Fréttablaðið - 02.10.2001, Qupperneq 6
SPURNING DAGSINS
Hefur þú áhyggjur af verkfalli
sjúkraliða?
„Ég hef ekki hugsað út í það. Sennilega
vegna þess að ég er svo heilsuhraustur
sjáifur"
Þorsteinn Eggertsson
textahöfundur
Bílsprengja í Kasmír:
15 létu lífið
sprinagar.indlandi.ap Að minnsta
kosti 15 manns létust þegar bíl-
sprengja sprakk í Kasmír á Ind-
landi í gær. Maður, grunaður um
að vera islamskur uppreisnar-
maður, ók bíl að þinghúsi borgar-
innar og sprengdi hann síðan upp
skömmu eftir að flestir þing-
mennirnir höfðu lokið fundi sem
þar var haldinn. Á sl. 12 árum
hafa islamskar uppreisnarsveitir
barist fyrir sjálfstæði frá Ind-
landi, eða fyrir samruna við ná-
grannaríkið Pakistan. Þúsundir
manna hafa fallið í valinnn í þeir-
ri baráttu. ■
—«—
Kjamorkurannsóknir:
Bein barna
notuð í heim-
ildarleysi
london. ap Bein voru fjarlægð úr
líkum um 3.400 þúsund breskra
barna á árunum frá 1954 til 1970
og þau notuð til að kanna áhrif
kjarnorkusprenginga á mannslík-
amann án þess að óskað væri eftir
samþykki foreldra barnanna.
Beth Taylor, talsmaður bresku
Kjarnorkustofnunarinnar stað-
festi þetta í gær og sagði að rann-
sóknirnar hefðu verið gerðar til
að kanna áhrif sprenginga í and-
rúmsloftinu á mannslíkamann.
Hún sagði að á þessum tíma hefði
almennt ekki þótt ástæða til að
spyrja aðstandendur hvort taka
mætti líkamshluti úr látnum ein-
staklingum. ■
—♦—
T ónlistarkennarar:
Garðabær
beiti áhrifum
sínum
VERKALÝÐ5MÁL Stjórn kennarafé-
lags Tónlistarskóla Garðabæjar
skorar á bæjarfulltrúa og bæjar-
yfirvöld í Garðabæ að beita áhrif-
um sínum af fullum þunga til
lausnar kjaradeilu tónlistarkenn-
ara við sveitarfélögin svo ekki
þurfi að koma til verkfalls tónlist-
arkennara. Stjórnin lýsir yfir
miklum vonbrigðum með að við-
ræður við samninganefnd sveitar-
félaga skuli ekki hafa þokast í
samingaátt. Stjórnin minnir á að
kjarasamningar tónlistarkennara
hafa verið lausir frá 1. desember
sl.|
[LÖGREGLUFRÉTTIRl
Mjög ölvaður ökumaður í
Hafnarfirði ók bifreið sinni
út af veginum við Reykjanes-
braut á móts við veitingastaðinn
Ak-inn um klukkan hálf tólf á
sunnudagskvöld. Hann slapp
ómeiddur en fékk að gista fanga-
geymslur lögreglunnar. Bifreiðin
var dregin í burtu með dráttarbíl
en var þó ekki mikið skemmd.
6
FRÉTTABLAÐIÐ
2. október 2001 ÞRIÐIUDAGUR
Suðurkjördæmi:
Kristján stefnir á toppinn
FRAiyiBOÐSMÁL Kristján Pálsson
þingmaður sjálfstæðismanna á
Reykjanesi segist stefna ótrauð-
ur að því að skipa efsta sæti á
lista flokksins í Suðurkjördæmi
við næstu þingkosningar.
Hann segir að vangaveltur ein-
hverra um að sækja frambjóð-
endur úr öðrum kjördæmum til
að veita listanum forstöðu brey-
ta engu um sína ákvörðun. Hann
vefengir einnig að einhverjir
forystumenn flokksins í héraði
hafi rætt þennan möguleika við
Þorgerði Gunnarsdóttir, öndvert
við það sem hún hefur sjálf stað-
DRÍFA HJARTAR-
DÓTTIR ÞING-
MAÐUR
Segist hafa orðið
vör við mikinn
stuðning við sig
KRISTJÁN PÁLS-
SON ÞINGMAÐ-
UR
Lætur ekki vanga-
veltur um aðra
frambjóðendur
raska sinni stefnu
fest við Fréttablaðið. í það
minnsta segir hann að enginn úr
kjördæmaráði flokksins vilji
kannast við að hafa lagt að Þor-
gerði að fara fram í Suðurkjör-
dæmi.
Drífa Hjartardóttir fyrsti
þingmaður flokksins í Suður-
kjördæmi segir að nægur tími sé
til stefnu til að ákveða hvort hún
muni vilja leiða listann við næstu
þingkosningar. Hún segist hins
vegar hafa fengið mikinn stuðn-
ing við sig í kjördæminu í fram-
haldi af fréttum um að lagt sé að
Þorgerði að gefa kost á sér. ■
^ Vestfjarðargöngin:
Ok utan í mann
og stakk af
LÖGREGLUMÁL Ekið var utan í mann
sem var á gangi í Vestfjarðar-
göngunum áleiðis til Flateyrar um
sexleytið á sunnudagsmorgun.
Ökumaður bifreiðarinnar nam
ekki staðar þrátt fyrir að hafa
ekið utan í manninn. Að sögn
lögreglunnar á ísafirði stendur
yfir leit að bifreiðinni og þeim
sem henni ók en samkvæmt lýs-
ingum mannsins er um dökka
skutbifreið að ræða.
Maðurinn leitaði sér aðstoðar á
sjúkrahúsinu á ísafirði og til-
kynnti þaðan atvikið til Iögregl-
unnar. ítomst maðurinn á sjúkra-
húsið með aðstoð ökumanns bif-
reiðar sem átti leið um. ■
Eigandi tafði sjálfur
fyrir Arnarneslandi
Bæjarstjóri Garðarbæjar segir uppbyggingu Arnarneslands hafa tafist
vegna viðræðna landeiganda við aðra aðila. Fulltrúi landeigandans segir
að gatnagerð hafa verið rædda við jarðvinnuverktaka en að líklegast sjái
bærinn þó um gatnagerðina. Lóðir verða seldar hæstbjóðanda.
HELDUR A GASGRlMU
Ray Vasquez heldur á gasgrlmu og síu
sem hann keypti í búð bandaríska sjóhers-
ins I Chicago. Búðin, sem setur vanalega
um eina grlmu á mánuði, hefur nú selt
meira en 6000 grlmur slðan hryðjuverka-
árásin átti sér stað I slðasta mánuði. Hver
grlma kostar um 4000 krónur.
sveitarstjórnir Ásdís Halla Braga-
dóttir, bæjarstjóri í Garðabæ, seg-
ir viðræður eiganda Arnarnesland
við þriðja aðila, verktakafyrir-
tæki, hafi tafið fyrir samningavið-
ræðum bæjaryfir-
valda og landeig-
andans um upp-
byggingu landsins.
Viðræðurnar
eru nú hafnar að
nýju. Ásdís Halla
segir þær m.a. snú-
ast um hver eigi að
sjá um gatnagerð,
um opin svæði, lóð
undir leikskóla og í
hvaða röð deiliskipulagið heimilar
að landið verði byggt upp.
„Ef landeigandi fær verktaka
til að leggja göturnar fær Garða-
bær hluta af gatnagerðargjöldun-
um til að byggja aðliggjandi götur
og við höfum verið að ræða hversu
stórt það hlutfall á þá að vera. Þá
er rætt um hversu stór opnu svæð-
in eigi að vera og hvort Garðabær
eigi að greiða fyrir þau eða fá þau
endurgjaldslaust. Lög kveða á um
að það sem samsvarar einum þrið-
ja af byggingarlóðum skuli fara í
opin svæði, göngustíga, leikvelli
og svo framvegis. Það er ekki
hægt að segja að það sé ágreining-
ur um þessi atriði en þetta hefur
dregist, aðallega vegna þess að
landeigandinn hefur verið í við-
ræðum við þriðja aðila,“ segir Ás-
dís Halla.
Hilmar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Byggingarfélagsins
Arnarness ehf. sem er í eigu Jóns
Ólafssonar, segir tafirnar á við-
ræðunum við Garðabæ hafa stafað
af því að verið var að kanna hvern-
ig hagkvæmast væri að standa að
gatnagerðinni. M.a. hafi verið rætt
—4—
„Áhugasamir
geti siðan
boðið I lóðirn-
ar enda eru
sumar lóðirn-
ar meira
spennandi en
aðrar."
—
JÓN ÓLAFSSON OG HALLDÓR J. KRISTJÁNSSON LANDSBANKASTJÓRI
Landsbankinn fjármagnaði kaup Jóns Ólafssonar á Arnarneslandinu árið 1998. Nú hillir
undir að fyrstu lóðirnar verði seldar hæstbjóðendum. „Þetta hefur dregist vegna þess að
landeigandinn hefur verið I viðræðum við þriðja aðila," segir bæjarstjóri Garðabæjar.
Bandarískur almenningur
óttasleginn:
Gasgrímur
oe sýklalyf
rjúka út
chicago.ap Bandaríkjamenn eru
afar varir um sig um þessar
mundir eftir hryðjuverkaárásina
þann 11. september síðastliðinn.
Gasgrímur, sýklalyf og handbæk-
ur sem fjalla um hvernig eigi að
komast af, hafa selst í gífurlegu
magni í þarlendum búðum. Mikil
eftirspurn hefur einnig verið eftir
samskonar vörum í hinum ýmsu
netverslunum. í versluninni
Amazon.com er t.a.m. bók um
sýklahernað í öðru sæti á lista yfir
mest seldu bækurnar. ■
Umferðarslys á Irlandi:
299 hafa látist á
arinu
við ýmsa jarðverktaka en að nú
stefni í að málið verði leyst með
hefðbundnum hætti, þe. að Garða-
bær sjái um gatnagerðina.
Ólilct því sem Ásdís Halla segir
telur Hilmar að náðst hafi sam-
komulag um opnu svæðin. Hann
segir ennfremur að ákveðnar hug-
myndir liggi fyrir um fram-
kvæmdaröðina. Arnarneslandinu
sé skipt í þrjú svæði og annað
hvort verði byrjað á miðsvæðinu
eða austasta svæðinu. „Það er
mjög góður andi í viðræðunum og
við vonumst til að geta lokað þessu
fljótlega og að fyrstu lóðirnar
verði byggingarhæfar næsta sum-
ar,“ segir hann.
Hilmar segir að lóðir verði lík-
legast seldar þannig að gefið verð-
ur upp lágmarksverð. „Áhugasam-
ir geti síðan boðið í lóðirnar enda
eru sumar lóðirnar meira spenn-
andi en aðrar, sérstaklega einbýlis-
húsalóðirnar."
gar@frettanbladid.is
dubli.írlandi.ap Ellefu manns lét-
ust í umferðarslysum um síðast-
liðna helgi á írlandi. Er þetta
mesti fjöldi fólks sem lætur lífið í
umferðinni á einni helgi frá því í
júlí á þessu ári þegar 12 létust.
Alls hafa því 299 manns látist í
umferðinni í landinu það sem af
er þessu ári. Yfirvöld á írlandi
höfðu stefnt að því lækka fjölda
látinna í umferðinni á árinu niður
fyrir 300, en svo virðist sem þær
áætlanir muni ekki standast. ■
Kvikmyndagerðarmaður um nýjan spjallþátt á PoppTíví:
Byggt á minni
hugmynd
kvikmyndagerð Steingrímur Dúi
Másson kvikmyndagerðarmaður
segir að hugmynd hans að þátta-
röð sem Stöð 2 hafnaði að taka til
sýninga fyrir tveimur árum gangi
nú að hluta til aftur í nýjum spjall-
þætti á sjónvarpsstöðinni Popp-
Tíví. PoppTíví er, eins og Stöð 2, í
eigu Norðurljósa hf.
Að sögn Steingríms Dúa tók
hann upp fyrir tveimur árum
kvikmynd sem fjallar um tvö vit-
granna vini sem ferðast um á am-
erískum húsbíl og fara á rúntinn í
tíu bæjum víða um land.
„Vinirnir eru að rannsaka rúnt-
inn á þessum stöðum og bjóða
fólki í glatað partý aftur í bílnum.
Ég bauð Stöð 2 að gera tíu þátta
seríu úr efninu en þeir vildu það
ekki. Nú er hins vegar kominn
spjallþáttur á PoppTíví þar sem
stuðst er við nákvæmlega sömu
grunnhugmynd að uppsetningu
sem þeir halda fram að sé þeirra
eigin. Menn eiga ekki að stíga
fram og segja að þeir séu að koma
með sínar eigin frumlegu hug-
STEINGRfMUR dúi másson
Steingrlmur Dúi, er hér við sambærilegan bíl þeim sem leikur stórt hlutverk I vegamynd-
inni sem hann er nú að klippa.
myndir þegar þeir eru í raun að fá
þær annars staðar frá. En fyrst og
fremst vil ég benda íslenskum
sjónvarpsstöðvum á að vera hug-
rakkari gagnvart góðum íslensk-
um hugmyndum í stað þess að apa
alltaf hlutina eftir öðrum,“ segir
Steingrímur Dúi.
Steingrímur Dúi segist hafa
mætt skilningi hjá dagskrárstjóra
PoppTívís sem hafi lofað að
spjallþátturinn á Popptíví myndi
ekki skaða bíómyndina. „Ég vil að
fólk átti sig á því að þarna er ver-
ið að taka hugmynd frá mér en
ekki öfugt,“ segir hann. ■
AP/MYND