Fréttablaðið - 13.08.2001, Blaðsíða 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
13. ágúst 2001 MÁNUPAGUR
BESTA PLATAN
HALLDÓR GYLFASON
leikari og söngvari
Ljúf og heimilisleg
„Ég fór á Hundadaga í Japis og
keypti mér plötu með sígunahljómsveit,
sem er mjög skemmtileg, og The Invisi-
ble Band með Travis. Hún er assgoti
góð, Ijúf og heimilisleg. Þeir kunna
svo sannarlega að búa til góð lög
og texta." ■
DAUÐAROKKIÐ KVATT
Strigaskórnir eru búnir að taka upp nýja
plötu með kántrýpönki, sem kemur vænt-
anlega út seinna á árinu.
Rokktónleikar á
Gauknum:
Strigaskór nr.
42 spila á ný
TÓNLEIKAR í kvöld verða haldnir
áhugaverðir tónleikar á Gauk á
Stöng. Þar spila rokkhljómsveitim-
ar Strigaskór nr. 42 og Klink.
Strigaskórnir voru áberandi í
dauðarokkssenunni á fyrri hluta tí-
unda áratugarins, gáfu m.a. út plöt-
una Blóð og spiluðu á fjölmörgum
tónleikum.
Nú á árinu er von á annarri plötu
frá hljómsveitinni og em uppruna-
legu meðlimirnir, Kjarri, Hlynur
Aðils, Gunni og Ari, allir á sínum
stað. „Við erum búnir að æfa stans-
laust síðan í vor og gera efnið fyrir
plötuna klára. Við emm búnir að
taka upp og það á bara eftir að fín-
pússa lögin,“ segir Kjarri. Þeir
sömdu tónlistina sem þeir eru núna
að spila fyrir Baal eftir Bertolt
Brecht í uppfærslu Herranætur
fyrir nokkrum árum. „Við spilum
bara þessa tónlist á tónleikunum,
ekki gömlu Blóðlögin. Við eram að
spá i það að taka góða Blóðtónleika
seinna í ár,“ segir Kjarri. Hann kall-
ar tónlistina á nýju plötunni kán-
trýpönk. „Við erum aðeins búnir að
mildast. Þetta var samið fyrir
nokkrum árum en tvö lög fæddust
núna við æfingar. Það er gaman að
þessu en endurkoman er búin að
standa til lengi.“
Harðkjarnasveitin Klink er í
mikilli uppsveiflu. Hún hefur ein-
nig unnið við upptökur að undan-
förnu, með hjálp Birgis Thorodd-
sens, Curver. Húsið opnar kl. 21 og
tónleikarnir hefjast stuttu seinna. ■
Húsfélög
& fLjrirtœki
athugið
■ Málum bílasiæði
■ Sópum bílaplön
og göngusíiga
* Vönduð vélavinna
Hnngið eða sendið
lölvupost og fáið tilboð
Bi i a sfæda
m e r k i n g
Sími 698J513
bsmerkiriö & is.landia.is
HÁSKÓLABÍÓ
HAGATORGI, SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
BRIÖ6ETJ0NES SDIARY
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
jSHREK m/íslensku tali kl. 4 j
iBLINKANDE LYGTER kl. 5.45, 8 og 10.151
|THE VIRGIN SUICIDE kl. 6 og 101
|FRÉTTIR AF FÓLKI |
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
FilJVttJNDUR
FLASHDANCE
FOOTLOOSE
ABSOLUTE BEGINNERS
ITILL SAMMANS
kl. 4 og 8 j
Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8, 10.05 VIT 257 iBRIDGET JONES DIARIES kl.4,6,8oglOÍa«|
JSHREK m/ísiensku tali kl. 4 og 6 j píásj ANTITRUST kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.101!™]
fSHRÉK m/ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10|ji4s| ÍPEARL HARBOR iÁTilBHl
Sólóferill barnakryddsins Emmu
Bunton er á hraðri niðurleið.
Fyrsta plata hennar, A Girl Like
Me, hefur selst í
40 þúsund eintök-
i um og var aðeins
; fjórar vikur á
topp 75 í Bret-
landi, þrátt fyrir
I að smáskífan,
What Took You So
Long, næði fyrsta
sæti. Virgin er óá-
nægt með gengið. Önnur smáskífa
kemur út í mánuðinum. Mel C,
gekk öllu betur með sína fyrstu
plötu, hún seldist í 2,5 milljónum
eintaka. „Stundum getur það tekið
þrjá eða fjóra mánuði að raða inn
mikilli sölu. Oft þarf nokkrar vin-
sælar smáskífur," sagði umbi
Emmu.
Kvikmyndaverið Warner Bros.
ætlar ekki að gefa út fram-
haldið af Matrix, The Matrix
Re'oaded, fyrr en
wf^ il ■ 1 mal'2003- Bm0
P var að segja að
• • hún yrði frum-
sýnd undir lok
m 2002 en forseti
dreifingardeildar
Warner, Dan
Fellman, segir það
vitleysu. „Við
sögðum það aldrei.“ Tökur á
myndinni eru ekki hafnar en
vinna við tölvubrellur gengur vel.
„Við erum á góðum tíma,“ sagði
Fellman. Einnig er byrjað að und-
irbúa þriðju Matrix-myndina.
Tennisstjarnan Serena Williams
sagði um daginn frá því hvern-
ig hún varð háð því að kaupa sér
óþarfa hluti á
Netinu. „Þetta var
verst á Opna fran-
ska. Ég hékk á
Netinu á hverjum
degi. Ég gat ekki
stoppað, keypti,
keypti, keypti
hluti sem ég þarf
ekki, föt sem ég
klæðist ekki. Ég var stjórnlaus."
Hún byrjaði á þessu til þess að
komast hjá því að versla fyrir
augum almennings. „Fólk þekkir
mig hvert sem ég fer. Þess vegna
prófaði ég þetta." Hún segir sér
líða betur núna og henda líka öll-
um bæklingum sem berast í pósti.
Hlustendurnir ráða
ferðinni sjálfír
Gagnvirka útvarpsstödin Muzik komin í loftið. Hlustendur velja
lögin sjálfir á muzik.is. Arðvænlegur útvarpsrekstur hjá Islenska
sjónvarpsfélaginu.
útvarp Fyrir mánuði síðan urðu
margir útvarpshlustendur varir
við stöð á FM-bylgjulengdinni
89, sem fyllti upp í tónlistargat
sem myndast hafði á útvarps-
markaðnum. Fyrir helgi svipti
íslenska sjónvarpsfélagið hul-
unni af stöðinni, nefndi hana
Muzik og flutti hana yfir á 88.5.
Útvarp Kántrýbær fer á 89.
Muzik er fyrsta íslenska
gagnvirka útvarpstöðin og vita
aðstandendur hennar ekki til
þess að hún eigi sér fyrirmynd.
Hlustendur skrá sig inn á vefinn
muzik.is og velja sjálfir lögin
sem eru spiluð úr gagnagrunni.
„Við opnuðum vefinn á þriðju-
deginum fyrir viku. Hann fór
eins og eldur í sinu um Netið,
spurðist fljótt út,“ segir ísleifur
Þórhallsson, markaðsstjóri ís-
lenska sjónvarpsfélagsins.
„Við urðum varir við þreytu
hjá hlustendum stöðva sem eru
reknar með bandarískum for-
sendum og spila bara lög af vin-
sældalista. A Muzik hafa allir
notendur sama vægi og þar gild-
ir lýðræði. Um leið og lag er val-
ið geta aðrir gefið því meðmæli
eða mótmæli. Ef spilunarlistinn
er fullur fer af stað kosning um
næsta lag inn á listann. Við
stjórnum sjálfir hvaða lög eru í
gagnagrunninum. Á Muzik er
það rafræn tónlist og danstónlist
í sínum víðasta skilningi, hip hop
og „easy listening" sem notend-
ur geta valið um á daginn en á
kvöldin verða sérþættir með alls
konar jaðartónlist," segir ísleif-
ur.
Kerfið, sem stöðin er byggð á,
Majones, er búið til af Gang-
verki ehf. en ÍS á einkaréttinn.
„Þetta eru forritarar sem voru
orðnir leiðir á lélegum útvarps-
stöðvum. Þeir hönnuðu kerfið
fyrst til að nota í vinnunni. Við
komum inn í verkefnið síðasta
« g IU'
( .........
: Q , .
f &P.
■ p
MPÞHAFf
<$ ****** i-rr
$**■*&*
3- •> 1
• fe §*&„■*■****
ís fy fb# v■■-■-■ :•
| &*•**«•
; éfitosfö* ?»<*•**
\ ft#í' f* b-fi*
'■ ttfntýtí-i<&
I ftf fremsk, £%** Cvrý-
Jí
si
Tk* <§* Þ*fff*f -
- Hmia £i)
gtyrfi & Prtfy - W
§ÍIHA§ffNl §AfW
* 6* §***})
*f***4f**>* ft* y m'öteifA-
* frntsvtttfíiit fff'pf
riitwr
r&WlfoP****
tSITA í (AliMAfMI
versíun
fnÉITIft
GLÆSILEG ÚTFÆRSLA A GÓÐRI HUGMYND
Útvarpsstöðin er ekki aðeins á Netinu. Hægt er að velja lög í gegnum GSM-síma, auk
þess að fá send SMS-skilaboð í hvert skipti sem einhver listamaður eða lag er spilað
eða notandi lætur spila lag. Einnig er hægt að senda kveðju með.
haust og síðan hefur kerfið verið
í stöðugri þróun.“
Eini tíminn sem er ekki í
höndum notenda er milli kl. 22
og 24. Þá velja þáttastjórnendur
lög úr ákveðnum tónlistargrein-
um. Á mánudögum spilar Barði
Jóhannesson, á þriðjudögum
Erpur Eyvindarson, á miðviku-
dögum er þátturinn Skýjum
ofar, á fimmtudögum Árni Einar,
á föstudögum Páll Steinarsson,
tónlistarstjóri stöðvarinnar, á
laugardögum spilar Ingvi og á
sunnudögum Hrafnhildur Hólm-
geirsdóttir og Natalie. Athygli
vekur að Páll ætlar að láta ís-
lenska plötusnúða á erlendri
grundu velja lögin með sér, t.d.
Magga legó og Steph Gus Gussa
í Barcelona og Hólmgeir í New
York. Auglýsingar á Muzik eru í
minni kantinum, sex mínútur á
klukkutíma í stað venjulegra
níu.
íslenska sjónvarpsfélagið er
með tvær gagnvirkar stöðvar í
viðbót á kantinum, sem verða
einnig keyrðar á Majones. ísleif-
ur vill fæst um þær segja en þær
munu báðar sinna ákveðnum
tónlistargreinum og verða gjöró-
líkar Muzik. „Rekstrarkostnaður
þessarra stöðva er mjög lítill.
Með Majones-kerfinu er út-
varpsrekstur gerður arðvæn-
legri en áður hefur þekkst."
halldor@frettabladid.is