Fréttablaðið - 02.10.2001, Side 2
KIÖRKASSINN
HANDBOLTAÞJÓÐ
Þótt mikið sé rætt um
dvínandi áhuga á
handbolta ætlar líðlega
helmingur kjósenda á
visi.is að fylgjast með
baráttunni í deildinni í
vetur.
Ætlarðu að fylgjast með
handboltanum í vetur?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að horfa á sjónvarpsumræður
á Aiþingi um stefnuræðu forsætisráð-
herra í kvöld?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þína skoðun J
____________
Þjóðhagsáætlun:
Samdráttur
á næsta ári
EFNAHACSMÁL Drjúgur hagvöxtur
undanfarinna ára víkur fyrir sam-
drætti á næsta ári að því er fram
kemur í þjóðhagsáætlun forsætis-
ráðherra sem var lögð fram í gær.
Gert er ráð fyrir að 0,3% sam-
drætti í efnahagslífinu á næsta
ári. í áætluninni kemur fram að
gert er ráð fyrir 1,9% hagvexti í
ár en hagvöxtur undanfarin fimm
ár hefur numið 4,8% að meðaltali.
Að næsta ári liðnu er búist við að
hagvöxtur verði tvö til tvö og
hálft prósent á ári og geti orðið
meiri ef ráðist verður í stóriðju
fyrir austan.
í þjóðhagsáætlun segir að nið-
ursveiflan stafi einkum af því að
þjóðarútgjöld hafi aukist mun
hraðar en þjóðartekjur á undan-
förnum árum og fyrir vikið mynd-
ast mikill viðskiptahalli. Slíkur
halli fái ekki staðist til lengdar og
því sé óhjákvæmilegt að laga
þjóðarútgjöldin að þjóðartekjum
og stuðla þannig að betra jafn-
vægi í viðskiptum við útlönd. ■
Prófkjör á Seltjamamesi:
T ólf fram-
boð bárust
prófkjör Framboðsfrestur fyrir
prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Sel-
tjarnarnesi rann út klukkan átta í
gærkvöldi. Pétur Kjartansson, for-
maður kjörnefndar, sagði að tólf
framboð hefðu borist. Tveir gefa
kost á sér í fyrsta sæti listans, þau
Jónmundur Guðmarsson forseti
bæjarstjórnar og Ásgerður Hall-
dórsdóttir, sem á sæti í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins.
Prófkjörið fer fram 3. nóvember
n.k. og verður að öllum líkindum
rafræn kosning. Það yrði í fyrsta
skipti sem kosið vrði með þeim
hætti í prófkjöri á íslandi.
Þessi framboð bárust: Jónmund-
ur Guðmarsson, Ásgerður Halldórs-
dóttir, Inga Hersteinsdóttir, Ingi-
mar Sigurðsson, Bjarni Álfþórsson
Sigrún Edda Jónsdóttir, Jón
Jónsson, Magnús Örn Guðmunds-
son, Árni Halldórsson, Lárus B Lár-
usson, Þórhildur Álbertsdóttir,
Gunnar Lúðvíksson, Guðmundur
Helgi Þorsteinsson ■
| ERLENT
Bílsprengja sprakk í Jerúsalem
í gærmorgun. Enginn slasað-
ist alvarlega, en þónokkrir bílar í
nági-enninu urðu alelda. Palest-
ínska skæruliðahreyfingin „Isla-
mic Jihad,“ lýsti ábyrgð á verkn-
aðinum á hendur sér, en Palest-
ínumenn hafa staðið á bak við
fjölmargar sprengingar í ísrael
frá því að átökin hófust að nýju
fyrir botni Miðjarðarhafs fyrir
ári síðan. Sprengingin kom á við-
kvæmum tíma því um þessar
mundir eru vopnahlésviðræður á
milli ísraela og Palestínumanna
að fara af stað. ■
2 FRETTABLAÐIÐ
Verkfall sjtákraliða:
Lokun barnadeildar mik-
ið álag á foreldra og börn
verkfall Annarri af tveimur
deildum barnaspítala Hringsins
hefur verið lokað, vegna verk-
falls sjúkraliða. Því hefur þurft
að færa þau börn sem lágu á
barnaskurðdeild yfir á lyfjadeild.
„Flutningarnir eru mikið álag,
bæði fyrir foreldrana og börnin,"
segir Herdís Gunnarsdóttir
deildarstjóri. „Nú eru minna veik
börn innan um þau sem eru al-
varlega veik og eykur það álagið
enn frekar." Að sögn Herdísar
eru starfskraftar deildanna
samnýttir á meðan á verkfallinu
stendur. Mikla útsjónarsemi
þurfi til þess að allt gangi upp og
til þess að gera veru barnanna á
deildinni sem þægilegasta og ör-
uggasta, þótt þröng sé á þingi.
Herdís segir að mikil óvissa ríki
um það hvort hægt verði að taka
á móti á börnum sem bíða eftir
aðgerðum. Ekki sé hægt að gefa
foreldrum þeirra skýr svör þar
að lútandi, að svo stöddu. Þeir
gætu því þurft að bíða í óvissu,
um það hvort börn þeirra komist
í áætlaðar aðgerðir, í allt að tvær
vikur. ■
TÓM RÚM Á BARNADEILD
Annarri barnadeild Landsspitalans hefur
verið lokað vegna verkfalls sjúkraliða.
Veggir tættust af í
öflugri sprengingu
Veggir tættust af horni húsnædis Aburðarverksmiðjunnar í Gufunesi í
gærmorgun í öflugri sprengingu. Allt tiltækt slökkvilið og lögreglulið
var kallað á vettvang og svæðið lokað af. Nokkurs ammóníaksleka varð
vart en aldrei var veruleg hætta á ferðum.
miklar skemmdir
Eins og sjá má voru skemmdirnar á húsnæði Áburðarverksmiðjunnar mjög miklar og
tættust veggir í horni hússins einfaldlega í sundur. Atburðurinn minnir marga á fyrri
óhöpp en fyrir nokkrum árum lak ammóníak úr verksmiðjunni og 1990 skapaðist hættuá-
stand þegar mikill leki kom að ammóníakskúlu sem hefur síðan verið rifin og öruggari
kælitankur reistur.
áburðarverksmiðjan Miklar
skemmdir urðu á húsnæði Áburð-
arverksmiðjunnar í Gufunesi í
öflugri sprengingu snemma í
gærmorgun. Horn í austurenda
húsnæðisins tættist hreinlega í
sundur og þeyttust steypubútar
nokkra vegalengd frá húsinu.
Mikill hvellur varð af sprenging-
unni og hrukku íbúar í nærliggj-
andi húsum við og vissu ekki al-
mennilega hverju þeir áttu von á.
Fimm starfsmenn voru við vinnu
þegar sprengingin varð en enginn
þeirra varð fyrir meiðslum.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins og
lögreglunnar var kallað á vett-
vang. Lögregla lokaði Gufunes-
vegi og hluta Strandvegs fyrir
umferð um klukkutíma skeið.
Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum
elds sem upp kom við sprenging-
una og fullvissuðu sig síðan um að
ekki væri um eiturefnaleka að
ræða en á svæðinu er geymt nokk-
urt magn ammóníaks og vetnis.
Jón Viðar Matthíasson, hjá
slökkviliðinu sagði að ekki hefði
verið um verulega hættu að ræða.
„Eins og að málum var staðið var
aldrei nein hætta á ammon-
íaksleka eða vetnissprengingu.
Öryggiskerfi verksmiðjunnar lok-
aði strax þeim lokum sem átti að
loka og þeir starfsmenn sem voru
á vakt lokuðu þeim lokum sem
þeir áttu að loka. Það lágmarkaði
hættuna all verulega." Ammóníak
er geymt í litlu magni skammt frá
húsinu sem sprakk en meira magn
efnisins er geymt fjær húsinu í
kæligeymi. Nokkurs ammón-
íakleka varð vart næst bygging-
unni en ekki var talið að hætta
stafaði af honum.
Sprengingin í gær varð í
þeim enda hússins þar sem
spennurofi er hýstur en í húsinu
fer fram köfnunarefnisfram-
leiðsla. Dregið hefur úr þeirri
starfsemi verksmiðjunnar sem
lýtur að notkun ammóníaks og
vetnis og til stóð að hætta efna-
framleiðslu tímabundið á næst-
unni. Því eru minni birgðir af
þeim efnum við verksmiðjuna
en var á árum áður og hætta
minni en áður var.
binni@frettabladid.is
Flugmálastjórn segir félög án skírteinis í sjálfskaparvíti:
Vængstýfðu sig sjálf
samgöngur Flugmálastjórn segir
að ekki hafi tekist að endurnýja
flugrekendaskírteini fjögurra
flugfélaga áður en nýjar reglur um
flugreksturinn tóku gildi í gær þar
sem félögin voru of sein að skila
Flugmálastjórn upplýsingum.
Flugmálastjórn segir að fyrir
stærri flugvélar hafi reglurnar,
sem kallast JAR-OPS 1, verið í
gildi frá árinu 1998. Hætt hafi ver-
ið við að taka þær í gildi fyrir
smærri flugrekendur árið 1999, en
28. mars á þessu ári hafi verið til-
kynnt fyrsti hluti þeirra tæki gildi
1. október.
22. ágúst hefði Flugmálastjórn
minnt stjói’nendur flugfélaganna
fjögurra á gildistökuna og tekið
fram að ef tiltekin gögn bærust
LITLU FLUGFÉLÖGIN OF SVIFASEIN
Fjórir litlir flugrekendur eru nú í lausu lofti
með reksturinn þar sem þeir hafa ekki gild
flugrekstrarskírteini ( samræmi við nýjar og
hertar öryggisreglur.
stofnuninni ekki fyrir 1. septem-
ber annars vegar og 10. septem-
ber hins vegar, væri ekki tryggt
að hægt yrði að afgreiða ný flug-
rekendaskírteini tímanlega.
Flugmálastjórn segir að gögn
frá félögunum hafi borist misseint,
jafnvel ekki fyrr en um síðustu
helgi, og á að þeim væru ýmsir
annmarkar. Mikilvægt sé að öllum
nauðsynlegum skilyrðum fyrir út-
gáfu flugrekendaskírteina sé full-
nægt áður en þau verði endurnýj-
uð.
„Það má segja að þetta sé
byggt á misskilningi af okkar
hálfu, við áttum alls ekki von á að
svona færi,“ sagði Sigurður B.
Jónsson, stjórnarformaður
Mýflugs.
Einar Örn Einarsson, rekstrar-
stjóri Jórvíkur, tók í sama streng
og kvaðst vongóður um að flug fé-
lagins til Vestmannaeyja sem átti
að hefjast í gær gæti hafist í dag. ■
- • -2.-október 2001- ÞRIÐJUDAG’JR
Óveður víða um land:
Vörubíll fauk
við Eyjaijöll
óveður Ökumaður flutningabíls
slapp ómeiddur þegar bíl hans
fauk út af veginum undir Eyja-
fjöllum klukkan hálfníu í gær-
kvöldi. Lögregla gat hvorki sagt
til um tjón á bílnum né farmi hans
í gærkvöldi en þegar rætt var við
hana hafði bílinn enn ekki náðst á
réttan kjöl.
Lögreglan á Seyðisfirði lokaði
leiðum út úr bænum beggja vegna
fjarðarins vegna mikilla vatna-
vaxta og skriðuhættu þeim fylgj-
andi. Spáð var úrhellisrigningu
fram eftir nóttu en lögregla taldi í
gærkvöldi að lækir og ár hefðu
þegar tífaldast að vatnsmagni. ■
GENGIÐ ÚR KIRKJU
Forseti leiddi þingmenn úr Dómkirkjunni í
Alþingishúsið að guðsþjónustu lokinni.
Halldór Blöndal var endurkjörinn forseti Al-
þingis með 42 atkvæðum. 19 þingmenn
sátu hjá og tveir voru fjarstaddir.
Alþingi sett í gær:
Guðmundur
í stað Arna
ALÞINGI Ólafur Ragnar Grímsson
forseti setti Alþingi í gær þegar það
kom saman til 127. löggjafarþings
síns. í þingsetningarræðu lagði for-
seti út af hryðjuverkunum í Banda-
ríkjunum í síðasta mánuði og sagði
Alþingi koma saman við aðstæður
sem breytt hefðu heimsmyndinni
meira en nokkurn gæti órað fyrir.
Framundan væri tími óvissu og erf-
iðra ákvarðana og þó enginn gæti á
þessari stundu skilið til hlítar eðli
þeirra tímamóta sem hryðjuverkin
mörkuðu væri víst að veröldin verði
aldrei söm og áður.
Gengið var frá nefndarsetum á
þingfundi að loknum fundum þing-
flokka. Guðmundur Hallvarðsson
tekur við fprmennsku í samgöngu-
nefnd af Árna Johnsen og Drífa
Hjartardóttir tekur við formennsku
landbúnaðarnefndar af séra Hjálm-
ari Jónssyni. ■
Fiskiski|Daflotinn:
Kjör sjó-
manna rýrna
um 1,3%
skiptaverð Kjör sjóntanna á fiski-
skiptflotanum rýrna um 1,3% í
mánuðinum vegna þátttöku þeirra
í olíukostnaði útgerða. Þessi lækk-
un kemur til vegna hækkunar á
viðmiðun olíuverðs sem hefur
áhrif á skiptaverð. Athygli vekur
að samkvæmt samningum sjó-
manna og útvegsmanna fer við-
miðun gasolíuverðs eftir skrán-
ingu verðsins á heimsmarkaði í
Rotterdam en ekki eftir þeirri
verðlagningu sem innlendu olíu-
félögin hafa hverju sinni. Tæp tíu
ár eru síðan samið var fyrst um
það.
Hólmgeir Jónsson fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bands íslands segir að áhrifin af
heimsmarkaðsverði olíu geta ým-
ist verið til lækkunar eða hækk-
unar á’skiptaverði. Hann vonast
til að skiptaverð geti jafnvel
hækkað á næsta tímabili vegna
þess að heimsmarkað á olíu hefur
vei’ið að lækka. Hann bendir á að
kjararýrnunin um þessar mundir
sé tilkominn vegna viðmiðunar-
verðsins á tímabilinu 21. ágúst til
20 .september sl. en það er reikn-
að mánaðarlega. ■