Fréttablaðið - 31.08.2001, Síða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
31. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
SVONfl ERUM VIÐ
23,4% LlKUR A AÐ KARLMENN
FARI A VOG.
4,2% karla á aldrinum 30 til 39 ára munu
leita sér aðstoðar á meðferðarstofnuninni
Vogi ef miðað er við tölur undanfarinna
ára. Naerri 25% líkur eru á að karlar fari
einhvern tíma á ævinni í meðferð, en
helmingi minni llkur eru hjá konum.
Líkur á innlögn
Aldur
0-20
20-29
30-39
40-49
50-59
60-69
69- £o,7%
Hús Kára Stefánssonar:
Endir ekki
í sjónmáli
skipulagsmAl Enn er óljóst
hvenær úrskurðarnefnd skipu-
lags- og byggingarmála tekur
endanlega ákvörðun varðandi
kærur vegna
byggingu húss
Kára Stefánsson-
ar við Skelja-
tanga 9 í Skerja-
firði.
„Það liggur
ekki fyrir enn
hvenær mál
son vegna Skelja-
Óvissa um hvort tanga „9 ,verður
Kári stefánsson tekið til urlausnar
fær að halda en von er á frek-
áfram byggingu ari gögnum í mál-
húss síns. inu,“ segir Hjalti
Steinþórsson, framkvæmdastjóri
úrskurðarnefndarinnar.
Eins og kunnugt er hefur úr-
skurðarnefndin þegar fellt bráða-
birgðaúrskurð um stöðvun fram-
kvæmda við húsið. ■
—♦— ..
Haustmyrkrið leggst yfir:
Kveikjum
úti ljósin
blaðberar Sumri hallar og nátt-
myrkrið lætur á sér kræla. Einn er
sá hópur fólks sem verður þess
áþreifanlega var að haustið er að
koma. Þetta eru blaðberar. Við hin
vöknum enn í björtu. Ástæða er til
að hvetja fólk að láta útiljós loga
við híbýli sín. Sumir þurfa ekki
annað en að nota rofann, en aðrir
mættu huga að perum sem ekki
hafa vaknað aftur eftir sumardval-
ann. Myrkrið er ekki bara ónota-
legt fyrir blaðberana, heldur getur
beinlínis verið hættulegt. Kveikj-
um ljósin og tryggjum öryggi blað-
burðarfólksins. ■
Bráðabirgðaúrskurður í Skerjafirði:
Byggir á eigin ábyrgð-
uns niðurstaða fæst
SKIPULAGSMÁL Bygging íbúðarhúss
við Skildinganes 43 verður ekki
stöðvuð á meðan úrskurðarnefnd
skipulags- og byggingarmála tek-
ur kæru vegna leyfis fyrir bygg-
ingu hússins til efnislegrar með-
ferðar.
Úrskurðarnefndin, sem ákvað
þetta á síðasta fundi sínum, segir
að enda þótt ekki hafi verið tekin
efnisleg afstaða til málsástæðna
kærendanna, þeirra Friðriks
Ólafssonar og Guðjóns Sigurðs-
sonar, bendi fyrirliggjandi gögn
ekki til annars en að undirbúning-
ur þeirrar ákvörðunar borgaryfir-
valda að leyfa byggingu hússins
hafi verið í samræmi við gildandi
ákvæði og skilmála
„Þykir því ekki augljóst að hin
kærða ákvörðun sé haldin slíkum
ágöllum að ógildingu varði. Með
hliðsjón af ofangreindu, svo og
þegar til þess er litið að hagsmun-
ir kærenda af því að framkvæmd-
ir verði stöðvaðar verða að teljast
minni en hagsmunir byggingar-
leyfishafa af því að fá þeim fram
haldið, er það niðurstaða úrskurð-
arnefndarinnar að fallast ekki á
UMDEILT HÚS A LÓÐ NÚMER 43 VIÐ SKILDINGANES
„Fyrir liggur að framkvæmdir við bygginguna eru nú langt á veg komnar, útveggir upp-
steyptir og einangraðir og þaksperrur reistar," segir úrskurðarnefnd skipulags- og bygging-
armála.
kröfu kærenda um stöðvun fram-
kvæmda við byggingu hússins í
Skildinganesi 43. Eru fram-
kvæmdir því heimilar, en alfarið á
ábyrgð byggingarleyfishafa, með-
an krafa kærenda um ógildinu
hins kærða byggingarleyfis er til
meðferðar fyrir úrskurðarnefnd-
inni/‘ segir í úrskurðinum.
Urskurðarnefndin hefur þann-
ig ekki fellt endanlegan úrskurð í
málinu en telur ekki ástæðu til að
stöðva framkvæmdir þar til hann
liggur fyrir. ■
Bindur ekki hendur lækna
Stjórnir heilbrigðisstofnana ákveða hvort upplýsingar um sjúklinga verði afhentar Islenskri
erfðagreiningu. Yfirlýsing Læknafélagsins bara skoðun félagsins en bindur ekki hendur lækna.
IE þarf að semja sérstaklega við læknastofur úti í bæ.
GAGNAGRUNNUR „Heilbrigðis-
stofnanir ráða yfir langmestu af
upplýsingum um sjúklinga.
Læknar sem þar starfa hafa ekki
umráðarétt yfir þeim og geta
hvorki sagt já eða nei. Það eru
stjórnir heilbrigðisstofnana sem
ákveða þetta og eiga samkvæmt
lögum að hafa samráð við lækna-
ráð, sem þýðir ekki að það þurfi
að fara eftir því svari sem fæst,“
segir Jón G. Snæland, varafor-
maður Læknafélags íslands, um
þýðingu yfirlýsingar Læknafé-
lagsins og íslenskrar erfðagrein-
ingar, sem skrifað var undir ný-
lega, fyrir lækna.
Ef yfirlýs-
ingin verður
samþykkt á
a ð a 1 f u n d i
Læknafélags-
ins þá verður
hún skoðun
læknafélags-
ins en bindur
ekki hendur
lækna. Hins
vegar verður
,, „ auðveldara
JÓN G. SNÆLAND stiórnir
Ef yfirlýsing Læknafé- fyrtr, stJOrnir
lagsins verður sam- heilbrigðis-
þykkt á aðalfundi þá er Stofnana að
þetta skoðun félagsins semja við Is-
en hún bindur ekki lenska erfða-
hendur lækna. greiningu um
af hendingu
upplýsinga um sjúklinga ef þessi
afstaða félagsins liggur fyrir.
Jón segir hins vegar að lækna-
stofur úti í bæ, sem eru reknar af
einstökum læknum, séu einnig
skilgreindar sem heilbrigðis-
stofnanir og íslensk erfðagrein-
ing verði að leita sérstaklega eft-
ir samningum við þær um af-
hendingu gagna um sjúklinga.
„Þeim læknum er algjörlega í
sjálfsvald sett hvort þeir semji
frA UNDIRRITUN samnings um gagnagrunn A heilbrigðissviði
Kári Stefánsson og Ingibjörg Pálmadóttir, þáverandi heilbrigðisráðherra, undirrita samninginn. Nýleg yfirlýsing Læknafélagsins og Islen
skrár erfðagreiningar auðvelda heilbrigðisstofnunum að afhenda gögn um sjúklinga en bindur ekki hendur sjálfstætt starfandi lækna.
eða ekki. Þeir eru óbundnir af
þessari yfirlýsingu Læknafélags-
ins og ÍE.“
„Einstakir læknar hafa haft
áhyggjur af málinu, þetta er flókið
mál og hver um sig hefur kannski
ekki sett sig fullkomlega inn í mál-
ið, en fundist óþægilegt að Lækna-
félagið hafi verið á móti og ekki
komist að samkomulagi um þetta
mál. Þegar læknar vita að félagið
hefur komist að samkomulagi leið-
ir það væntanlega til þess að marg-
ir læknar verða sáttari við þetta.
Þeir sem eru ekki sáttir verða að
gera upp við sig hvað þeir gera,“
segir Jón G. Snæland.
bjorgvin@frettabladid.is
ítölsk
höfu m
oþnab!
að Laugavegi 53
s: 552 3737
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna:
Milosevic fær aðstoð lögfræðings
AFTUR f RÉTTARSALINN
Milosevic mætti í gær aftur í réttarsalinn ( Haag I Hollandi. Hann neitar að viðurkenna lög-
mæti réttarins og segir hann ekkert annað en skrlpaleik.
HAAG.HOLLANDLAP Slobodan Milos-
evic, fyrrverandi forseti
Júgóslavíu, kom í gær fyrir stríðs-
glæpadómstól Sameinuðu þjóð-
anna í annað sinn. Aðalsaksóknari
dómstólsins, Carla de Ponte, býst
við því að fjölgað verði ákæruat-
riðum gegn honum á næstunni
vegna glæpa sem hann er sakaður
um að hafa framið í Bosníu og
Króatíu snemma á síðasta áratug.
Lýsti dómstóllinn því yfir að hann
ætli að tilnefna lögfræðing til að
aðstoða Milosevic í máli sínu, en
hann hefur verið ákærður fyrir
fjögur afbrot, þ.ám. fyrir að hafa
staðið að glæpum gegn mannkyn-
inu í Kosovo á meðan á Bosníu-
stríðinu stóð.
Milosevic er enn staðráðinn í
því að verja sig sjálfur í málinu
þar sem hann telur dómstólinn
ólögmætan og þess vegna þurfi
hann ekki lögfræðiaðstoð. Ric-
hard May, dómari við stríðs-
glæpadómstólinn, sagði að lög-
fræðingurinn muni ekki flytja
málið fyrir hönd Milosevic, held-
ur aðstoða dómstólinn með því að
tryggja að hagsmunir forsetans
fyrrverandi væru tryggðir og að
hann fengi sanngjörn réttarhöld.
Reiknað er með því að réttarhöld-
in hefjist £ lok febrúarmánaðar á
næsta ári. ■