Fréttablaðið - 17.09.2001, Side 6
SPURNING DAGSINS
FRÉTTABLAÐIÐ
17. september 2001 MÁNUPAGUR
Hlakkar þú til opnunar
Smáralindar?
Já, ég hlakka til opnunar Smáralindar.
Ég ætla að versla þar fyrir jólin. Ég á von
á þvi að ég fari frekar þangað heldur en í
Kringluna. Að minnsta kosti til að byrja
með. Smáralindin verður mjög stór og
mun líklega likjast meira klösum erlendis.
Ég er því mjög spennt að sjá hvernig
þetta verður. Þarna verða líka nýjar og
spennandi verslanir. ■
Rakel Sveinsdóttir er starfsmaður (búðalánasjóðs.
H ry ðj uverkamenn:
Keyptu
hnífaí
Sviss
bern. ap Einn flugræningjanna,
sem grunaður er um aðild að flug-
ránunum í Bandaríkjunum í síð-
ustu viku, keypti sér nýlega tvo
hnífa í Sviss, að sögn þarlendra
yfirvalda. Hinn grunaði notaði
krítarkort til að kaupa hnífana.
Dagblaðið Sonntags Blick sagði
tvo af flugræningjunum, Mo-
hammed Atta og Marwan Al-
Shehhi, hafa eytt sumrinu á hóteli
í Sviss, en mennirnir tveir voru
búsettir í Hamborg í Þýskalandi.
Svissnesk yfirvöld hafa nú sett
í gang formlega rannsókn á því
hvort hugsanlegt sé að hryðju-
verkamenn hafi notað svissnesku
Alpana sem eina bækistöð fyrir
alþjóðlegt net sitt. ■
1lögreglufréttir|
Bifreið vait á Reykjanesbraut í
gærmorgun og er ökumaður-
inn, sem slapp með lítilsháttar
meiðsl, grunaður um ölvun-
arakstur. Bíllinn er gjörnónýtur
að sögn lögreglu.
Brotist var inn í þrjú fyrirtæki
aðfaranótt sunnudagsins. Til-
kynnt var um þjófnað og eignar-
spjöll á veitingastað í Grafarvogi
um fjögurleytið um nóttina.
Nokkrum munum var stolið og
unnar skemmdir á dyrakarmi og
afgreiðsluborði. Þá var farið inn í
myndbandaleigu í austurborginni
um svipað leyti. Þar var svipað
upp á teningnum, þjófnaður og
eignarspjöll. Um fimmleytið var
tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í
austurborginni og þaðan stolið
tölvubúnaði.
—♦—
Hindúar á Indlandi
mótmæla:
Tony Blair styður Bush afdráttarlaust:
„Við eigum í stríði“
LONPON, ap Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, lýsti í gær
yfir afdráttarlausum stuðningi
við aðgerðir Bandaríkjanna gegn
þeim, sem bera ábyrgð á hryðju-
verkunum í síðustu viku. Um leið
skýrði hann frá því að á þriðja
hundrað Breta gætu hafa týnt líf-
inu í árásunum á New York og
Pentagon.
Hann sagði jafnframt að við-
brögð George W. Bush Banda-
ríkjaforseta við árásunum væru
„alveg hárrétt". „Hver svo sem
tæknileg eða lögfræðileg álitamál
kunna að vera í tengslum við
stríðsyfirlýsingu, þá er stað-
reyndin sú að við eigum í stríði
við hryðjuverkamenn," sagði
hann í viðtali við bandarísku sjón-
varpsstöðina CNN.
George Bush, forseti Banda-
ríkjanna, hafði sagt í sjónvarps-
ávarpi á laugardag að þessi átök
væru við „andstæðinga sem teldu
sig ósýnilega. En þeim skjátlast.
Þeir verða afhjúpaðir, og þeir
munu komast að því sama og aðr-
ir hafa áður áttað sig á: Þeir sem
fara í stríð gegn Bandaríkjunum
hafa kosið eigin tortímingu." ■
FORSÆTISRÁÐHERRA breta
Blair segir viðbrögð Bandaríkjafor-
seta hafa verið „alveg hárrétt". Á
þriðja hundrað Breta fórust í árás-
unum á Bandaríkin.
Snoðhausar í Þýskalandi:
Hryðjuverka-
árásin réttlát
refsing
BERLIN, ap Hægri öfgamenn í Aust-
ur-Þýskalandi kveiktu í Banda-
ríska fánanum þegar safnast var
saman í Straslund síðastliðinn
laugardag til að minnast þeirra er
létust í hryðjuverkaárásinni sem
gerð var á World Trade Center og
Pentagon. Verknaðurinn var
framinn í framhaldi yfirlýsingar
Lýðræðislega þjóðarflokksins
þess efnis að hryðjuverkaárásin
væri réttlát refsing sprengju-
árása Bandaríkjamanna á Þýska-
land í seinni heimstyrjöldinni. ■
Vilja efla áætlana-
gerð og eftirfylgni
Ríkisrcikningur sýnir umframkeyrslu opinberra stofnana fram úr heimildum íjárlaga.
Þingmenn nokkurra stjórnmálaflokka telja óeðlilegt að stofnanir ríkisins fari ítrekað yfir
heimildir á fjárlögum og/eða ráðstafi peningum að vild. Misjafnt er til hvaða ráða þeir
vilja grípa eða hverju þeir telja að sé um að kenna.
fjárlöc Vilhjálmur Egilsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, segir
vandann þegar stofnanir eyða
fram yfir heimildir margþættan.
Útgangspunktinn segir hann vera
áætlunargerðina sem stofnanirnar
starfi eftir og hvort hún sé nægi-
lega góð. „Síðan þarf í fjárlaga-
vinnunni að taka ákvarðanir um
hlutverk stofnana. Ef draga á úr
útgjöldum eða breyta umsvifum
þarf það í hverju tilviki að vera
raunveruleg ákvörðun. Eins þarf
að gá að gæði ákvarðanatökunnar.
í þriðja lagi þarf að spyrja hvort
stjórnun stofnunarinnar er hagað í
samræmi við fjár-
Iög. Þessi atriði
þurfa öll að virka
saman til að allt
gangi upp í hinu
opinbera kerfi,“
sagði hann en
áréttaði að stjórn-
endur þyrftu engu
að síður að hafa
ákveðið svigrúm
til að flytja pen-
inga á milli liða og
verkefna í sam-
ræmi við breyttar
aðstæður. „Ég lít
það allt öðrum augum en þegar
menn fara fram úr fjárlögum
vegna lélegrar stjórnunar," bætti
hann við.
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokks, segir að haldi
VILHJÁLMUR
EGILSSON
Stjórnendur verða
að hafa svigrúm
til að flytja pen-
inga millí verk-
efna.
menn sér ekki inn-
an fjárlagaheim-
ilda sé það augljós
veikleiki og stríði
gegn efnahags-
markmiðum ríkis-
ins. „Annars vegar
kann vandinn að
vera aðferðirnar
við veitingu fjár-
HJÁLMAR
ÁRNASON
Stjórnendum er
kannski stillt upp
við vegg, vegna
þrýstings ein-
stakra hópa innan
stofnana.
magns til einstakra stofnana eru
e.t.v. ekki nógu faglegar og í sum-
um tilvikum of tilviljanakenndar.
Hins vegar liggur vandinn í að
reka stofnanirnar eftir rekstrar-
legum forsendum. Þannig er
stjórnendum
kannski stillt upp
við vegg, vegna
þrýstings ein-
stakra hópa innan
stofnana og láta
undan þeim þrýst-
ingi. Saman þarf ______ _
að fara sjálfstæði vélsæld og tölurn-
stofnanna Og þá ar sýna að þau
um leið ábyrgð bein hefur rikis-
þeirra sem þar s‘iómin ekki.
halda utan um,“ sagði hann og
nefndi Kanada sem dæmi um land
þar sem sjálfstæði stofnana hafi
verið eflt með góðum árangri.
GUÐMUNDUR
ÁRNI STEFÁNS-
SON
Það er stundum
sagt að sterk bein
þurfi til að þola
Hjálmar segir að
skilgreina þurfi
betur þjónustu-
stig stofnanna og
skýra betur hvar
ábyrgð manna
liggi. „Fjármála-
ráðuneytið á að
taka frumkvæði í
þessu í samstarfi
við fagráðuneytin,“ sagði hann.
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
segir framúrkeyrslu ríkisstofn-
ana óeðlilega. „Sérstaklega í ljósi
þess að tekjuflæði og útgjaldara-
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Spyr hvort ramm-
inn sem stof-
nunum er settur
sé raunhæfur og
sanngjarn.
Uppþot
í hverfi
múslíma
BANCALORE. INDIA.AP Tveir menn
létust og fimmtíu særðust er til
uppþota kom þegar 50.000 bók-
stafstrúaðir Hindúar gengu síð-
astliðinn laugardag um hverfi
múslíma í Hubli í Suður Indlandi
og hrópuðu slagorð gegn Paki-
stönum og Talibönum í kjölfar
hryðjuverkaárásanna á Bandarík-
in. Að sögn lögreglunnar á svæð-
inu tóku nokkur hundruð mót-
mælenda sig úr göngunni og réð-
ust að lögreglumönnum sem stóðu
vörð um bænarsvæði múslíma og
kveiktu í nærliggjandi bílum þar
á meðal einum lögreglubíl. Út-
göngubann var sett á hluta Hubli í
kjölfar uppþotanna en þar hefur
fjöldi átaka brotist út vegna
trúarágreinings. ■
Alþjóðleg nýsköpunarkeppni fyrír stúlkur:
Stúlkur eru uppfinningamenn
keppni „Stúlkur geta líka skapað,
en ekki aðeins gamlir karlar eða
sprenglært fólk“, segir Elínóra
Inga Sigurðardóttir formaður
Landssambands hugvitsmanna.
„Mjög mikilvægt er að auka
sjálfstraust þeirra, hvað varðar
hugmyndir og nýsköpun". ís-
lenskum stúlkum á aldrinum tíu
til sautján ára gefst kostur á að
taka þátt í alþjóðlegri nýsköpun-
arkeppni sem haldin verður í
Sviss á næsta ári. í keppninni fá
bestu hugmyndirnar einkaleyfi,
auk þess sem að peningaverð-
laun eru í boði. Að sögn Elínóru
er keppnin gott tækifæri fyrir
íslenskar stúlkur til að koma
uppfinningum sínum á fram-
færi. íslenskar stúlkur búi yfir
mörgum góðum hugmyndum, en
lítið hafi verið gert til að koma
þeirri nýsköpun á framfæri.
Mikilvægt sé að slík keppni sé
sérstaklega fyrir stúlkur. Konur
líti oft ekki á sig sem uppfinn-
ingamenn. Hugmyndir þeirra
séu gjarnan hagnýtar og snúi að
heimilinu, en hugmyndir karla
innihaldi meiri tækni. Því hafi
þær þótt betri kostur fyrir fjár-
festa. Elínóra segir að þær stúlk-
ur sem hafi áhuga á að taka þátt
í keppninni geti haft samband
við sig. Skilafrestur í keppnina
renni út um áramótin. ■
ELÍNÓRA INGA
SIGURÐARDÓTTIR
„Konur líta ekki á síg sem
uppfinningamenn, því hug-
myndir þeirra eru ekki eins
tæknilegar og hugmyndir
karla", segir Elínóra.