Fréttablaðið - 02.10.2001, Side 4
FRÉTTABi-AÐlÐ
SVONA ERUM VIÐ
.2voHtábf[ 2001 ÞjUPIUPACVB
VERÐMÆTI
ÚTFLUTTRA SJÁVARAFURÐA
Verðmæti útflutnings sjávarafurða fyrir árið
2000 nam 96 milljörðum króna og dróst
saman um 3,3 milljarða frá árinu á undan.
Hlutdeild sjávarafurða í heildarverðmæti
vöruútflutningi landsmanna var rúm 63°/o.
Lína. net:
Vilhjálmur
vill fá öll
gögn á borðið
borcin Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi og stjórnarmaður í
OrkuveituReykjavíkur hefur ósk-
að eftir því við
Gunnar Eydal
skrifstofustjóra
borgarstjórnar að
hann fái sem fyrst
öll gögn um Línu.
net. Hann segir að
þetta sé m.a. gert
vegna ummæla
forstjóra fyrir-
tækisins sem hef-
ur opinberlega
vænt borgarfull-
trúa sjálfstæðis-
manna um skiln-
ingsleysi á málefnum þess. Hann
telur einnig mikilvægt að kjörnir
fulltrúar hafi sem gleggstar upp-
lýsingar um rekstur fyrirtækisins
sem er 70% í eigu Orkuveitunnar
sem lagt hefur rúman milljarð í
fyrirtækið.
Borgarfulltrúinn fer m.a. fram
á það að fá allar skráðar upplýs-
ingar um fjárhagsleg samskipti
veitunnar og Línu.nets, öll gögn
og þar á meðal allar fundargerðir
stjórnar Línu. nets sem lúta að
samskiptum við veituna, einnig
öll minnisblöð um fundi stjórn-
enda fyrirtækisins, veitunnar og
Reykjavíkurborgar er varða mál-
efni Línu.nets, rekstraráætlanir,
milliuppgjör 2001 og sundurliðun
skulda. ■
VILHJÁLMUR P.
VILHJÁLMSSON
Wlikilvægt að fá
allar upplýsingar
þar sem verið sé
að ráðstafa al-
mannafé
Ríkisstjóm Bretlands:
Eignir tali-
bana frystar
london.ap Bretar hafa ákveðið að
frysta eignir sem nema um 9
milljörðum króna sem eru taldar
vera í eigu talibanastjórnarinnar í
Afganistan. Það var Gordon
Brown, fjármálaráðherra Bret-
lands, sem tilkynnti þetta á árs-
þingi Verkamannaflokksins í gær.
Stóran hluta eignanna var að
finna í evrópskum banka sem
staðsettur er í Lundúnum. Ríkis-
stjórn Bretlands ætlar einnig að
herða eftirlit með peningaþvætti
með því að fylgjast nánara en
áður með grunsamlegum banka-
reikningum. ■
1norecur]
I^gær hófust formlegar stjórnar-
myndunarviðræður þriggja
flokka í Noregi, en leiðtogar
flokkanna, þeir Jan Petersen,
Kjell Magne Bondevik og Lars
Sponheim, hafa undanfarið átt í
óformlegum könnunarviðræðum
um hugsanlega stjórnarmyndun.
Flokkarnir þrír, Hægriflokkur-
inn, Kristilegi þjóðarflokkurinn
og Vinstriflokkurinn eru ekki
með meirihluta á þingi, þannig að
þeir þurfa á stuðningi a.m.k. eins
annars flokks til að stjórnin verði
starfhæf. Flokkana þrjá hefur
greint mjög á um ýmis mál, ekki
síst í umhverfis- og landbúnaðar-
málum.
Sveitarfélög:
Ekki benda á mig
seðlabanki Sveitarstjórnarmenn
undrast þá gagnrýni sem fram
hefur komið frá Birgi ísleifi
Gunnarssyni seðlabankastjóra
þess efnis að sveitarfélögin spili
nánast frítt í sinni efna-
hagsstjórn á meðan aðrir
séu að reyna að beita að-
haldi í sínum rekstri eins
og t.d. ríkið. Gunnar I.
Birgisson formaður bæjar-
ráðs Kópavógsbæjar segir
að þeir taki þessa gagnrýni
ekki til sín, enda séu þeir
ekki að slá lán fyrir sínum
framkvæmdum. Hann tel-
ur einnig að það fari að
draga úr framkvæmdum
bæjarins á næstunni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
stjórnarformaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga bendir á að
helstu framkvæmdir sveitarfé-
laga séu vegna laga frá al-
þingi eins og t.d. einsetning
grunnskóla og umhverfis-
mál. Þá bendir hann á að í
kjarasamingum hafi sveit-
arfélögin einatt verið í
samfloti við ríkið. Hann
vekur einnig athygli á því
að stjórnendur bankans
hafa hvorki lagt fram nein
gögn máli sínu til stuðnings
né rætt það við stjórn sam-
bandsins. ■
CUNNAR I.
BIRGISSON
Segir að Seðla-
bankinn eigi að
líta sér nær og
lækka vexti
Konu
bjargað við
mjög erfið-
ar aðstæður
Tveir úr átján manna ferðahóp slasast þegar
bjarghrun verður við Glym. Björgunarsveitar-
menn sýndu með miklum sóma hvers þeir
voru megnugir.
björcun „Hópurinn sem ég til-
heyrði var kominn alveg inn að
Glym þegar ég lít til baka og sé
hvar hrynur úr bjarginu um 100
metrum neðar. Stór stykki hafði
losnað og splundraðist á leiðinni
niður,“ sagði Garðar K. Vilhjálms-
son, framkvæmdastjóri íslenskra
ævintýraferða. Starfsmenn fyrir-
tækisins ásamt mökum voru á
ferð við fossinn Glym á laugardag
þegar tveir úr hópnum, karl og
kona, slösuðust er grjóthrun lenti
á þeim um fimmleytið. Garðar
sagði menn hafa verið búna að
skipta sér í þrjá hópa og hina slös-
uðu verið í miðhópnum. Sagði
hann allan hópinn hafa staðið á
sama stað 15 mínútum áður.
Garðar sagði konuna hafa
slasast ívið meira en manninn og
ljóst að flytja þyrfti hana á bör-
um. Hafi nokkrir úr hópnum farið
á undan til að ná í hjálp og lýsa
staðháttum og annan hóp fylgt á
eftir með slasaða manninn. Þegar
niður kom, um klukkan sjö, voru
björgunarsveitarmenn frá Akra-
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR
Aðstæður fyrir björgun voru mjög erfiðar.
Breytingar í nefndum Alþingis:
• •
Ossur í efnahags-
og viðskiptanefnd
alþingi Össur Skarphéðinsscm_nefnd á komandi þingi. „Þarna
hættir í fjárlaganefnd og WMf verður fjallað um þau mál
tekur sæti í efnahags- og I sem snúa að einkavæðingu
viðskiptanefnd. Össur segir B jr ogfleiri málsemég vilhafa
að línurnar í efnahagsmál- pp ^ jm áhrif á.“ Össur er ekki
um verði lagðar í nefndinni. f ókunnur nefndinni og segist
„Ég hef látið efnahagsmálin hafa setið fundi hennar þeg-
til mín taka og vildi því vera ——I ar einkavæðing bankanna
þar sem línurnar eru lagð- línurnar var undirbúin. „Það mun
ar.“ Margrét Frímannsdóttir „ LAfkÐA u ð_ mikið mæða á nefndinni og
tekur sæti Össurar í fjár- jnsson vHUera Þarna munu fara í gegn mál
laganefnd. Össur segir Ijóst þar sem þungj eins og skattalækkanir sem
að efnahags- og viðskipta- efnahagsumræð- eru umdeild mál og ég hef
nefndin verði mikil átaka- unnar er. látið mig varða.“ ■
FERÐAHÓPURINN VIÐ GLYM
Eins og sjá má er landslagið hriklalegt við fossinn Glym. Myndin var tekin af einum úr
ferðahópnum áður en ósköpin skullu yfir.
nesi komnir á staðinn og innan
þess hóps voru nokkrir björgun-
arsveitarmenn sem sérþjálfaðir
voru í óbyggðarbjörgun. Ekki var
hægt að notast við þyrlu Land-
helgisgæslunnar vegna óhag-
stæðra staðhátta en gilið er um
200 metrar. Garðar sagðist hafa
drifið sig aftur upp ásamt björg-
unarsveitarmönnunum til að ná í
konuna og hafi þeir verið komnir
á slysstað um áttaleytið. Sagði
hann það hafa tekið þrjá tíma að
komast með konuna niður við
mjög erfiðar aðstæður. Maðurinn
var fluttur á sjúkrahúsið á Akra-
nesi og reyndist ristar- og ökkla-
brotinn. Konan var hins vegar
flutt með sjúkrabifreið á Land-
spítalann í Fossvogi þar sem hún
liggur á bæklunardeild töluvert
slösuð. Fjöldi manns kom að
björguninni bæði frá Akranesi og
höfuðborgarsvæðinu. Garðar
sagði þessa menn hafa sannarlega
sýnt hvers þeir væru megnugir.
„Aðstæður voru eins erfiðar og
hægt var að hugsa sér og fyrst
þeir gátu athafnað sig með jafn
miklum sóma og raun varð á, þá
eru þeim allir vegir færir."
kolbrun@frettabladid.is
Björgunaraðgerðir við Glym:
Grípa þurfti til sund-
taka í jökulkaldri ánni
björgun „Það var mikið á menn
lagt í þessari björgunaraðgerð og
á einum stað í gilinu þurfti að
grípa til sundtaka í jökulkaldri
ánni til að styðja við börurnar,11
sagði Ásgeir Kristinsson, stjórn-
andi björgunaraðgerðanna við
Glym, þegar hann lýsti niður-
göngu björgunarmanna með kon-
una sem slasaðist. Ásgeir, sem er
úr björgunarsveitinni á Akranesi,
sagði aðstæður hafa verið mjög
erfiðar og menn hafi þurft að
klifra upp foss og vaða ána upp í
axlir. „Þessi aðgerð sýndi sig að
við eigum að skipa góðum mann-
skap sem er tilbúinn til að leggja
mikið á sig til bjargar öðrum og
má líkja þeim við hverja aðra auð-
lind.“ Ásgeir sagði ferðahópinn
frá Ævintýraferðum hafa brugð-
ist sérstaklega vel við. Sagði hann
allt skipulag hafa verið til fyrir-
myndar og greinilegt að menn
hafi verið tilbúnir til að bregðast
við ýmsum aðstæðum. ■
GRIPU TIL SUNDTAKA
Björgunarsveitarmenn þurfu að grípa til sund-
taka til að koma hinni slösuðu til byggða.
Varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli:
Afram hátt
viðbúnaðarstig
stríðsástand „Það er ennþá hátt
viðbúnaðarstig," sagði Friðþór
Eydal, upplýsingafulltrúi Varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli, en
tók fram að honum væri ekki
heimilt að gefa nákvæmari upp-
lýsingar, eðli máls samkvæmt
yrði leynd að hvíla yfir aðgerðum
Varnarliðsins vegna yfirvofandi
átaka í kjölfar hryðjuverka-
árásanna í Bandaríkjunum. „Það
er miklu meiri viðbúnaður hjá
okkur en að öllu jöfnu og ekki að
ástæðulausu, en ekkert nánara
hægt að gefa út um það.“ ■