinu og
svari Margeirs Péturssonar í
sjónvarpinu, þegar hann_ sagði
ómaklega að sér vegið. Ég hef
ekki áttað mig á þessum öðrum
þætti leikritsins," segir Björn.
Guðný Sigurðardóttir, sem er
einnig ein af smærri hluthöfun-
um, segist vera mjög sátt við nið-
urstöðu hluthafafundarins í júlí.
„Mér fannst mjög undarlega að
öllum þessum málum staðið og er
mjög sátt með að það var eitthvað
gert í þeim málum.“
„Ég held að miðað við það, að
Margeir Pétursson fer inn á fund-
inn með umboð mjög margra hlut-
hafa, þá hlýtur það að þýða að
hluthafar telja að verið sé að gæta
ATOKIN I LYFJAVERSLUN:
Hvernig féllu atkvæðin þegar
kosið var um kaup á Frumafli?
Nei 78,3%
Já 20,3%
Hve háar fjárhæðir er
verið að tala um?
Lyfjaverslun Islands kaupir A. Karlsson
og Thorarensen lyf en hafnar
kaupsamningi að Frumafli.
A. Karlsson 775 milljónir
Thorarensen lyf 985 milljónir
Frumafl 703 milljónir
SAMTALS
2.463 milljónir
LITLI HLUTHAFINN EKKI LEIKSOPPUR
Margir trúa að þeir gæti hagsmuni litlu hluthafanna í Lyfjaversluninni en í viðtölum við þá sjálfa segja þeir að rétt hafi verið að falla frá
kaupum á Frumafli.
þeirra hagsmuna og séu sammála
því sem hann er að gera. Annars
veittu þeir ekki þetta umboð. Það
er undarlegt að draga aðrar álykt-
anir því enginn neyddi hluthafana
til að gefa honum urnboð," segir
Guðný.
„Ef þú fjárfestir og veitir ein-
hverjum öðrum umboð til að fara
með þitt atkvæði þá gerir þú það
að vandlega athuguðu máli.“
Sigtryggur Rósmar Eyþórsson
segist vera sammála nýrri stjórn
Lyfjaverslunar íslands, að hætta
við kaupin á Frumafli. „Ég hefði í
sjálfu sér viljað kaupa þetta fyrir-
tæki en verðið var allt of hátt að
mínu mati. Ef menn komast niður
á jörðina með verðlagningu á fyr-
irtækinu þá finnst mér hins vegar
ástæða til að skoða þetta upp á
nýtt. Verðið var bara of hátt og ég
held að flestir séu sammála um
það.“
„Einhvern veginn finnst mér
að þetta hafi verið of hátt verð
sem þeir hafi ætlað að greiða fyr-
ir Frumafl," segir Jóna Stein-
bergsdóttir. Henni finnst sem
hagsmunum smærri hluthafa hafi
verið gætt á síðustu vikum og er
sátt við niðurstöðuna.
bjorgvin@frettabladid.is
Bresk læknisrannsókn:
Próf til að koma í veg
fyrir skyndidauða þróað
heilsa Um þessar mundir vinna
breskir vísindamenn í fyrsta sinn
að þróun prófs sem getur greint
hvaða fólk getur átt það á hættu
að deyja svokölluðum skyndi-
dauða. Dauðsföll af þessu tagi eru
sjaldgæf, en fjórir látast af þess-
um völdum í viku hverri í Bret-
landi. Skyndidauði er talinn al-
gengasta ástæðan fyrir óvæntum
dauðsföllum hjá fólki undir 30 ára
aldri, en helmingur þeirra sem
látast af þessum orsökum virðast
hafa verið fullfrískir einstakling-
ar skömmu áður en þeir létust. Á
meðal þeirra sem látist hafa af
völdum skyndidauða er efniiegur
knattspyrnukappi, Daniel Yorath,
sem lést árið 1992 auk þess sem
nígeríski knattspyrnukappinn
Nwanko Kanu hefði getað látist af
skyndidauða hefði ekkert verið
að gert, eftir að hann greindist
með alvarlegan hjartagalla.
Prófið, sem fékk myndarlegan
styrk frá Bresku hjartastofnun-
inni, hefur þegar bjargað fjórum
mannslífum. Að því er kemur
fram á fréttavef BBC, virkar það
þannig að greindar eru tafir í raf-
boðum til hjartans sem halda
hjartanu starfandi hjá einstak-
lingum, en talið er að skyndidauð-
inn orsakist af hjartsláttatruflun-
um sem verða til þess að hjartað
fer að skjálfa. Tilfellið getur
valdið því að menn nái ekki and-
anum auk þess sem þeir fá verk
fyrir brjóstið, en margir vita ekki
að þeir eru í bráðri lífshættu og
detta skyndilega niður dauðir. ■
NWANKO KANU
Hann var I lífshættu vegna hjartagalla
J